Morgunblaðið - 13.02.2001, Blaðsíða 2
sjóðsins er þessi lækkun minni en
gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun
Íbúðalánasjóðs fyrir árið 2000,
enda stóðust ekki væntingar um
minnkuð umsvif á fasteignamark-
aði frá fyrra ári.
Rekstrarkostnaður í fyrra er
59,7 milljónum hærri en gert var
ráð fyrir í fjárlögum ársins. Mis-
munurinn nemur 10%. Mestu mun-
ar um aukinn innheimtukostnað
vegna 63% hækkunar millibanka-
gjalda og taxta Reiknistofu bank-
anna og hækkun á launalið vegna
mikilla umsvifa og ákvæða kjara-
samninga.
Gunnhildur Gunnarsdóttir, að-
stoðarframkvæmdastjóri Íbúða-
lánasjóðs, segir að markmiðið með
nýju skipuriti sé m.a. að bæta þjón-
ustu og auka skilvirkni í stjórnun
og rekstri. Það beri því ekki að líta
STJÓRNENDUR Íbúðalánasjóðs
eru að skoða leiðir til að lækka
rekstrarkostnað stofnunarinnar en
hann var meiri á síðasta ári en gert
var ráð fyrir í fjárhagsáætlun.
Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur sam-
þykkt nýtt skipurit fyrir sjóðinn en
það gerir m.a. ráð fyrir fækkun yf-
irmanna.
Skipuritið var kynnt starfsmönn-
um á fundi sl. föstudag.
Rekstrarkostnaður Íbúðalána-
sjóðs á árinu 1999 nam 636,7 millj-
ónum króna. Sú fjárhæð fram-
reiknuð til meðalverðlags ársins
2000 er 669,7 milljónir króna.
Rekstrarkostnaður Íbúðalánasjóðs
árið 2000 samkvæmt bráðabirgða-
uppgjöri var 652 milljónir króna.
Sparnaður í rekstri milli ára er því
um 17,7 milljónir króna. Þó tekist
hafi að lækka rekstrarkostnað
á upptöku nýs skipurits eingöngu
sem hluta af sparnaði í rekstri,
enda hafi ávallt staðið til að endur-
skoða það skipulag sem unnið hef-
ur verið eftir frá stofnun Íbúða-
lánasjóðs í ljósi reynslunnar. Hins
vegar séu stjórnendur stofnunar-
innar stöðugt að leita leiða til að
hagræða í rekstri.
„Við teljum ekki að við séum með
mikinn óþarfa kostnað í rekstrinum
en við teljum að okkur beri skylda
til að vera stöðugt vakandi fyrir því
að skoða leiðir til hagræðingar. Það
er vaxandi krafa á stjórnsýsluna að
gera hlutina með hagkvæmari
hætti,“ sagði Gunnhildur.
Þegar Íbúðalánasjóður var sett-
ur á stofn árið 1998 var gert ráð
fyrir því að öll afgreiðsla fasteigna-
verðbréfa færi fram í viðskipta-
bönkunum. Lántakandi átti að fá
Til skoðunar að hagræða
í rekstri Íbúðalánasjóðs
greiðslumat frá banka sem átti að
sjá um samskipti við Íbúðalána-
sjóð.
Horfið var frá þeirri fyrirætlan
að færa útgáfu og afgreiðslu fast-
eignaveðbréfa til bankanna og hef-
ur Íbúðalánasjóður því séð um út-
gáfu og afgreiðslu fasteigna-
veðbréfa. Gunnhildur segir ekki
fyrirhugað að gera breytingar á
þessu fyrirkomulagi. Það séu því
ekki uppi áform um að breyta í
grundvallaratriðum afgreiðslu lán-
anna. Hún tók þó fram að sam-
skipti Íbúðalánasjóðs og bankanna
séu stöðugt til skoðunar með það í
huga hvort hægt sé að ná fram
meiri hagræðingu. Ekkert bendi
hins vegar til þess að svo stöddu að
sparnaður sé því samfara að bank-
arnir taki alfarið að sér af greiðslu
fasteignaveðbréfa.
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isUMFÍ telur ekki forsendur
fyrir sameiningu / B 1
Tvö heimsmet hjá
Kristínu Rós / B 12
12 SÍÐUR48 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
RÁÐIST var inn á heimili
manns í Breiðholti og honum
veittir áverkar snemma á laug-
ardagsmorgun. Fimm menn
hafa játað aðild að málinu en
húsráðanda voru veittir áverk-
ar í andliti. Árásarmennirnir
reyndu að koma sér brott en
lögreglumenn náðu þeim á
hlaupum. Mennirnir veittu
mikla mótspyrnu við handtöku
og kom til talsverðra átaka milli
þeirra og þeirra tveggja lög-
reglumanna sem voru fyrstir á
staðinn. Lögreglumennirnir
slösuðust báðir við handtökuna
og mun annar þeirra hafa hlotið
beinbrot í andliti.
Geir Jón Þórisson, yfirlög-
regluþjónn í Reykjavík, segir
allmörg tilfelli hafa komið upp í
vetur þar sem ráðist er gegn
lögreglumönnum. Hann telur
að slíkt færist nokkuð í aukana.
Lögreglu-
menn
slösuðust við
handtöku
Snjóflóðamannvirki í Neskaupstað
Morgunblaðið/Ágúst
Framkvæmdum við snjóflóðavarnargarðinn í Nes-
kaupstað og keilurnar 13 sem standa ofan við
hann er nú lokið. Aðeins er eftir lítils háttar vinna
við frágang. Næsta sumar verður svo hafist handa
við að setja upp stoðvirki á hugsanlegum upp-
takasvæðum snjóflóða ofan við varnarmannvirkin en
þau eiga að draga úr hættu á að snjóflóð falli á þessu
svæði. Einnig verður næsta sumar unnið af fullum
krafti við uppgræðslu á svæðinu. Verktakafyrirtækið
Arnarfell sá um framkvæmdirnar.
TVÍTUGUR piltur lést af völdum
áverka sem hann hlaut í umferðar-
slysi á mótum Drottningarbrautar og
Þórunnarstrætis á Akureyri. Slysið
varð um miðjan dag á sunnudag og
var pilturinn fluttur suður á Land-
spítala í Fossvogi þar sem hann lést
aðfaranótt mánudags.
Tvær bifreiðar rákust á við um-
rædd gatnamót, annarri var ekið í
norðurátt en bíllinn sem pilturinn ók
var á leið í suður. Bifreiðinni sem ekið
var í norður var beygt til vinstri inn á
Þórunnarstræti og í veg fyrir bílinn
sem pilturinn ók. Samkvæmt upplýs-
ingum lögreglu var augljóst að pilt-
urinn hafði reynt að afstýra árekstri
með því að beygja til hægri frá aðvíf-
andi bíl, en ekki tekist. Nokkur hálka
var þegar óhappið varð. Þrír voru í
bílunum og voru allir í bílbeltum.
Unnusta piltsins sem var með hon-
um í bílnum liggur á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri en hún hlaut
m.a. beinbrot. Eldri maður sem ók
hinum bílnum liggur einnig á sjúkra-
húsinu en hann brotnaði líka í
árekstrinum. Pilturinn var sem fyrr
segir fluttur með sjúkraflugi á Land-
spítala í Fossvogi þar sem hann lést af
völdum sára sinna. Ekki er unnt að
greina frá nafni hans að svo stöddu.
Tvítugur piltur lést
eftir umferðarslys
VIÐ skoðun á upplagi Morgunblaðs-
ins síðari helming liðins árs, júlí til
desember 2000, í samræmi við regl-
ur Upplagseftirlits VÍ, var staðfest
að meðaltalssala blaðsins á dag var
55.439 eintök.
Á sama tíma árið 1999 var með-
altalssalan 54.769 eintök á dag.
Upplagseftirlit Verslunarráðsins
annast einnig eftirlit og staðfestingu
upplags prentmiðla fyrir útgefendur
sem óska eftir því og gangast undir
eftirlitsskilmála. Trúnaðarmaður
eftirlitsins er löggiltur endurskoð-
andi.
Morgunblaðið er eina dagblaðið
sem nýtir sér þessa þjónustu nú.
Nýjar tölur
um upplag
Morgun-
blaðsins
Upplagseftirlit
Verslunarráðsins
FORNLEIFAFRÆÐINGAR sem
starfa að uppgreftri í Aðalstrætinu
hafa komið niður á minjar frá land-
námstíð. Minjarnar, sem taldar eru
vera frá elsta Reykjavíkurbænum
frá tíundu eða elleftu öld, fundust
þegar steinar úr yngri uppistöðu-
vegg voru teknir upp.
„Eins og stendur sjáum við bara
þar sem þessi síðari tíma skurður
sker í gegnum, en okkur sýnist
þarna vera um að ræða leifar af
hleðslu, en við sjáum ekki gólf svo
við getum ekki sagt með vissu hvort
þetta hefur verið húsveggur, garð-
lægð í kringum hús eða skepnugirð-
ing,“ sagði Mjöll Snæsdóttir forn-
leifafræðingur.
Ekki er talið víst hvort mikið sé
af svo gömlum minjum á svæðinu en
af fyrri athugunum er vitað að það
voru byggingarleifar frá tíundu öld
bæði á Austurstræti 18 og 12. Mjöll
segir fundinn því ekki koma á óvart
heldur vera ánægjulega staðfest-
ingu á grunsemdum. Gröfturinn er
unninn kerfisbundið eftir tímaröð
og nú er verið að skoða minjar frá
18. og 19. öld. Því er nokkuð langt í
að athyglin beinist að fullu að land-
námsöldinni. Sjö til átta fornleifa-
fræðingar starfa nú að greftrinum.
Minjar frá landnáms-
tíð við Aðalstræti
JEPPABIFREIÐ fór út af veg-
inum um Óshlíð skömmu fyrir
klukkan fjögur í gær. Óhappið
varð við Sporhamra, nánast á
sama stað og ung stúlka ók bíl
sínum út af sl. þriðjudag.
Ökumaður jeppans, ungur
maður, náði að kasta sér út úr
bílnum áður en hann fór niður
hlíðina og slapp með mar og
skrámur. Jeppinn hafnaði ofan í
stórgrýttri fjöru um 20 metrum
neðar og er mikið skemmdur.
Ökumaður
kastaði sér út
úr bílnum
SAMTÖK atvinnulífsins og við-
semjendur þeirra hafa undirrit-
að nýjan kjarasamning vegna
starfsmanna hjá Íslenska ál-
félaginu hf. Sigurður T. Sigurðs-
son, formaður verkalýðsfélags-
ins Hlífar í Hafnarfirði, segist
sáttur við samninginn og vonast
eftir að hann verði samþykktur,
en samningur sem gerður var í
síðasta mánuði var felldur af
starfsmönnum fyrirtækisins.
Sigurður sagði að í nýja
samningnum væri skotið styrk-
ari stoðum undir ákvæði hans
um bónusgreiðslur. Orðalag
hefði verið gert skýrara þannig
að menn teldu nú að þessar bón-
usgreiðslur ættu að vera í hendi
gengju ákveðnar forsendur eft-
ir. Það væri t.d. sett í samning-
inn ákveðið lágmark sem gæfi
starfsmönnum ákveðna trygg-
ingu í þessu sambandi.
Sigurður sagði að einnig hefði
náðst samkomulag um ákvæði
um uppsagnir
Nýr kjara-
samningur
við ÍSAL