Morgunblaðið - 24.02.2001, Page 14

Morgunblaðið - 24.02.2001, Page 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar vísaði á fimmtudag til bæjar- stjórnar ákvörðun um að staðfesta samþykkt skipu- lagsnefndar bæjarins um auglýsingu deiliskipulagstil- lögu fyrir Hörðuvelli. Bæjar- ráð frestaði til næsta fundar umfjöllun um tillögu Samfylk- ingarinnar þess efnis að sér- fróðir aðilar verði fengnir til að vinna mat á umhverfisleg- um áhrifum nábýlis fyrirhug- aðs Hörðuvallaskóla við elli- og hjúkrunarheimilið Sól- vang. Sérstaklega verði hug- að að hávaða og hljóðmengun. Eins og sagt var frá í blaðinu á fimmtudag hefur skipulagsnefnd bæjarins samþykkt að auglýst skuli umdeild deiliskipulagstillaga á Hörðuvöllum þar sem reist- ur verði grunnskóli, íþrótta- hús, sundlaug og leikskóli. Þegar samþykkt skipulags- nefndar kom til umfjöllunar í bæjarráði á fimmtudag lögðu fulltrúar Samfylkingarinnar fram tillögu um að láta fara fram kynningu á tillögunni áður en hún verði tekin til formlegrar samþykktar í ljósi mótmæla nær 5.000 bæjar- búa. Sú tillaga var felld með þremur atkvæðum meirihlut- ans gegn atkvæðum minni- hlutans og tillögu skipulags- nefndar jafnframt vísað til bæjarstjórnar. Bæjarráðsmenn Samfylk- ingar lögðu þá fram bókun þar sem þeir lýsa undrun og furðu á „virðingarleysi meiri- hluta bæjarráðs gagnvart þeim þúsundum bæjarbúa sem hafa með skýrum hætti mótmælt þeim forsendum sem þessi deiliskipulags- tillaga byggir á“. Bæjarráðs- menn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks létu þá bóka að umfjöllun um nýtt deiliskipulag á Hörðuvalla- svæðinu hafi verið til umfjöll- unar í skipulagsnefnd, bæjar- ráði og bæjarstjórn í langan tíma og áform bæjaryfirvalda verið kynnt hagsmunaaðilum á svæðinu. „Umfjöllun og skoðanaskipti hafa jafnframt verið mikil á undanförnum mánuðum meðal bæjarbúa bæði í ræðu og riti. Bæjar- stjórn mun taka málið til af- greiðslu á næsta fundi sínum og að því loknu mun málið fara í kynningu og auglýsingu skv. skipulagslögum.“ Að því loknu kom fram til- laga bæjarráðsmanna Sam- fylkingar um að sérfróðir að- ilar verði fengnir til að vinna mat á umhverfislegum áhrif- um nábýlis fyrirhugaðs Hörðuvallaskóla við elli- og hjúkrunarheimilið Sólvang. Sérstaklega verði hugað að hávaða og hljóðmengun. Í greinargerð með tillög- unni segir að fyrirhugaður Hörðuvallaskóli verði stað- settur mjög nálægt elli- og hjúkrunarheimilinu Sólvangi; leiksvæði skólans verði mjög nálægt aðalbyggingu heimil- isins og gera megi ráð fyrir að umgangur verði um lóð heim- ilisins með tilheyrandi ónæði og hávaða. „Í mengunar- varnareglugerð eru ákvæði um hámarkshljóðstig í íbúð- arbyggð og við stofnanir af þessu tagi. Eðlilegast er að gera mjög strangar kröfur í þessu efni við stofnun af þessu tagi af tillitssemi við þá öldruðu einstaklinga sem þar búa. Þekking og reynsla er til staðar hjá ráðgjafarfyrir- tækjum til að framkvæma slíkt mat og tæknilegar hindranir ekki til staðar. Því er bæði sjálfsagt og skylt að framkvæmt verði mat á því hvaða hljóðálags megi vænta vegna starfsemi skólans og leggja slíka greiningu til grundvallar við ákvörðunar- töku. Niðurstöðurnar verði jafnframt kynntar forsvars- mönnum og íbúum hjúkrun- arheimilisins. Ekki ætti að koma til álita að taka ákvörð- un um skólabygginguna án þess að slíkt mat sé fram- kvæmt,“ segir í greinargerð- inni, sem bæjarráð ætlar að afgreiða á fundi sínum í næstu viku. Hörðuvallaskóli í umhverfismat Hafnarfjörður GARÐABÆR mun næstu daga auglýsa nýtt deiliskipu- lag í Grunda- og Ásahverfi þar sem m.a. er gert ráð fyrir byggingu nýs grunnskóla og leikskóla. Að sögn Ásdíar Höllu Bragadóttur, bæjar- stjóra, er gert ráð fyrir því að eftir byggingu nýja grunn- skólans muni unglingaskóli bæjarins, Garðaskóli, annast kennslu 8.-10. bekkjar en ekki 7.-10. bekkjar eins og verið hefur. Á almennum fundi um skólamál í Garðabæ nýlega var m.a. fjallað um þá mögu- leika sem nýgerðir kjara- samningar við kennara veita í skólastarfinu og um þá stefnu sem unnið er eftir varðandi áframhaldandi uppbyggingu skólanna í tölvu- og upplýs- ingamálum. Einnig reifaði bæjarstjórinn framtíðarþró- un skólamála í bænum, m.a. í ljósi spár um mannfjöldaþró- un og þess svæðisskipulags sem verið er að vinna fyrir höfuðborgarsvæðið. Nýi grunnskólinn í Grund- unum verður svokallaður þriggja heildstæðu grunn- skóli fyrir 1.-7. bekk, sem þýðir að gert verður ráð fyrir þremur bekkjardeildum í hverjum árgangi. Jafnframt er stefnt að þeim breytingum að nemendur hinna barna- skólanna tveggja í bænum, Flataskóla og Hofsstaða- skóla, flytjist ekki í unglinga- skólann fyrr en í 8. bekk í stað þess að fara á milli skóla í 7. bekk nú. Millihverfi fylgi Flataskóla Jafnframt sagði bæjar- stjóri í samtali við Morgun- blaðið að samkvæmt þeim hugmyndum, sem unnið væri út frá, yrði ekki um að ræða ákveðið millihverfi í skóla- skipan bæjarins í framtíðinni eins og verið hefur en nem- endur þaðan hafa ýmist farið í Hofsstaðaskóla eða Flata- skóla. Að sögn bæjarstjórans er ráðgert að millihverfið fylgi Flataskóla eins og það hefur gert á undanförnum ár- um. Eiríkur Bjarnason, bæjar- verkfræðingur, sagði í samtali við Morgunblaðið að jafn- framt fælist það í nýju deili- skipulagi fyrir Grundir og Ása að settir eru skýrir skipu- lagsskilmálar fyrir þennan elsta hluta bæjarfélagsins. Með deiliskipulaginu skýr- ist réttarstaða íbúa í hverfinu vestan Vesturlandsvegar, að sögn Eiríks. Afmarkaðir verða byggingarreitir og ákveðið byggingarmagn svo ekki þurfi að auglýsa hverja breytingu við hvert hús sér- staklega. Deiliskipulag með nýjum skóla í Grundahverfi Garðaskóli verði fyrir 8.–10. bekk Garðabær GERT er ráð fyrir að rúm- lega 1.500 sex ára börn komi til með að hefja skólagöngu í grunnskólum Reykjavíkur í haust, en innritun þeirra fór fram í grunnskólum borgar- innar miðvikudaginn 21. og fimmtudaginn 22. febrúar sl. Um er að ræða börn sem fædd eru árið 1995. Á leikskólanum Hlíðaborg í Eskihlíð eru alls 56 börn og þar af 16 sem koma til með að hefja nám komandi haust og öll í Hlíðaskóla. Morgun- blaðið leit í heimsókn þangað í gær og kannaði hug fimm þessara barna til nýrra verk- efna á komandi hausti. Þessi börn voru Karólína Péturs- dóttir, Freyja Ingadóttir, Goði Már Daðason, Þórhall- ur Sigurjónsson og Ástgeir Ólafsson og öll sögðust þau hlakka mikið til þess að fara í Hlíðaskóla, þótt þau kynnu nú sum hver orðið stafina og jafnvel að reikna dálítið. Dálítið öðruvísi að vera í grunnskóla Karólína sagðist halda að það yrði dálítið öðruvísi að vera í grunnskóla af því að þar þyrfti maður að lesa og reikna mikið. Hún sagðist kunna suma stafina og því til sönnunar stafaði hún nafnið sitt alveg hárrétt fyrir blaða- mann. Freyja kann stafina af því að hún á stafakarlana í tölvunni heima og svo kann hún dálítið að reikna. Goði Már kvaðst vera smá byrj- aður að lesa og eiga skóla- spilið og vera kominn í reikninginn þar. Þórhallur kann sko að lesa, því mamma hans vinnur í skóla. Og hann kann líka að reikna. Ástgeir kann smá að lesa en ekki voða mikið að reikna. En skyldu þau vera farin að velta fyrir sér hvað þau ætli að vera, þegar þau eru orðin stór? Karólína var ekki búin að ákveða það, en Freyja ætlar að vera jarðfræðingur. Pabbi hennar var búinn að segja henni hvað jarðfræð- ingar gera, en hún mundi ekki alveg hvað það var. Goði Már sagðist líka ætla að vera jarðfræðingur, því hann langar svo til að finna eðalsteina, eins og í sjón- varpinu. Þórhallur ætlar hins vegar að vinna á Morg- unblaðinu þegar hann er orðinn stór. Og ekki sem blaðamaður, vel að merkja, heldur ritstjóri. Ástgeir ætl- ar að vera jarðfræðingur, eins og Freyja og Goði Már, en vissi ekki alveg hvers vegna. Þá var það komið á hreint. Að sögn Steinunnar Björnsdóttur, aðstoðarleik- skólastjóra á Hlíðaborg, eru sex ára börnin undirbúin fyrir nám í grunnskólanum með því að taka þau einu sinni í viku í svokölluð elstu- barnaverkefni, þar sem unn- in eru meira krefjandi og skapandi verkefni en ella. Óskar Morgunblaðið þess- um og öðrum börnum sem hefja grunnskólanám í fyrsta sinn í haust alls hins besta í framtíðinni. Verður boðið í heimsókn í skólana á vordögum Á sama tíma og innritun sex ára barnanna fór fram í grunnskólum borgarinnar á miðvikudag og fimmtudag sl., var tekið við umsóknum í skóladagvist fyrir nemendur í 1.– 4. bekk skólaárið 2001- 2002. Jafnhliða fór svo fram innritun skólaskyldra barna og unglinga sem þurfa að flytjast milli skóla næsta vetur. Þetta átti við þá nem- endur sem fluttust til Reykjavíkur, komu úr einka- skólum eða þurftu að skipta um skóla vegna breytinga á búsetu innan borgarinnar. Þá nemendahópa sem flytj- ast í heild milli skóla að loknum 7. bekk þurfti ekki að innrita. Hún nefndi að skólaritarar segðu víðast hvar að innritunin hafi geng- ið vel en þó séu í hverjum skóla nokkur börn á listan- um sem ekkert hefur heyrst af. „Það er mikið að aukast að foreldrar skrái börn sín inn með tölvupósti,“ sagði Krist- ín, aðspurð um hvort algengt væri að foreldrar kæmu með börn sín í skólana þegar ganga ætti frá innritun, eða hvort einhver annar háttur væri viðhafður. „En til að mæta löngun barnanna til þess að sjá skólann, er þeim í langflestum tilfellum boðið í heimsókn á vordögum, yf- irleitt seinnipartinn í maí. Og það er mikil eftirvænt- ing, mikil stemmning í kringum það. Sums staðar er það skipulagt í samstarfi við leikskólana, en þar eð ekki eru öll börn á leikskól- um eru þeim gjarnan send bréf og boðið að koma ein- hvern ákveðinn dag í heim- sókn. Það eru oft fyrstu kynni þeirra af skólanum. Það eru alls 1.611 sex ára börn með lögheimili í Reykjavík, en þau skila sér aldrei öll því einhver eru flutt burt og þar fram eftir götunum. En af reynslu fyrri ára má ætla að rúmlega 1.500 skili sér í grunnskóla Reykjavíkur í haust,“ sagði Kristín að lokum. Um 1.500 sex ára börn hefja skólagöngu í grunnskólum Reykjavíkur í haust Jarðfræði og ritstjórastarf á Morgunblaðinu á óskalistanum Morgunblaðið/Jim Smart Hér eru, talið frá vinstri, Karólína Pétursdóttir, Freyja Ingadóttir, Goði Már Daðason, Þórhallur Sigurjónsson og Ástgeir Ólafsson. Öll hlakka þau mikið til þess að fara í grunnskóla, þótt þau kunni nú sum hver orðið stafina og jafnvel að reikna dálítið. Reykjavík/Hlíðar VIÐBYGGING við Austur- bæjarskóla var formlega tekin í notkun í gær. Um er að ræða um 400 fermetra hús sem byggt var úr ein- ingum ofan á gömlu spenni- stöðinni við skólann. Þar fást fjórar kennslustofur, sem nýttar verða fyrir 6 og 7 ára nemendur. Austurbæj- arskóli varð 70 ára í sumar og var orðið þröngt um nemendur í þessum elsta grunnskóla borgarinnar. Losnar um rými Með tilkomu nýbygging- arinnar losnar rými sem m.a. mun nýtast fyrir félagsstarf, tómstundaað- stöðu og lengda viðveru. Húsið var byggt á fáein- um mánuðum af verktaka- fyrirtækinu Højgaard og Schultz Íslandi ehf. Það er úr timbureiningum. Vængjahurðir eru á öllum stofunum sem gefur mögu- leika á að nýta allt húsið sem eina heild til sam- komuhalds. Yfirbyggð göngubrú tengir bygginguna við skól- ann. Húsið var sett upp í desember og kennsla í því hófst strax í janúar. Kennarar og nemendur Austurbæjarskóla gerðu sér glaðan dag í tilefni opn- unarinnar í gær ásamt gest- um frá Fræðslumiðstöð og fleirum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýjar stofur í elsta skólanum Austurbær

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.