Morgunblaðið - 01.02.2001, Síða 49
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 49
ÚTSALA
Enn meiri verðlækkun
allt að 60% afsláttur
ÚTSALA
Enn meiri verðlækkun
Kringlunni
s. 533 1740
OPIÐ TIL KL. 21.00
Í KRINGLUNNI
ALLA FIMMTUDAGA
OPIÐ TIL KL. 21.00
FIMMTUDAGA
KRINGLUNNI s. 533 1730
allt að 60% afsláttur
FIMMTUDAGINN
18. janúar birtist grein
í Morgunblaðinu eftir
Gylfa Magnússon, for-
mann viðskiptaskorar
Háskóla Íslands, þar
sem hann gagnrýnir
þá herör sem Stúd-
entaráð hefur skorið
upp gegn seinum ein-
kunnaskilum í Há-
skóla Íslands og telur
hann ómaklega að
verki staðið. Greinin
gefur tilefni til ábend-
inga og hugleiðinga
um nauðsyn aðgerð-
anna og þann árangur
sem þær hafa borið.
Reglugerð HÍ er skýr
Í síðustu vorprófum var einkunn-
um skilað of seint í 32% tilfella í
Háskóla Íslands. Það er með öllu
óviðunandi að reglugerð Háskólans
skuli brotin í 32% námskeiða, enda
eiga nemendur mikið undir því að
einkunnum sé skilað á réttum tíma.
Til að mynda fá þeir engin námslán
greidd út fyrr en einkunnir hafa
borist og þeir þar með sýnt fram á
að þeir hafi staðist kröfur LÍN um
námsframvindu. Háskólayfirvöld
hafa ekki fylgt reglunum nægilega
vel eftir, þrátt fyrir skýr ákvæði í
reglugerð HÍ og ítrekaðar áskor-
anir Stúdentaráðs. Þess vegna
þurftum við stúdentar að grípa til
ráðstafana til að vinna bug á vanda-
málinu. Röskva átti frumkvæði að
því að Stúdentaráð setti einkunna-
skil kennara á Netið síðastliðið vor
og þetta vakti mikla athygli. Núna í
janúar fylgdum við málinu eftir og
auglýstum í Morgunblaðinu eftir
þeim einkunnum sem komnar voru
í mest vanskil.
Stúdentaráð
vandar til verka
Gylfi segir að forsvarsmenn stúd-
enta hafi ekki leitað neinna skýr-
inga á drættinum áður en auglýst
var í Morgunblaðinu. Þetta er ekki
rétt, enda hefur Stúdentaráð vand-
að mjög til verka í þessu máli. Ein-
kunnaskilasíðan byggist á bein-
hörðum upplýsingum
frá háskólanum sjálf-
um, þ.e. þeirri stað-
tölusíðu sem kennslu-
svið HÍ hefur komið
upp. Listarnir voru
margyfirfarnir og
staðfestingar leitað frá
Nemendaskrá á nám-
skeiðum á topp 10-
vanskilalistanum. Í
byrjun janúar sendi
undirritaður póst á
alla kennara og starfs-
fólk háskólans þar
sem óskað var eftir
öllum hugsanlegum
ábendingum frá kenn-
urum, ef þeir teldu
hinar beinhörðu upplýsingar sem
koma frá kennslusviði ekki réttar.
Margir kennarar höfðu samband,
enda geta margvíslegar félagslegar
ástæður valdið því að ómögulegt sé
að skila einkunnum á réttum tíma.
Stúdentaráð hefur tekið tillit til
allra þessara ábendinga, enda
leggjum við mikið upp úr því að all-
ar upplýsingar séu réttar.
Námsmenn látnir bíða
Gylfi tekur dæmi um afar fjöl-
mennt námskeið (435 nemendur í
einu námskeiði!) þar sem ekki tókst
að skila einkunnum á réttum tíma
þrátt fyrir mikla vinnu umrædds
kennara. Það er rétt og afar miður
að mikið álag hvílir á mörgum
kennurum. En það er hluti af fjár-
svelti Háskóla Íslands, sem Stúd-
entaráð hefur ítrekað bent á. Stúd-
entaráð hefur barist hart fyrir
auknum fjárveitingum til Háskóla
Íslands og dregið fram í dagsljósið
hversu miklir eftirbátar nágranna-
þjóðanna við erum. Þær upplýsing-
ar sem Stúdentaráð setti fram um
einkunnaskil eru ótvíræður vitnis-
burður um ástand þeirra við Há-
skóla Íslands, hverjum sem ástand-
ið kann að vera að kenna.
Stúdentaráð birti einungis stað-
reyndir málsins, nafn námskeiðs
þar sem einkunn lá ekki fyrir þrátt
fyrir að 10 dagar væru komnir fram
yfir þann frest sem reglugerðin
mælir fyrir um. Er það sæmandi að
Háskóli Íslands brjóti sína eigin
reglugerð og láti námsmenn með
því bíða langt fram í janúar eftir
námslánum fyrir tímabilið septem-
ber til desember? Í tilvikum sem
þessum verður einfaldlega að grípa
til nauðsynlegra aðgerða til að
tryggja að yfirferð náist á réttum
tíma. Það er óþolandi staða að
námsmenn fái ekki endanlegar ein-
kunnir sínar fyrr en vel er liðið á
næstu önn og þessi staðreynd hlýt-
ur að vera jafnt háskólanum sem
yfirmönnum menntamála hvatning
til að gera nauðsynlegar úrbætur.
Einkunnaskil
batna um 34%
Þær aðgerðir sem Stúdentaráð
hefur staðið fyrir hafa skilað mikl-
um árangri, þótt sumir kennarar
hafi fundið þeim allt til foráttu.
Eins og áður sagði var einkunna-
skilaheimasíðan tekin í notkun í
síðustu vorprófum og þá kom í ljós
að í 32% tilfella var einkunnum
skilað of seint. Búast má við að tal-
an hafi verið enn hærri fyrir til-
komu síðunnar, enda vakti síðan
mikið umtal og setti þrýsting á
kennara að skila á réttum tíma. Í
nýafstöðnum prófum fór þessi tala
niður í 21%, þannig að einkunna-
skilin voru 34% betri en í síðustu
vorprófum. Árangurinn er því aug-
ljós og það er ánægjulegt að ýmsir
kennarar hafi tekið sig á. Jafnt
stúdentar sem kennarar hljóta að
gleðjast yfir því að málinu miði í
rétta átt. Ljóst er hinsvegar að enn
berast einkunnir of seint í rúmlega
fimmtungi námskeiða. Úr því þarf
að bæta og það er ósk mín að jafnt
stúdentar sem háskólayfirvöld
vinni markvisst að því að bæta ein-
kunnaskilin við skólann.
Einkunnaskil
við HÍ batna
Eiríkur
Jónsson
Einkunnir
Þær aðgerðir sem Stúd-
entaráð hefur staðið fyr-
ir hafa skilað miklum
árangri, segir Eiríkur
Jónsson, þótt sumir
kennarar hafi fundið
þeim allt til foráttu.
Höfundur er formaður
Stúdentaráðs HÍ.