Lesbók Morgunblaðsins - 18.12.1995, Page 39
ÚR SÍLDVEIÐIÞÆTTI íslaadskvikmyndar Kafteins Dam. Um síldarþáttinn
sagði í Morgunblaðinu að „höfundur hefir ekki einblínt á framleiðsluna.
Hann hefir lagt áherslu á að lýsa í leiðinni því lífi, sem hrærist við síldveið-
arnar, hinu starfandi fólki, við erfiði þess og hvíld“.
ISLANDSMYND
Fiskimálanefndar
Grein Kambans fyrr um sumarið um mik-
ilvægi kvikmyndanna í sambandi við kynn-
ingu lands og þjóðar og markaðssókn hafði
þau áhrif á Fiskimálanefndina að hún beit
á agnið. Frásögn um fyrirhugaða kvik-
myndatöku er slegið upp sem stórfrétt á
forsíðu Alþýðublaðsins 3. ágúst 1935 og
segir þar að kvikmynd þessi verði um Is-
land, atvinnuvegi og þjóðlíf og að hún verði
tekin þá um sumarið, næsta vetur og sumar-
ið eftir. Fiskimálanefnd gangist fyrir
myndatökunni en Guðmundur Kamban rit-
höfundur stjórni henni. Nefndin eignar sér
frumkvæðið en tekur fram að grein Kamb-
ans hafi átt sinn stóra þátt í ákvörðun henn-
ar. Nefndin réð Kamban til að semja hand-
ritið en endurskoðaði það og hún lét kanna
hvaða kvikmyndir höfðu áður verið teknar
hér á landi af útlendingum og á von á að
fá eina þeirra til að nota efni úr í hina nýju
kvikmynd. Hvort þarna sé átt við mynd
Burkerts er ekki vitað en á endanurri var
notað efni frá honum. Daginn sem fréttin
birtist voru Kamban og þýskur maður, sem
tekur myndina undir stjórn hans eins og
það er orðað, komnir á fleygiferð í tökur.
Myndatökumaðurinn reyndist vera enginn
annar en dr. Paul Burkert.
Ákveðið var að fara þá leið að taka mynd-
ina á „mjóa myndræmu" (16mm), sem
hægt yrði að „kopiera" á breiðari mynd-
ræmu, eins og það var orðað. Tilgangur
með myndgerðinni var sagður þríþættur:
1) Að gera stuttar yfirlitsmyndir, 2) lengri
fræðslumyndir til að sýna með fyrirlestrum
og 3) myndir af framleiðslu og meðferð
aðalútflutningsvaranna til þess að sýna er-
lendis og greiða fyrir viðskiptum landsins
út á við. Frábær árangur af einni blaða-
grein. Væntingamar voru miklar, ef marka
má skrif dagblaðanna og ekki drógu frá-
sagnir og myndbirtingar af kvikmyndatöku
úr lofti úr þeim. En þegar Fiskimálanefnd
fékk loks að sjá afraksturinn blöskraði
nefndarmönnum svo kvikmyndatakan og
efnisvalið að ákveðið var að leggja þessi
kvikmyndaáform á hilluna. íslandsmyndin
varð því aldrei fullgerð. Hér voru á ferðinni
tímamótaáform, sem því miður fóru öll út
um þúfur, - og þó. Þótt íslandsfílma þeirra
Kambans kvikmyndastjóra og Burkerts
„kvikmyndatökumanns“, sem sennilega
kunni lítt eða ekkert til verka, yrði afskrifuð
í bókhaldi Fiskimálanefndar þá lifðu orð
skáldsins áfram. Áhrif neðanmálsgreinar-
innar, sem skrifuð var í kjölfar litlu Islands-
myndar MGM-félagsins, áttu eftir að segja
til sín. Áður en áratugurinn var á enda
hafði litil þúfa því vissulega velt þungu hlassi
en það gerðist með eftirfarandi hætti:
Heimssýningin í New YORK
Þegar hafist var handa um gerð íslands-
myndar Fiskimálanefndar hafði nefndin
gert ráðstafanir til þess að íslenskur maður
lærði myndatöku erlendis og fengi til þess
styrk, sem einnig nýttist til kaupa á kvik-
myndatökuvél. Fyrir valinu varð Vigfús Sig-
urgeirsson, ljósmyndari á Akureýri. Um
þessar mundir voru umtalsverð átök um
fisksöluna milli Fiskimálanefndar og Sölu-
sambands ísl. fískframleiðenda, sem gæti
hafa ýtt undir ákvörðun SÍF um að styrkja
Loft Guðmundsson til að gera nýja hejmild-
armynd um íslenskan sjávarútveg, sem hann
hófst handa um skömmu eftir að mynd
Fiskimálanefndar hafði verið afskrifuð.
Fljótlega eftir að Vigfús kemur heim frá
kvikmyndatökunámi í Þýskalandi felur Sam-
band íslenskra samvinnufélaga honum að
taka kvikmyndir af íslenskum landbúnaði.
2. júní árið 1938 liggur fyrir, samkvæmt
frétt Morgunblaðsins, að bæði Loftur og
Vigfús eru önnum kafnir við að kvikmynda
efni, sem nota á í mikla íslandskynningu á
fyrirhugaðri heimssýningu í New York árið
1939. Fiskimálanefnd, og væntanlega fleiri
aðilar, samþykkti að veija fé til undirbún-
ings sýningarinnar og leit svo á að þátttöku
íslendinga í þessari sýningu mætti skoða
sem markaðsleit eða auglýsingu á fram-
leiðslu íslendinga. Það var því tiltekið af
hálfu nefndarinnar að fjármunum þeim sem
frá nefndinni komu skyldi varið „m.a. til
kvikmyndasýninga á íslensku atvinnulífí".
Þetta sama sumar kemur upp sú hugmynd
hjá sjóliðsforingja í danska hemum, E. Foss
sem þá vann við landmælingar á íslandi,
að fá fyrrum kaftein í danska sjóhernum,
André M. Dam, til að taka kvikmyndir á
íslandi. Þessi hugmynd varð að veruleika
með samþykki stjómarinnar í Danmörku
og íslenska forsætisráðherrans. Svo vel
tókst til um gerð þessarar myndar Dams að
í Þýskalandi fékk hún æðstu viðurkenningu
fyrir myndatöku og efnisval og var sagt að
hún hefði greitt fyrir viðskiptasamningum
á milli íslands og Þýskalands. Kvikmynda-
gerðin var farin að skila árangri fyrir at-
vinnulífíð. Ekki leið á löngu áður en ákveð-
ið var að efni úr þessari íslandskvikmynd
Dams yrði notað í hina fyrirhuguðu íslands-
kvikmynd á heimssýningunni í New York
og var sagt frá því í Morgunblaðinu 7. febr-
úar 1939 að flotamálaráðuneytið danska
hefði heimilað afnotin. Og enn bættist við
liðsauki, sem var Mark Watson. Hann hafði
verið við litmyndatökur um þvert. og endi-
langt ísland sumarið 1938 og bauð nú skipu-
leggjendum hátíðarinnar afnot af efni sínu.
Úr öllum þessu mikla efniviði varð nú til
íslandsmynd, 16mm mjófílma, sem var til
þess fallin að gegna veigamiklu hlutverki á
fyrstu heimssýningunni, sem íslendingar
tóku þátt í. Þar með var framtíðarsýn Kamb-
ans orðin að veruleika, að íslendingar undir
eftirliti og ábyrgð íslenska ríkisins byggju
til kvikmynd, sem lýsti að öllu leyti „landi
voru og þjóð eins og vér viljum almennt
sjálfir kannast við oss“. Kynningarmyndin
sem áróðursmiðill (propaganda), varð nú í
lok fjórða áratugarins í fyrsta sinn að öflugu
vopni í margslunginni baráttu þjóðarinnar
fyrir því að lifa af á einhveijum mestu
krepputímum þessarar aldar. Islandskvik-
myndin á heimssýningunni í New York varð
í senn landssýn og heimssýn.
Helstu heimildin
Þór Whitehead: íslandsævintýri Himmlers 1935-1937,
útg. 1988
Paul Burkert: Insel unter Feuer und Eis, Montanus
Druck, Berlin 1935
Arnór Sigurjónsson: Fiskimálanefnd, Skýrsla tíu ára,
1935 - 1944
Guðmundur Kamban: íslenzk kynnisstarfsemi, Al-
þýðublaðið, 26. júní 1935
Dagblöð 1930, 1935, 1938 og 1939
Þorsteinn Einarsson, viðtal 22. nóv. 1995
Kvikmyndir Paul Burkerts
Erlendur Sveinsson og Sig. Sverrir Pálsson: Kvik-
myndaþættir fyrir sjónvarp, 1978
Höfundur er kvikmyndagerðarmaður. Greina-
röðin er unnin á vegum Kvikmyndasafns fs-
lands og Lesbókar.
ÞORBJÖRG DANÍELSDÓTTIR
Vissan
Efastu ekki
minn kæri vinur
um tilveru Guðs
sem hefur kenntþér
fremur öðrum
að elska og virða
sköpun sína alia
sem fyrir augu ber.
Hann knýr á dyr hjarta þíns og bíðurþess aðþú opnir,
hann heyrir tregaandvörpþín ogþráir aðhugga þig,
hann er Ijósið ímyrkrinu sem þú leitaren finnurekki,
hann er vissan að baki vonarinnar sem þú hefur
Þú sérð ekki
kristaila snjókornsins
sem fellur tiljarðar
en þeir eru.
Þú sérð ekki
frumeindir steinsins
sem þú meitlar
en þæreru.
Þú sérð ekki
atóm stálsins
sem þú sníður
en þau eru.
En líttu á
hendur þínar,
þessar hendur
sem hafa mátt
til að skapa
nýja fegurð
úr litum,
stáli og steinum.
Þær hendur
eru Guðs gjöf
því Guð er.
Tileinkað Grími Marinó Steindórssyni myndhöggvara.
Höfundur er formaður sóknarnefndar í Digranessókn.
SIGURJÓN ARI SIGURJÓNSSON
Vetur
Tunglið á hafínu húmdökku glitrar,
himinninn þúsundum hnattaugum titrar,
haustgolan strýkur um steinana hlý,
það stirnir á daggartár grasinu í,
dagurinn sefur í húminu hljóður,
hallar sér þétt upp að sefandi móður,
hennar sem væng sínum vefur svo rótt
að veröld í draumlausum svefni um nótt.
Þá hrannast upp hrollkaldur ógnþrunginn vetur,
hríðin og stormurinn fjötur sinn setur
á landið sem úður var iðgrænt, og rís
í æðandi brynju úr helköldum ís,
af draumlausum svefni er veröldin vakin,
vonin og gleðin úr brjóstinu hrakin,
undir rústum og snjó liggja lokaðar brár,
en lifenda hjörtu með blæðandi sár.
Það drífur að fólk inn á fönnina hvfta,
fáorðir, hljótt yfír skriðuna Ifta,
sorgin í orðlausri ógn sinni býr,
örvænting hugprúða leitarmenn knýr,
þjóðin öll harmþrungin huggunar biður,
að himnanna faðir, og náð hans og friður,
stijúki burt harminn úr helkaldri sál,
í hjartanu lægi hið æðandi bál.
Nú leitum við Drottinn, með Iogasár hjörtu,
að Ijósinu þínu svo skínandi björtu,
að það megi senda í sorginni trú,
að syrgjendum öllum í þjáningu hlú,
gef þú að hugirnir huggunar njóti,
hjartasár grói í þungbæru róti,
og algóður eilífur kærleikur þinn,
örvænting þeirra burt strjúki af kinn.
Höfundur er framkvæmdastjóri í Reykjavík.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 18. DESEMBER1995 39