Morgunblaðið - 01.02.2001, Page 15

Morgunblaðið - 01.02.2001, Page 15
AKUREYRI LAUGAVEGI 91, S. 562 0625 ÚTSALA ENN MEIRI VERÐLÆKKUN ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR KRINGLUNNI, S. 568 9017 - LAUGAVEGI, S. 511 1717 OPIÐ TIL KL. 21.00 Í KRINGLUNNI ALLA FIMMTUDAGA Dömur Bolir frá .....500 Buxur - .....1.900 Jakkar - .....2.900 Leðurjakkar - .....9.900 Skór - .....1.900 Stígvél - .....4.900 Herrar Jakkar frá ..2.400 Buxur - .....2.900 Skyrtur - ....1.900 Skór - ....3.900 ÚTSALA ENN MEIRI VERÐLÆKKUN ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR MUNIÐ LANGAN LAUGARDAG eva Nicole Farhi - Joseph - Virmani - Basotto - Free Lance - Gerard Darel - DKNY - Paul et Joe Verðdæmi: MUNIÐ LANGAN LAUGARDAG Nýjar vörur komnar HEIÐAR Árnason félagi í Golf- klúbbi Akureyrar vann fyrstu verðlaun í Golfkortsleiknum, sem er samvinnuverkefni Íslands- banka–FBA, Samvinnuferða– Landsýnar og Golfsambands Ís- lands. Heiðar hlaut að launum fjög- urra daga golfferð með Sam- vinnuferðum–Landsýn til Dyflinar á Írlandi yfir páskana. Alls voru dregnir þrír vinningshafar úr virkum Golfkortshöfum. Aðrir vinningshafar eru: Anna Jóna Guðmundsdóttir, sem vann CO Classic golfsett frá Golfbúðinni, Strandgötu og Örvar Þór Sigurðs- son, sem vann Series Titanium driver frá Nevada Bob. Morgunblaðið/Kristján Finnur Tjörvi Bragason hjá markaðsdeild Íslandsbanka afhendir Heiðari Árnasyni verðlaunin í útibúi Íslandsbanka á Akureyri. Heiðar vann golfferð ATVINNUMÁLANEFND Akur- eyrar samþykkti ályktun á fundi sínum nýlega, þar sem nefndin fer fram á það við bæjarstjórn að hún tilnefni tvo fulltrúa Akureyrarbæj- ar í verkefnastjórn vegna kynn- ingar- og markaðsátaks atvinnu- málanefndar og Akureyrarbæjar samkvæmt samþykkt bæjarstjórn- ar frá 20. júní á síðasta ári. Átakið var kynnt sérstaklega á blaðamannafundi í Reykjavík sl. sumar af þeim Kristjáni Þór Júl- íussyni, bæjarstjóra, og Val Knútssyni, formanni atvinnumála- nefndar, og þar kom fram að verk- efnið ætti að hefjast strax með haustinu með ráðningu verkefnis- stjóra. Hann hefur ekki ekki verið ráðinn og frekar lítið hefur gerst í þessu máli frá því það var kynnt um mitt síðasta ár. Valur Knútsson sagði í samtali við Morgunblaðið að nefndin hafi lagt til þá breytingu, að í stað þess að ráða sérstakan verkefnistjóra verði starfsmaður leigður frá ráð- gjafarstofu vegna kynningar – og markaðsátaksins. „Annars er þetta ekkert farið af stað og en við erum að leggja til að bæjarstjórn til- nefni menn í verkefnastjórn. Verk- efnið er í burðarliðnum og við reiknum með að það fari af stað á næstu tveimur til þremur vikum. Einnig kom fram á fundinum sl. sumar að Akureyrarbær hafi ákveðið að verja 13 milljónum króna á næstu 12 mánuðum til markaðsátaks í atvinnumálum. Markmiðið með átakinu er að auka atvinnuframboð og fjölga eftir- sóknarverðum störfum í bænum og þar með íbúum. Íbúum fjölgi umfram landsmeðaltal Kynningar- og markaðsmál eru sett á oddinn í starfsáætlun at- vinnumálanefndar fyrir þetta ár. Með ályktuninni á dögunum er nefndin að þrýsta á viðbrögð frá bæjaryfirvöldum, enda orðið rúmt hálft frá því verkefnið var kynnt. Verkefnið er sett af stað í fram- haldi af lífskjarakönnun sem at- vinnumálanefnd lét gera snemma á síðasta ári. Í markaðsáætlun verk- efnisins er miðað að því að árlega fjölgi störfum um að minnsta kosti 2% í bænum. Jafnframt er mark- miðið að fækka þeim einstakling- um sem flytja frá Akureyri og fjölga þeim sem flytja til bæjarins. Er þar miðað við að íbúafjölgun á Akureyri aukist umfram lands- meðaltal. Kynningar- og markaðsátak Akureyrarbæjar farið rólega af stað Atvinnumála- nefnd ýtir við bæjaryfirvöldum ANNA Hrefnudóttir myndlistakona opnar málverkasýningu í Deiglunni, Kaupvangsstræti 23, föstudaginn 3. febrúar kl. 16, en sýningin stendur til 13. febrúar að báðum dögum með- töldum. Hún er opin daglega frá kl. 14 til 18. Á sýningunni eru málverk sem öll eru unnin í gestavinnustofu Gilfélagsins á Akureyri það sem af er þessu ári en þar hefur Anna verið gestur frá 1. janúar síðastliðnum og verður til loka sýningarinnar. Alls eru 14 verk á sýningunni, öll ný og eru þau flest akrýlmálverk á striga en nokkur eru unnin með blandaðri tækni. Yfirskrift sýningar- innar vísar til eins verksins, „Hafs- auga“, sem er ljóðmynd og er inni- hald þess rauði þráðurinn í sýningunni. Sorg, söknuður, reiði, ást, von og gleði eru viðfangsefnið. En hvort áhorfendur sjá það sama og listamaðurinn er önnur saga. Við opnun sýningarinnar munu Jónas Sen píanóleikari og Þorvaldur Þorvaldsson baritón flytja tónlist. Anna Hrefnudóttir sýnir í Deiglunni Gefðu mér auga MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 15

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.