Morgunblaðið - 01.02.2001, Side 29

Morgunblaðið - 01.02.2001, Side 29
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 29 LÍFRÆN RÆKTUN Í NÚTÍÐ OG FRAMTÍÐ Í tilefni komu Inger Kallander, form. Samtaka líf- rænna bænda í Svíþjóð, verður haldinn opinn fundur fyrir allt áhugafólk laugardaginn 3. febrúar kl. 13.30 í B-sal á Hótel Sögu. Inger mun fjalla um stöðu lífræns landbúnaðar á hinum Norðurlöndunum auk þess sem hún fjallar um mikilvægi lífræns landbúnaðar. Erindið verður flutt á ensku. Fundarstjóri verður Þórður Halldórsson form. VORS samtaka lífrænna bænda á Íslandi og flytur hann erindi um stöðuna á Íslandi. Kaffiveitingar verða í boði. Allt áhugafólk um lífræna ræktun er boðið velkomið á meðan húsrúm leyfir. VOR Samtök lífrænna bænda. ÁFORM átaksverkefni. Í BANDARÍKJUNUM hafa marg- ir vaxandi áhyggjur af því, að Evr- ópuherinn nýi muni grafa undan Atlantshafsbandalaginu, NATO. Vegna þess hafa ýmsir kunnir repúblikanar skorað á George W. Bush forseta að snúa sér að því án tafar að treysta stöðu bandalags- ins. Þótt Bush hafi ekki verið í emb- ætti nema í rúma viku og Colin Powell utanríkisráðherra og Condoleezza Rice, ráðgjafi forset- ans í öryggismálum, hafi ekki enn valið sér samstarfsmenn eru við- brögð Bandaríkjanna við aukinni samvinnu Evrópuríkjanna nú þeg- ar eitt brýnasta málið. Henry Kissinger, sem var utanríkisráð- herra í tíð Nixons, gerir þessi mál að umtalsefni í grein, sem birtist í Washington Post, og segir þar, að Evrópusambandið sé að koma á fót herafla, sem verði algerlega að- skilinn frá NATO. „Þessi herafli gæti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Hann gæti skaðað eðlilega starfsemi NATO og sam- starf aðildarríkjanna; hernaðar- máttur þeirra ykist ekki og hinn nýi her yrði ekki til að auka sjálf- stæði eða sjálfræði Evrópuríkj- anna í neinu, sem máli skipti.“ Veikari tengsl Kissinger segir, að „hin tilfinn- ingalegu tengsl“ milli Bandaríkj- anna og Evrópu hafi veikst og mörg Evrópuríkjanna séu farin að rækta sitt „sérstaka samband“ við Rússland og líti á NATO sem hverjar aðrar kaldastríðsleifar. Hafi Clinton-stjórnin skilið eftir sig mikið af ósvöruðum spurning- um um samrunaferlið í Evrópu en „tilkoma ríkisstjórnar repúblikana muni óhjákvæmilega verða til að breyta áherslum í viðræðunum við leiðtoga Evrópuríkjanna“. Kissinger segir, að virðing bandaríska forsetaembættisins hafi sett niður í tíð Clintons í aug- um margra Evrópumanna en stefna Bush muni snúast minna um ákveðna einstaklinga en meira um uppbyggilegar viðræður milli Atlantshafsríkjanna. Kissinger segir að lokum, að Evrópuríkin verði að endurskoða afstöðu sína til eldflaugavarna- áætlunarinnar og „spyrja sjálf sig þeirrar spurningar hvort þau vilji vera berskjölduð“ fyrir ríkjum á borð við Norður-Kóreu og Írak. „Evrópsk einangrunarhyggja“ William Safire, kunnur, hægri- sinnaður dálkahöfundur hjá New York Times, gagnrýndi áætlanir um Evrópuherinn mjög harðlega í síðustu viku. Kallaði hann þær „evrópska einangrunarhyggju“, sem „franskir þjóðrembumenn og blýantanagarar í Brussel“ væru í forystu fyrir. Sagði hann, að að- eins „hinn hugumstóri“ William Hague berðist gegn upplausn NATO og hefði varið hernaðar- samvinnu Bandaríkjanna og Evr- ópu með frábærri ræðu „í anda Churchills“. Þá skoraði Safire á Bush að sitja ekki fyrir á mynd með Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands og „sálufélaga Clint- ons“, fyrir næstu kosningar í Bret- landi. Þeir Blair og Bush hafa þó rætt saman í síma og verið er að und- irbúa heimsókn Blairs til Washing- ton í næsta mánuði. Bush, sem hefur ekki mikla reynslu í utanrík- ismálum, mun þá hafa sér til halds og trausts þau Powell utanríkis- ráðherra, Rice öryggisráðgjafa, Donald Rumsfeld varnarmálaráð- herra og Dick Cheney varaforseta. Sama loðmullan áfram? Sagt er, að þau Powell og Rice hafi minni áhyggjur af samruna- ferlinu í Evrópu en Cheney og Rumsfeld og líklegt er talið, að Powell muni fremur skipa í emb- ætti reynda menn úr utanríkis- þjónustunni en fulltrúa hinnar pólitísku stefnu. Þá er líka eins líklegt, að áframhald verði á því, sem Safire kallaði hjá Clinton „loð- in viðbrögð Bandaríkjanna við evr- ópsku einangrunarhyggjunni“. Vaxandi áhyggjur vestra af framtíð NATO Washington. Daily Telegraph. Henry Kissinger Colin Powell

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.