Morgunblaðið - 01.02.2001, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 01.02.2001, Blaðsíða 41
PENINGAMARKAÐURINN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 41 LOKAGILDI HELSTU HLUTABRÉFAVÍSITALNA Evrópa Lokagildi breyt.% Úrvalsvísitala aðallista ................................................ 1.216,77 -0,10 FTSE 100 ...................................................................... 6.297,50 -0,58 DAX í Frankfurt .............................................................. 6.795,14 0,83 CAC 40 í París .............................................................. 5.998,49 1,37 KFX Kaupmannahöfn 347,56 0,87 OMX í Stokkhólmi ......................................................... 1.112,58 1,87 FTSE NOREX 30 samnorræn ...................................... 1.379,52 1,27 Bandaríkin Dow Jones .................................................................... 10.887,36 0,06 Nasdaq ......................................................................... 2.772,73 -2,31 S&P 500 ....................................................................... 1.366,01 -0,56 Asía Nikkei 225 í Tókýó ........................................................ 13.843,55 0,12 Hang Seng í Hong Kong ............................................... 15.363,15 0,45 Viðskipti með hlutabréf deCODE á Nasdaq ....................................................... 9,00 0,00 VIÐSKIPTI Á KVÓTAÞINGI ÍSLANDS 31.1. 2001 Kvótategund Viðskipta- magn (kg) Viðskipta- verð (kr) Hæsta kaup- tilboð (kr) Lægsta sölu- tilboð (kr) Kaupmagn eftir (kg) Sölumagn eftir (kg) Vegið kaup- verð (kr) Vegið sölu- verð (kr) Síð.meðal verð. (kr) Þorskur 139.017 98,99 98,20 0 133.650 100,75 99,19 Ýsa 80,00 0 5.734 80,00 79,78 Ufsi 31,00 1.000 0 31,00 29,15 Karfi 39,50 0 126.349 39,71 40,04 Steinbítur 29,00 0 2.903 29,00 30,02 Grálúða * 98,00 96,00 30.000 96.033 98,00 103,69 98,00 Skarkoli 103,90 0 23.289 103,98 104,55 Þykkvalúra 71,00 0 953 71,00 71,50 Sandkoli 20,46 0 10.000 20,46 19,50 Skrápflúra 20.000 20,48 0 0 19,50 Síld 4,99 0 530.000 4,99 4,74 Úthafsrækja 20,00 34,99 100.000 354.178 20,00 42,02 32,00 Ekki voru tilboð í aðrar tegundir * Öll hagstæðustu tilboð hafa skilyrði um lágmarksviðskipti                                           !      FRÉTTIR ALLT flug á milli Akureyrar og Reykjavíkur var fært yfir í nýtt bók- unarkerfi Flugfélagsins um síðustu helgi. Þar sem Akureyri er lang- stærsti áfangastaður félagsins fjölg- aði bókunum í nýja kerfinu verulega. Færslan gekk mjög vel og án mikilla vandræða fyrir farþega félagsins. Með þessu eru allir stóru áfanga- staðir félagsins miðalausir og er þá lokið ferli sem staðið hefur meira og minna í 6 mánuði. Þessir nýju af- greiðsluhættir munu auðvelda mjög aðgang farþega að félaginu og von- andi stytta verulega allan biðtíma í síma og á flugvelli. Auk þess mun verða mjög auðvelt að bóka ferðir á netinu í gegnum nýja bókunarvél Flugfélagsins, samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá Flugfélagi Íslands. Ný bókunarvél tekin í notkun á vefsíðu félagsins Seinustu áfangastaðir Flugfélags Ísland til að flytjast yfir í nýja kerfið voru Grímsey, Vopnafjörður og Þórs- höfn hér innanlands og Færeyjar og Grænland í millilandaflugi félagsins. Þessir áfangastaðir voru fluttir yfir í gær, þannig að slökkt verður á „gamla“ kerfinu á morgun, þann 1. febrúar. Að undanförnu hefur verið unnið að því að smíða nýja bókunarvél, sem tengist við nýtt bókunarkerfi Flug- félags Íslands. Félagið hefur notið þjónustu Íslensku vefstofunnar og hefur verkið gengið frábærlega og útkoman er sérlega glæsileg. Þjón- usta Vefstofunnar var til mikillar fyr- irmyndar og viljum við þakka þeim sérstaklega fyrir frábært samstarf. Formleg gangsetning nýju bókun- arvélarinnar fór fram á skrifstofu samgönguráðherra á miðvikudag þar sem Sturla Böðvarsson ráðherra bókaði sig í flug með Flugfélagi Ís- lands í gegnum heimasíðu félagsins www. flugfelag.is. Við hönnun bókunarvélarinnar var reynt að hafa að leiðarljósi að gera aðgang og vinnu í vélinni eins ein- falda og mögulegt er. Bókunarvélin byggist upp á 7 skrefum og er hvert skref skýrt út á einfaldan hátt fyrir viðskiptavininum. Bókun í gegnum þessa vél á bæði að vera einföld og ekki síður fljótvirk leið fyrir við- skiptavini. Gert er ráð fyrir að fyrir allar bókanir sem koma í gegnum þessa vél verði greitt með greiðslu- korti. Vélin er tengd við bestu örygg- iskerfi sem völ er á, þannig að korta- viðskipti eru eins örugg og mögulegt er. Mikill hluti viðskiptavina félagsins ferðast oft og er reiknað með að stór hluti þeirra muni velja að bóka ferðir með félaginu með þessum hætti. Það má segja, að með þessu sé bókunar- þjónusta félagsins opin 24 tíma á sól- arhring og unnt er að bóka sig á flug með aðeins 1 klukkustundar fyrir- vara. Viðskiptavinur mætir einfald- lega á flugvöll um 30 mínútum fyrir brottför eins og lög gera ráð fyrir, gefur upp nafn og fær brottfarar- spjald og gengur um borð. 2.001 kr. fyrir flug innanlands Í tilefni af opnun nýrrar vefsíðu, nýrrar bókunarvélar og nýs bókunar- kerfis mun Flugfélag Íslands verða með sérstakt nettilboð næstu vikuna. Á sérstökum ferðum verður annarrar leiðar fargjald aðeins kr. 2.001 (líka í tilefni nýrrar aldar!) til allra helstu áfangastaða félagsins innanlands. Þetta tilboð sem eingöngu er fyrir meðlimi í netklúbbi félagsins verður eingöngu hægt að bóka á bókunarvél á vefsíðu félagsins. Miklar breytingar á þjón- ustu Flugfélags Íslands OPNUÐ hefur verið ný rakarastofa á Eiðistorgi sem ber heitið Hár- skerinn. Eigandi er Jóhannes Lúð- vík, hárskerameistari. Rakarastofan býður upp á allt það helsta fyrir herra, m.a. úrval herraklippinga, hárþvott, allra handa skeggsnyrtingu og rakstur. Einnig eru í boði snyrtivörur. Hárskerinn er opinn frá kl. 10–18 alla virka daga og laugardaga á verslunartíma frá 1. október til 1. maí. Eftirlaunaþegar fá afslátt. Morgunblaðið/Ásdís Rakarastofan Hárskerinn, Eiðistorgi. Ný rakara- stofa á Eiðistorgi STÚDENTARÁÐ Háskóla Íslands samþykkti 30. janúar sl. eftirfarandi ályktun um Lánasjóð íslenskra námsmanna: „Stúdentaráð fagnar áliti umboðs- manns Alþingis þar sem fallist var á málflutning Réttindaskrifstofu stúd- enta um að úrskurður málskots- nefndar LÍN um forsendur grunn- framfærslunnar hafi verið ófull- nægjandi. Námslánin í dag eru of lág og LÍN fullnægir ekki þeirri lagaskyldu sinni að byggja upphæð þeirra á raunveru- legri framfærsluþörf námsmanna. Þótt skref í rétta átt hafi verið tekið síðastliðið vor, með nýjum fram- færslugrunni, er ennþá langt í land með að námslánin dugi til fullrar framfærslu. Senn líður að vinnu við endurskoðun úthlutunarreglna LÍN og Stúdentaráð leggur þunga áherslu á að í þeirri vinnu verði fram- færslugrunnur LÍN leiðréttur þann- ig að hann endurspegli framfærslu- þörf námsmanna og tryggi þannig jafnrétti til náms.“ Á fundinum voru einnig einróma samþykktar breyt- ingar á lögum Stúdentaráðs. Breytingarnar fela m.a. í sér að opnuð var heimild fyrir tvo kjördaga við kosningar til Stúdentaráðs, auk þess sem reglum um utankjörfund- aratkvæðagreiðslur var breytt. Til- lögurnar voru lagðar fram af fulltrú- um Röskvu og Vöku í sameiningu. Stúdentaráð gagnrýnir lág námslán VINÁTTUFÉLAG Íslendinga og Pólverja, Póllandsfarar og þeir sem hyggja á Póllandsferð næsta sumar ætla að gleðjast saman laugardaginn 3. febrúar nk. kl. 19 í veitingahúsinu Catalinu, Hamraborg 11 í Kópavogi. Þjóðlegt íslenskt þorrahlaðborð og pólskir drykkir verða á boðstól- um. Í upphafi verður greint frá væntanlegri ferð til Póllands í júní. Kristján Hreinsson skáld fer með ljóðmæli, söngur og dans, Szymon Kuran leikur á fiðlu og Hubert Do- brzaniecki les úr nýútkominni ljóða- bók sinni. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Verðið er 2.400 krónur og er greitt við innganginn. Þorrafagnaður Vináttufélags Íslendinga og Pólverja EKIÐ var á bifreiðina G-27207, sem er Toyota Corolla, hvít að lit, þar sem hún stóð mannlaus við Gróubúð á Grandagarði. Talið er að þetta hafi átt sér stað á tímabilinu frá kl. 18 þann 26. janúar sl. til kl. 16 næsta dag. Tjónvaldur fór af vettvangi án þess að tilkynna um tjónið og því eru þeir sem geta gefið einhverjar frekari upplýsingar beðnir að snúa sér til lögreglunnar í Reykjavík. Ekið utan í mannlausa bifreið Lýst er eftir vitnum að umferð- aróhappi er átti sér stað á bifreiða- plani við Landspítalann, Hring- braut, að morgni mánudagsins 22. janúar. Þarna var ekið utan í mann- lausa bifreið af gerðinni Hyundai Accent, hvíta að lit, og farið af vett- vangi. Tjónvaldur mun hafa verið á blárri bifreið. Þeir sem upplýsingar kynnu að geta veitt um mál þetta eru vinsam- lega beðnir um að hafa samband við lögregluna í Reykjavík. Ekið aftan á bifreið í Neðra-Breiðholti Laugardaginn 27. janúar um kl. 22.40 var ekið aftan á bifreiðina VJ-812, sem er Lancer-fólksbifreið, græn að lit. Ökumaður ók bifreið- inni til suðurs eftir vinstri beygj- urein fyrir umferð austur Stekkjar- bakka. Á beygjureininni var brúnleitri jeppabifreið með króm- uðu grilli ekið aftan á VJ-812. Eftir áreksturinn var jeppabifreiðinni ek- ið á brott af vettvangi. Ökumaður jeppabifreiðarinnar svo og vitni að óhappinu eru beðin að hafa samband við lögregluna í Reykjavík. Ekið á bifreið við Grjótháls Ekið var á bifreiðina VK-737, sem er Hyundai fólksbifreið, græn að lit, föstudaginn 26. janúar þar sem hún stóð á bifreiðastæði sunnan við hús nr.1, við Grjótháls. Bifreiðin er skemmd á hægri hlið. Atvikið gerð- ist á milli kl.17 og 18. Vitni að atvikinu eru beðin að hafa samband við lögregluna í Reykjavík. Ekið á bifreið við Gunnarsbraut Ekið var á bifreiðina RT-966 sem er Nissan Sunny hvít að lit á Gunn- arsbraut við Mángötu á mánudags- kvöldið 29. janúar s.l. á tímabilinu frá kl. 22: til 23. Tjónvaldur fór af staðnum án þess að láta vita af óhappinu. Um er að ræða rauða bif- reið. Ökumaður þessarar bifreiðar og þeir sem hugsanlega hafa orðið vitni að óhappinu eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í Reykja- vík. Ók á brott af vettvangi Ekið var aftan á bifreiðina VJ-812, sem er Lancer-fólksbifreið græn að lit, laugardaginn 27. janúar um kl. 22.40. Ökumaður ók bifreið- inni til suðurs eftir vinstri beygj- urein fyrir umferð austur Stekkjar- bakka. Á beygjureininni var brúnleitri jeppabifreið með króm- uðu grilli ekið aftan á VJ-812. Eftir áreksturinn var jeppabifreiðinni ek- ið á brott af vettvangi. Ökumaður VJ-812 telur jeppabifreiðina hafa verið af gerðinni Cherokee. Ökumaður jeppabifreiðarinnar svo og vitni að óhappinu eru beðin að hafa samband við lögregluna í Reykjavík. Bifreið stolið frá Smiðjuvegi Aðfaranótt sl. laugardags var bif- reiðinni DT 951 stolið frá Smiðju- vegi 2 í Kópavogi. Bifreiðin er af gerðinni Toyota Corolla og er ræki- lega merkt Hróa hetti. Þeir sem upplýsingar geta gefið eru beðnir að hafa samband við lög- regluna í Kópavogi. Lýst eftir vitnum ♦ ♦ ♦ DANSPARIÐ Ísak Nguyen Hall- dórsson og Helga Dögg Helgadóttir, Dansíþróttafélaginu Hvönn í Kópa- vogi, héldu nýlega til Þýskalands til þátttöku í lokaðri þýskri danskeppni í flokki ungmenna. Alls var 15 danspörum víðs vegar úr heiminum boðin þátttaka. Keppt var í öllum suður-amerísku dönsun- um. Keppnin var haldin í Pforzheim í Þýskalandi. Ísak og Helga Dögg enduðu á verðlaunapalli með brons- verðlaun. Keppnin var haldin sam- hliða stórri alþjóðlegri danskeppni í suður-amerískum dönsum. Unnu til brons- verðlauna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.