Morgunblaðið - 13.02.2001, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.02.2001, Blaðsíða 16
AKUREYRI 16 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Símenntunarsvið Upplýsingatækni í leikskólastarfi Helgarnámskeið fyrir leikskólakennara 23.-25. febrúar nk. Markmið námskeiðsins er að kynna fjölþætta möguleika tölvutækni í leikskólastarfi, en í aðalnámskrá leikskóla er áhersla á tölvunotkun í leik og starfi. Á námskeiðinu verður fjallað um upplýsingatækni og hvernig hana má nýta í uppeldisstarfi á leikskólum. Á föstudeginum verða fyrirlestrar og síðan farið á myndlistarsýningu og kaffihús. Á laugardeginum verða vinnusmiðjur og á sunnudeginum sýning á verkum þátttakenda. Námskeiðið verður haldið í Þingvallastræti 23. Frekari upplýsingar og skráning er á skrifstofu RHA í síma 463 0570. Umsjón: Guðrún Alda Harðardóttir, lektor HA og Kristín Dýrfjörð, lektor HA. Verð 17.800 kr. Til sölu eða leigu þjónustu/iðnaðarhúsnæði á Njarðarnesi 1, Akureyri, (við Toyotahúsið). Stærð uppi ca 330 m². (unnt að skipta því meira). Stærð niðri ca 108 m². Húsið er fullfrágengið. Upplýsingar í s. 862 3807 sagðist hafa heyrt af stöðugum straumi fólks til Akureyrar, akandi með skíðin á toppnum eða í flugi. Aðstæður í Hlíðarfjalli voru eins og best verður á kosið, stillt veður og bjart og færi hið besta. Þar fór ein- mitt fram fyrsta bikarmót Skíða- sambands Íslands í alpagreinum á þessum vetri og gekk vel. MIKILL mannfjöldi var saman kominn í Hlíðarfjalli við Akureyri um helgina. Alls voru 800–900 manns í fjallinu hvorn dag og að sögn Guðmundar Karls Jónssonar forstöðumanns er þetta stærsta skíðahelgin það sem af er vetri. Ut- anbæjarfólk er fyrirferðarmikið í brekkunum en Guðmundur Karl Morgunblaðið/Kristján Í Strýtu. Mikill mannfjöldi var í Hlíðarfjalli um helgina enda veður og færi eins og best verður á kosið. Stærsta skíðahelgin til þessa í vetur Það getur verið gott að slappa svolítið af og láta sólina sleikja sig eftir vel heppnaðan dag á skíð- um í Hlíðarfjalli. Myndin var tekin um helgina. ALLS voru 59 nemar brautskráðir frá Verkmenntaskólanum á Akur- eyri síðastliðinn laugardag, 39 stúd- entar, 8 sjúkraliðar, 9 iðnnemar og 2 iðnmeistarar. Síðastliðið haust hófu 1007 nemendur nám við dag- skóla, 70 í kvöldskóla og um 600 í fjarnámi. Hjalti Jón Sveinsson skólameist- ari gerði frjálsa samkeppni í skóla- málum að umtalsefni í ræðu sinni við brautskráningu, en hann sagði að skólar yrðu að laga sig að sí- breytilegu umhverfi ella ættu þeir á hættu að missa flugið og horfa á eftir nemendum í aðra skóla sem betur hafa staðið sig í samkeppn- inni. Nefndi Hjalti að umræða um breytt fyrirkomulag skólans hafi fengið byr í lok áttunda áratug- arins, en þá var í auknum mæli far- ið að ræða um gæði skólastarfs og árangur þess, sem og samanburð á milli skóla og svæða. Ýmsir hafi þá verið farnir að efast um að allir hlutir væru jafnsjálfsagðir og áður var talið og ef til vill væru sumir skólar betri en aðrir. Æ fleiri ung- lingar héldu áfram námi í fram- haldsskóla og skólakerfið var orðið mjög dýrt. Stjórnvöld hafi því farið að hugsa um hagkvæmni fram- haldsskólakerfisins. Nú fái skólar greitt fyrir hvern nemenda sem tekur próf, ekki hina sem heltast úr lestinni, en þeir væru því miður býsna margir. „En þar sem skól- arnir berjast við mikið brottfall sumir hverjir og allir talsvert er þeim mikils virði að fá sem flesta góða nemendur,“ sagði Hjalti Jón. Ekki brugðist við breytingum Hann sagði fróðlegt að fylgjast með því hvaða skólar hefðu yfir- höndina í samkeppninni, en þar endurspeglaðist þróun sem átt hefði sér stað á undanförnum árum. „Sumir skólar hafa lagt kapp á að bæta starf sitt í hvívetna. Aðrir hafa lagt áherslu á að laga sig að breyttum þjóðfélagsháttum og straumum á borð við upplýsinga- tæknina. Á meðan enn aðrir hafa dregist aftur úr á mörgum sviðum, fastir í fjötrum hefða og gamalla gilda,“ sagði skólameistari og benti á að það ylli til að mynda áhyggjum að sérskólar eins og Stýrimanna- skólinn í Reykjavík væru nánast að verða tómir. Það sama hefur líka gerst hvar- vetna á landsbyggðinni þar sem nám í skipstjórnarfræðum hefur verið í boði. Ástæðuna sagði Hjalti Jón vera breytta þjóðfélagshætti, skólakerfið og ef til vill atvinnulífið hefðu ekki brugðist við þessum breytingum og lagað námið að nýj- um aðstæðum. „Hin frjálsa samkeppni hefur komið illa niður á ýmsum skólum, einkum þeim fámennari og þá helst úti á landsbyggðinni. Vegna þess- ara breyttu þjóðfélagshátta og breytts tíðaranda eru þeir ekki lengur í tísku eins og t.d. heimavist- arskólarnir. Þeir berjast nú fyrir tilverurétti sínum vegna þess að kröfur tímans eru þær að þeir eins og aðrir skólar í þéttbýlinu uppfylli staðla um fjölda nemenda og hag- kvæmni í rekstri,“ sagði Hjalti Jón. Hann benti á að engum skólum yrði haldið úti ef þeir ekki sýna fram á hagkvæmni. Spennandi tímar að mörgu leyti Skólameistari sagði að sem stjórnanda framhaldsskóla þætti sér umhverfið að mörgu leyti spennandi. Það hvetti skólana til að skilgreina sig og gera betur, í aukn- um mæli væri hugað að gæði starfsins og ekki væri lengur litið á ýmsa þætti í starfi þeirra sem sjálf- sagða. Hitt væri annað mál að of litlu fé væri varið til skólastarfs og gæti það smám saman þvingað þá til að níða skóinn hver niður af öðr- um í grimmri samkeppni um góða nemendur. „Slíkt getur tæpast verið til góðs og getur t.a.m orðið til þess að góð- ir skólar verði undir, ekkert síður en hinir slæmur, séu þeir yfirleitt til.“ Skólameistari VMA um frjálsa samkeppni í skólamálum Kemur illa niður á fámennum skólum Morgunblaðið/Kristján Um 60 manns voru brautskráðir frá VMA á laugardag, tveimur mán- uðum síðar en venja er vegna verkfalls framhaldsskólakennara. Gefur skólunum líka færi á að bæta starf sitt HÚSFYLLIR varð á tvennum tón- leikum sem haldnir voru í Gler- árkirkju á sunnudag, fyrst um miðjan og svo aftur um kvöldið, en fyrir tónleikunum stóðu foreldrar og aðrir aðstandendur ungra Þórs- ara í knattspyrnu. Meðal þeirra sem fram komu voru Álftagerð- isbræður, Eiríkur Stefánsson, Þór- hildur Örvarsdóttir, Óskar Pét- ursson, Örn Viðar Birgisson og Pálmi Gunnarsson auk undirleik- ara. „Þetta fór fram úr okkar björt- ustu vonum og allt gekk eins og í sögu,“ sagði Reynir Eiríksson, einn úr hópi foreldra sem sáu um und- irbúning. „Þarna kom fram ein- valalið tónlistarmanna og ég varð ekki var við annað en gestir sem og flytjendur hefðu skemmt sér hið besta.“ Reynir sagði að flutt hefði verið tónlist af ýmsu tagi, eitthvað fyrir alla, unga sem aldna. Gerði hann ráð fyrir að um 870–80 manns hefðu sótt tónleikana en færri komust að en vildu. „Við erum í sjöunda himni yfir móttökunum. Okkur langaði að prófa eitthvað nýtt varðandi fjár- öflun fyrir flokkinn og það gekk upp,“ sagði Reynir. Morgunblaðið/Kristján Gífurlegur áhugi var fyrir tónleikunum enda úrvals tónlistarfólk þar á sviði. Var ekki annað að sjá en að gestirnir skemmtu sér vel. Álftagerðisbræður voru góðir að vanda. Húsfyllir á tvennum tónleikum Aðstandendur í sjöunda himni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.