Lesbók Morgunblaðsins - 18.12.1995, Síða 7
SÍÐUMÚLAKIRKJA í Hvítársíðu í Borgarfirði,
vígð 1916, er steinsteypt en hvorki stór né íburðar-
mikil. Sérkennilegt er umfang turnsins borið sam-
an við stærð kirkjunnar.
Ljósm.Lesbók/GS.
LEIRÁRKIRKJA í Leirársveit í Borgarfirði, vígð
1914, er hefðbundin að lögun en á henni sjást eigin-
lega ekki nein höfundareinkenni Rögnvaldar.
Klæðningin utan á kirkjunni er síðari tíma verk.
Ljósm.Lesbók/GS.
KEFLA VÍKURKIRKJA, steinsteypt kirkja vígð
1914. Ein af stærstu kirkjum Rögnvaldar, tekur
300 kirkjugesti ísæti.
Ljósm.Lesbók/ Björn Blöndal, Keflavík.
HÓLSKIRKJA í Bolungavík, vígð 1908. Turninn
ber svipmót Rögnvaldar en gluggaskipanin er frá-
brugðin öðrum kirkjum hans.
Ljósm.Lesbók/Gunnar Hallsson, Bolungavík.
BÍLDUDALSKLRKJA, vígð 1906, er fyrsta stein-
kirkja Rögnvaldar. Þótt hann næði góðum tökum
á timburkirkjunum, var hann sannfærður um að
steinsteypan væri framtíðar byggingarefni.
Ljósm.Lesbók/ Helga Jónasdóttir, Tálknafirði.
UNDIRFELLSKIRKJA í Vatnsdal, vígð 1915,
byggð úr steini og sérkennileg í þá veru að svip-
mikill turn er látinn standa út úr hlið kirkjunnar.
Ljósm.Lesbók/Jón Sigurðsson, Blönduósi.
KOTSTRANDARKIRKJA í Ölfusi, vígð 1909, stend-
ur á áberandi stað við þjóðveginn. Hér hefur Rögn-
valdur unnið eftir mjög hefðbundinni forskrift.
Ljósm.Lesbók/GS.
HVANNEYRARKIRKJA í Borgarfirði, vígð 1905,
er fallega staðsett við hús Bændaskólans á Hvann-
eyri. Hefðbundið lag, en íburðarmikill turn setur
svip á kirkjuna.
Ljósm.Lesbók/GS.
ÞJÓÐKIRKJAN í Hafnarfirði, vígð 1914, stærsta
steinkirkja Rögnvaldar. í steinkirkjunum reynir
hann ekki að halda svipmóti timburkirknanna, en
lætur steinsteypuna þess í stað njóta sín.
Ljósm.Lesbók/Þorkell.
af prýðilegustu guðshúsum þessa lands til
sveita og söfnuði og sóknarnefnd til stór-
mikils sóma.“ Hinsvegar brýnir biskup
fyrir söfnuðinum hvílík nauðsyn sé á ofni
með reykháf.
Menn létu sig samt hafa kuldann um
hríð, en 1939 lýsti sóknarpresturinn yfir
því á fundi, að hann sjái sér ekki fært
heilsu sinnar vegna að embætta í kirkj-
unni nema hún verði hituð upp. Og árið
eftir, 1940, var loks ráðin bót á því. Á
50 ára afmæli kirkjunnar voru ákveðnar
viðamiklar viðgerðir og endurbætur, sem
lokið var við 1958.
Þá var ekki til komin sú virðing fyrir
húsfriðun sem síðar hefur orðið, góðu
heilli. Sumt var gert til góðs; annað sem
gert var í góðum tilgangi reyndist vafa-
samt, ef ekki verra. Sem dæmi um það
má nefna, að heilar rúður höfðu verið
settar í glugga, en Rögnvaldur hafði haft
í þeim gluggapósta eins og myndin sýnir.
í annan stað voru loftbitar klæddir af
með olíusoðnu masóníti. Það hefur núna
verið fjarlægt. Barið hefur verið í brestina
með því að smíðaðir voru póstar, eftirlík-
ing af þeim upphaflegu, og festir utan á
rúðurnar. Þá var Húsfriðunarnefnd með
í ráðum og á hennar vegum hefur Leifur
Blumenstein gert úttekt á kirkjunni og
áætlun um frekar endurbætur sem miða
að því að viðhalda kirkjunni í sinni upp-
haflegu mynd. Bagalegt er að teikningar
Rögnvaldar virðast glataðar og engar
ljósmyndir hafa verið teknar inni í kirkj-
unni á fyrstu árum hennar. Búið er að
endurnýja gólfið, einangra það og bæta
undirstöður. Einangrun hefur verið sett
í veggi, bitar í miðskipi endurnýjaðir,
bekkir færðir í upprunalegt horf, en eftir
eru viðgerðir á turni og endurbætur utan-
húss eftir því sem fjármagn leyfir, segir
Melkorka Benediktsdóttir í grein um end-
urbyggingu Hjarðarholtskirkju í Dala-
blaðinu 1990.
Eins og myndin af Hjarðarholtskirkju
ber með sér, er hún krosskirkja, en síðan
lætur Rögnvaldur turninn fylla upp í eitt
hornið og inngangurinn er þar. Fyrir utan
oddbogana á gluggunum er kirkjan skil-
getið afkvæmi þeirrar tízku í húsagerð,
sem um aldamótin birtist í innfluttum
húsum frá Noregi. Þar nær timburhúsið
slíkri fágun að hún hefur ekki orðið meiri
í annan tíma og hefur staðizt tímans tönn
frábærlega vel. í þessum sama stíl teikn-
aði Rögnvaldur einnig kirkjuna á Breiða-
bólsstað í Fljótshlíð; mynd af henni er á
forsíðu þessa blaðs.
Húsavíkurkirkja
Vífilsstaðaspítalinn er stærsta verk
Rögnvaldar og mikilfenglegast þeirra húsa
hans, sem voru steinsteypt. Eg vil hinsveg-
ar líta svo á, að Húsavíkurkirkja sé kórón-
an í sköpunarverki Rögnvaldar, fremst
þeirra húsa s'em hann teiknaði áður en
kom að tímabili steinsteypunnar og raunar
vil ég telja hana eitt af þremur beztu verk-
um íslenzkrar byggingarlistar, fyrr og síð-
ar. Þótt ég geri mér ekki far um að sækja
messur, hef ég talið það sjálfsagðan hlut
að líta inn í Húsavíkurkirkju í hvert sinn
sem leiðin liggur þangað. Og þótt þessi
kirkja sé alltaf fremsta staðarprýði Húsa-
víkur, er það þó fyrst og fremst að innan
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 18. DESEMBER 1995 7