Morgunblaðið - 01.02.2001, Síða 52
52 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SÍÐASTI þáttur fjallaði um þau
jólamerki, sem ýmis félög gáfu út
fyrir síðustu jól til styrktar marg-
víslegum mannúðarmálum. Hug-
mynd mín var sú, að þeim þætti
fylgdi einnig sérstakur kafli um hið
elzta þessara félaga, Thorvald-
sensfélagið. Það gat ekki orðið, því
að það rými, sem þættinum er ætl-
að í Morgunblaðinu, leyfir ekki
mjög langt mál hverju sinni. Þess
vegna hvarf ég að því ráði að fjalla í
sérstökum þætti um hið aldna
félag, hið elzta starfandi líknar- og
góðgerðarfélag Íslendinga, sem
einmitt varð 125 ára á liðnu ári.
Um leið er unnt að ræða nokkru
nánar um Thorvaldsensfélagið og
starfsemi þess.
Á þessum tímamótum í sögu
félagsins var efnt til skemmtilegr-
ar og fróðlegrar sýningar í Ráð-
húsi Reykjavíkur nokkru fyrir síð-
ustu jól, þar sem m.a. mátti sjá öll
jólamerki félagsins frá upphafi
þeirra árið 1913, bæði stök og í örk-
um. Eins voru þarna sýnishorn af
teikningum ýmissa jólamerkja.
Þessi afmælissýning var valin á
dagskrá Reykjavíkur - menningar-
borgar Evrópu árið 2000. Var það
vel ráðið, svo mjög sem Thorvald-
sensfélagið hefur komið við sögu
Reykjavíkur þessi rúm hundrað ár.
Bragi Ásgeirsson listmálari og
listgagnrýnandi Mbl. ritaði ágæta
grein um félagið 7. des. sl. Tek ég
undir það, sem hann segir og ég
get sjálfur dæmt um að einhverju
leyti. Bragi álítur, að sýning þessi
„hefði verðskuldað að vera sett upp
í einhverju safnanna okkar og ekki
fyrir það eitt að fullþröngt var um
hana á staðnum“, eins og hann
komst að orði.
Thorvaldsenskonur gerðu meira
en efna til sýningarinnar. Þær létu
í tilefni afmælisins semja einkar
smekklega bók um félagið og jóla-
merki þess og fengu ágæta liðs-
menn til þess að skrifa um þau og
söfnun þeirra. Hildur G. Eyþórs-
dóttir ritstýrði bókinni og ritar
nokkur formálsorð. Þar segir hún
m. a.: „Markmiðið með útgáfunni
er að kynna jólamerkin og þá lista-
menn er lagt hafa, með gerð jóla-
merkja, Thorvaldsensfélaginu lið."
Þá ritar formaður félagsins, Guð-
laug Jónína Aðalsteinsdóttir,
ágæta grein, sem hún nefnir Thor-
valdsensfélagið á tímamótum. Þar
rekur hún sögu félagsins í stuttu
og hnitmiðuðu máli, þar sem les-
andinn fær glögga yfirsýn yfir
starfsemi félagsins frá upphafi
þess 19. nóvember 1875.
Þór Þorsteins skrifa stutta
grein, sem hann nefnir Safnarinn
og jólamerki Barnauppeldissjóðs
Thorvaldsensfélagsins. Svo sem al-
kunna er hefur Þór lengi safnað
frímerkjum og margs konar öðrum
merkjum, og er sú söfnun hans
eins konar hliðargrein við frímerk-
in, sem einungis örfáir frímerkja-
safnarar hafa sinnt af nokkrum
áhuga. Um þetta hafa borið vitni
nokkrar nýlegar sýningar, sem
Þór tók þátt í og hlaut verðlaun
fyrir.
Þá skrifar Aðalsteinn Ingólfsson
listfræðingur mjög fróðlega grein
um jólamerki Thorvaldsensfélags-
ins. Hvet ég alla safnara jóla- og
líknarmerkja og eins frímerkja-
safnara til að lesa þá grein. Aðal-
steinn segir skemmtilega frá þeim
teiknurum og grafísku hönnuðum,
sem hér komu við sögu, og eins
þeim listamönnum, sem frá upp-
hafi hafa teiknað eða hannað merki
félagsins. Meðal hinna fyrrnefndu
var hinn kunni teiknari, Tryggvi
Magnússon, sem Aðalsteinn kallar
jólamerkjakónginn í þeim hópi, en
hann teiknaði sjö merki félagsins.
Á hæla honum kom svo Stefán
Jónsson með sex merki. Af konum
má nefna Ágústu Pétursdóttur
Snæland með þrjú merki og Þór-
dísi Tryggvadóttur,
Magnússonar einn-
ig með þrjú merki.
Þá bendir Aðal-
steinn á, að listinn
yfir myndlistar-
menn sé ekki síður
tilkomumikill.
Nefnir hann þar
til sögu Þórarin B.
Þorláksson, Einar
Jónsson mynd-
höggvara, Ásgrím
Jónsson, Ríkarð
Jónsson, Jóhannes
S. Kjarval, Júlíönu
Sveinsdóttur, Nínu
Tryggvadóttur,
Barböru Árnason,
svo að nokkur nöfn
séu nefnd.
Þá er fróðlegt að
fá hér lýsingu list-
fræðings á mynd-
efni því, sem birtist
á jólamerkjum
Thorvaldsens-
félagsins og því,
sem hann les út úr
viðfangsefni lista-
mannanna.
Lokaorð Aðalsteins veit ég, að
margir vilja gera að sínum orðum,
en þau eru þessi: „Nú má vel vera
að rafræn miðlun af ýmsum toga
ógni tilverurétti prentgripa á borð
við frímerki og jólamerki. Þó vonar
undirritaður einlæglega að Thor-
valdsensfélagið, elsta og merkasta
líknarfélag landsmanna, haldi í
lengstu lög í þann góða sið að gefa
út jólamerki til að styrkja veik
börn, gleðja augu okkar og veita
listamönnum okkar spennandi
verkefni.“ Þá er í bókinni nákvæm
skrá yfir öll jólamerki félagsins frá
upphafi og þau prentuð í lit. Hefur
sú prentun tekizt með miklum
ágætum. Þar er getið um myndefni
og höfunda og gerð grein fyrir ævi
þeirra, menntun og störfum. Er
verulegur fengur í öllum þeim
fróðleik, sem þar kemur fram um
einstök jólamerki.
Síðast eru svo skrár eins og
Nafnaskrá, Titlaskrá - heiti jóla-
merkja í stafrófsröð og Heimilda-
skrá. Bera þær glöggt vitni þess,
hversu vel hefur verið vandað til
útgáfunnar.
Frágangur allur og prófarka-
lestur er til fyrirmyndar.
Að öllu samanlögðu má óska
Thorvaldsensfélaginu til hamingju
með þetta fallega afmælisrit.
Thorvaldsens-
félagið 125 ára
FRÍMERKI
F a l l e g t o g e i g u -
l e g t a f m æ l i s r i t
Jón Aðalsteinn Jónsson
Bridshátíð Flugleiða,
BSÍ og BR
Þeim fjölgar alltaf erlendu gest-
unum sem tilkynna komu sína á
Bridshátíð. John Solodar kemur
ásamt eiginkonu sinni Sue Ellen en
hann vann Bermuda-skálina 1981.
Makker Hjördísar Eyþórsdóttur að
þessu sinni verður Bandaríkjakonan
Carol Sanders, sem er margfaldur
heimsmeistari kvenna bæði í tví-
menningi og sveitakeppni.
Skráning á Bridshátíð er í síma
587 9360 eða www.bridge.is
Síðasti skráningardagur er
fimmtudagur 8. febrúar.
BRIDS
U m s j ó n A r n ó r G .
R a g n a r s s o n
Bridsfélag
Hreppamanna
Tvenndakeppni er nýlega lokið og
tóku átta pör þátt í keppninni en
keppt er um Önnubikarinn, sem
kenndur er við aldursforsetann,
Önnu Magnúsdóttur, sem er að
verða 87 ára og spilar enn af krafti.
Úrslit urðu sem hér segir:
Elín Kristmundsd. og Guðm. Böðvarss. 217
Sigurl. Angantýsd. og Pétur Skarphss. 209
Katr. Guðj.d. + Anna og Jóh.nes Sigm.s. 199
Guðrún Hermsd. og Magnús Gunnlss. 190
Margrét Óskarsd. og Karl Gunnlaugss. 188
Anna Magnúsd. og Guðm. Sigurdórss. 178
Aðalheiður Helgad. og Skúli Sæland 169
Þórdís Bjarnad. og Ari Einarss. 162
Nú stendur yfir tvímennings-
keppni og er spilað á fimm borðum.
Spilað er í hinum svokallaða Huppu-
sal í Félagsheimili Hrunamanna en
þar prýðir einn vegginn stórt og fag-
urt málverk af hinni víðfrægu
Huppu frá Kluftum, ættmóður ís-
lenska kúastofnsins. Nú er það stóra
spurningin hvort hún fái að verða
það um ókomin ár.
Bridsfélag
Hafnarfjarðar
Þá er aðalsveitakeppni félagsins
lokið með sigri sveitar Guðna Ing-
varssonar, sem hlaut 117 stig, en
með honum í sveitinni voru Njáll G.
Sigurðsson, Þorsteinn Kristmunds-
son, Andrés Ásgeirsson, Erla Sigur-
jónsdóttir og Sigfús Þórðarson.
Í öðru sæti varð sveit Þórarins
Sófussonar, með 112 stig, og í þriðja
sæti sveit Högna Friðþjófssonar,
sem fékk 106 stig.
Næsta keppni verður Butler-tví-
menningur, keppni sem hefur sama
reikningslegan grundvöll og sveita-
keppni, þ.e. til að skora þurfa menn
að segja þau geim og slemmur, sem
raunhæfur möguleiki er að standist
og innbyrða vinninginn með eins
miklu öryggi og unnt er í úrspilinu.
Keppnin stendur mánudagana 5.
og 12. febrúar, en gefið verður frí
hinn 19. vegna Bridgehátíðar BSÍ og
Flugleiða.
Spilað er í Álfafelli, félagssal
íþróttahússins við Strandgötu, og
hefst spilamennska kl. 19:30.
Gullsmárabrids
Tuttugu pör spiluðu tvímenning á
vegum Bridsdeildar FEBK í Gull-
smára mánudaginn 29. janúar sl.
Miðlungur 168. Efst voru:
NS
Kristján Guðm.s. – Sigurður Jóhannss. 204
Karl Gunnarss. – Ernst Backman 194
Unnur Jónsd. – Jónas Jónss. 181
AV
Þórdís Sólmundard. – Sigrún Sigurðard. 189
Þorgerður Sigurg.d. – Stefán Friðbj.s. 181
Bjarni Sigurðss. – Hannes Alfonss. 177
Eldri borgarar spila í Gullsmára
alla mánu- og fimmtudaga. Mæting
kl. 12.45.