Morgunblaðið - 25.01.2001, Side 2

Morgunblaðið - 25.01.2001, Side 2
FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isÞórir Hergeirsson aðstoðarþjálfari norska kvennalandsliðsins? / B1 Allt um heimsmeistarakeppnina í Frakklandi á B1–B8 8 SÍÐUR Viðskiptablað Morgunblaðsins Sérblað um viðskipti/atvinnulíf 12 SÍÐUR Sérblöð í dag SVOKÖLLUÐ listeríusýking kom upp í reyktum laxi frá SÍF France S.A., dótturfélagi SÍF í Frakklandi, í síðustu viku. Að sögn Birgis Sævars Jóhannssonar, framkvæmdastjóra félagsins, var þegar gripið til sértækra fyrirbyggjandi aðgerða, málinu sé formlega lokið og án eftirmála. Hærra magn af listeríugerlum en leyfilegt er samkvæmt reglugerðum fannst í einni 160 gramma pakkningu af reyktum laxi frá SÍF France við sýnatöku 12. janúar sl. Birgir segir list- eríu þekkta bakteríusýkingu við framleiðslu á reyktum fiski, svo sem laxi og síld. Frönsk heil- brigðisyfirvöld taki reglulega sýni úr öllum kæld- um matvælum og við slíka sýnatöku hafi komið fram listeríusýking í tiltölulega lítilli framleiðslu- lotu, um 786 kílóum, af reyktum laxi frá SÍF France. Listeríumagnið hafi verið heldur hærra en reglugerðir segja til um. Laxinum var pakkað í lofttæmdar umbúðir og dreift til verslana 22. desember. Birgir segir að innan SÍF France sé öflugt innra gæðaeftirlit og reglulega séu tekin sýni úr framleiðsluferli vör- unnar, allt frá pökkun til loka endingar hennar. „Okkar gögn voru hins vegar ekki í samræmi við niðurstöður franskra heilbrigðisyfirvalda. Við telj- um því nánast öruggt að sýkingin hafi komið upp þar sem loft hefur komist í pakkningar. Eins getur verið að kælikeðja hafi rofnað og þessi tiltekna pakkning legið í öðru hitastigi en kjörhitastigi sem er 0 til 4 gráður. Við slíkar aðstæður getur bakt- erían verið fljót að fjölga sér.“ Enginn orðið fyrir óþægindum Listería getur að sögn Birgis verið hættuleg lasburða fólki í miklu magni en hjá heilbrigðum lýsi einkenni listeríusýkingar sér á svipaðan hátt og hiti og kvef. Birgir segir að SÍF France hafi þegar ákveðið að fara í fyrirbyggjandi aðgerðir, enda slík mál ætíð tekin alvarlega. „Framleiðslan var innkölluð hjá dreifingaraðilum en einnig var þeim neytendum, sem mögulega gætu enn þá átt vöruna heima hjá sér, gert viðvart. Hins vegar er ólíklegt að enn þá hafi mikið verið eftir af þessari framleiðslu vegna þess að ending hennar rann út 16. janúar. Þetta voru því fyrst og fremst fyr- irbyggjandi aðgerðir. Eins settum við upp um- fangsmikla símsvörun til að allir sem hefðu áhyggjur eða spurningar varðandi málið gætu fengið skýringar frá fyrstu hendi. Samtals fengum við um 1.400 símtöl en samkvæmt okkar bestu vit- und hefur enginn orðið fyrir óþægindum vegna þessa. Við fengum síðan á þriðjudag staðfest frá frönskum heilbrigðisyfirvöldum að þessu máli væri formlega lokið, án eftirmála,“ segir Birgir. Bakteríusýking finnst í fiskafurðum frá SÍF í Frakklandi Listería í reyktum laxi HARPA VE kom í gær til Vesta- mannaeyja með 350 tonn af loðnu og var gert ráð fyrir að um 100 tonn af aflanum færi í frystingu fyrir Rússlandsmarkað hjá Ísfélag- inu. Þetta er fyrsta loðnan sem fer í frystingu í Eyjum á þessu ári. Um 15 konur fá vinnu við frystinguna hjá Ísfélaginu en ekki hefur verið unnið þar síðan síldin kláraðist fyr- ir helgi. Heimaey VE, sem er í eigu Ís- félagsins, kom til Eyja í gær úr sinni fyrstu veiðiferð á þessu ári með 15 tonna afla, aðallega þorsk, eftir fjögurra daga veiðiferð. Stærsti hluti aflans fór í vinnslu hjá undirverktaka Ísfélagsins og restin var seld á fiskmarkaði. Morgunblaðið/Sigurgeir Heimaey VE, sem er í eigu Ísfélagsins, kom til Eyja í gær með bolfisk úr sinni fyrstu veiðiferð eftir áramót. Loðna fryst í Eyjum  Erum nánast/6 Í BRÉFI, dagsettu í gær, miðviku- dag, frá skrifstofu Hæstaréttar til Ragnars Aðalsteinssonar, lögmanns Öryrkjabandalagsins, kom fram að fyrirspurn forsætisnefndar Alþingis til forseta Hæstaréttar um dóm Hæstaréttar í öryrkjamálinu hefði verið borin undir alla dómara Hæstaréttar og að meirihluti dóm- ara réttarins hafi veitt umboð sitt til að svara forsætisnefnd. Bréf Hæstaréttar til Ragnars Að- alsteinssonar var svar við fyrirspurn hans frá í gær, þar sem hann krafðist nákvæmrar skýringar á þátttöku dómara Hæstaréttar í svarbréfi for- seta Hæstaréttar. Ragnar er ósáttur við svar Hæsta- réttar við bréfi sínu, þar sem ekki kemur fram að svarbréf forseta Hæstaréttar til forsætisnefndar hafi verið sent eftir formlega ákvörðun dómara Hæstaréttar. „Það bendir ekkert til þess að erindi forsætis- nefndar hafi verið tekið fyrir á fundi eins og venja er í Hæstarétti, þar sem allir áttu þess kost að tjá sig, hvorki um hvort svara átti bréfi for- sætisnefndar og enn síður um svar- ið,“ sagði Ragnar. Hann segist þurfa að vita um þátttöku dómara Hæsta- réttar í svari til forsætisnefndar ef til þess komi að hann þurfi að flytja mál ÖBÍ aftur. „Ef þeir tóku þátt í efni svarsins til forsætisnefndar eru þeir vanhæfir eins og Garðar Gíslason.“ Telur svör Hæstaréttar ófullnægjandi Lögmaður Öryrkjabandalagsins skrifaði Hæstarétti bréf í gær FLUGLEIÐAVÉL, sem flytja átti tæplega 200 farþega ferðaskrifstof- unnar Úrvals-Útsýnar heim frá Kanaríeyjum í gær, seinkaði um sól- arhring vegna dauðsfalls farþega. Vélin sem sækja átti fólkið var á útleið þegar einn farþeganna fékk hjartaáfall og lést þrátt fyrir að- hlynningu læknis sem einnig var far- þegi í vélinni. Þegar komið var til áfangastaðar var þarlendum yfir- völdum gert viðvart um dauðsfallið en samkvæmt spænskum reglum verður dómari að koma á vettvang og gefa út dánarvottorð og staðfesta að dánarorsök hafi verið eðlileg. Þar til dómari kemur er vélin kyrrsett og ekki má hrófla við neinu. Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Flugleiða, var nokkurra klukkustunda bið eftir dómaranum og komið fram yfir lög- bundinn vinnutíma áhafnar. „Það var því ljóst að áhöfnin þyrfti að fá hvíld og í framhaldi var sú ákvörðun tekin að fresta heimför og farþegum komið fyrir á hóteli,“ sagði Guðjón. Hann benti á að mögulegt hefði verið að fljúga heim klukkan fjögur í nótt en þá hefðu farþegarnir þurft að bíða á flugvellinum í um tíu tíma sem fæstum þótti fýsilegur kostur. Kanaríeyjaflug Flugleiða Flugvél seinkar um sólarhring GARÐAR Sverrisson, formaður Ör- yrkjabandalagsins, telur það koma nokkuð á óvart að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, skyldi staðfesta lög Alþingis um breytingu á lögum um almannatryggingar og segir jafnframt að yfirlýsing forset- ans frá í gær, um þá ákvörðun sína, hafi verið mistök. Garðar segir það rétt að ekki sé hefð fyrir því að forseti lýðveldisins vísi málum til þjóðaratkvæða- greiðslu en telur ákvörðun forsetans engu að síður koma á óvart. „Í ljósi síendurtekinna ummæla hans um áhuga sinn í þeim efnum, ekki síst nú í sumar, þá kemur það auðvitað á óvart að hann skuli ekki leyfa þjóð- inni að taka afstöðu í þessum máli. Ég kýs að líta á yfirlýsingu hans sem mistök og misskilning miðað við þau rök sem hann færir fyrir ákvörðun sinni. Eftir sem áður ber ég samt virðingu fyrir forseta mínum og vona að þjóðin haldi áfram að gera það einnig. Þótt hann hafi með undirrit- un sinni staðfest lög sem taka til baka hluta af þeirri tekjutrygginu sem okkur var dæmd í Hæstarétti, þá firrir það ekki þingmeirihluta ábyrgð á afgreiðslunni.“ Aðspurður um hvort Öryrkja- bandalagið muni efna til nýrra mála- ferla eftir afgreiðslu þingsins á hinu umdeilda svonefnda öryrkjafrum- varpi segir Garðar: „Ég sé ekki bet- ur en að ólán okkar hafi falist í því að við unnum fullnaðarsigur fyrir Hæstarétti. Ef við hefðum ekki unn- ið málið fyrir Hæstarétti hefðum við fengið stjórnvöld dæmd fyrir mann- réttindabrot fyrir Mannréttinda- dómstólnum í Strassborg. Við höfum farið með málið dómstólaleiðina til enda og mér er því ekki alveg ljóst um hvað ný málaferli ættu að snú- ast.“ Formaður Öryrkjabandalagsins Ólán að málið vannst í Hæstarétti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.