Morgunblaðið - 25.01.2001, Side 63
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2001 63
FRAM kom í fjölmiðlum að
herra Garðar Sverrisson, for-
maður Öryrkjabandalagsins,
sagði eftir fund með yður á
Bessastöðum að þér hefðuð
veitt forsætisráðherra, herra
Davíð Oddssyni, tiltal vegna af-
stöðu hans til dóms Hæsta-
réttar.
Forsætisráðherra sagði að
svo hefði ekki verið.
Hér ber mikið í milli, annar
hvor þeirra, Davíð eða Sverrir,
fer með rangt mál, sem þér get-
ið upplýst og vænti ég þess að
hið rétta komi fram.
Þess vegna sendi ég yður
þetta bréf, með ósk um svar
yðar.
Virðingarfyllst,
JÓHANN GUÐMUNDSSON,
Sléttuvegi 11, Reykjavík.
Opið bréf
til forseta
Íslands
Frá Jóhanni Guðmundssyni:
UMHVERFISRÁÐ Kópavogs býð-
ur til íbúaþings laugardaginn 3.
febrúar næstkomandi í Smáraskóla.
Umhverfisráð
hefur unnið að
gerð Staðardag-
skrár 21 og liggur
nú fyrir stöðu-
mat. Hvað er
stöðumat? spyrja
margir. Það er
mat á því hvernig
staðan er í dag í
hverjum mála-
flokki fyrir sig hjá
bæjarfélaginu. Staðardagskrá varð-
ar alla málaflokka. Nú þegar þessi
þáttur hefur verið unninn er næsta
skref að móta stefnu í bæjarfélaginu
varðandi Staðardagskrá 21 og viljum
við fá bæjarbúa til að vera með í mót-
un hennar, þetta er jú bærinn okkar
allra. Því bjóðum við ykkur að koma í
Smáraskóla 3. febrúar, taka þátt og
láta í ljós skoðun ykkar á ýmsum
málaflokkum.
Þeir málaflokkar sem verða teknir
fyrir eru:
Úrgangur frá heimilum og
fyrirtækjum.
Umhverfi og mengun.
Bær í örum vexti (þ.m.t. skipulag
og samgöngur).
Gott mannlíf og gott samfélag.
Menningar- og fræðslumál.
Tómstundir, íþróttir og félagsmál.
6. febrúar
– niðurstöður kynntar
Það verða alltaf tveir málaflokkar
í gangi á sama tíma og tekur vinnan í
þeim um 1½ klukkustund. Því getur
fólk mætt í stuttan tíma eða verið all-
an daginn ef það vill. Sigurborg Kr.
Hannesdóttir stjórnar verkefninu
sem er bráðskemmtilegt. Enginn
þarf að standa upp og tala, en fólk
tjáir sig með því að skrifa niður það
sem það vill láta koma fram. Síðan er
unnið úr því efni sem kemur frá þátt-
takendum og verður það kynnt
þriðjudaginn 6. febrúar kl. 20 í
Smáraskóla, bæði í máli og myndum.
Framhaldið er svo að marka stefnu
bæjarins í Staðardagskrá 21, þ.e. að
við skilum efnahagslegum, umhverf-
islegum og félagslegum gæðum til
afkomenda okkar helst í betra horfi
en það er í dag. Því munu tillögur
íbúa fara fyrir nefndir og bæjar-
stjórn sem móta endanleg markmið
og í framhaldi af því verður unnið að
framkvæmdaáætlun, þar sem verk-
efnum næstu ára verður forgangs-
raðað.
Ég vil skora á ykkur, Kópa-
vogsbúar góðir, á hvaða aldri sem þið
eruð, að koma og vera með því að
þetta er framtíð okkar allra.
ÁSDÍS ÓLAFSDÓTTIR,
íþróttakennari og formaður
umhverfisráðs Kópavogs.
Íbúaþing í Kópavogi
– hvers vegna?
Frá Ásdísi Ólafsdóttur:
Ásdís
Ólafsdóttir
SÍÐUSTU fréttir: Ófært um Holta-
vörðuheiði ... Blindhríð ... Margir
bílar fastir... björgunarsveitir líka
fastar og bíða
átekta ... en
greiðfært um
Laxárdal og
Bröttubrekku,
síðan göngin þar
voru opnuð í
haust, næst-
stytztu göng og
ódýrustu sem
gerð verða á
landinu. Engin
ástæða lengur að reyna að brjótast
yfir Holtavörðuheiði í tvísýnu veðri
eða færð.
Hvenær fáum við þessar fréttir af
vetrarfærðinni? Hversu lengi eigum
við að bíða eftir þessari lausn, þess-
ari ódýru lausn á helzta vanda í vetr-
arferðum milli landshluta hér vest-
anlands?
Göng um Bröttubrekku verða að-
eins 1,8 km, kosta samkvæmt áætlun
Vegagerðarinnar 1.250 milljónir, og
munu tveir flokkar gangagerðar-
manna ljúka verkinu á hálfu ári eða
svo. Nei, raunar kosta göngin minna,
því að meir en fjórðungur þessa
kostnaðar skilar sér eins og af himni
sendur, um 350 milljónir – með því
að hætta við þá vegagerð sem verður
yfir fjallið, ef ekki koma göng núna –
með göngunum sparast þessir pen-
ingar. Í rauninni kosta göngin því
aðeins 900 milljónir, eða s.s. nemur
tekjuafgangi ríkissjóðs í hverri viku.
Þar að auki sparast allur sá kostn-
aður, angur og erfiði, hættur og
vandræði sem fólk verður að berjast
við vetur eftir vetur á þessum fjall-
vegum svo lengi sem göngin vantar.
Vissulega eru margir fjallvegir
hærri en þessi, 403 m y.s., og þrátt
fyrir göng fer vegurinn upp í 280 m
hæð, en jafnan er það hæsti kaflinn
sem viðsjálastur er vegna snjóa, og
hér er það sá 4 km kafli sem hæst fer
123 m hærra en vegur um göngin.
En fleira getur líka farið úrskeiðis
en að snjór loki leið, og er þá mikið
öryggi á myrku vetrardægri að eiga
slíkt skjól á leiðinni sem veggöng
eru. Örugg vetrarleið um Bröttu-
brekku, langt frá byggð í báðar áttir,
hlýtur að verða afar mikilvæg fyrir
marga, því að hér verður aðalbraut
milli höfuðborgar og Vestfjarða,
einnig Dalasýslu a.m.k., og ýmist að-
albraut eða varaleið allra annarra
byggða norðan Snæfellsnesfjall-
garðs og Holtavörðuheiðar. (Vara-
leið fyrir Holtavörðuheiði verður
vafalaust síðar meir um Haukadal
fremur en Laxárdal, eftir sem áður
verður hún um Bröttubrekku – í
göngum.)
Hér er ekki átt við að samþykkt-
um göngum milli Reyðarfjarðar og
Fáskrúðsfjarðar verði seinkað, alls
ekki. Heldur að hin stuttu göng um
Bröttubrekku verði gerð nú þegar,
áður en undirbúningi lýkur fyrir
austan.
Að vísu gilda næstum sömu rök
um Klettsháls, einungis má ætla að
þar verði minni umferð en um
Bröttubrekku. Þar yrðu ódýr göng,
1,6 milljarðar, (3,8 km), og þar fara
300 milljónir í bráðabirgðaveg yfir
hálsinn og þar með í súginn, nema
göng komi strax. En bráðabirgða-
lausn er engin frambærileg í Al-
mannaskarði, ekkert nema göng,
þau allra stytztu og ódýrustu (600
milljónir) – engin rök fyrir að nýta
ekki þennan biðtíma þar.
Jú, annars, kannski er orðið um
seinan að gera þetta nú, fyrst ekki
var byrjað í fyrra, og af því líka að
allir hrópa á samgöngubætur – og
liggur á – þá skal hér ekki haldið
fram nema þeim einum kosti, sem
heilbrigð skynsemi hlýtur að velja
fyrstan, ef hún fær að ráða, þ.e. að
spara nú tíma og hundruð milljóna
króna með því að grafa göng undir
Bröttubrekku strax í sumar, meðan
gangagerðarmenn eru ekki bundnir
annars staðar.
NB: Hvar er allt fólkið sem þarf –
eða kann að þurfa – að fara um
Bröttubrekku að vetrarlagi, hví þeg-
ir það allt núna? Er kannski raunin
sú, að hér sé, þrátt fyrir góða mein-
ingu, röng ályktun manns, sem fer
aldrei þessa leið? Ja, góðir hálsar,
Dalamenn og Breiðfirðingar, Vest-
firðingar, Strandamenn og Norð-
lendingar, þessu svarið þið með eigin
orðum eða áframhaldandi þögn. Já,
með þögn – og þá væri tilhlýðilegt að
botna þetta ritverk með niðurlags-
orðum sýslumannsins á Reykhólum,
sem hann lagði séra Sigvalda í
munn.
GUÐJÓN JÓNSSON,
fv. kennari.
Brattabrekka
Frá Guðjóni Jónssyni:
Guðjón
Jónsson
Flísar
og
parketBorgartúni 33, Reykjavík • Laufásgötu 9, Akureyri
Höfum opnað útsölu-
markaðinn í kjallaranum
brautir &
gluggatjöld
FAXAFENI 14,
SÍMI 525 8200
Mikill afsláttur
Verð frá
kr. 100 pr. m.
Útsala
50–70% afsláttur
www.oo.is
Einnig nokkur
TILBOÐ á
barnavörum og
leikföngum.
Bæjarlind 6, sími 554 6300
www.mira.is
ÞAÐ ÞEKKJA
ALLIR
ÚTSÖLURNAR
Í
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-16,
sunnudaga kl. 13-16
Minningarkort Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna
www.skb.is/framlog/minningarkort.html Sími 588 7555