Morgunblaðið - 01.02.2001, Blaðsíða 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 25
Rýmingarsa la 60-70% afs l .
síðustu dagar útsölunnar
GEORGE W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, lagði á þriðjudag fyrir
Bandaríkjaþing tillögur sem miða
að því að trúfélög gegni stórauknu
hlutverki á sviði velferðarmála. Gert
er ráð fyrir að trúarleg samtök sem
vinna að einhvers konar samfélags-
þjónustu geti sóst eftir milljörðum
dollara af opinberu fé. Ekki eru allir
á eitt sáttir um ágæti tillagnanna og
segja gagnrýnendur að þær grafi
undan grundvallarreglunni um að-
skilnað ríkis og kirkju.
Forsetinn tilkynnti á mánudag að
sett hefði verið á fót skrifstofa innan
Hvíta hússins, sem hefur meðal ann-
ars það verkefni að tryggja fjárveit-
ingar til trúfélaga sem bjóða með-
ferð við fíkniefnavanda og alkóhól-
isma eða vinna að lausn annarra
félagslegra vandamála. Bush leggur
jafnframt til að skattaafslætti verði
beitt til að hvetja fólk til að gefa til
góðgerðarmála.
„Góðgerðarfélög og samfélags-
hópar koma aldrei í stað stjórn-
valda,“ sagði forsetinn á fundi með
trúarleiðtogum og forvígismönnum í
félagsþjónustu á mánudag. „En
þegar kemur að samfélagsþjónustu í
Bandaríkjunum mun stjórn mín
fyrst og fremst líta til meðferðarúr-
ræða og samtaka er byggja á trú,
sem hafa sýnt fram á getu sína til að
bjarga og breyta lífum.“ Í kosninga-
baráttunni lagði Bush mikla áherslu
á að trúfélög gætu gegnt viðameira
hlutverki í samfélagsþjónustu og til-
lögurnar eru í samræmi við hina
„umhyggjusömu íhaldssemi“ sem
hann hefur kennt sig við.
Samkvæmt gildandi lögum verða
trúfélög að stofna sjálfstæð samtök,
sem boða hvorki trúarbrögð né mis-
muna fólki eftir trúarskoðunum, til
að geta sótt um styrki af opinberu fé
í því skyni að veita félagslega þjón-
ustu. Tillögur Bush gera hins vegar
ráð fyrir að trúfélög geti sótt beint
um fjárveitingar án þess að þurfa að
fara í gegnum dótturfélög.
Andstæðingar áforma forsetans
benda á að þau hafi það í för með
sér að samtök sem mismuna fólki
eftir trúarskoðunum fái nú aðgang
að opinberu fé. „Ég sætti mig til
dæmis ekki við að [trúarstofnanir
mótmælenda] fái fé úr opinberum
sjóðum og setji svo upp skilti sem
segir að kaþólikkar eða gyðingar
þurfi ekki að ómaka sig við að sækja
þar um starf,“ sagði Chet Edwards,
fulltrúadeildarþingmaður demó-
krata frá Texas, í viðtali við New
York Times.
En tillögur Bush njóta víðtæks
stuðnings á Bandaríkjaþingi.
Stuðningsmenn frumvarpsins vísa
því á bug að með því sé verið að
grafa undan grundvallarreglunni
um aðskilnað ríkis og kirkju og
leggja áherslu á að ekki standi til að
veita styrki til trúboðs.
Bush kynnir tillögur sínar, umkringdur fulltrúum ýmissa trúarhópa.
Reuters
George W. Bush leggur fram tillögur um velferðarmál
Eflt hlutverk trúfélaga
í samfélagsþjónustu