Morgunblaðið - 25.01.2001, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2001 37
Skemmtilegt og hnyttið nýtt leikrit sem fjallar á gamansaman hátt
um alvarlegan árekstur í sambandi tveggja bræðra.
Pálmi Gestsson
Baldur Trausti Hreinsson
eftir Kristján Þórð Hrafnsson
KOMIÐ hefur fram
í opinberri umræðu
undanfarna daga að
dómsmálaráðuneytið
hafi til úrlausnar er-
indi frá Varnan ehf.
um að fyrirtækið taki
að sér umferðareftir-
lit. Hér er um að
ræða hraðamælingar
á ómerktum bifreið-
um sem búnar eru
svonefndum hraða-
myndavélum. Eftirlit-
ið sem um ræðir er í
raun gagnasöfnun og
ekki eru höfð bein af-
skipti af ökumönnum í
tengslum við sjálfa
hraðamælinguna. Fyrir vikið er
vafamál hvort nauðsynlegt er að
starfandi lögreglumaður annist
mælinguna og spurning hvort ekki
sé nægjanlegt að sá sem það gerir
hafi gengist undir þjálfun í notkun
búnaðarins.
Áður en lengra er haldið vil ég
taka fram að það er afdráttarlaus
skoðun forsvarsmanna Varnan að
halda skuli í heiðri það grundvall-
aratriði að löggæsla sé á hendi rík-
isvaldsins og einskis annars. Því er
sú útlegging málsins að verið sé að
hvetja til einkavæðingar löggæsl-
unnar ekki frá okkur komin. Mat
okkar er að lögreglan eigi að vera
öflug, vel búin á alla lund og eigi
ekki síst að láta rækilega til sín
taka í umferðareftirliti. Á hinn
bóginn kann að vera að lögreglan
geti aukið árangur af starfi sínu
með því að leita undir ákveðnum
kringumstæðum til annarra aðila
sér til stuðnings eða með því að
fela öðrum ákveðna verkþætti.
Ótalmörg dæmi eru um að lög-
reglan fari þá leið. Nægir að nefna
að hundar og þjálfarar þeirra utan
vébanda lögreglu hafa annast leit
að týndu fólki og jafnvel grun-
uðum mönnum í sakamálum. Lög-
regla hefur kvatt stóra hópa úr
samtökum sjálfboðaliða sér til
hjálpar í umferðargæslu og örygg-
isgæslu þegar mikið hefur legið
við. Ýmislegt fleira mætti til telja
og einkaaðilar hafa jafnvel haft
með höndum ákveðna verkþætti í
þágu lögreglu til langframa.
Varnan rekur öryggisþjónustu
sem eingöngu hefur á að skipa lög-
reglumenntuðum starfsmönnum
með langa og fjölþætta reynslu af
lögreglustörfum. Meðal þeirra eru
nokkrir sem hafa sérhæft sig í um-
ferðarlöggæslu í áraraðir, hafa afl-
að sér sérmenntunar og sérstakrar
þjálfunar í umferðareftirliti og um-
ferðaröryggismálum, auk þess að
vera áhugamenn um málefni um-
ferðarinnar. Það erindi sem liggur
nú fyrir til afgreiðslu dómsmála-
ráðuneytisins er aðeins hugmynd
sem var lögð fram eftir vandlega
umhugsun og er ekki annað en til-
laga og ósk um viðræður. Hún
gengur út á að starfsmenn Varnan
taki að sér hið óauðkennda eftirlit
í umferðinni, sem í dag er starf-
rækt af embætti ríkislögreglu-
stjórans, og skili gögnum um það
til úrvinnslu hjá lögreglu. Hug-
myndina settum við fram vegna
þess að við teljum hana geta stutt
starf lögreglunnar og aukið að-
haldið í umferðinni.
Raunar álítum við fyr-
irkomulagið geta ver-
ið hag allra sem málið
varðar því hér kæmi
til aukið eftirlit með
ökumönnum í þeim
málaflokki sem skap-
ar hvað mesta hættu á
vegum úti. Við drög-
um ekki dul á að það
yrði Varnan til fram-
dráttar að fá þetta
verkefni í hendurnar.
Meiru skiptir að við
höldum að það kæmi
lögreglunni til góða að
geta nýtt mannafla
sinn frekar til auð-
kennds eftirlits og haft afskipti af
ökumönnum eftir þörfum. Lög-
reglan yrði þar með sýnilegri og
hefði með því einu bein áhrif á
hegðun ökumanna. Það sem mestu
skiptir þó er sá ávinningur sem
allur almenningur hefði af þessu
fyrirkomulagi því að aukið aðhald
hlýtur á endanum að leiða til
bættra umferðarhátta og fækkun-
ar slysa. En sá er kjarni málsins
og hvatinn að því að við leggjum
fram þessa hugmynd.
Ekki er víst að hugmyndin um
umferðareftirlit einkafyrirtækis sé
framkvæmanleg í raun. Okkur er
það vel ljóst að hún kallar á svör
við ótalmörgum spurningum, með-
al annars um lögfræðileg álitaefni,
og fær faglega meðferð og end-
anlega úrlausn hjá þar til bærum
aðilum. Hitt er fullljóst að lög-
reglan gerir sitt besta og þarf á
stuðningi við störf sín að halda.
Verum þess samt minnug að besti
stuðningurinn við störf hennar í
umferðinni er fyrst og síðast
ámælislaus hegðun vegfarenda.
Ég hvet ökumenn til að sýna
háttvísi, fara að reglum og skila
sér heilum heim.
Til stuðnings
lögreglunni
Jóhann
Davíðsson
Höfundur er starfsmaður
Varnan ehf. og áhugamaður
um umferðaröryggi.
Umferðareftirlit
Hugmyndina settum við
fram vegna þess, segir
Jóhann Davíðsson, að
við teljum hana geta
stutt starf lögreglunnar
og aukið aðhaldið í
umferðinni.