Morgunblaðið - 13.02.2001, Síða 18

Morgunblaðið - 13.02.2001, Síða 18
LANDIÐ 18 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Þórshöfn - Vel var mætt á atvinnu- málafund sem haldinn var í Þórsveri í síðustu viku á vegum Verkalýðs- félags Þórshafnar, en erfiðleikar landsbyggðarinnar hafa mjög verið tíundaðir í fjölmiðlum um nokkurt skeið. Atvinnurekendur jafnt sem launþegar komu fram með sjónar- mið sín og ýmsar tillögur og hug- myndir komu upp. Það var samdóma álit manna að nú væri tímabært að snúa við blaðinu og að hrakspár- hugsunarhætti linnti. Meðal gesta á fundinum var Finn- bogi Jónsson frá Samherja, en hann er nú stjórnarformaður Hraðfrysti- stöðvar Þórshafnar. Hann skýrði frá stöðu fyrirtækisins og sagði miklar vonir bundnar við kúfiskvinnsluna, en von er á Fossánni, nýja kúfisk- veiðiskipinu, innan fárra daga. Við þá vinnslu verða tvær vaktir í gangi og a.m.k. 30 störf skapast þar. Stefnt er að því að kúfiskvinnslan verði ákveðinn grunnur í landvinnslunni og síðan einnig vinna við loðnu- og síldarfrystingu þegar möguleiki er á því. Vitað er að kúfiskmiðin hér eru öflug og markaðshorfur fyrir fram- leiðsluna ágætar nú þegar og virðast fara batnandi. Loðnubræðslan hefur farið vel af stað og leggja bæði Júpíter og Björg Jónsdóttir upp hjá Hraðfrystistöð- inni, en skip Samherja hafa einnig landað hér umtalsverðu hráefnis- magni.Verð á mjöli og lýsi hefur far- ið hækkandi. Kvöldið sem þessi at- vinnumálafundur var haldinn kom samherjatogarinn Vilhelm Þor- steinsson inn með 2.200 tonn af loðnu og er það stærsti farmur sem komið hefur hér á land hingað til. Margir fundarmenn fóru í fundarlok að sjá þetta nýja og glæsilega skip leggjast að landi. Í skoðun er að stofna rekstrarfélag um útgerð fiskiskips til nýtingar á bolfiskskvóta Hrað- frystistöðvarinnar en við það myndu skapast ný sjómannsstörf. Hafnar- framkvæmdir eru á döfinni en mjög brýnt er orðið að bæta hafnarskil- yrði og aðstöðu fyrir stærri skip. Ferðaþjónusta í sókn Þórshöfn og nágrenni hefur fleiri atvinnumöguleika en í sjávarútvegi. Í ferðaþjónustumálum er enn tölu- verður óplægður akur, en athygli ferðamannsins beinist í auknum mæli að sérstæðum og ósnortnum landsvæðum. Langanesið á þar stór- kostlega möguleika og eru heima- menn þegar komnir með hugmyndir um nýtingu þess í ferðaþjónustu- geiranum. Sífellt fleiri leggja leið sína út á Langanes og náttúrunnar vegna er einnig nauðsynlegt að hald- ið sé utan um slíkar ferðir og al- menna umgengni um svæðið. Enginn barlómur er í landbúnað- inum og hér er gott landbúnaðarum- hverfi. Sláturfé hefur fjölgað á milli ára og ekki einn bóndi í Norður- Þingeyjarsýslu hefur selt burt fram- leiðsluréttinn, en nokkuð hefur verið um það í öðrum byggðarlögum. Ís- lenska lambakjötið er orðið ágæt út- flutningsvara og spurn eftir ómeng- aðri vöru eykst sífellt í heiminum. Það gleymist alloft í umræðunni um landsbyggðarvandann hversu gott mannlíf er úti á landi og gott fyrir börnin að alast þar upp í öryggi og frjálsræði. Stækkun leikskólans á Þórshöfn er framundan og áfram er stefnt að því að búa vel að börnunum. Vægi hvers einstaklings í fámenni er mikið og framtak hvers og eins hefur mikið að segja, hvort sem er í atvinnu- eða félagsmálum. Það er afar óeðlilegt að nú sé svo komið á Íslandi að landsbyggðin í heild sé orðin baggi eða hálfgert krabbamein í huga þjóðarinnar. Það segir sig sjálft að einhvers staðar er óeðlileg þróun í gangi og tímabært að snúa vörn í sókn. Miklar vonir bundnar við kúfiskvinnslu á Þórshöfn Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Fullt hús á atvinnumálafundi á Þórshöfn. Fagradal - Vöruflutningafyr- irtækið Flytjandi í eigu feðg- anna Auðberts Vigfússonar og Vigfúsar Páls Auðbertssonar hefur keypt vöruskemmu KÁ í Vík en með í kaupunum fylgdu allir flutningar fyrir KÁ í Vestur-Skaftafellssýslu. Auðbert segir að þetta nýja húsnæði, sem er 830 fermetr- ar, bæti til muna alla aðstöðu hjá þeim feðgum og verða þeir með umboð fyrir Mjólk- urfélag Reykjavíkur, KÁ – bú- rekstrardeild og Fóðurblönd- una hf. Áður var þetta húsnæði búrekstrardeildar KÁ í Vík. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Vigfús Páll og Auðbert fyr- ir utan vöruskemmuna. Vöruflutn- ingafyrir- tækið Flytj- andi flytur Vestmannaeyjar - Í lok janúar var lokið að tengja öll bruna- viðvörunarkerfi Vestmannaeyja- bæjar við stjórnstöð Securitas í Reykjavík. Seinni hluta síðasta árs gerði Guðmundur Þ.B. Ólafs- son fyrir hönd Vestmannaeyja- bæjar samning við Þröst Sigurðs- son fyrir hönd Securitas hf. um tengingu á öllum brunaviðvör- unarkerfum bæjarins við stjórn- stöð fyrirtækisins. Í samkomulaginu felst að raf- verktakafyrirtækið Geisli setji upp allan þann búnað sem þarf til að fjartengja kerfið til Neyðarlín- unar, en þann búnað leggur Sec- uritas til. Stjórnstöð Securitas á Neyðarlínunni sér um að taka við öllum boðum frá kerfinu og setja viðbragðsferil á stað hverju sinni. Færst hefur verulega í aukana að fyrirtæki og stofnanir setji upp brunaviðvörunarkerfi og tengist stjórnstöð Neyðarlín- unnar. Það gefur auga leið að með góðum forvörnum er oft hægt að afstýra miklum fjárhags- legum og tilfinningalegum skaða. En stórbrunar síðustu missera og ára vekja menn af værum blundi til umhugsunar um þessi mál. Vestmannaeyjabær gengur frá samningi Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Viðvörunarkerfi stafkirkjunnar skoðað. F.v.: Egill Egilsson, þjónustu- fulltrúi Vestmannaeyjabæjar, Þröstur Sigurðsson frá Securitas, Pétur Jóhannsson, starfsmaður Geisla, og Guðmundur Þ.B. Ólafsson. Öll brunaviðvörunarkerfi tengd Securitas Hella - Engin ákvörðun hefur enn verið tekin um framtíð Hellubíós, félagsheimilis Rangæinga, en húsið fór illa út úr jarðskjálftunum í júní sl. Guðmundur I. Gunnlaugsson, sveit- arstjóri Rangárvallahrepps, segir að frekari rannsóknir á ástandi hússins verði gerðar á vordögum en þangað til hefur samkomusal hússins og sviði verið lokað þar sem þessir hlut- ar hússins hafa verið úrskurðaðir ónothæfir. Aðrir hlutar hússins, svo sem fundarsalir, eldhús, geymslur og snyrtingar, eru enn í notkun og segir Guðmundur að sú ákvörðun hafi verið tekin í ljósi þess að skemmdir væru svo litlar að þær hefðu engin áhrif á öryggi notenda. Spurður hvenær hann teldi að ákvörðun um hvort húsið verði end- urbyggt eða rifið yrði tekin sagðist Guðmundur eiga von á að það yrði á næstu þremur til fjórum mánuðum, skemmdir á húsinu væru miklar og viðgerð dýr svo það væri allt eins hugsanlegt að sá hluti hússins sem verst væri farinn yrði rifinn og nýr samkomusalur byggður. Ákvarðanir fara eftir rannsókn og kostnaðarmati Sérfræðingar sem gerðu grunn- könnun á ástandi Hellubíós voru ekki sammála um hvort sprungur í veggjum samkomusalarins væru yf- irleitt viðgerðarhæfar svo ljóst er að ef farið verður út í endurbyggingu muni það verða afar fjárfrek fram- kvæmd. „Það fer allt eftir kostnaðar- mati og niðurstöðum athugana sem gerðar verða á húsinu. Þetta er mjög viðamikil rannsókn sem þarf að gera og það er ekki víst að það verði al- mennilega lagt út í hana fyrr en fer að vora,“ sagði Guðmundur og taldi líklegast að þeirri rannsókn yrði stjórnað af Sigurbirni Jónssyni, verkfræðingi og byggingarfulltrúa Rangárvallahrepps. „Það er leiðindaástand að hafa ekki félagsheimilið og setur ýmislegt í vanda. Við nýtum íþróttahúsið eins og við getum svo það kemur í mjög góðar þarfir en því er ekki að neita að við verðum því fegnust þegar þessi vandi er leystur,“ sagði sveit- arstjórinn. Framtíð Hellubíós ennþá óráðin eftir skemmdir Hugsanlegt að byggja upp nýjan samkomusal Morgunblaðið/ Jón Svavarsson Samkomusalur félagsheimilisins er ónothæfur og stendur auður til vors.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.