Morgunblaðið - 01.02.2001, Blaðsíða 70
FÓLK Í FRÉTTUM
70 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
STJÖRNURNAR í Hollywood
vinna í akkorði þessa dagana
vegna yfirvofandi verkfalls hand-
ritshöfunda og leikara sem mun
hefjast í sumar ef samningar nást
í tæka tíð.
Kemur það sérstaklega illa nið-
ur á hinum fjölmörgu kvikmynda-
hátíðum sem haldnar eru víða um
heim um þessar mundir en stjörn-
urnar keppast nú um að afboða
komu sína sökum anna. Kvik-
myndahátíðin í Berlín hefur sér-
staklega orðið fyrir barðinu á
þessu ófremdarástandi. Hátíðin
hefst 7. febrúar næstkomandi og
segjast aðstandendur eiga býsna
erfitt með að tilkynna þá nafntog-
uðu listamenn sem viðstaddir
verða hátíðina vegna þess hversu
loðin svör þeir hafa gefið.
Handritshöfundar hafa löngum
verið vandræðastétt í Hollywood,
í það minnsta að mati leikstjóra,
framleiðenda og yfirmanna stóru
kvikmyndaveranna. Einstaka
handritshöfundar hafa náð þeim
stalli að geta farið fram á svim-
andi há laun fyrir vinnu sína en
yfir höfuð hefur stéttin kvartað
hátt og lengi yfir því hversu lítil
virðing henni er sýnd. Deilan við
framleiðendur hefur oft og tíðum
orðið ansi hatrömm og fúkyrðin
látin flakka. Kvikmyndamógúllinn
Irving Thalberg lét t.a.m. þau orð
falla í garð handritshöfunda þeg-
ar þeir heimtuðu aukin veg og
virðingu á fjórða áratugnum:
„Hvaða vesen er þetta á þessum
handritshöfundum? Eina sem þeir
gera er að raða einu orði á eftir
öðru.“
Handritshöfundar
vilja aukin veg
Ef kröfurnar sem handritshöf-
undar gera nú ná fram að ganga
munu eiga sér stað miklar breyt-
ingar á gerð kvikmynda og hverju
heiðurinn er eignaður. Þannig
myndu orðin „Mynd eftir ...“
hverfa úr upphafskynningu
mynda því handritshöfundum þyk-
ir leikstjórum þar gert ansi ríku-
lega undir höfði. Enn fremur fara
handritshöfundar fram á að fá að
fylgja handritum sínum eftir, vera
viðstaddir sjálfa kvikmyndagerð-
ina því þannig væri komið í veg
fyrir að leikstjórar og leikarar
séu að krukka í sífellu í handrit-
unum og breyta annarra manna
hugarsmíðum til að þjóna eigin
kenjum. Handritshöfundar vilja
þar að auki vera viðstaddir tökur
hvers dags til að geta fylgst betur
með því hvernig unnið sé með
handritin. Með öðrum orðum fara
handritshöfundarnir fram á að
taka framvegis þátt í gerð mynd-
anna eftir handritum sínum, fá
hluta af heiðrinum og vera þannig
viðstaddir frumsýningarnar og
verðlaunaafhendingar, sem hing-
að til hefur ekki þótt sjálfsagt mál
í henni Hollywood. Handritshöf-
undarnir hafa lýst því yfir að
meðferðin sem þeir hljóta stund-
um sé fyrir neðan allar hellur.
Þeir séu álitnir verkamenn, frem-
ur en listamenn, sem fái ákveðnar
fyrirskipanir sem verði að hlýða
hvað sem tautar og raular. Fæstir
hafa þó viljað lýsa reynslu sinni
opinberlega vegna óttans við að
verða útskúfaðir úr Hollywood.
Það er þó ekki allir handrits-
höfundar sammála þessu. Eric
Roth á að baki handrit að mörg-
um metsölumyndum og fékk ósk-
arsverðlaun fyrir handrit sitt að
Forrest Gump. Hann segist al-
mennt eiga gott samband við leik-
stjóra sem byggt sé á gagnkvæmri
virðingu: „Vissulega hefur komið
upp ágreiningur. En þá skilja ein-
faldlega leiðir og þar með er það
afgreitt.“
Framleiðsla í
Hollywood kann að lamast
Leikstjórar eru yfir höfuð stór-
hneykslaðir á þessum miklu kröf-
um handritshöfunda og kannast
fæstir við að sýna handritshöf-
undum vandvirðingu. Þeir benda
jafnframt á að leikstjórinn eigi
fyllilega skilið allan þann heiður
sem þeir fái vegna þess að þeir
séu hinir einu sem fylgja mynd-
inni allt framleiðsluferlið og það
séu þeir sem fái skammirnar ef
illa hefur tekist til.
Sumir leikstjórar hafa hins veg-
ar ætíð talið heiðurinn sem þeim
er sýndur óeðlilega mikill. Woody
Allen, sem bæði semur og leik-
stýrir myndum sínum, þykir t.d.
upphafskynningin „Mynd eftir
Woody Allen“ bæði „tilgerðarleg
og óþörf“ og í sama streng taka
þeir Barry Levinson og Irwin
Winkler sem báðir hafa getið sér
orð hvort tveggja sem handrits-
höfundar og leikstjórar.
Það þykir næsta víst að ef til
verkfalls kemur muni framleiðsla
á efni fyrir sjónvarp og kvik-
myndahús lamast og eru menn
ekkert allt of vongóðir um að
samningar náist og sérstaklega
erfitt verði að leysa ofannefnd
deilumál er snúa að auknum veg
handritshöfunda á framleiðslu-
stiginu.
Stjörnurnar
í akkorði
Reuters
Eric Roth (lengst til vinstri) segist hafa átt gott samstarf við leikstjóra.
Hann er hér ásamt Al Pacino og leikstjóranum Michael Mann en saman
sömdu þeir Mann og Roth handritið af The Insider.
Reuters
Woody Allen þykir tilgerðarlegt
og algjör óþarfi að kenna kvik-
mynd eingöngu við leikstjórann.
Yfirvofandi verkfall handritshöfunda og leikara í Hollywood
Í tilefni 25 ára afmælis
Clöru í Kringlunni
fylgja gjafir öllum
vörum frá Dior í dag,
fimmtudag 1. febrúar,
ásamt afmælisafslætti.
Ráðgjafi frá Christian
Dior verður á staðnum
og veitir faglega
ráðgjöf.
Verið hjartanlega
velkomin
NÝTT — NÝTT
MODEL LIFT næturkrem.
Húðin lyftist, stinnist og styrkist
á meðan þú sefur.
Kringlunni,
s. 568 9033.
MODEL LIFT NUIT
Sjáanlegur árangur
á einni viku
Skráning er í síma 565 9500
www.hradlestrarskolinn.is
HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ
Lestrarhraði þátttakenda á námskeiðum rúmlega fjór-faldast
að jafnaði og eftirtekt batnar.
Öllu námi og öllum stjórnunarstörfum fylgir mikið lestrarálag.
Þeir sem eru fljótastir ná bestum árangri. Hvert stefnir þú?
Ef þú stefnir hátt skaltu skrá þig strax.
Næsta námskeið hefst þriðjudaginn 13. febrúar.
Við opnum kl. 7 alla daga
Eldhúsið er opið til kl. 22.30 virka daga
föstudaga og laugardaga til kl. 23.30
Nýr matseðill
Tveggja rétta hádegisverður frá kr. 1.190
Þriggja rétta Skuggabars afmælismatseðill frá kr. 3.350
Tökum frá borð fyrir matargesti á Skuggabar
eftir kvöldverð sé þess óskað.
1930 Brasserie á Hótel Borg
Borðapantanir í síma 551 1247
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Brúðhjón
A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r
www.leir.is