Lesbók Morgunblaðsins - 18.12.1995, Side 20
I
4
„ÓLAFUR muður/ ætlarðu suður?“ gæti verið texti við þessa mynd eftir
Söndru Karen Ragnarsdóttur, 8 ára, Kársnesskóla í Kópavogi.
TVÆR skessur á heimleið með mennska menn. Eftir íris Yok Gilbertsdóttur,
7 ára, Kársnesskóla í Kópavogi.
il. Þar gerðist hún hið versta óvætti og
grandaði ferðalöngum (ÓÞ:154). Katla bú-
stýra í Þykkvabæjarklaustri var ekki fas-
minni þegar hún komst að því að Barði
vinnumaður hefði stolið hlaupabrók hennar.
Gerði hún sér lítið fyrir, drekkti Barða í
sýrukeri, og lét hann liggja þar til vors.
En þegar minnkaði í kerinu, og sýnt þótti
að senn myndi „brydda á Barða“ tók hún
á rás og steypti sér ofan í Kötlugjá. Urðu
við það jarðeldar í jöklinum og hlaup sem
eyddi byggð við Alftaver á svokölluðum
Kötlusandi. (JÁ 1:175-176)
Andhiti Og ástleitni
Skapsmunir trölla - líkt og annarra vætta
- koma skýrast fram í andhita þeirra. Með
andhita er átt við þann eiginleika að geta
lagt á menn ógæfu eða vegsemd án þess
að um sé að ræða hrein galdrabrögð. Ánd-
hita fylgir mikill tilfinningaþungi og af hon-
um höfðu tröllkonur nóg, einkum þegar þær
hylltu til sín unga karlmenn - því vergjarn-
ar voru íslenskar skessur og djarftækar til
karla.
Því kynntist unglingspilturinn Runki, sem
einhverju sinni fór með nokkrum mönnum
í kolskóg og lágu þeir í tjaldi nærri gljúfri
einu. Eina nóttina upphófust mikil svefn-
læti í Runka, hristist hann og skalf, og
færðist óðum út undir tjaldskörina. Félagar
hans reyndu að halda honum en gekk það
ekki of vel. Einn þeirra hljóp út úr tjaldinu
og sá þá stórkonu standa á gljúfursbarmin-
um. Fálmaði hún höndunum til tjaldsins og
dró að sér. Maðurinn greip bitra skógaröxi
og hljóp að henni með reidda öxina. Hvarf
hún þá í gilið, en Runki róaðist. Nokkrum
dögum síðar rann aftur æði á Runka og
náðist hann þá á gilbrúninni. Gaf hann þá
skýringu að konan sem sig hefði dreymt
hefði rétt sér hönd, og hann þá orðið ósjálf-
ráður. Hann varð aldrei samur maður og
alltaf þráði hann í gilið tii skessunnar eftir
þetta. (ÓÞ: 144-146)
Náttúran Kallar
Sálskýrendur hafa löngum bent á það, að
í ævintýrum sé að fínna dulbúna úrvinnslu
óræðra tilfínninga sem bærist með hverjum
og einum. Kynjaverur ævintýranna og at-
burðarás þeirra sé dulbúin framsetning á
þeim hugmyndum sem einkum böm og
óhörðnuð ungmenni geri sér um heiminn.
Risamir séu t.d. holdgervingar fullorðna
fólksins í augum barna. Ekki þarf mikið
hugarflug - eða sálrænt innsæi - til þess
að sjá í íslenskum tröllasögum óttablandna
löngun ungra karlmanna til kvenna og hve
fyrsta kynlífsreynslan getur vaxið mörgum
þeirra í augum. Við sjáum líka að náttúran
kallar á unga karlmenn allra stétta. Jafnvel
prestamir áttu það til að tryllast í miðri
prédikun og kveða við raust um leið og
þeir hlupu á fjöll í faðm stórkonunnar:
Takið úr mér svangann og langann;
nú vil ég að gilinu ganga,
takið úr mér vilin og svilin;
fram ætla eg í Mjóvafjarðargilið.
(ÓÞ: 143-144)
KVENNASAMSTAÐA
Það er viðtekin skoðun að þjóðsögur miði
að því að staðfesta ríkjandi hugmyndir og
festa í sessi. Um leið hafa
þjóðsagnafræðingar orðið þess varir að
margar þjóðsögur fela í sér dulinn boðskap
- sem oft birtist í hneigð sagnanna fremur
en byggingu þeirra. Þau átök sem oft verða
milli karlmanna og tröllkvenna em dæmi
JÓLANÓTT - Skessa komin til mannabyggða og hefur komið auga á mann.
Eftir Berglindi Hauksdóttur, 9 ára, Kársnesskóla í Kópavogi.
SKESSA með sex hendur hefur náð manni. Eftir Sverri Má Bjarnason, 7
ára, Árbæjarskóla í Reykjavík.
um augljósa togstreitu í þjóðsögum. En að
baki þeim átökum skín oft í gott
samkomulag milli þeirra tveggja kvenþjóða
sem byggja landið. Samheldni kvenna er
einkum við bragðið í álfasögum, þar sem
mennskar konur og huldur hjálpast að í
þrengingum og bamsfæðingum, því svo
virðist sem þarnsfæðingar í læknislausu
landi hafí krafíst skilyrðislausrar samstöðu
(GB:336). Um það höfum við einnig allmörg
dæmi úr tröllasögum. Til eru sögur af
mönnum sem gera sér leik að því að glenna
sig í fótspor jóðsjúkrar skessu, og gera grín
að. Hefnist þeim grimmmilega fyrir flím
sitt og læti. í sama anda er það álitið
níðingsvérk að neita þungaðri skessu um
aðstoð, en mikið gæfuverk að hjálpa henni:
Það er því ljóst að þótt margar þjóðsögur
greini frá átökum manna og vætta - og
að niðurstaða þeirra átaka feli oft í sér sigur
mannfélagsins - þá miðla margar
vættasögur samúð og samkennd með þeim
sem verður undir í viðureigninni. Dæmi um
það era tvær sögur af ástum vætta og
manna, sem nú verða skoðaðar nánar.
ÁSTIR VÆTTA OG MANNA
Selmatseljan er saga af ungri heimasætu
sem lendir í indælu ástarævintýri með
fallegum huldusveini í selinu eitt sumar.
Hún verður barnshafandi og leynir þunga
sínum. Ljúflingurinn aðstoðar hana á laun
við fæðingu barnsins og tekur það til sín,
en hún snýr aftur til lífs og starfa í
mannheimi. Föður hennar grunar sitt af
hveiju, fínnur henni mannsefni og þröngvar
henni í hjónaband. Er svo allt með kyrrum
kjöram þar til dag einn að á bæinn koma
tveir menn til veturvistar, annar eldri en
hinn yngri. Húsfreyja vill ekkert af þeim
vita og helst ekki hitta þá, en svo fer þó
um síðir að hún er neydd til þess að heilsa
þeim eða kveðja. Fallast þau þá í faðma,
vetrarmaðurinn og húsfreyja og springa
bæði af harmi. Var þar þá kominn
ljúflingurinn með son þeirra frá því í selinu
forðum.
í sögunni um Ragnhildi matselju og
skessusoninn kemst Ragnhildur matselja í
kynni við hálftröll nokkurt, frítt og
föngulegt og góðum gáfum gætt. Eins og
við er að búast sækir hann mannseðlið í
karllegginn, en tröllskapinn í móðurætt.
Ofugt við aðfarir selmatseljunnar í
álfasögunni ákveður Ragnhildur að leita
samþykkis föður síns - hún fylgir m.ö.o.
reglum karlveldisins og lætur föður sinn
ráða. Það gefst henni vel, því hann fellst á
ráðahaginn. En móðir brúðgumans -
tröllskessan í fjallinu - er ekki jafnhrifin.
Tengdadóttirin tilvonandi grípur þá til þess
ráðs að færa henni vænan stamp af skyri
og mjólk til að mýkja kerlu. Það tekst, sú
gamla verður léttbrýn og tekur greypilega
til matar og fyllir sig vel, þakkar síðan fyrir
matinn, kastar kveðju á Ragnhildi oggengur
burt. Var hún seinfær því hún hafði borðað
heldur freklega. Á heimleiðinni hittir hún
son sinn á háum hamri, og er harla kát
yfir þeim ágætu móttökum sem hún fékk
hjá tengdadóttur sinni tilvonandi. Hann
kvað sér það vel líka, en þegar þau snúa
sér við og ætla þaðan reilcar kerling á
fótunum með fyllina, en hann bregður við
hart og hrindir á eftir svo kerling hrýtur
fram af og stóð ekki upp framar. (JÁ
111:257).
Hér sjáum við glöggt hvernig konurnar
tvær, önnur tröll en hin mennsk, ná að
mynda tengsl sín á milli, þvert á landamæri
hugar og heims. Öðru máli gegnir um
20