Morgunblaðið - 25.01.2001, Qupperneq 26
ERLENT
26 FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÖLL olían, sem var um borð í olíu-
skipinu Jessicu, sem strandaði við
Galapagos-eyjar í síðustu viku, hef-
ur nú farið í sjóinn, rúmlega 600
tonn. Vinna nokkrir tugir manna við
að girða olíuflekkina af og hreinsa
þá upp, en í fyrradag breyttist vind-
áttin og þá rak stærstu flekkina
burt frá eyjunum. Olían hefur þó
lagst upp að nokkrum eyjum, meðal
annars Santa Fe þar sem mikið er
um sæljón og sækembur, stórvaxnar
eðlur, sem lifa á ýmsum sjávar-
gróðri. Þar eru líka landkembur en
þeim er ekki hætta búin þar sem
þær sækja ekkert í sjóinn. Á mynd-
inni má sjá sjómenn á Galapagos-
eyjum ausa olíunni upp með fötu.
AP
Öll olían í
sjóinn
TILKYNNT var í Brussel í gær, að
Evrópusambandið, ESB, og Noreg-
ur hefðu náð samkomulagi um nýjar
og róttækar ráðstafanir til að vernda
þorskinn í Norðursjó. Verður um
fimmtungi hafsvæðisins lokað fyrir
þorskveiðum um 10 til 12 vikna skeið
frá og með miðjum febrúar næst-
komandi eða á þeim tíma og á þeim
svæðum þar sem hrygningin er
mest.
Öll veiðarfæri, sem geta tekið
þorsk, verða bönnuð á þessum svæð-
um fram í maí en veiðar á uppsjáv-
arfiski verða leyfðar. Betur verður
þó fylgst með þeim veiðiskap en áður
og meðal annars munu eftirlitsmenn
verða um borð í nótaskipunum um
nokkurt skeið á þessum 10–12 vik-
um.
Bitnar harðast á Dönum
Þessar lokanir eru enn eitt áfallið
fyrir sjómenn við Norðursjó, sem
gera sér þó flestir grein fyrir, að eitt-
hvað verður að gera til að koma í veg
fyrir algert hrun þorskstofnsins.
Koma þessar ráðstafanir sér verst
fyrir danska sjómenn enda er lok-
unin mest undan ströndum Jótlands.
Skoskir sjómenn sleppa betur og
segjast talsmenn þeirra samþykkja
aðgerðirnar þótt erfiðar séu.
Breska stjórnin hefur einnig lýst
yfir stuðningi við þorskveiðibannið,
sem hún segir mjög mikilvægt eigi
að afstýra því, að þorskurinn hverfi
með öllu úr Norðursjónum. Hún
kom þó í veg fyrir, að bannið yrði enn
víðtækara, en lagt hafði verið til, að
það næði til 40% af hinum hefð-
bundnu miðum skoskra sjómanna.
Niðurstaðan var 15–20%.
Langt undir hættumörkum
Þorskstofninn í Norðursjó hefur
verið á niðurleið allt frá árinu 1963
þegar fyrst var farið að fylgjast
reglulega með honum. 1970 var
stofninn 250.000 tonn en nú er talið,
að hann sé um 70.000 tonn, sem er
aðeins helmingur af því, sem vísinda-
menn segja nauðsynlegt til að
tryggja viðgang tegundarinnar.
Í desember síðastliðnum var
þorskkvótinn í Norðursjó skorinn
mikið niður og raunar kvótar í öðr-
um tegundum líka en auk þess er
stefnt að stórhertu eftirliti með veið-
unum.
Nýjar ráðstafanir til að vernda þorskinn í Norðursjó
Veiði bönnuð á
stórum svæðum
ROLAND Dumas, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Frakklands, neitaði
því í vitnisburði fyrir rétti í gær að
hann hefði fengið þáverandi ríkis-
olíufélagið Elf Aquitaine til að ráða
hjákonu sína sem tengilið milli skrif-
stofu sinnar og fyrirtækisins.
Dumas þarf ásamt fimm öðrum
sakborningum, þ.á m. fv. forstjóra
Elf, að svara til saka fyrir meint
spillingarbrot, en ásakanirnar snú-
ast aðallega um háar fjárgreiðslur
sem hjákona Dumas, Christine Dev-
iers-Joncour, þáði á meðan Dumas
var ráðherra á árunum 1989–1992, í
forsetatíð Francois Mitterrands.
„Ég bað aldrei neinn um neitt,“
bar Dumas í gær fyrir réttinum.
„Hefði ég beðið einhvern að ráða
ungfrú Deviers-Joncour hefði ég
snúið mér beint til Loik Le Floch-
Prigent forstjóra (Elf), sem ráð-
herra getur leyft sér að gera.“
Málaferlin gegn Dumas eiga sér
meira en þriggja ára aðdraganda og
hefur umfjöllunin sem þeim hafa
tengzt á þessum tíma mest minnt á
sápuóperu, þar sem forréttindi, völd
og forboðin ást eru drifkraftarnir.
Réttarhaldið hófst á mánudag og
er gert ráð fyrir að þeim ljúki 13.
febrúar.
780 millj. kr. í „umboðslaun“
Í fyrradag bar fyrrverandi starfs-
maður Elf fyrir réttinum, að Dumas
hefði beðið um að vinkona hans yrði
tekin á launaskrá Elf og fengi
greidda 64,5 milljónir franka, and-
virði yfir 780 milljóna króna, að
mestu í formi umboðslauna, á
þriggja ára tímabili. Dumas er sak-
aður um að hafa sjálfur notið góðs af
dýrum gjöfum sem keyptar voru
fyrir fé úr sjóðum Elf og að hafa
deilt með Deviers-Joncour lúxusíbúð
í París sem keypt var fyrir fé úr
sömu sjóðum.
Grunur leikur á því að Deviers-
Joncour hafi verið greitt fyrir að
hafa áhrif á afstöðu Dumas til tiltek-
inna mála, einkum og sér í lagi að
telja hann á að fá ríkisstjórnina til að
samþykkja umdeildan útflutning á
frönskum herskipum til Taívan árið
1991. Ekki er reiknað með því að
þetta tiltekna mál komi þó til kasta
réttarins að sinni.
Frá því réttarhaldið hófst á mánu-
daginn hefur hann látið sem fyrrver-
andi ástkona hans (sem skrifaði met-
sölubókina „Hóra lýðveldisins“)
væri ekki til þótt hún væri líka í rétt-
arsalnum. Deviers-Joncour er líka á
sakamannabekknum, sökuð um að
hafa þegið ólöglegar greiðslur.
Vegna ásakananna sem á hann
eru bornar þurfti Dumas að segja af
sér virðingarembætti forseta
franska stjórnlagaráðsins (Conseil
Constitutionel), en verði hann sak-
felldur á hann yfir höfði sér allt að
fimm ára fangelsisdóm og háa fjár-
sekt.
Réttarhald hafið í einu umtalaðasta hneykslismáli síðari tíma í Frakklandi
Dumas neitar
nýjustu
ásökununum
AP
Roland Dumas mætir í dómsal í
lögreglufylgd.
AP
Christine Deviers-Joncour, fyrr-
verandi hjákona Dumas.
París. AP, AFP.
ÁSTÆÐA afsagnar Peter Mandel-
sons úr embætti ráðherra Norður-Ír-
landsmála í bresku ríkisstjórninni í
gær er afskipti Mandelsons af um-
sókn indverska auðkýfingsins Srich-
and Hinduja, um breskan ríkisborg-
ararétt.
Komið hefur á daginn að Mandel-
son hringdi í aðstoðarráðherra í inn-
anríkisráðuneytinu, til að spyrjast
fyrir um afgreiðslu umsóknarinnar.
Það sem þykir vafasamt við fyrir-
spurn ráðherrans fyrrverandi er að
hún átti sér stað á sama tíma og
Hinduja og bræður hans staðfestu að
þeir hyggðust leggja 1 milljón punda
(125 millj. ísl. kr) til Þúsaldarhvelf-
ingarinnar sem á sínum tíma heyrði
undir Mandelson.
Þær raddir sem knúðu á um af-
sögn Mandelsons urðu æ háværari í
vikunni og hafa misvísandi upplýs-
ingar um aðild Mandelsons að um-
sókn Srichands ekki dregið úr þeim.
Segja má að málið hafi hafist sl.
fimmtudag er þingmaður Frjáls-
lynda flokksins, Norman Baker,
gerði skriflega fyrirspurn til aðstoð-
arráðherra innanríkisráðuneytisins
um tengsl Mandelsons og umsóknar
Hinduja um ríkisborgararétt. Í
svarinu kom í ljós að Mandelson
spurðist fyrir um hvernig litið yrði á
umsóknina, án þess þó að knýja á um
afgreiðslu hennar. Baker kom þessu
svari á framfæri við dagblaðið The
Observer sem hafði eftir Mandelson
á sunnudag að hann hefði ekki komið
nálægt málinu sjálfur heldur hefði
einkaritari hans fengist við óform-
lega fyrirspurn Srichands.
Á mánudag varðist talsmaður Bla-
ir, Alastair Campell, ásökunum um
að Mandelson hefði hagað sér með
óviðeigandi hætti eða notað áhrif sín
til að tryggja Srichand ríkisborgara-
rétt. Mandelson hefði gert nákvæm-
lega það sem gera átti og vísað mál-
inu til innanríkisráðuneytisins.
Á þriðjudag varð Campell hins
vegar að viðurkenna að hann hefði
haft rangt fyrir sér því rifjast hefði
upp fyrir Mandelson og Mike
O’Brien, aðstoðarráðherra í innan-
ríkisráðuneytinu, að Mandelson hefði
hringt í hann. Campell viðurkenndi
að fyrri yfirlýsingar í tengslum við
málið hefðu ekki verið með öllu sann-
ar. Mandelson sendi einnig frá sér yf-
irlýsingu þar sem hann vísar því á
bug að hafa gert nokkuð af sér, segist
eingöngu hafa átt tveggja mínútna
saklaust samtal við O’Brien.
Mandelson var síðan kallaður á
fund forsætisráðherrans í gærmorg-
un til að „koma staðreyndum málsins
á hreint“. Fregnir af fundinum eru
sagðar hafa skekið breska þingið
enda lá ekki fyrir að Mandelson segði
af sér. Hann tilkynnti hins vegar um
afsögnina að fundinum loknum en
gekk ekki frá henni formlega fyrr en
að loknum vikulegum fyrirspurna-
tíma forsætisráðherrans.
Mandelson hefur lengi verið mjög
umdeildur ráðherra, ekki síður innan
síns eigin flokks en utan. Hann er
barnabarn Herberts Morrisons sem
var frammámaður í Verkamanna-
flokknum. Á níunda áratugnum urðu
hann og Blair miklir vinir en Mandel-
son hefur löngum verið álitinn eiga
stóran þátt í sigri Blairs í formanns-
kjöri Verkamannaflokksins 1994 og
ekki síður sigrinum í kosningunum
1997.
Fyrri afsögn árið 1998
Það er því ekki að furða að Blair
skyldi launa þessum helsta ráðgjafa
sínum með ráðherraembætti og varð
hann viðskiptaráðherra um mitt ár
1998. Því embætti hélt hann einungis
til ársloka en þá komst upp að hann
hafði þegið umdeilt lán frá Geoffry
Robinson, aðstoðarráðherra í fjár-
málaráðuneytinu, að upphæð 375.000
pund (47 millj. ísl. kr.). Þar að auki
hélt hann því leyndu þegar ráðuneyti
hans tók til við að rannsaka fjármál
Robinsons. Lánið notaði Mandelson
til að fjármagna glæsihýsi sem hann
festi kaup á í Notting Hill. Það er þó
ekki eingöngu baktjaldamakk og lífs-
stíll Mandelson, sem þykir hafa
smekk fyrir glæsilíferni, sem hafa
farið fyrir brjóstið á flokkssystkinum
hans, né heldur að hann er samkyn-
hneigður og býr með brasilískum
kærasta sínum, heldur þykir Man-
delson hafa fært Verkamannaflokk-
inn of langt til hægri. Gömul gildi
jafnaðarmanna hafi fallið í gleymsk-
unnar dá.
Missagnir urðu
Mandelson að falli
London. AFP, The Daily Telegraph