Morgunblaðið - 01.02.2001, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.02.2001, Blaðsíða 23
NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 23 EKKERT hefur dregið úr sölu á nautakjöti í Danmörku, þrátt fyrir kúariðufárið sem riðið hef- ur yfir Evrópu og orðið til þess að salan í aðild- arlöndum Evrópusambandsins (ESB) hefur dreg- ist saman um 27% frá því í október sl. Danskir bændur, veitingamenn og kaupmenn búa sig hins vegar undir það versta. Tvö kúariðutilfelli hafa komið upp í Danmörku og bannlistinn frá ESB lengist enn. Nú má ekki lengur selja T-beinssteik, sem hverfur í þessari viku úr kjötborðunum, og daglegur fréttaflutn- ingur er af nýjum kúariðutilfellum eða aðgerðum til að berjast gegn vágestinum. Það vekur því nokkra furðu að ekki skuli hafa dregið úr neyslu nautakjöts. Stærstu versl- anakeðjur Danmerkur fullyrða að svo sé ekki og hafna því í samtali við Berlingske Tidende að það standi í nokkru sambandi við verðlækkun á nautakjöti það sem af er janúar. Segja versl- anirnar að verið sé að losna við umframbirgðir frá því fyrir jól. Verðið hefur þó ekki aðeins fallið í kjötborðinu, bændur fá nú sem svarar til 10 kr. ísl. minna fyrir hvert kg. af nautakjöti, eða um 4.000 kr. minna á hvern skrokk. Ástæðan er hrun á erlendum mörkuðum en það hefur orðið til þess að lækka verð á ungnautakjöti um 15% og kýrkjöti um 20%. Fjölmargir veitingastaðir í Kaupmannahöfn eins og annars staðar hafa um árabil lagt áherslu á nautakjöt og vísa til þess í heitum staðanna. Enn er óljóst hvort gæfan snýst gegn þeim hjá „Bøfhus“ sem hafa notið svo góðs gengis. Veit- ingastaðirnir hafa orðið að fjarlæga T-beinssteik og rifjasteik af matseðlinum og nokkrir þeirra, m.a. Bøf og Ost við Grábræðratorg, sem er mörg- um Íslendingum að góðu kunnur, og A Hereford Beefstow-keðjan, bjóða ekki upp á danskt kjöt, heldur frá Suður-Ameríku og Ástralíu. Danir í viðbragðsstöðu þó ekki dragi úr nautakjötssölu Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. Hvað er kúskús? Úr hverju er kúskús gert og hvert er næringarinnihald þess? „Kúskús eða „couscous“ er ein meginuppistaða fæðis í Norður-Afr- íku. Um er að ræða litlar kúlur eða grjón sem gerðar eru úr hörðu hveiti og líkjast þær því pasta,“ seg- ir Anna Sigríður Ólafsdóttir, mat- væla- og næringarfræðingur hjá Manneldisráði Íslands. „Á Vestur- löndum eru forsoðin kúskúsgrjón almennt á boðstólum, en þau nægir að sjóða í stutta stund eða leggja í bleyti í sjóðandi vatn. Upprunalegt kúskús þarf hins vegar að gufusjóða í um klukkustund. Algengt er að kúskús sé borið fram með mikið af soðnu grænmeti og lambakjöti.“ Að sögn Önnu Sigríðar er kúskús ekki bara líkt pasta að gerð heldur er næringargildi þess einnig mjög sambærilegt, þ.e. kolvetnaríkt. Sólarvörn Gilda ákveðnar reglur um efni í sólarvörnum og hvernig er málum háttað þegar merkingar eru ann- ars vegar? „Til er sérstök reglugerð yfir sól- arvörn. Í reglugerð um snyrtivörur er listi um leyfileg efni til síunar út- fjólublárra geisla sólarinnar. Í list- anum kemur einnig fram mesta magn viðkomandi efna sem nota má,“ segir Níels Breiðfjörð Jóns- son, sérfræðingur á eiturefnasviði Hollustuverndar ríkisins, og bætir við að reglugerðin hafi verið sett ár- ið 1998 með smá breytingum. „Allar snyrtivörur á að merkja með INCI-nafngiftum, það er á ensku, í fallandi röð eftir magni, hvort sem annar texti á umbúðum er á grísku, rússnesku eða íslensku. Þetta er meðal annars gert til að neytandinn geti fundið út, hvar sem hann er staddur, hvort efni sem hann hefur ofnæmi fyrir sé í snyrti- vörunni sem hann ætlar að kaupa. Það eru bara ákveðin efni sem nota má þegar sólarvarnir eru ann- ars vegar og til eru sérstakir við- aukar með upplýsingum um þau efni og þá má nefna að um 500 efni má alls ekki nota þegar sólarvarnir eru annars vegar.“ Þá segir Níels að eftir því sem meira magn er af sólarvörn á húð- inni því betri sé vörnin og því sé gott að bera á húðina nokkrum sinnum á dag. „Þá veit ég dæmi þess að sumir séu með ofnæmi fyrir vissum efnum í sumum sólarvörnum og því er mik- ilvægt að lesa vel á leiðbeiningar áð- ur en kremið er borið á húðina.“ Spurt og svarað ferðir á kólesterólgildi voru aðrar en nú, mældist það með efni sem var í raun ekki kólesteról. Mér dettur helst í hug að rækjur hafi lent þarna með á lista af þessum sökum.“ Hann bendir á að sú fita sem sé í rækjum sé ekki ólík fitu í lýsi sem breyti vondu kólesteróli í gott kól- esteról. Það þurfi því að taka tillit til þessara þátta líka, þ.e. heildaráhrifa þegar talað er um kólesterólgildi í fæðu. Ólafur Reykdal, matvælafræð- ingur hjá Matvælarannsóknum Keldnaholti, segir að rækjur séu hiklaust hollar þar sem rækjur séu fiturýrar og fitan sem sé í rækjum sé að miklu leyti ómettuð. „Rækjur eru próteinríkar og fiturýrar.“ Ólafur segist ekki sjá neina ástæðu til að hvetja fólk til að draga úr neyslu á rækjum vegna kólester- ólmagns í þeim þar sem kólester- ólgildið sé í meðallagi hátt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.