Morgunblaðið - 25.01.2001, Blaðsíða 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2001 35
GÖRAN Klinghagen er einn
fremsti djassgítarleikari Svía og hef-
ur dvalið hér um hríð ásamt landa
sínum trommaranum Terje Sundby.
Hafa þeir verið gestakennarar við
tónlistarskóla FÍH, en þar á bæ tíð-
kast kennaraskipti við önnur Norð-
urlönd. Hafa m.a. Sigurður Flosason
og Hilmar Jensson kennt í Svíþjóð í
slíkum skiptum.
Þeir Klinghagen og Sundby leika
m.a. með tríói í Svíþjóð þar sem þriðji
meðlimurinn er sellisti. Engum
djasssellista er til að dreifa á Íslandi
svo Gunnar Hrafnsson kom í staðinn
með kontrabassann.
Tónsmíðar kvöldsins voru flestar
eftir Klinghagen, en einni og einni
eftir Sundby skotið inn á milli. Fæst-
ar voru kynntar og ekki auðvelt að
þekkja tónsmíðar þeirra félaga í
sundur fyrir þá er heyrðu þær í fyrsta
skipti. Ég hafði þó fengið í hendur
fyrir nokkrum dögum nýjusta disk
Klinghagen: Na’s The Time, þar sem
m.a. pólski trompetmeistarinn Tom-
azs Stanko blæs með gítaristanum og
á bassann er Palle Danielsson, en
með honum og Lars Danielsson,
helstu bassasnillingum Svía, hefur
Klinghagen unnið mikið. Lokalag
þess disks er minningarljóðið Mr.
Lowe og á því luku þeir félagar einnig
tónleikunum. Angurvær ballaða
mörkuð þeim trega sem er nær heið-
ríkju norðursins en mistri suðursins.
Göran Klingshagen á rætur að
rekja til rokksins, eins og flestir gít-
arleikarar á hans reki og Jimi Hendr-
ix og John McLaughlin settu sitt
mark á hann. Það gerðu einnig klass-
ískir djassgítarleikarar á borð við Jim
Hall, Jimmy Raney og Wes Mont-
gomery og síðast en ekki síst Norð-
maðurinn Terje Rypdal, sem öðrum
fremur hefur skapað hinn norræna
djassgítarhljóm. Sumt af þessum
áhrifum mátti heyra í leik Klingshag-
en, helst þó frá Rypdal. John Abercr-
ombie hughrif voru líka til staðar hjá
Klinghagen, ekki síður en í leik ann-
ars af stórgítarleikurum Norður-
landa, Danans Karstens Houmarks.
Enginn vex af neinu og höfuðatrið-
ið er að safna hinum ýmsu áhrifum
saman til að efla eigin persónulega
tónsköpun og það hefur Göran Kling-
hagen tekist. Það átti ekki sístan þátt
í því hversu áheyrilegir þessir tón-
leikar voru og ekki spillti fyrir fínn
trommuleikur Sundbys og Gunnar
Hrafnsson stóð sig með mikilli prýði.
Það er eins og þessi hæfileikaríki
bassaleikari sé alls staðar á heima-
velli.
Norræn-
ir djass-
tónar
DJASS
T ó n l e i k a r
Göran Klinghagen gítar, Gunnar
Hrafnsson bassa og Terje Sundby
trommur. Sunnudagskvöldið
21. janúar 2001.
KAFFI REYKJAVÍK
Vernharður Linnet
þ