Morgunblaðið - 13.02.2001, Page 46

Morgunblaðið - 13.02.2001, Page 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ JÓHANN Hjartarson náði í fyrsta skipti þeim áfanga að verða atskákmeistari Íslands þegar hann sigraði Helga Ólafsson 1½–½ í beinni útsendingu í Sjónvarpinu á sunnudaginn. Þetta var í 13. skipti sem mótið var haldið, en það fór fyrst fram 1988. Úrslitakeppni Atskákmóts Ís- lands hófst á föstudagskvöld með 16 manna úrslitum, en meðal kepp- enda voru sex stórmeistarar, þar á meðal Friðrik Ólafsson. Það sem einkenndi þessa keppni var gífur- lega hörð barátta þar sem sigur vannst sjaldnast fyrr en eftir mikil átök. Hinir stigalægri reyndust stórmeisturunum skeinuhættir og óvænt úrslit urðu í 16 manna úrslit- um þegar hinn ungi og efnilegi Stef- án Kristjánsson sló stórmeistarann Þröst Þórhallsson út úr keppninni. Úrslit urðu annars sem hér segir: Helgi Ólafss. – Bragi Þorfinnss. 2–0 Hannes H. Stefánss. – Sigurbj. Björnss.2–0 Jóhann Hjartars. – Sævar Bjarnas. 2–0 Þröstur Þórhallss. – Stefán Kristjánss. 1–2 Helgi Á. Grétarss. – Davíð Ólafss. 2–0 Friðrik Ólafss. – Bragi Halldórss. 2–1 Jón V. Gunnarss. – Arnar Gunnarss. 2–1 Jón G. Viðarss. – Kristján Eðvarðss. 1½–½ Átta manna úrslit voru tefld á laugardaginn. Enn voru fimm stór- meistarar eftir í slagnum, en ljóst var að þeim mundi fækka um a.m.k. einn þar sem skákjöfrarnir Friðrik Ólafsson og Jóhann Hjartarson mættust í þessari umferð. Helgi Ólafss. – Jón Garðar Viðarss. 2–1 Hannes H. Stefánss. – Jón V. Gunnarss.2–0 Jóhann Hjartars. – Friðrik Ólafss. 1½–½ Stefán Kristjánss. – Helgi Áss Grétarss.0-2 Þetta var mikil átakaumferð. Jón Garðar reið á vaðið og lagði stiga- hæsta keppandann, Helga Ólafs- son, að velli í fyrri skákinni. Helgi, sem hafði svart, var seinn að hróka og eftir að Jón Garðar kom biskupi fyrir á d6-reitnum gat svartur sig vart hrært og úrslitin réðust skömmu síðar. Jón Garðar tefldi einnig vel í síðari skákinni og virtist vera með þokkalega stöðu, náði m.a. frípeði á c-línunni sem Helga tókst einungis að stöðva með því að hleypa riddara sínum á stökk. Helga tókst hins vegar að snúa á Jón Garðar í endataflinu, ná hag- stæðum uppskiptum og innbyrða vinninginn. Þar með hafði Helgi tryggt sér úrslitaskák sem hann vann og var þar með kominn í und- anúrslit eftir sögulega viðureign. Hannes var sá eini sem hægt er að segja að hafi sloppið auðveldlega í gegnum þessa umferð. Hann sigraði í fyrri skákinni og í þeirri síðari fór Jón Viktor illa að ráði sínu þegar hann stýrði svörtu mönnunum. Eftir 10–20 leiki hafði Hannes komið veru- legum liðsafla aftur fyrir svörtu víglínuna þar sem hann hreiðr- aði um sig. Þessir óboðnu gestir voru meira en svarta staðan þoldi og Jón Viktor varð fljótlega að gef- ast upp. Mikill áhugi var á viðureign Friðriks og Jóhanns. Friðrik hafði hvítt í fyrri skákinni. Mörgum var hætt að lítast á blikuna þegar í byrj- un skákarinnar hafði Friðrik eytt 15 mínútum á móti tveimur mínút- um Jóhanns. Það virtist því stefna í auðveldan sigur Jóhanns á tíma, ef ekki annað. Friðrik hafði þó greini- lega ekki eytt tímanum til einskis og smám saman saxaðist á forskot Jóhanns þar til þeir áttu eftir álíka mikinn tíma eftir fyrir lokasprett- inn í skákinni. Þar hallaði þó á hvor- ugan og jafntefli var samið. Í síðari skákinni náði Friðrik ágætri stöðu með svörtu mönnunum og virtist ekki þurfa að kvíða framhaldinu. Þegar leið á skákina missti hann þó þráðinn og varð að lokum að játa sig sigraðan. Það er greinilega enn þess virði að velta fyrir sér hvaða árangri Friðrik mundi ná ef hann einungis tefldi meira. Þeir yrðu ekki margir íslensku skákmennirn- ir sem gætu þá reiknað með að hafa betur gegn honum. Fjórir stór- meistarar mættust í undanúrslitum og leikar fóru þannig: Helgi Ólafsson – Helgi Áss Grétarsson 2–0 Hannes H. Stefánss. – Jóhann Hjartars.0-2 Viðureign nafnanna Helga Ólafs- sonar og Helga Áss Grétarssonar varð söguleg. Helgi Áss náði betri stöðu í báðum skákunum og unnu tafli í annarri, en heilladísirnir voru ekki með honum að þessu sinni. Helgi Ólafsson er líka háll sem áll í atskákinni eins og sést á því, að hann hefur þrívegis orðið atskák- meistari Íslands. Helgi Ólafsson og Jóhann Hjartarson tefldu til úrslita um titilinn atskákmeistari íslands 2001 í beinni útsendingu í Sjón- varpinu á sunnudag- inn. Skákmenn biðu spenntir eftir þessari viðureign, enda er heilög stund hjá þeim þegar skák er sýnd beint í sjónvarpi. Fyrri skákin fór ró- lega af stað. Upp kom Tartakower–afbigðið í drottningar- bragði og Helgi, sem hafði hvítt, fékk þægilegra tafl. Hann gætti sín þó ekki á mótspili Jóhanns sem kom hróki niður á c2, sem ásamt riddara og drottningu herjaði á f2–peðið í herbúðum hvíts. Helgi ákvað að lok- um að leika f2–f3 til að minnka þrýstinginn, en við það skapaðist veikleiki á g3 sem átti eftir að reyn- ast dýrkeyptur. Lokakafli skákar- innar varð afar spennandi, en veik- leikarnir í stöðu hvíts og frípeð svarts á b–línunni gerðu út um skákina. Helgi varð því að sigra í síðari skákinni. Hann beitti slav- neskri vörn og Jóhann kaus að bíða átekta, enda dugði honum jafntefli til að tryggja titilinn. Skákskýrend- um í sjónvarpssal fannst reyndar að Jóhann hefði verið fullrólegur í tíð- inni og Helgi hóf sókn gegn hvíta kónginum. Eftir að ýmislegt hafði gengið á fórnaði Helgi biskup fyrir peð á h3 til þess að lokka hvíta kónginn fram úr fylgsni sínu. Jó- hann ákvað að þiggja fórnina og það var rétt ákvörðun, því það kom í ljós að hvíti kóngurinn gat alltaf vikið sér undan atlögu svarts. Þótt svart- ur næði að þráskáka að lokum jafn- gilti það tapi því Jóhann hafði þar með tryggt sér titilinn atskákmeist- ari Íslands 2001. Lokaúrslit einvíg- isins urðu því 1½–½ Jóhanni í vil. Sigur Jóhanns er niðurstaða sem allir geta verið sáttir við og Helgi Ólafsson virtist sjálfur vera sáttur við sína frammistöðu þótt sigurinn hafi ekki orðið hans. Jóhann var nefnilega að tefla úrslitaeinvígi um þennan titil í fimmta skipti og hafði, svo ótrúlegt sem það virðist, aldrei unnið hann áður. Það var því svo sannarlega orðið tímabært að hann hreppti þennan titil. Útsendingin frá keppninni í Sjón- varpinu var vel heppnuð og eiga þeir Egill Eðvarðsson og Hermann Gunnarsson hrós skilið fyrir það hversu skipulega var staðið að mál- um. Egill var stjórnandi útsending- ar. Hann lét það þó ekki duga held- ur mætti einnig einn síns liðs niður í Taflfélag Reykjavíkur með upp- tökuvél meðan undankeppnin stóð yfir til þess að afla myndefnis í þátt- inn. Hermann Gunnarsson hafði síðan umsjón með þættinum og samstarf þeirra Egils var hnökra- laust og í heildina tekið var þetta liprasta útsending sem undirritað- ur hefur séð frá skákmóti. Töluvert var lagt í sviðsmyndina, sem var með virðulegum blæ. Enn einu sinni var þó valið mjög dökkt um- hverfi. Þetta virðist vera einhver siður bæði í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum þar sem fjallað er um skák, t.d. má nefna óskaplega drungalegt umhverfi í kringum skákina í kvikmyndinni „Leitin að Bobby Fischer“. Eins og það gefi til kynna, að skák sé einhvers konar myrkrarverk sem þoli ekki dags- ljósið. Raunveruleikinn er hins veg- ar annar eins og þeir sjá sem bregða sér t.d. í Taflfélag Reykja- víkur eða Taflfélagið Helli. Þar eru það bjartir litir og góð lýsing sem ráða ríkjum, enda hefur verið gerð krafa um slíkt allt frá því Bobby Fischer kvartaði yfir lýsingunni í Laugardalshöllinni! Þetta var þó ekki aðalatriðið í útsendingunni og verður að skoðast sem ábending fremur en aðfinnsla, enda var sviðs- myndin í þessari útsendingu prýði- leg. Hermann Gunnarson stóð sig vel að vanda. Hann gætti þess mjög vel, að áhorfendur fengju að sjá hvern einasta leik í skákunum og fékk Þröst Þórhallsson til að rekja alla leikina með skýringum. Það gerðist því aldrei, að spennandi augnablik í skákunum yrðu „skemmd“ með viðtölum eins og stundum hefur viljað brenna við í svona útsendingum. Skákáhuga- menn eru spennufíklar sem vilja fá hvern leik um leið og honum er leik- ið og engar refjar! Viðtölin voru skemmtileg og er sérstök ástæða til að minnast á viðtal Hermanns við Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, sem níu sinnum hefur orðið Íslands- meistari kvenna í skák. Lilja er kraftmikil, jákvæð og hefur hæfi- leikann til að hrífa fólk með sér. Það stakk hins vegar í stúf við málflutn- ing Lilju að heyra enn og aftur í öðrum viðtölum rætt um „lægðina“ í skákinni. Skákáhugamenn hafa engan áhuga á slíkum barlómi, enda baráttumenn upp til hópa sem ávallt eru bjartsýnir á möguleika eigin stöðu. Þetta var því vonandi í síðasta skipti sem rætt er um skák- ina á Íslandi á þennan hátt, enda er fjölmargt athyglisvert um að vera í skáklífinu og margir efnilegir skák- menn á ferðinni sem vafalaust eiga eftir að ná langt, ekki síst ef fjöl- miðlar styðja við bakið á þeim. Eina ósvaraða spurningin eftir þessa útsendingu er sú hver raun- veruleg stefna Ríkisútvarpsins er gagnvart skákinni. Hvers vegna kusu stjórnendur RÚV t.d. að sýna frá þessu athyglisverða skákmóti, en ekki frá ýmsum öðrum spenn- andi skákmótum sem fram hafa far- ið að undanförnu? Í heildina tekið má kalla stefnuna (ef hún er þá yf- irleitt fyrir hendi) gagnvart skák- inni fjandsamlega, eða a.m.k. rugl- ingslega. Þannig birtir Sjónvarpið t.d. helst aldrei skákfréttir, hvorki í fréttatímum, íþróttaþáttum né öðr- um þáttum, jafnvel þótt fréttatil- kynningar séu sendar. Útvarpið hagar sér öðruvísi af einhverjum ástæðum. Kannski það hafi ekkert með stefnu stjórnendanna að gera, enda virðist það fyrst og fremst vera Bjarni Felixson sem hefur tek- ið málin í sínar hendur þegar kemur að umfjöllun um skák. Það væri fróðlegt að vita hvað stjórnendur RÚV eru að hugsa hvað þetta varð- ar. Gerðirnar virðast a.m.k. ekki endurspegla skýra hugsun. Varla er hægt að gefa skort á viðburðum sem ástæðu. Eitt helsta vandamál skákhreyfingarinnar um þessar mundir er yfirfull dagskrá sem leyf- ir varla ný skákmót án þess að þau rekist á við þau sem þegar eru skipulögð. Skákmót á næstunni 15.2. SÍ. NM í skólaskák 16.2. SA. 15–mínútna mót 24.2. SA. Hraðskák, yngri fl. 25.2. Hellir. Kvennameistaramót 25.2. SA. Akureyrarmót í hraðsk. 26.2. Hellir. Atkvöld Jóhann Hjartarson atskákmeistari Íslands Jóhann Hjartarson Daði Örn Jónsson SKÁK S j ó n v a r p i ð 9.–11.2. 2001 ATSKÁKMÓT ÍSLANDS – ÚRSLIT ÓLAFUR F. Magnússon, fulltrúi í umhverfis- og heilbrigðisnefnd Reykjavíkur, hefur beðið Morgun- blaðið að birta eftirfarandi yfirlýs- ingu: „Í frétt á bls. 6 í Morgunblaðinu föstudaginn 9. febrúar sl. undir fyrirsögninni „Gagnrýni á kjöt sem ekki er til“ segir Matthías Sigurðsson, framkvæmdastjóri Nóatúns, gagnrýni umhverfis- og heilbrigðisnefndar á sölu hollensks kálfakjöts í verslunum Nóatúns „byggða á miklum misskilningi“. Matthías segir Nóatúnsverslanirn- ar hafa haft hollenskt kálfakjöt til sölu í fyrrasumar og fram á haust, „því sé nú verið að gagnrýna kjöt sem ekki sé til“. Umhverfis- og heilbrigðisnefnd Reykjavíkur samþykkti einróma tillögu undirritaðs á fundi nefnd- arinnar fimmtudaginn 8. febrúar sl. um að lýsa „áhyggjum sínum og vonbrigðum yfir því að verslunin Nóatún skuli enn á ný bjóða til sölu nautakjöt frá kúariðusýktu landi, nú síðast frá Hollandi. Þá mæltist nefndin til þess „að verslanir á höfuðborgarsvæðinu sem annars staðar á landinu sýni þá sjálfsögðu aðgát að hafa ekki slíkar vörur á boðstólum“. Tillaga undirritaðs var byggð bæði á fréttaflutningi af nýlegri sölu umrædds kjöts frá Hollandi og vitneskju margra nefndar- manna um þessa sölu. Því kom áðurnefnd frétt Morg- unblaðsins 9. febrúar sl. undirrit- uðum mjög á óvart og óskaði hann þegar eftir því að starfsmenn heil- brigðiseftirlitsins staðfestu að um- hverfis- og heilbrigðisnefnd Reykjavíkur færi með rétt mál. Við eftirlitsferð sama dag í verslun Nóatúns á Hringbraut 121 staðfesti verslunarstjórinn þar að hollenskt kálfakjöt var boðið til sölu þar helgina á undan. Áðurnsefnd frétt Morgunblaðs- ins er því byggð á ósannindum framkvæmdastjóra Nóatúns og til þess fallin að draga úr trúverð- ugleika umhverfis- og heilbrigðis- nefndar Reykjavíkur. Þar sem nefndin gætir mikil- vægra hagsmuna almennings er brýnt að leiðrétta þessi ósannindi.“ Yfirlýsing vegna sölu Nóatúns á hollensku kjöti FIMMTÍU og fimm stúdentar voru brautskráðir frá Menntaskólanum við Hamrahlíð laugardaginn 10. febrúar. Tveir stúdentar, þau Ásta Dögg Jónasdóttir og Snorri Sig- urðsson, urðu dúxar, bæði með jafnháa ágætiseinkunn á nátt- úrufræðibraut eftir 3½ árs náms- tíma. Í ræðu sinni fjallaði Lárus H. Bjarnason rektor m.a. um verkfall framhaldsskólakennara, aðdrag- anda þess og afleiðingar. Lét hann í ljósi þá von að þrátt fyrir marg- vísleg óþægindi og sársauka hjá þolendum verkfallsins yrði þess fremur minnst í framtíðinni vegna jákvæðra breytinga í skólunum í kjölfar þess. Þar bæri hæst hækkun grunnlauna kennara, skólarnir færu sjálfir með framkvæmd kjara- samnings og fengju nýtt svigrúm til þess að skipa störfum og skipta verkefnum í takt við aðstæður á hverjum stað. Í dagskránni var ofið saman tón- list og töluðu orði. Málmblásaratríó lék við upphaf athafnarinnar, Kór Menntaskólans við Hamrahlíð söng undir stjórn Þorgerðar Ingólfs- dóttur, María Huld Markan Sigfús- dóttir, nýstúdent af tónlistarbraut, lék á fiðlu og í lokin var fjölda- söngur. Bergur Ebbi Benediktsson talaði fyrir hönd nýstúdenta og Hrefna Haraldsdóttir kennari flutti ávarp. Í kveðjuorðum til stúdenta gerði rektor hamingjuna að umtalsefni og brýndi þá til þess að greina á milli gerviþarfa og þess sem raun- verulega og varanlega skipti máli. Menntaskólinn við Hamrahlíð. Fimmtíu og fimm stúdentar brautskráðir frá MH MATTHÍAS Sigurðsson fram- kvæmdastjóri Nóatúns hefur sent frá sér eftirfarandi yf- irlýsingu: „Vegna umfjöllunar fjöl- miðla um sölu á hollensku kálfakjöti óskar Nóatún eftir að koma á framfæri að kjötið, sem nýverið var sett í kjöt- borð Nóatúns við Hringbraut fyrir mannleg mistök, var samdægurs tekið úr sölu og því fargað. Magn hollenska kálfakjöts- ins sem sett var í sölu í um- ræddri verslun var 3 kg og kjötið sem um ræðir, var ósótt pöntun frá því í desember sl. Það skal sérstaklega tekið fram að ekkert af kjötinu var selt til neytenda. Öll tilskilin heilbrigðisvottorð voru til staðar við innflutning hol- lenska kálfakjötsins og öllum settum heilbrigðisreglum fylgt út í æsar. Nóatún biður neytendur velvirðingar á þessum mistök- um sem urðu vegna kunnáttu- leysis afleysingamanns hjá versluninni.“ Yfirlýsing vegna sölu á kálfakjöti frá Hollandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.