Morgunblaðið - 13.02.2001, Blaðsíða 57
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2001 57
SVÆÐAMEÐFERÐARNÁM
Skemmtilegt uppbyggjandi nám sem gefur þér tækifæri
á að vinna sjálfstætt. Viðurkennt nám af
Svæðameðferðarfélagi Íslands.
Kennsla 1 kvöld í viku frá kl. 17-21. Aðeins 6 manns í hóp.
Ath: Vegna eftirspurnar verður möguleiki á
kennsluhelgum fyrir landsbyggðarfólk eina helgi
í mánuði. Upplýsingar og innritun í símum 552 1850
og 896 9653 frá kl. 10.30 til 11.30 virka daga og í
síma 562 4745 milli kl. 18 og 19 virka daga.
NÁMSKEIÐ Í BAK- OG ANDLITSNUDDI
Slökunarnudd með ilmolíum (andlit, háls, herðar, handleggir,
hendur og bak), þrýstipunkta- og svæðanudd.
Verð kr. 14.000 og 4000 kr. afsláttur
fyrir pör. Sérmenntaður kennari með
15 ára reynslu. Upplýsingar og innritun í
símum 552 1850 og 896 9653 frá kl. 10.30
til 11.30 virka daga og í síma 562 4745
milli kl. 18 og 19 virka daga.
helgina 17-18 febrúar frá kl. 14-18 báða dagana
SAMTÖK stúdenta um flugvallar-
málið í samvinnu við Stúdentaráð
efnir til fundar þriðjudaginn 13.
febrúar um framtíð flugvallarsvæð-
isins. Á fundinum verða kynnt
skipulags- og verðmatsverkefni
stúdenta.
Hrafn Gunnlaugsson kynnir gerð
myndarinnar „Reykjavík í nýju
ljósi“ og Stefán Ólafsson, formaður
undirbúningsnefndarinnar, skýrir
frá undirbúningi kosninganna. Að
loknum framsögum taka við pall-
borðsumræður með valinkunnum
einstaklingum og má búast við líf-
legum umræðum. Fundarstjóri er
Egill Helgason.
Fundurinn er öllum opinn og
hefst klukkan 15.30 í Odda, stofu
101.
Stúdentar
funda um flug-
vallarmálið
NÁMSKEIÐ um þroskahömlun
barna verður haldið í Gerðubergi
dagana 15. og 16. febrúar á vegum
Greiningarstöðvar ríkisins. Nám-
skeiðið er tólf kennslustundir og eru
leiðbeinendur fjórir sérfræðingar
frá Greiningarstöð og einn frá Leik-
skólum Reykjavíkur.
Námskeiðið er ætlað þeim sem sjá
um skipulagningu starfs og/eða
vinna með ungum börnum með
þroskahömlum svo og aðstandend-
um. Auk hefðbundinna námsgagna
fá þátttakendur afhent tilraunaút-
gáfu á fræðsluriti um þroskahömlun
sem Greiningarstöð hefur gefið út,
ætlað til notkunar á þessu nám-
skeiði. Skráning fer fram á Greining-
arstöð.
Námskeið um
þroskahömlun
barna
LIONSKLÚBBURINN Eir verður
með sína árlegu kvikmyndasýningu í
Háskólabíói miðvikudaginn 14.
febrúar nk. kl. 20 í sal 2.
Í ár er það forsýning á bresku
myndinni Billy Elliot en hún hefur
farið sigurför um heiminn að und-
anförnu. Aðalleikkona myndarinnar,
Julie Walters, var tilnefnd til Golden
Globe-verðlaunanna fyrir leik sinn í
myndinni.
Háskólabíó hefur í fjölda ára gefið
Lionsklúbbnum Eir eina sýningu á
ári og á þann hátt stutt Lionskonur í
öflun fjár til líknarmála, en allur
ágóði seldra miða rennur óskertur til
ýmissa líknarmála og forvarnar-
starfa.
Kvikmyndasýn-
ing til styrktar
líknarmálum
FYRSTU netverðlaun kennara
voru veitt við Háskóla Íslands fyr-
ir skömmu. Verðlaunin eru full-
komin IBM Thinkpad fartölva með
15" skjá að verðmæti 280.000 í boði
Nýherja, segir í fréttatilkynningu.
„Stúdentaráð hefur lagt mikla
áherslu á að kennarar tileinki sér
Netið í auknum mæli við kennslu.
Með skipulegri notkun Netsins
getur kennsla orðið skilvirkari og
þá um leið unnist svigrúm til að
auka fræðilegar umræður í tímum.
Liður í því að stuðla að aukinni
notkun Netsins í kennslu, var að
koma á fót svonefndum netverð-
launum kennara. Stúdentaráð vill
með þessum hætti koma til móts
við þá kennara sem hafa lagt mikla
vinnu til að gera kennsluna árang-
ursríkari og skemmtilegri.
Eftir margar ábendingar frá
stúdentum ákvað menntamála-
nefnd Stúdentaráðs að veita
Ágústi Kvaran prófessor í eðlis-
efnafræði verðlaunin. Á vefsíðu
hans www.raunvis.hi.is/~agust er
að finna mjög öflugt námsnet sem
nýtist nemendum hans vel í nám-
inu. Ber þar hæst ítarlegar nám-
skeiðalýsingar, efnisyfirferðir,
verkefni, gagnabanka, upplýsingar
um rannsóknir og framhaldsnám
og ýmsar áhugaverðar slóðir er
tengjast fræðasviðinu. Það er von
Stúdentaráðs að verðlaunin hafi
jákvæð áhrif á kennara og stuðli
að aukinni notkun Netsins við
kennslu,“ segir þar jafnframt.
Þá var stúdentavefurinn,
www.student.is, opnaður. Á vefn-
um verður að finna allar helstu
upplýsingar af vettvangi Stúdenta-
ráðs, fréttir úr Stúdentablaðinu,
fréttir frá deildarfélögunum og í
raun allar þær upplýsingar er
varða stúdenta úr Háskóla Ís-
lands.
Stúdentar verðlauna
kennara
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
HELGINA 17. og 18. febrúar verð-
ur haldið Feldenkrais-námskeið í
sal FÍH, Rauðagerði 27, Reykjavík.
Leiðbeinandi er Sibyl Urbancic.
Feldenkrais-aðferðin nýtist þeim
sem áhuga hafa á líkamsbeitingu og
vilja læra meira um sig og mögu-
leika sína. Mætti t.d. nefna þá sem
stunda dans, hjúkrun og sjúkra-
þjálfun, íþróttir, kennslu, leiklist
eða tónlist.
„Notaðar eru hreyfingar til að
bæta meðvitund um beitingu lík-
amans. Dr. Moshe Feldenkrais var
verkfræðingur og eðlisfræðingur,
og stundaði margs konar íþróttir,
hafði m.a. svarta beltið í júdó. Ár-
angurslaus leit hans að lækningu
við þrálátum hnjámeiðslum leiddi
til þess að hann fór að athuga
hreyfingar og hreyfivenjur líkam-
ans og möguleika á að breyta þeim
í von um bata. Honum tókst að ráða
bót á hnjámeiðslunum, en lét ekki
þar við sitja, heldur varð það hon-
um hvatning til að halda áfram ævi-
langt að þróa þá aðferð, sem við
hann er kennd og stunduð er víða
um heim.
Námskeiðið fer fram á íslensku
og er opið öllum, byrjendum sem
lengra komnum.
Þrjár kennslustundir verða hvorn
dag: kl. 10:00–11:30, kl. 12:00–13:30
ogkl. 14:30–16:00 opið verður frá kl.
9:30. Upplýsingar og skráning: á
skrifstofu Félags íslenskra hljóm-
listarmanna, í síma 588 8255. Á
námskeiðinu verður kennt eftir
hópkennsluaðferð dr. Moshe Fel-
denkrais: Awareness through
Movement (skynjun gegnum hreyf-
ingu). Um er að ræða kerfi ein-
faldra hreyfinga sem henta öllum.
Þær eru gerðar á leikandi hátt,
hægt og þægilega, eftir leiðbein-
ingum kennarans. Hver og einn at-
hugar hreyfivenjur sínar og kynnist
öðrum valkostum með hjálp leið-
beinandans. Í hverjum tíma er eitt-
hvert hreyfingamynstur tekið fyrir
og í lok tímans fara fram umræður,
þar sem spurningum er svarað.
Námskeiðið byggist á sjálfstæð-
um tímum og er enginn einn tími
forsenda annars. Þannig er hægt að
taka þátt í einum tíma, en að sjálf-
sögðu er mælt með þátttöku í sem
flestum. Námskeiðið hentar jafnt
byrjendum og þeim sem áður hafa
kynnst Feldenkrais-aðferðinni. Far-
ið verður í mismunandi grundvall-
aratriði og aðferðin skýrð fyrir
byrjendum í fyrsta tíma hvorn dag-
inn.“
Verð er 5000 kr. fyrir allt nám-
skeiðið, 2500 kr. fyrir einn dag og
1000 kr. fyrir stakan tíma.
Feldenkrais-námskeið um næstu helgi
alltaf á sunnudögum
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050