Morgunblaðið - 01.02.2001, Blaðsíða 45
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 45
NÝLEGA er afstað-
ið vel heppnað lands-
þing Frjálslynda
flokksins. Þar mætti
fólk úr öllum kjördæm-
um og stofnuð voru ný
kjördæmafélög sem
miðast við hina nýju
kjördæmaskipan, að
því undanskildu að eitt
kjördæmisfélag starfar
fyrir Reykjavíkurkjör-
dæmin, en þar er enn
ekki ljóst hvar mörk
verða dregin. Með
stofnun þessara félaga
ásamt staðfestingu á
stefnuávarpi og skipu-
lagsreglum flokksins
er starfsemi flokksins komin í fast-
ara form en verið hefur. Segja má
að hann hafi slitið barnsskónum og
takist nú á við ný verkefni með vel
mótað skipulag á bak við forystuna.
Meðal margra góðra ályktana
þingsins var ályktað um sveitar-
stjórnarmál. Einróma stuðningur er
við þá ákvörðun að bjóða fram til
sveitarstjórna víðs vegar um landið
vorið 2002. Þegar er
hafin vinna að undir-
búningi þess þótt hún
sé mislangt á veg kom-
in. Mjög misjafnt er á
þessari stundu hverjar
eru aðstæður til fram-
boðs. Ætla má þó að
flokkspólitískum fram-
boðum fjölgi heldur
eftir því sem sveitar-
félög stækka. Hin nýju
kjördæmafélög sem nú
hafa verið stofnuð
munu beita sér fyrir
stofnun flokksfélaga í
sveitarfélögum, en þau
munu vinna að fram-
boðum þar í samráði
við kjördæmafélögin.
Sérhvert félag sem býður fram í
nafni Frjálslynda flokksins mun að
sjálfsögðu setja sér markmið, sem
geta verið mismunandi á hverjum
stað. Þau munu þó jafnframt hafa að
leiðarljósi stefnumál flokksins, sem
markar sér stöðu í íslenskum stjórn-
málum sem frjálslyndur flokkur í al-
þjóðlegri merkingu þess orðs. Sam-
þykkt hefur verið stefnuávarp –
Manifesto – sem felur í sér grunn-
þætti málefnalegrar stefnu flokks-
ins. Það má nálgast á heimasíðu
flokksins, www.xf.is, þar sem einnig
er að finna annan fróðleik um mál-
efni hans.
Frjálslyndi flokkurinn berst m.a.
fyrir:
Frelsi einstaklingsins til athafna
án þess að mismuna öðrum eða
beita þá órétti.
Dreifingu valds út í samfélagið
eftir því sem kostur er.
Lýðræðislegu forræði meirihlut-
ans í samfélaginu.
Fullu jafnrétti karla og kvenna á
öllum sviðum.
Þátttöku í alþjóðlegu umhverfis-
verndarstarfi og virðingu fyrir
landinu.
Þróun upplýsingatækni og al-
mennri nýtingu hennar.
Bættri menntun á öllum skóla-
stigum og eflingu fjarkennslu.
Að fjármál stjórnmálaflokka séu
opinber og aðgengileg.
Frjálslyndi flokkurinn berst
gegn:
Hvers konar einokun í viðskipta-
lífi og stjórnmálum, klíkuveldi,
fordómum, skoðanakúgun, mis-
munun og ofríki gegn þegnunum
af hvaða tagi sem er.
Fátækt í okkar ríka samfélagi.
Menningarlegum stéttamun sem
getur leitt til þess að stór hluti
borgaranna verði óvirkir þegnar
samfélagsins.
Ofríki framkvæmdavaldsins gegn
löggjafarvaldi og dómsvaldi.
Ofangreint mun verða haft að
leiðarljósi í starfi flokksins, auk þess
sem vænta má eins og áður er getið
að á hverjum stað muni áherslur
verða á hagsmuni byggðanna, sem
eru af ýmsum toga.
Niðurstaða landsfundarins er
ótvíræð: Frjálslyndi flokkurinn mun
bjóða fram í næstu sveitarstjórn-
arkosningum og ekki er ólíklegt að
gengi hans þar muni koma mörgum
á óvart.
Frjálslyndir munu bjóða
fram til sveitarstjórna
Pétur
Bjarnason
Kosningar
Niðurstaða lands-
fundarins er ótvíræð,
segir Pétur Bjarnason.
Frjálslyndi flokkurinn
mun bjóða fram
í næstu sveitar-
stjórnarkosningum.
Höfundur er varaþingmaður
Frjálslynda flokksins í
Vestfjarðakjördæmi.
Nýskr. 3.1998, 2900cc diesel vél,
3 dyra, 5 gíra, svartur, ekinn 18 þ.
Álfelgur, dráttarkrókur,
geislaspilari o.m.fl.
Verð 1.750 þ.
Daewoo Korando
Grjóthálsi 1
Sími 575 1230/00
bíla
land
notaðir bílar
bilaland.is
B&L
S
p
a
ce
-s
a
v
e
r
Þrektækjadeild
Skeifunni 11, S ími 588 9890
STOFNAÐ 1925
Mikið úrval göngu- og hlaupabrauta ásamt mesta úrvali
landsins af þrek- og æfingatækjum. Aðeins topp-merki.
530
T A K T U Á M E Ð 530
Bjóðum aðeins gæðatæki frá heimsþekktum framleiðendum og fullkomna varahluta- og viðgerðaþjónustuVisa- og Euro raðgreiðslur
Rafdrifin göngu/hlaupabraut
Hraði 0-13 km/klst. Fjaðrandi bretti sem
minnkar álag á liðamót. Vandaður tölvumælir
sem sýnir: Hraða, tíma, vegalengd, púls og
kaloríubrennslu. Rafdrifin hæðarstilling
og hægt að leggja saman.
kr. 157.468.-
Stgr. 149.594.-
Stærð: L.154 x Br.72 x H.130 cm
K
O
R
T
E
R
Daily Vits
FRÁ
Inniheldur 29 tegundir af
vítamínum, steinefnum og
Rautt Panax Ginseng.
APÓTEKIN
Upplýsingar í síma 567 3534.
D
re
if
in
g
J
H
V
S
ta
n
sl
au
s
o
rk
a