Morgunblaðið - 01.02.2001, Síða 1
26. TBL. 89. ÁRG. FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 1. FEBRÚAR 2001
BJÖRGUNARSVEITIR fundu
nokkra menn á lífi í rústum á Ind-
landi í gær rétt áður en jarðýtur
jöfnuðu þær við jörðu. Ríkisstjórn
Gujarat-ríkis sagði í gær að 12.000
lík hefðu fundist og líklegt væri að
fórnarlömb skjálftans væru 25.000
alls. Aðrir telja, að þau sé miklu
fleiri, allt að 100.000.
Rússnesk björgunarsveit fann
hjón á lífi í rústum byggingar í bæn-
um Bhachau í gær. Rússarnir
heyrðu til konunnar eftir að jarðýtur
voru byrjaðar að jafna heimili henn-
ar við jörðu. Þeir héldu síðan í hönd-
ina á henni þangað til hún hafði verið
grafin úr rústunum. Síðan tókst
þeim að bjarga manni hennar.
Tólf ára gömul stúlka og 55 ára
gömul kona fundust lifandi í gær í
rústunum, fimm dögum eftir að þær
grófust undir þeim. Þykir það ganga
kraftaverki næst með konuna því að
báðir fótleggir hennar og önnur
höndin voru kramin undir steyptum
súlum og mun, að sögn lækna, þurfa
að fjarlægja útlimina. Lá hún við hlið
látins sonar síns á unglingsaldri.
Sameinuðu þjóðirnar telja að
200.000 manns séu heimilislaus í
Gujarat-ríki í kjölfar skjálftans.
Umheimurinn brást skjótt og vel
við beiðni Indverja um aðstoð í kjöl-
far skjálftans en björgunarsveitir
segja hins vegar, að dreifing hjálp-
argagna gangi ekki sem skyldi.
Fólk finnst enn á lífi á skjálfta-
svæðunum á Indlandi
Mikil óvissa um
fjölda látinna
Farsóttir/28
Ahmedabad. AFP, AP.
LÍBÝSKUR leyniþjónustumaður
var dæmdur í lífstíðarfangelsi í
gær fyrir að hafa grandað farþega-
þotu í eigu Pan Am-flugfélagsins
yfir Lockerbie í Skotlandi fyrir 12
árum. 270 manns týndu þá lífi.
Annar Líbýumaður var sýknaður.
Stjórnvöld í Líbýu hafa krafist
þess, að refsiaðgerðum gegn land-
inu verði nú aflétt en Bandaríkja-
menn og Bretar segja, að svo verði
ekki fyrr en Líbýustjórn hafi
gengist við ábyrgð sinni á glæpn-
um og greitt fullar skaðabætur.
Skosku dómararnir þrír voru all-
ir á einu máli og fundu þeir Abdel
Basset al-Megrahi sekan en sýkn-
uðu félaga hans, Al-Amin Khalifa
Fahima. Var Megrahi dæmdur í
lífstíðarfangelsi í Skotlandi og get-
ur hann ekki sótt um lausn fyrr en
eftir 20 ár. Búist er við, að hann
áfrýi dómnum.
Gaddafi verði
sóttur til saka
Í úrskurði dómaranna segir, að
sýnt hafi verið fram á, að Megrahi
hafi verið háttsettur innan líbýsku
leyniþjónustunnar og ættingjar
þeirra, sem létu lífið, 259 manna í
Pan Am-þotunni og 11 íbúa í
Lockerbie, segja það sönnun fyrir
því, að Muammar Gaddafi Líbýu-
leiðtogi hafi sjálfur skipað fyrir um
hryðjuverkið. Krefjast þeir þess,
að hann verði sóttur til saka.
Þegar dómurinn var kveðinn
upp var réttarsalurinn yfirfullur af
ættingjum þeirra, sem fórust í
Lockerbie-hryðjuverkinu. Fagnaði
fólkið mjög dóminum yfir Megrahi
en kvaðst vonsvikið með, að félagi
hans skyldi sleppa.
Hassuna al-Shawsh, talsmaður
líbýska utanríkisráðuneytisins
sagði í gær, að ekki væri búist við
neinum sérstökum viðbrögðum
Líbýustjórnar við dómsniðurstöð-
unni og kvaðst hann vona, að
stjórnvöld í Líbýu og Bandaríkj-
unum gætu nú aftur tekið upp eðli-
leg samskipti. Í yfirlýsingu frá
Bandaríkjastjórn segir hins vegar,
að eigi að aflétta refsiaðgerðum
gagnvart Líbýu, verði stjórnvöld
þar að gangast við ábyrgð sinni á
hryðjuverkinu. Hafa bresk yfirvöld
tekið undir það og þau krefjast
þess, að Líbýustjórn greiði rúm-
lega 59 milljarða íslenskra króna í
bætur til ættingja þeirra, sem
týndu lífi.
Neita allri ábyrgð
Talsmaður líbýska utanríkis-
ráðuneytisins, sagði að „Líbýa sem
ríki ber enga ábyrgð á Lockerbie-
atburðinum“ og hvatti jafnframt
til, að refsiaðgerðum gegn landinu
yrði tafarlaust aflétt. Undir það
hafa ýmis arabaríki tekið og
stjórnvöld í Frakkland kváðust í
gær vænta bættra samskipta við
Líbýustjórn.
Talið er, að Líbýumenn hafi
ákveðið að granda Pan Am-þot-
unni til að hefna loftárása Banda-
ríkjamanna á Tripoli og Benghazi í
Líbýu í apríl 1986 en þá týndu 37
Líbýumenn lífi. Voru Bandaríkja-
menn þá að hefna sprengjutilræðis
á skemmtistað í Berlín en það varð
einum bandarískum hermanni að
fjörtjóni. Aðstandendur þeirra,
sem létust í loftárásunum, kröfð-
ust þess í gær, að Bandaríkja-
stjórn greiddi þeim skaðabætur.
Líbýskur leyniþjónustumaður fundinn sekur um hryðjuverkið yfir Lockerbie
Vilja að Líbýustjórn
gangist við ódæðinu
AP
Geraldine Buser brast í grát er
hún heyrði dóminn kveðinn upp.
Hún missti eiginmann sinn, son
og dóttur, sem var ófrísk, er Pan
Am-þotunni var grandað með
sprengju yfir Lockerbie.
Margt á huldu/26
Camp Zeist, Washington, London. AP, AFP, Reuters.
HÓPUR vísindamanna stefnir
að því að fyrsti einræktaði mað-
urinn líti dagsins ljós einhvern
tíma á næstu tveimur árum.
Verður tæknin að sögn aðeins
notuð til að hjálpa hjónum, sem
annars geta ekki átt börn.
Í hópnum eru vísindamenn
víða að en talsmaður hans er
Panos Zavos, prófessor við há-
skólann í Kentucky í Banda-
ríkjunum. Sagði hann í viðtali
við breska ríkisútvarpið, BBC, í
fyrradag, að einræktunin
myndi líklega kosta rúmlega
fjórar milljónir króna í fyrstu
en lækka síðan í verði.
Dr. Harry Griffin, aðstoðar-
forstjóri Roslin-stofnunarinnar
í Skotlandi, sem einræktaði ána
Dolly fyrir nokkrum árum,
sagði, að fyrirætlanir um að
einrækta mannveru væru mjög
ábyrgðarlausar og ýmsir
fulltrúar trúfélaga hafa einnig
mótmælt þessum áætlunum,
sem þeir segja óvirðingu við
mannlegt líf.
Hyggjast
einrækta
mann
BANDARÍSKI seðlabankinn lækk-
aði í gær vexti um hálft prósentustig
til að vinna gegn vaxandi samdrætti í
efnahagslífinu. Hagvöxtur í Banda-
ríkjunum var aðeins 1,4% á síðasta
fjórðungi liðins árs og verulega
minni en búist hafði verið við.
Vextir hafa verið lækkaðir um eitt
prósentustig í þessum mánuði og
seðlabankinn gefur í skyn, að hann
muni lækka þá enn meira verði þess
talin þörf. Eru þeir nú 5,5% og hafa
þá allar vaxtahækkanir síðasta árs
gengið til baka.
Búist hafði verið við, að hagvöxtur
á síðasta ársfjórðungi liðins árs yrði
2,2%, svipaður og á þeim þriðja, en
hann var 1,4%, sá minnsti í fimm ár.
Mestur var samdrátturinn í kaupum
á bílum, tölvum og ýmsum heimilis-
tækjum en á móti kom, að sala í nýj-
um fasteignum jókst allmikið í des-
ember. Fjárfestingar fyrirtækja
minnkuðu hins vegar um 1,5% en
þær segja jafnan mest um ganginn í
efnahagslífinu.
Vaxtalækkun í
Bandaríkjunum
Washington. Reuters.
AUGUSTO Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í
Chile, var birt handtökutilskipun í gær en hann hefur
verið ákærður fyrir morð og mannrán. Verður hann í
stofufangelsi þar til réttarhöld yfir honum hefjast.
Ætla lögfræðingar hans að áfrýja þeim úrskurði og
sagt er, að það málavafstur geti tekið mörg ár. Það sé
því ekki víst, að Pinochet komi nokkru sinni fyrir rétt
en hann er nú hálfníræður og heilsuveill. Hér er einn
stuðningsmaður herforingjans að mótmæla handtök-
unni í Santiago í gær.
AP
Pinochet í stofufangelsi