Morgunblaðið - 01.02.2001, Síða 69
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 69
DÓMARI Í Los Angeles hefur kveð-
ið upp þann dóm yfir Jason
Priestley, sem lék hinn ávallt prúða
Brandon í Beverly Hills 90210 þátt-
unum sálugu, að hann hafi sex mán-
uði til að skrá sig inn á meðferð-
arstofnun og vinna í eitt skipti fyrir
öll bug á áfengisvanda sínum. Í júlí
þarf hann því að sýna fram á að
hann hafi lokið við meðferðina og
að hún hafi skilað árangri.
Priestley, sem er 31 árs gamall,
var handtekinn árið 1999 fyrir ölv-
unarakstur þegar hann klessu-
keyrði silfraða Porsche-bifreið sína
með þeim afleiðingum að félagi
hans, sem var farþegi í bílnum,
handleggsbrotnaði. Priestley hefur
þegar afplánað fimm daga fangelsi
fyrir lögbrotið en þar að auki var
hann dæmdur í þriggja ára skil-
orðsbundið fangelsi og missti vit-
anlega ökuleyfið.
Eftir einn ei aki neinn
Reuters
Pörupilturinn Priestley
Priestley
í áfengis-
meðferð
Ofsóknaræði
(Paranoid)
S p e n n u m y n d
Leikstjórn og handrit: John Duig-
an. Aðalhlutverk: Jessica Alba,
Jeanne Tripplehorn. (93 mín.) Bret-
land, 2000. Háskólabíó. Bönnuð inn-
an 16 ára.
ÁSTRALINN John Duigan er
nokkuð lunkinn kvikmyndagerðar-
maður sem ekki hefur átt sjö dag-
ana sæla undanfarið. Fyrir einum
tíu árum eða svo gerði hann hins-
vegar tvær frábærar myndir í
heimalandi sínu.
Fyrst The Year
My Voice Broke
Down árið 1987 og
síðan Flirting árið
1991 þar sem sjá
mátti í fyrsta sinn
tvær af heitustu
leikkonunum í
dag, Nicole Kid-
man og Thandie
Newton, úr M:I-2. Síðan þá hefur
maður eiginlega beðið eftir því að
Duigan sýni viðlíka tilþrif en eitt-
hvað virðist ama að.
Paranoid er sautjánda mynd
hans. Hún segir frá fyrirsætunni
Chloe sem þiggur boð frá ein-
hverjum sjarmerandi poppara að
skreppa með honum í heimsókn til
vina hans úti á landi. Heimsóknin
fer vel af stað og hin besta af-
slöppun virðist í vændum í hress-
um og gott ef ekki heldur skraut-
legum félagsskap. En þegar
félagsskapurinn reynist skraut-
legri og skrautlegri renna á hana
tvær grímur og hún fer að hugsa
sér til hreyfings. En það verður
hinsvegar erfiðara en hana grun-
aði.
Ofsóknaræði er ágætis spennu-
tryllir – ágætlega leikinn og gædd-
ur nett þrúgandi andrúmslofti. Það
rætist hinsvegar ekki alveg nægi-
lega vel úr henni og sú æsispenna
sem maður beið eftir verður aldrei
að veruleika.
Skarphéðinn Guðmundsson
MYNDBÖND
Í skraut-
legum
félagsskap