Morgunblaðið - 01.02.2001, Síða 64
DAGBÓK
64 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Trinket kemur og fer í
dag. Dettifoss, Dalgo og
Mánafoss koma í dag.
Baldur Árnason fer í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Hamrasvanur kemur í
dag. Staltor og Lag-
arfoss fóru í gær.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðjud. og
fimmtud. frá kl. 14–17.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sólvalla-
götu 48, Reykjavík.
Skrifstofan er opin mið-
vikudaga frá kl. 14–17.
S. 551-4349. Fataút-
hlutun og fatamóttaka
er opin annan og fjórða
hvern miðvikudag í
mánuði, frá kl. 14–17,
sími 552-5277. Ásgerður
Jóna Flosadóttir, for-
maður s. 897-1016, fax
544-4660,e-mail dalros-
@islandia.is
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og bók-
band, kl. 9–16.30 penna-
saumur og bútasaumur,
kl. 9.45 morgunstund,
kl. 10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13 opin
smíðastofa, kl. 9 hár- og
fótsnyrtistofur opnar.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30
böðun, kl. 9 leikfimi, kl.
9–12 myndlist, kl. 9–16
handavinna og fótaað-
gerð, kl. 14 dans, kl. 14–
17 glerskurður.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós! Félagsstarfið á
Hlaðhömrum er á
þriðjudögum og
fimmtudögum, kl. 13–
16.30, spil og föndur.
Leikfimi er í íþróttasal
á Hlaðhömrum á þriðju-
dögum kl. 16. Kóræf-
ingar hjá Vorboðum,
kór eldri borgara í Mos.
eru á Hlaðhömrum
á fimmtudögum kl. 17–
19. Uppl. hjá Svanhildi í
s. 586-8014 kl. 13–16.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun, hárgreiðslu-
stofan og handa-
vinnustofan opnar, kl.
9.30 danskennsla, gler
og postulínsmálun, kl.
13 opin handa-
vinnustofan og klippi-
myndir, kl. 14.30 söng-
stund.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 9 fótaaðgerð, kl.
10 hársnyrting, kl. 11.10
leikfimi, kl. 13 föndur
og handavinna, kl. 15.
bingó.
Félagsst. Furugerði 1.
Kl. 9 aðstoð við böðun,
smíðar og útskurður,
glerskurðarnámskeið og
leirmunagerð, kl. 9.45
verslunarferð í Aust-
urver, kl. 13.30 boccia.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Púttæfing í Bæjar-
útgerðinni kl. 10–12.
Bingó í Hraunseli kl.
13.30.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Spilað í
Kirkjulundi á þriðju-
dögum kl. 13.30. Spilað í
Holtsbúð í dag kl. 13.30
bókmenntahópur og les-
hringur í bókasafninu 5.
febr. kl. 10.30. Spila-
kvöld, félagsvist á Álfta-
nesi 8. febr. kl. 19.30.
Akstur skv. áætlun.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Brids í dag kl.
13. Leikhópurinn Snúð-
ur og Snælda munu
frumsýna 4. febrúar kl.
17 í Ásgarði Glæsibæ,
„Gamlar perlur“, þættir
valdir úr fimm gömlum
þekktum verkum. Sýn-
ingar eru fyrirhugaðar
á miðvikudögum kl. 14
og sunnudögum kl. 17.
Laugardagur 10. febr-
úar kl. 13.30. Breyting
hefur orðið á viðtals-
tíma Silfurlínunnar, op-
ið verður á mánudögum
og miðvikudögum frá kl.
10–12. f.h. Upplýsingar
á skrifstofu FEB í síma
588-2111 frá kl. 10 til
16.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund og leikfimiæfingar
í Breiðholtslaug kl. 9.30.
Kl. 10.30 helgistund um-
sj. Lilja G. Hallgríms-
dóttir djákni, frá hádegi
spilasalur og vinnustof-
ur opnar, veitingar í
kaffihúsi Gerðubergs.
Myndlistarsýning Ólafs
Jakobs Helgasonar
stendur yfir. Fimmtu-
daginn 22. febrúar er
leikhúsferð í Þjóðleik-
húsið að sjá leikritið
„Með fulla vasa af
grjóti“, skráning hafin.
Aðstoð frá Skattstofu
við skattframtöl verður
veitt miðvikudaginn 7.
mars, skráning hafin.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
kl. 9–15, gler og postu-
lín kl. 9.30, leikfimi kl.
9.05, kl. 9.50 og kl.
10.45, kl. 13 taumálun
og klippimyndir.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 jóga og
ganga, kl. 13 brids, kl.
14 boccia, kl. 13–16
handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum.
Hraunbær 105. Kl. 9–
16.30 bútasaumur,
perlusaumur og korta-
gerð, kl. 9 fótaaðgerð,
kl. 9.45 boccia, kl. 14
félagsvist.
Hvassaleiti 56–58.
Þorrablót verður haldið
föstudaginn 2. febrúar
kl. 19, húsið opnað kl.
18.30. Þorrahlaðborð
kaffi og konfekt,
skemmtiatriði. Ræðu-
maður kvöldsins Kol-
brún Halldórsdóttir al-
þingismaður, tælenskur
dans, Borgardætur
syngja við undirleik Ey-
þórs Gunnarssonar.
Ólafur B. Ólafsson leik-
ur á harmónikku og pí-
anó og leiðir söng. Sig-
valdi stjórnar dansi.
Upplýsingar og skrán-
ing í síma 588-9335.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, gler-
skurður, kl. 9–17 hár-
greiðsla og böðun, kl. 10
leikfimi, kl. 13.30 bóka-
bíll, kl.15.15 dans.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
opin handavinnustofa
búta- og brúðusaumur,
böðun, fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 10
boccia, kl. 13 handa-
vinna, kl. 14 félagsvist.
Norðurbrún 1. Kl. 9
handavinnustofurnar
opnar, útskurður, kl. 10
leirmunanámskeið.
Þorrablót verður haldið
föstudaginn 2. febrúar
kl. 19. Dansarar frá
Þjóðdansafélagi Reykja-
víkur, fjöldasöngur,
hljómsveit spilar fyrir
dansi, fjöldasöngur.
Veilsustjóri Hólmfríður
Gísladóttir. Skráning
fyrir kl. 15 fimmtudag í
síma 569-6960.
Vesturgata 7. Kl. 9
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12 að-
stoð við böðun, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 10
boccia, kl. 13–14 leik-
fimi, kl. 13–16 kóræfing.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður, fatasaum-
ur og morgunstund, kl.
10 boccia og fótaaðgerð-
ir, kl. 13 handmennt,
körfugerð og frjálst
spil.
Gullsmárabrids. Brids-
deild FEBK í Gull-
smára býður alla eldri
borgara velkomna að
bridsborðum í félags-
heimilinu að Gullsmára
13 á mánudögum og
fimmtudögum. Mæting
og skráning kl. 12.45.
Spil hefst kl. 13.
ÍAK. Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11 í Digra-
neskirkju.
Kristniboðsfélag
kvenna, Háaleitisbraur
58–60. Biblíulestur hef-
ur Benedikt Arnkels-
son, kl. 17 í dag.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborgar-
svæðinu, Hátúni 12. Kl.
19.30 tafl.
GA-fundir spilafíkla
eru kl. 20.30 á fimmtud.
í fræðsludeild SÁÁ
Síðumúla 3–5 og í
Kirkju Óháða safnaðar-
ins við Háteigsveg á
laugard. kl. 10.30.
Kvenfélag Hallgríms-
kirkju. Fundurinn fellur
niður í kvöld, 1. febrúar.
Úrvalsfólk. Vorfagn-
aður Úrvalsfólks verður
haldinn á Hótel Sögu,
Súlnasal, föstudaginn
16. febrúar kl. 19 miða-
og borðapantanir hjá
Rebekku og Valdísi í
síma 585-4000.
Húnvetningafélagið,
félagsvist í Húnabúð
Skeifunni 11 í kvöld kl
20. Fyrsta kvöld í fjög-
urra kvölda parakeppni.
Kaffiveitingar. Allir vel-
komnir.
Í dag er fimmtudagur 1. febrúar,
32. dagur ársins 2001.
Brígidarmessa. Orð dagsins:
Að lokum: Styrkist nú í Drottni
og í krafti máttar hans.
(Ef. 6, 10.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 hrekkjótta, 8 óhrein, 9
stóllinn, 10 mánuður, 11
karldýra, 13 ritverk,
15 ísbreiða, 18 heimsk-
ingja, 21 glöð, 22 lægja,
23 verur, 24 holskefln-
anna.
LÓÐRÉTT:
2 hrósar, 3 tunnu, 4 stak-
an, 5 drekka, 6 afkimi, 7
eignarjörð, 12 leyfi,
14 fiskur, 15 sokkur, 16
hóp, 17 nötraði, 18 eina
sér, 19 sárið, 20 ræktuð
lönd.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 skass, 4 leiks, 7 eldur, 8 galin, 9 ami, 11 gert, 13
ærar, 14 óskar, 15 harm,
17 aska, 20 slá, 21 aftan, 23 teinn, 24 strák, 25 lógar.
Lórétt: 1 stegg, 2 andar, 3 særa, 4 legi, 5 illar, 6 synir, 10
mikil, 12 tóm, 13 æra,
15 hlass, 16 ritar, 18 sting, 19 agnar, 20 snák, 21 átel.
K r o s s g á t a
NÚ SÍÐUSTU vikur og
mánuði hefur nýr gestur
krafist inngöngu og búsetu
í landi hinnar íslensku
tungu. Enska orðið „fit-
ness“ hefur orðið nær dag-
legur gestur í fjölmiðlum
þessa lands og ennþá hefur
ekki bólað á því að boðið
væri upp á einhverja ís-
lenska þýðingu á þessu
orði. Ekki sýnist mér þetta
æskileg viðbót í orðaforða
íslenskunnar og ekki verð-
ur heldur betur séð en orð-
ið sé óþarft í íslensku þar eð
orðið hreysta (sagnorð) var
þegar til í forn íslensku í
merkingunni „gera hraust-
an“ og varla þarf að efast
um að nafnorðið hreysting
hafi þá einnig verið til og
táknað: það að gera ein-
hvern hraustan. Þar með
höfum við íslenskt orð yfir
„fitness“-ið. Hliðstætt orð
við hreysting (hreystingu)
er t. d. orðið kosning sem
þýðir að kjósa og fallbeyg-
ingin yrði hin sama á þess-
um orðum. Við þetta mætti
svo bæta, að iðkandi þess-
arar íþróttar gæti heitið
vöðvungur, þar eð frábær
vöðvaþroski virðist vera
mjög áberandi þegar þessir
íþróttamenn (vöðvungar)
sýna sig á skjánum. Þetta
orð er þjált í samsetningum
og má þá nefna sem dæmi
vöðvungakeppni, vöðv-
ungamót, vöðvungaráð-
stefna, Íslandsmót vöðv-
unga o.s.frv.
J. K. M.
Viltu vinna milljón
ÉG HEF horft undanfarið
á þáttinn, Viltu vinna millj-
ón og finnst hann góður. Ég
hef séð nokkra þætti sama
efnis með sama heiti í
Bandaríkjunum undir
stjórn Regis. Hann er frá-
bær, ekki síst vegna vinn-
inga, sem gerir spennuna
mun meiri. Helsti munur-
inn er, að í Bandaríkjunum
er ein milljón tæpar 90
milljónir. Ég hef heyrt, að
þessi þáttur gangi víðar þ. á
m. í Evrópu. Ef svo er verð-
ur munurinn enn meiri, t.d.
í Bretlandi 125 milljónir.
Kærar þakkir.
Svanur Jóhannsson.
Tapað/fundið
Giftingarhringur og
fleira í óskilum
GIFTINGARHRINGUR,
trefill og fleira fannst fyrir
utan kvennadeild Lands-
spítalans. Upplýsingar í
síma 560-2140.
Karlmannsgleraugu
töpuðust
Karlmannsgleraugu í
svörtu járnhulstri töpuðust
fyrir um það bil hálfum
mánuði. Annaðhvort í
Reykjavík eða Hafnarfirði.
Upplýsingar í síma 567-
6245.
Ljósblá peysa tekin
í misgripum
LJÓSBLÁ peysa með
stórum kraga tapaðist
laugardagskvöldið 27. janú-
ar sl. á Sirkus. Einhver hef-
ur væntanlega tekið mína í
misgripum og skilið eftir
sína peysu sem var ljósblá
með hettu. Vinsamlega haf-
ið samband við Önnu í síma
866-3756.
Kvengleraugu
töpuðust
KVENGLERAUGU töp-
uðust við Bíóhöllina við
Álfabakka laugardaginn
27. janúar sl. Fundarlaun.
Skilvís finnandi er vinsam-
lega beðinn að hafa samb-
and í síma 567-2694.
Dökkrauðköflóttur
trefill tapaðist
TAPAST hefur dökkrauð-
köflóttur trefill. Hann hef-
ur sennilega tapast á Súf-
istanum við Laugaveg eða
þar í kring. Gæti einnig
hafa týnst í Kringlunni,
Holtagörðum, Bónus eða
IKEA. Trefillinn hefur
minningargildi fyrir eig-
andann og er hans sárt
saknað. Finnandi vinsam-
legast hringi í síma 557-
4265.
Blá nælontaska
tapaðist
BLÁ nælontaska með
sundbol og fleiru í tapaðist í
Grjótaþorpi laugardaginn
27. janúar sl. Skilvís finn-
andi hringi í síma 552-6949.
Hvítagulls
eyrnalokkur tapaðist
HVÍTAGULLS eyrnalokk-
ur tapaðist, líklega í Hag-
kaupi í Kringlunni fimmtu-
daginn 25. janúar sl.
Finnandi er vinsamlega
beðinn að hringja í Ástu í
síma 587-5741.
Dýrahald
Kanína
í óskilum
KANÍNA er í óskilum í
Álftamýri. Hún fannst
laugardaginn 27. janúar sl.
og var orðin frekar köld og
þreytt. Upplýsingar í síma
568-5199, einnig er hægt að
leggja inn skilaboð í talhólf
881-3277.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Annað orð
æskilegt
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI keypti fyrir skömmuleikjatölvu hjá BT-tölvum sem
ungur sonur hans hafði lengi óskað
eftir að eignast. Fögnuður drengsins
var mikill og einlægur þegar hann
uppgötvaði að óskir hans höfðu verið
uppfylltar. Hófst hann þegar handa
við að tengja tölvuna við sjónvarpið.
Víkverji áminnti hann um að svona
ætti maður ekki að fara með ný og
dýr tæki og las upp fyrir hann það
sem stóð á ábyrgðarskírteininu, en
þar stóð:
„Um leið og við óskum þér til ham-
ingju með kaupin, mælumst við til að
þú kynnir þér rétta notkun í hand-
bókunum sem fylgja, þannig að tæk-
ið geti þjónað þér sem lengst og
best.“
Víkverji varð hins vegar nokkuð
undrandi þegar hann uppgötvaði að í
handbókinni sem fylgdi tölvunni var
að finna skýringartexta á frönsku,
spænsku, þýsku, ítölsku, portú-
gölsku og hollensku. Enginn texti
var þar hins vegar á ensku og að
sjálfsögðu enginn á íslensku.
Víkverji hefur alla tíð verið frekar
slappur í hollenskunni og aldrei náð
almennilegum tökum á portúgölsk-
unni. Það varð því fátt up svör þegar
drengurinn spurði hvernig ætti að
tengja tölvuna. Eftir að faðir hans
hafði klórað sér í höfðinu allan dag-
inn og fram á kvöld og hélt því athæfi
áfram daginn eftir tók strákurinn
málið í sínar hendur og tengdi leikja-
tölvuna við sjónvarpið.
x x x
MJÓLKURSAMSALAN hefur ínokkur ár reynt að vekja fólk
til vitundar um íslenskt málfar.
Þetta er gert með textum utan á
mjólkurfernum. Í upphafi var lögð
áhersla á að benda fólki á rétta notk-
un á íslensku máli en síðustu ár hef-
ur sjónum verið beint að textum sem
eiga það sammerkt vera á góðri ís-
lensku og skemmtilegir. Ekki er
endilega verið að vitna í fagurbók-
menntir enda hafa sem betur fer
fleiri en skáld kunnað að skrifa góða
íslensku í gegnum árin.
Víkverji keypti mjólkurfernu fyrir
stuttu og á henni mátti lesa eftirfar-
andi texta sem er tekinn upp úr
grein í Vísi frá árinu 1920.
„Það er vægast sagt okkur til him-
inhrópandi háðungar og ævarandi
athlægis að við skulum ekki kunna
að meta jafngóðan, hollan og nær-
andi mat eins og síldin okkar er. Það
er blátt áfram þjóðarskömm. Svo má
heita að síld sé alls ekki étin hér á
landi og það litla, sem notað er, er
mestmegnis borðað af útlendingum
sem hér búa. ... Hér verður því að
hefjast handa og kenna fólkinu að
éta síld. Og besta ráðið til þess, hygg
ég að sé, að menn myndi félagsskap í
þessum tilgangi. Ákveða verður fast-
an síldardag í viku hverri og skulu
félagsmenn og fjölskyldur þeirra éta
síld þann dag. Og ekki myndi líða á
löngu þangað til almenningsálitið
dæmdi þá menn óþjóðrækna sem
ekki fylgdu hinum nýja sið.“
x x x
MJÓLKURSAMSALAN heldurúti öflugri heimasíðu þar sem
er að finna þá texta og teikningar
sem birst hafa á mjólkurfernunum.
Þar er líka að finna upplýsingar um
styrk þessa „miðils“ sem mjólkur-
fernan er. „Mjólkurfernurnar sem
fara í dreifingu daglega eru að með-
altali um 72.000 en til samanburðar
má geta þess að Morgunblaðið kem-
ur út í um 55.000 eintökum, svo
auðsjáanlegt er hversu sterkur þessi
miðill er.“