Morgunblaðið - 01.02.2001, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 01.02.2001, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 51 Hannyrðir eru oftast tengdar konum og hinu kvenlega en það þýðir þó ekki að karlmenn séu ekki snortnir af því dul- magni og kynngikrafti sem býr í efniviði þeirra, þ.e.a.s. ullinni. Gríska skáldið Hómer, sem var uppi á 8. öld fyrir Krist, lætur sögupersónu sína Odysseif í Odysseifskviðu bjarg- ast úr lífsháska með því að fela sig í ullarmiklu, lagðfögru og feitu fé. Þannig tengir hann ull- ina við karlmennsku, útsjónar- semi og lífsþrótt. Kviðan segir í heild sinni frá Odysseifi og félögum hans í við- burðaríkri heimferð frá Tróju- borg til Íþöku, heimaborgar þeirra. Á leiðinni lenda þeir m.a. í landi Kýklópanna sem eru þurs- ar, eineygðir og ekki mjög mann- blendnir svo vægt sé til orða tek- ið. Þeir félagarnir lenda í klónum á Kýklópanum Pólýfemusi sem lokar þá inni í helli sínum og tek- ur að leggja þá sér til munns einn af öðrum. Þegar Odysseifur áttar sig á stöðunni bregður hann á það ráð að bjóða Pólýfemusi upp á vín sem hann hafði haft með sér úr skipi sínu. Risinn þiggur vínið og þegar það fer að svífa á hann ákveður Odysseifur að tala blítt til hans og lýgur m.a. til um nafn sitt og kveðst heita ENGINN. Risinn svaraði því einfaldlega til að hann skyldi þá éta hann síðast. Í því valt hann aftur fyrir sig og sofnaði. Odysseifur og félagar tóku sig þá til og ráku brennheitan staur í auga Pólýfemusar. Risanum var að vonum brugðið og tók að öskra ógurlega af sársauka. Síðan fór hann að hrópa á aðra Kýklópa sem bjuggu í grenndinni. Fjöldi Kýklópa þyrptist að hellismunn- anum sem var lokaður með stórum steini og kölluðu þeir til Pólýfemusar: „,,Hvað er þér svo mjög að angri, Pólýfemus, er þú æpir svo hátt á náttarþeli, og heldur vöku fyrir oss? Hvort vill nokkurr ræna þig fé þínu að óvilja þínum? Eða vill nokkurr drepa þig með vélum eða ofríki?“ Hinn sterki Pólýfemus svaraði þeim inni í hellinum: ,,ENGINN drepur mig, góðir vinir, með vél- um, og ekki með ofríki“.“ Úr því Enginn ætlaði að drepa Pólýf- emus fóru Kýklóparnir aftur til síns heima. Þannig tókst Odysseifi að gabba Pólýfemus. En vegna þess að risinn var nú sjónlaus fann hann ekki mennina í hellinum og ákvað hann þá að færa steininn frá hellismunnanum og reyna að grípa mennina þegar þeir myndu hlaupa út úr hellinum á móti frelsinu. Odys- seifur áttaði sig hins vegar á hvað Pólýfemus var að hugsa og tókst að gabba hann í annað sinn á snilldarlegan hátt þannig: Í hellinum voru ,,þrifalegir sauðir, ullarmiklir, fríðir og föngulegir, þeir voru mórauðir; eg tók þrjá af þeim, og batt þá saman í kyrrþey með harð- snúnum víðitágum, sem risinn lá á, tröll það, er af engri sanngirni vissi. Miðsauðurinn bar einn mann, en hinir tveir gengu sínum megin hvorr, og geymdu félaga minna; báru svo þrír sauðir hvern mann. Nú var þar einn hrútur, sem var langfélegastur af öllum sauð- unum; eg greip ofan í bakið á þessum hrút, vatt mig undir kvið hans, hélt mér fast með báðum höndum í ullarreyfið, og hékk þar svo í bugðu þolinmóður. Þannig biðum vér, þó oss væri óhægt, þar til lýsa tók. En er hin árrisula, rósfingraða Morgun- gyðja kom í ljós, ruddust sauð- irnir út í hagann“. Þannig sluppu Odysseifur og félagarnir sem eftir voru, fram hjá Pólýfemusi, lifandi út úr hell- inum því ekki datt honum í hug að leita undir hinu ullarmikla, lagðfagra og feita fé sínu. Síðan hlupu félagarnir til skips og sigldu frá landi á vit nýrra æv- intýra. Hin lagðfagra ull varð Odysseifi og félögum til bjargar í þetta skipti. (Heimild: Odysseifs- kviða eftir Hómer) Í febrúar-spuna er boðið upp á glaðlega peysu og húfu á alla krakka úr grófu, mjög mjúku og áferðarfallegu RONDO-garni sem ef til vill á ættir að rekja til hinna grísku, ullarmiklu og lagð- fögru Kýklópa-kinda. Ekki dóna- legur efniviður það að handfjatla. RONDO-garnið er prjónað á prjóna nr. 9 og er því tilvalið fyr- ir byrjendur að spreyta sig á, því ekki þarf að bíða lengi eftir af- rakstrinum. Ullin bjargar Odysseifi SPUNI HANDMENNT Umsjón: Bergrós Kjartansdóttir Upplýsingar um hvar garnið fæst er í síma 565-4610 Hönnun: Olaug Kleppe Garn: RONDO fæst í 7 frískum lit um. Peysa: Ljósgrænt nr. 9331: (5) 5 (6) 7 (8) dokkur Húfa: Ljósgrænt nr. 9331: 1 dokka í allar stærðir Stærðir: (1) 2-4 (6) 8-10 (12) ára Yfirvídd: (71) 80 (88) 97 (106) sm Sídd: (35) 42 (48) 54 (60) sm Ermasídd: (22) 26 (30) 34 (38) sm Prjónar: Hringprjónar og sokka- prjónar nr. 8 og 9. Prjónfesta: 9 lykkjur og u.þ.b. 12 umf. í sléttu prjóni á prjóna nr. 9 = 10 x 10 sm. PEYSA: Aðferð við laskermar: Úrtaka sem vísar til vinstri: Takið 1 lykkju óprjónaða, 2 lykkjur slétt, lyftið óprjónuðu lykkjunni yfir sléttu lykkjurnar. Úrtaka sem vísar til hægri: Prjónið 2 lykkjur slétt, setjið lykkjurnar aftur yfir á vinstri prjón og lyftið lykkjunni við hliðina yfir lykkjurnar tvær, setjið lykkjurnar tvær aftur yfir á hægri prjón. Bolur: Fitjið upp á hringprjón nr. 8 (64) 72 (80) 88 (96) lykkjur. Prjónið (3) 4 (4) 5 (6) sm stroff í hring, 2 sl. og 2 br. Setjið merki í hliðarnar með (32) 36 (40) 44 (48) lykkjur á hvoru stykki. Skiptið yfir á hringprjón nr. 9 og prjónið slétt prjón. Þegar bol- urinn mælist (20) 25 (29) 34 (38) sm eru felldar af 3 lykkjur undir hönd- um sitt hvorum megin við merkin = 6 lykkjur á hvoru stykki. Leggið bolinn til hliðar. Ermar: Fitjið upp á sokkaprjóna nr. 8 (16) 16 (20) 20 (20) lykkjur. Prjónið (4) 5 (5) 6 (6) sm stroff í hring, 2 sl. og 2 br. Prjónið 1 prjón sléttan og aukið jafnframt í (21) 23 (23) 25 (25) lykkjur með jöfnu millibili. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr. 9. Prjónið slétt prjón. Athugið: Síðasta lykkj- an á hringnum er alltaf prjónuð brugðin = merkilykkja. Aukið í 1 lykkju báðum megin við merki- lykkjuna með u.þ.b. (3) 3 1/2 (3 1/2) 4 1/2 (4 1/2) sm millibili alls (5) 5 (6) 6 (7) sinnum = (31) 33 (35) 37 (39) lykkjur á ermi. Þegar ermin mælist (22) 26 (30) 34 (38) sm er merki- lykkjan felld af + 3 lykkjur sitt hvoru megin við hana = 7 lykkjur undir miðri ermi. Prjónið hina erm- ina eins. Úrtaka: Prjónið (26) 30 (34) 38 (42) lykkj- ur framstykkisins, prjónið aðra ermina þegar komið er að affelldu lykkjunum á bolnum, prjónið síðan (26) 30 (34) 38 (42) lykkjur bak- stykkisins, prjónið hina ermina = (100) 112 (124) 136 (148) lykkjur á prjóninum. Prjónið 1 umf. slétt yfir allar lykkjurnar. Setjið merkiþráð í miðju laskans (úrtökunnar), það eiga að vera 2 lykkjur í miðjunni og tekið úr sitt hvorum megin við þær. Í næstu umf. er tekið úr sitt hvor- um megin við lykkjurnar tvær á alls 4 stöðum. Tekið er úr til vinstri fyr- ir framan lykkjurnar tvær og til hægri fyrir aftan lykkjurnar tvær (sjá lýsingu í upphafi). Prjónið 2 umf. án úrtöku. Í næstu umf. er tekið úr á sama hátt. Prjón- ið 1 umf. án úrtöku. Takið svona úr í annarri hverri umf. (6) 7 (8) 9 (10) sinnum í viðbót = (8) 9 (10) 11 (12) úrtökur = (36) 40 (44) 48 (52) lykkj- ur á prjóni. Prjónið 1 umf. slétt og takið jafnframt úr (4) 4 (4) 6 (6) lykkjur með jöfnu millibili = (32) 36 (40) 42 (46) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr. 8 og prjónið (6) 7 (8) 9 (10) sm slétt prjón. Fellið laust af með sléttum lykkjum. Lykkið saman undir ermum. HÚFA Stærðir: (1) 2-4 (6-8) ára Fitjið upp á prjóna nr. 9 (36) 40 (44) lykkjur. Prjónið (7) 8 (9) sm stroff 2 sl. 2 br. í hring Setjið merki = uppábrot. Prjónið áfram 2 sl. og 2 br. Þegar húfan mælist (17) 20 (23) sm, fyrir utan uppábrotið, er tekið úr í toppinn. Prjónið 2 br. saman þar sem allar brugðnu lykkjurnar eru. Prjónið 2 umf. 2 sl. 1 br. Prjón- ið 2 sl. saman þar sem allar sléttu lykkjurnar eru. Prjónið 2 umf. 1 sl. 1 br. –Prjónið 2 sl. saman allan hringinn. Prjónið 1 umf. slétt og síðan 2 sl. saman allan hringinn. Klippið þráðinn frá og dragið í gegnum allar lykkjurnar og festið vel. Eyru: Fitjið upp á prjóna nr. 8 (7) 9 (9) lykkjur. Prjónið slétt prjón fram og til baka að undanskilinni fyrstu og síðustu lykkju = kantlykkjur sem eru prjónaðar sléttar bæði á réttu og röngu. Þegar eyrað mælist (4) 5 (6) sm er lykkjan fyrir innan kant- lykkjuna tekin úr í hvorri hlið á öðr- um hverjum prjóni þar til 1 lykkja er eftir. Brettið uppábrotið upp á húfunni yfir á réttuna. Saumið eyrun á kant húfunnar með passlegu millibili. Búið til tvær snúrur u.þ.b. 30 sm og saumið þær neðst á eyrað Barnapeysa og húfa Morgunblaðið/Ásdís RONDO-garnið er einstaklega mjúkt og áferðarfallegt og er prjónað á prjóna nr. 9, það þarf því ekki að bíða lengi eftir afrakstrinum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.