Morgunblaðið - 01.02.2001, Qupperneq 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 33
Kringlunni, sími 588 0079
ÚTSALA
Enn meiri verðlækkun
Allt að 70% afsláttur
PART TWO
Kringlunni • s. 568 6845
ÚTSALA
FALLEGUR FATNAÐUR - STÆRÐIR 32-46 - GOTT VERÐ
meiri
verðlækkun
Allt að
70%
afsláttur
llt
OPIÐ TIL KL. 21.00
FIMMTUDAGA
Í TÍUNDA hefti Andblæs, tímarits
um myndlist og bókmenntir, sem
kom út skömmu fyrir áramót, kenn-
ir ýmissa grasa. Meðal efnis eru
frumort ljóð eftir ung íslensk ljóð-
skáld sem og hin eldri,
auk ljóðaþýðinga og
viðtala við tvo erlenda
listamenn, þar af annað
við ameríska rithöfund-
inn Edward Bunker,
sem skrifaði m.a. hand-
ritið að kvikmyndinni
Reservoir Dogs. Gallerí
Andblæs er skipað til
öndvegis í tímaritinu.
Þar eru prentaðar lit-
myndir af málverkum
listamanna í listmál-
arafélaginu Gullna
penslinum. Það er nýr
listmálarahópur, sem
um þessar mundir sýnir
í Vestursal Kjarvals-
staða. Þá er í heftinu
grein eftir Berglindi Gunnarsdóttur
um Rimbaud og sýndarveruleikann
og umfjöllun um listakonuna Katr-
ínu Sigurðardóttur eftir Ágústu
Kristófersdóttur. Ef allt er meðtalið
eru höfundar efnis yfir 40 á rúmlega
100 síðum.
Andblær hóf göngu sína árið 1994
og segir ritstjóri tímaritsins, Mar-
grét Lóa Jónsdóttir, að Andblær hafi
aukist að vöxtum allra síðustu ár.
„Andblær kom í fyrstu út að vori og
hausti en síðla árs 1998 tókum við í
ritnefndinni þá ákvörðun að gefa
tímaritið út einu sinni á ári og hafa
það mun efnismeira,“ segir Margrét
Lóa. ,,Samhliða þessari ákvörðun
tókum við þá stefnu að gera mynd-
listinni hærra undir höfði en áður
hafði verið gert í Andblæ, með
skipulegri umfjöllun og síðast en
ekki síst með litmyndum. Ég hef
starfað sem leiðsögukona á Kjar-
valsstöðum og einnig fengist sjálf
við myndlist og því rann mér blóðið
til skyldunnar. Síðan listatímaritið
Teningur hætti að koma út hefur
nefnilega sárlega vantað málgagn
fyrir myndlistarmenn. Andblær
spratt upphaflega fram sem neðan-
jarðarrit, en núorðið felst sérstaða
þess aðallega í þeirri miklu áherslu
sem við leggjum á myndlist. Við
leggjum mikið upp úr vandaðri út-
litshönnun og ég hef fundið fyrir
góðum meðbyr við útgáfuna. Við
vöndum eins vel til verks og unnt er
við prentun listaverk-
anna og mætum kostn-
aði með sölu auglýs-
inga, auk áskriftarsölu
til einstaklinga og
listasafna.“
– Hvernig er bók-
menntaumfjölluninni
háttað í Andblæ?
,,Að þessu sinni eru
ákveðnar tengingar í
bókmenntunum og
raunar í myndlistinni
líka. Þýðingar á ljóð-
um frá Írak, Palestínu
og Sýrlandi endur-
spegla ákveðinn lífs-
háska og fjallað er um
dauðann í mörgum ís-
lensku ljóðanna. Lífs-
háski og algleymi skáldskapar birt-
ist í grein Berglindar um Rimbaud
og síðan birtist lífsháskinn enn á ný í
viðtalinu við Edward Bunker. Um
leið skynjar maður hjá Bunker
mikla bjartsýni og þolinmæði, sem
tengist síðan aftur efni viðtals við
myndlistarkonuna Karin Kneffel.
Fyrir henni er tíminn sem það tekur
að mála listaverk mikilvægur og hún
segist jafnframt leitast við að mála
,,eitthvað fallegt“. Þegar ég skipu-
legg hvert tölublað með ritnefndinni
er okkur annt um að tengja efni
blaðsins með einum eða öðrum hætti
án þess að það komi niður á fjöl-
breytileikanum. Við reynum okkar
besta til þess að gefa blaðinu fallegt
yfirbragð. Það myndi t.d. aldrei
ganga að birta ljóð eftir tíu mismun-
andi ljóðskáld án þess að kanna
hvers konar heildarmynd ljóðin
myndu skapa.“
Aðspurð um framtíð Andblæs seg-
ir Margrét Lóa að áfram verði það
haft að leiðarljósi að kynna fram-
bærilega list. „Þetta er eina hug-
sjónin sem býr að baki Andblæ og á
meðan við höfum þá hugsjón að leið-
arljósi og fullkomið frelsi í þeim efn-
um erum við á réttri braut. Fólk hef-
ur talað um að tímaritinu fylgi
ferskleiki og góður andblær. Við
berum mikla virðingu fyrir les-
endum og reiknum með að þeir séu
kröfuharðir. Að baki útgáfunni
liggja ekki aðrir hagsmunir en þeir
að kynna góða list og að reyna að
taka fyrir það sem efst er á baugi í
samtímalist okkar. Ég sé ekki
ástæðu til að standa í slíkri útgáfu
nema að taka hana alvarlega – án
þess þó að maður gleymi því úr
hverskyns jarðvegi ritið er sprott-
ið.“
Lífshlaup Edwards Bunkers erlyginni líkast og væri senni-lega ofviða ímyndunarafli
margra skáldsagnahöfunda. Hann
fæddist í kvikmyndaborginni Holly-
wood árið 1933. Skömmu síðar skildu
foreldrar hans og eftir það þvældist
hann milli fósturforeldra og upptöku-
heimila. Frá fimm ára aldri hljópst
hann reglulega að heiman og þvældist
um göturnar að næturlagi. Hann var
fluggáfaður, sjálfstæður og vandur að
virðingu sinni. Hann átti samt erfitt
með að fylgja reglum, var lítið fyrir
aga og átti í stöðugum útistöðum við
fósturforeldra sína og yfirvöld. Sautj-
án ára gamall varð hann yngsti fang-
inn í sögu San Quentin-fangelsisins.
Og þar neyddist hann til að læra að
bjarga sér innan um hættulegustu
fanga Bandaríkjanna.
Þegar honum var sleppt sneri hann
sér aftur að glæpum, aðallega ránum,
og nú af fullri alvöru. Hann rauf skil-
orð og var hundeltur um þver og endi-
löng Bandaríkin af FBI-alríkislög-
reglunni sem setti hann á topp
tíu-listann yfir mest eftirlýstu glæpa-
mennina. Þegar hann náðist á end-
anum var hann dæmdur til langrar
fangelsisvistar og læstur inni með
öðrum sem ekki þóttu viðbjargandi. Í
fangelsinu tók hann Cervantes og
Dostojevskíj sér til fyrirmyndar og
ákvað að skrifa sér leið út úr prísund-
inni. Líf hans breyttist árið 1975 þeg-
ar No Beast So Fierce varð fyrsta
skáldsagan hans til að hljóta náð fyrir
augum útgefenda. Bókin varð feikna-
vinsæl og fékk góða dóma.
Reiknum með
kröfuhörðum lesendum
Margrét Lóa
Jónsdóttir
Úr Andblæ.
ÖRVANDI myndlist – leið til
þroska er eftir Gæflaugu Björns-
dóttur. Örvandi myndlist er vinnu-
aðferð sem höfundurinn mótaði í
kjölfar námskeiðs í listmeðferð hjá
Sigríði Björnsdóttur listmeðferð-
arfræðingi.
Gæflaug er sjálf leikskólakennari
að mennt og hefur unnið sem slíkur í
20 ár.
Í bók sinni sýnir Gæflaug með ít-
arlegum skýringum að aðalatriðið er
ekki að kunna að teikna heldur að
gera hæfilegar kröfur til barnanna
og bera virðingu fyrir vinnu þeirra.
Hún segir sjálf um bókina í for-
mála: „Örvandi myndlist er bók sem
ég hefði viljað eignast þegar ég út-
skrifaðist úr Fósturskóla Íslands
fyrir rúmlega 25 árum.“
Á vefsíðunni www.orvandi.is er að
finna myndir úr vinnu höfundar með
börnum sem lýsa vel vinnuað-
stæðum og -aðferðum.
Höfundur gefur bókina út. Bókin
er 65 bls.
Nýjar bækur
ÁST og frelsi hefur að geyma
ljóð eftir Sölva Sigurðarson. Bókin
er handgerð með málaðri kápu höf-
undar og eru þær rauðar, gular og
grænar. Bókin hefur að geyma safn
ljóða frá síðastliðnum fimm árum.
Áður hefur höfundur gefið út bók-
menntaritið Blóðberg vorið 1998 en
einnig gaf Mál og menning út þýð-
ingar hans á Sonnetum Johns Keats
nú fyrir jólin.
Höfundur gefur bókina út. Hún er
32 bls., gefin út í 80 tölusettum ein-
tökum.