Morgunblaðið - 01.02.2001, Síða 63

Morgunblaðið - 01.02.2001, Síða 63
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 63 Gull er gjöfin Gullsmiðir Útsala! 10—50% afsláttur Úlpur Kápur Jakkar Pelskápur líta út sem ekta Opið laugardaga frá kl. 10—16    Mörkinni 6, sími 588 5518 UM SKEIÐ hafa landsmenn mátt hafa yfir sér í ríkissjónvarpinu alveg einstakt málþóf stjórnarandstöðunn- ar um allt og ekkert, en sem þeir hafa nefnt „andstöðu við skerðingu örorkubóta“. Allt var þetta út af hæstaréttardómi sem féll 19. des. vegna laga er sett voru 20. des 1993. Fyrir stuttu skrifaði ég grein í Morgunblaðið um efasemdir mínar um heiðarleika stjórnarandstöðunn- ar. Mér finnst að sjaldan eða aldrei hafi komið betur í ljós að ég hafði svo sannarlega rétt fyrir mér. Skal ég nú í stuttu máli rekja þá skefjalausu blekkingu er höfð hefur verið frammi af stjórnarandstöðunni í áð- urnefndu orðaskaki á Alþingi. Það hefur verið haldið uppi málþófi dög- um saman, fluttar hafa verið um 400 ræður, að sagt er, og þingmenn farið fleiri þúsund sinnum í pontu með andófi. Vart hefur verið hægt að skilja nema brot af þessum orða- flaumi, falsið hefur verið svo gífur- legt að ekki er hægt annað en benda hinum venjulega skattborgara á hvaða blekkingar hafa verið hafðar í frammi. Allt hefur þessi stjórnar- andstaða gert til að telja fólki trú um að ríkistjórnin sé sú seka, vilji jafn- vel brjóta stjórnarskrána til að klekkja á öryrkjum. Þeir sem hæst létu og spöruðu ekki stóryrðin hafa af minnstu að státa. Aldrei hefur ver- ið borið á móti því hvaða stjórn setti lögin 1993 og stjórnarandstaðan hef- ur sko heldur alls ekki þagað yfir því, en þau voru sett af þáverandi heil- brigðisráðherra, Guðmundi Árna Stefánssyni. Hverfum svo aftur í jólaösina á Alþingi 20. des. 1993. Fólk getur flett upp á vefsíðu Al- þingis til að sjá hverjir af stjórnar- andstöðunni greiddu atkvæði með skerðingu öryrkjabóta: Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, A-lista. Rannveig Guðmundsdóttir, þing- flokksformaður Samfylkingarinnar, A-lista. Jón Sigurðsson, þáverandi iðnað- aráðherra, A-lista. Ólafur Ragnar Grímsson, Alþýðu- bandalagi (núverandi forseti Ís- lands). Margrét Frímannsdóttir, Alþýðu- bandalagi. Gunnlaugur Stefánsson, A-lista. Valgerður Gunnarsdóttir, varaþ. A-lista. Petrína Baldursdóttir, varaþingm. A-lista. Anna Ólafsdóttir Björnsson, Kvennalista. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, Kvennalista. Guðjón Arnar Kristjánsson, þá- verandi D-listamaður, núverandi Frjálslynda flokksins. Flutningsmaður var eins og áður segir Guðmundur Árni Stefánsson, A-lista. Það getur vel verið að ég gleymi einhverjum sem þá sögðu já en nei núna. Nú, vinstri grænir voru ekki til þá, það var ekki fyrr en seinna sem Steingrímur J. Sigfússon klofnaði frá Alþýðubandalaginu (þarna var hann kominn í langt jólafrí) og stofn- aði síðar flokk með samblandi af kommúnistum, herstöðvarandstæð- ingum og öðrum, er ekki vildu vera í Samfylkingunni, en vildu samt vera með til að geta verið á móti þegar það hentaði. Síðan hefur Steingrím- ur ekki þagnað. Það er hægt að huga að miklu fleiru, t.d. sér maður ekki hverjum Garðar Sverrisson er að þjóna þegar hann segir í Morgunblaðinu 25. jan. að best hefði verið að Hæstiréttur hefði fellt lögin umtöluðu. Fór Garð- ar offari í þessu máli til að hjálpa stjórnarandstöðunni? Af nógu er að taka en stoppum í bili. KARL ORMSSON, fv. deildarfulltrúi. Sannleikurinn um stjórn- arandstöðuna og skerð- ingu öryrkjabóta 1993 Frá Karli Ormssyni:HETJUR fornaldar kunnu ekki aðiðrast, en vældu af tómri kergju þegar á herti líkt og Akkiles borg- arbrjótur. Ólíkt Skarphéðni Njáls- syni, miðaldamanni. Gunnar Lambason komst raunar að því fullkeyptu suður á Hrossey við Orkneyjar, þegar hann hermdi víl- ið og volið upp á Skarphéðin í brennunni. Kári Sölmundarson gerði hann höfðinu styttri. Börn nútímans og hetjur komm- únismans kunna ekki fremur en hetjur fornaldar að iðrast. Vita ekki hvað það er. Hafa gengið styrkum fótum í dauðann, játað meintan glæp sinn og hrópað: Lengi lifi vísindalegur sósíalismi, dýrust meyja í hópi staðra mera. Byltingarmenn, ataðir blóði, voru jafnan sjúklega tortryggnir og kom það harkalegast niður á hóp- um fólks, sem saklaust taldist rétt- dræpt. Sekt hafði ekkert með sönnunarbyrði að gera. Afköst urðu hrikaleg. Menn hafa áætlað að u.þ.b. 100 milljónir manna hafi verið slegnar af á síðustu öld, frið- arríki sósíalismans til dýrðar, 65 milljónir manna í Kína, 25 millj- ónir í Sovétríkjunum og 1,7 millj- ónir í Kambódíu. Dauðinn er ekki til: Richard Rorty. Einungis líf og ærsl. Keppst skal við að einblína í fram- tíðina. Iðrun? Neo hvað? Á hvorki heima í orðaforða mannvinanna mestu, hvað þá í skrípalátum hlut- dýrkendanna sjálfhverfu, þótt mannvit þeirra sé bæði mikið og þrútið og listrænt og heitfengt og hafi skolast víða. Hugtakið framtíð er fremur ungt í evrópskum tungumálum, frá fjórtándu öld eða svo. Reis til vegs og virðingar í draumi Útópíunnar. Framtíð var á dögum áður álitin eina víddin í Paradís, friðarlandi spádómanna. Ein leiðin til að bæta sjáfan sig og heiminn, börnin góð, var og er og verður að gjöra iðrun. Hvað ber að gera áður en tekið skal til óspilltra málanna? Ógern- ingur mun að umbera allt. Og enga kergju nú. Sumir eru óþolandi, sljóir og fávísir. Þörf er á fagleg- um vinnubrögðum. Nú gildir að hrökkva eða stökkva. Sóðalegustu hroðaverk allra tíma voru unnin á nýliðinni öld í nafni félagsvísinda- legs skipulags, byltingar, undir fögru fyrirheiti, öreigafriðar og mannúðar. En líka villt frelsis til stóðlífs og ólmra ásta, gnægta, klárra vísinda og fjörugs menning- arlífs. Vakir áhuginn ekki enn? Ríktu ekki trúgirni og lygar, áróð- ursbrögð og blekkingar í hugum allra helstu gáfnatrölla heimsins meðan á fíflskunni stóð? Hvað með umburðarlyndi skeytingarleysis- ins, doðann, siðblinduna? Komast meintar Moggalygar nema í hálf- kvisti við allan hetjuskapinn? Enga hálfvelgju nú eða moðsuðu, ekkert sífur. Tíminn er dýrmætur. Konur og karlar. Örvæntið ekki. Öllum er frjálst að iðrast vegna eigin glópsku og ofdifsku. JÓN BERGSTEINSSON Snorrabraut 30, Reykjavík. Glæpur, refsing Frá Jóni Bergsteinssyni: Mikið úrval af brjóstahöldurum verð frá kr. 700 Mömmubrjósta- haldarar kr. 1900 Úrval af náttfatnaði fyrir börn og fullorðna Nýbýlavegi 12, sími 554 4433

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.