Morgunblaðið - 24.02.2001, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.02.2001, Blaðsíða 18
AKUREYRI 18 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Opið hús í Háskólanum á Akureyri laugardaginn 24. febrúar 2001 Kennsludeildir háskólans, bókasafn og önnur stoðþjónusta kynna starfsemi sína í nýjum húsa- kynnum háskólans á Sólborg frá kl. 11-16.30. Kynnt verður ný upplýsingatæknideild sem tekur til starfa haustið 2001. Ýmsir fyrirlestrar verða haldnir og fjarkennsla háskól- ans kynnt. Hljómsveitin 200.000 naglbítar leikur á Sólborg kl. 14.00-14.30. Veitingar. ALLIR VELK OMNIR Í sóknarhug Hvernig ætlar Akureyrarbær að takast á við 2% fjölgun íbúa á ári næsta áratug? Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, á Fiðlaranum, Skipagötu 14, þriðjudaginn 27. febrúar frá kl. 12:00 til 13:00 •Hver verður þörfin á fjölgun leikskóla og grunnskóla? •Hvar verða íbúða- og iðnaðarlóðir byggðar? •Verður þjóðvegur 1 áfram helsta samgönguæð bæjarins? •Mun byggðin halda áfram að stækka til suðurs og vesturs eða verður hugað að byggð meðfram ströndinni? •Þarf Akureyri meira landrými m.v. þessa fjölgun? •Hvernig verður tekið á umhverfismálum? Þetta, og ýmislegt fleira, mun Kristján Þór fjalla um og svara spurningum fundarmanna. Verð kr. 1.000 (léttur hádegisverður innifalinn). Allir velkomnir Skráning hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar í síma 460 5700 eða á netfangi benedikt@afe.is eða sigga@afe.is KRISTJÁN Þór Júlíusson, bæjar- stjóri á Akureyri, segir að viðræðu- nefnd Akureyrarbæjar fari með al- gjörlega opnum huga í viðræður vegna hugsanlegrar sameiningar Norðurorku, orkufyrirtækis Akur- eyrarbæjar og Rarik. Ríkisstjórnin hefur samþykkt að bjóða bæjarstjórn upp á slíkar við- ræður og er þá miðað við að höfuð- stöðvar sameinaðs orkufyrirtækis verði á Akureyri. Franz Árnason, forstjóri Norður- orku, lýsti þeirri skoðun sinni í Morg- unblaðinu í gær að Akureyringar yrðu að hafa meirihlutastjórn í slíku fyrirtæki, annað væri ekki viðunandi. „Það er ekki verkefni embættis- manna að ákveða slíkt. Við munum fara í viðræðurnar með opnum huga,“ sagði Kristján Þór. Hann sagði að bæjarstjórn Akureyrar hefði ekki sett nein skilyrði fyrir viðræðum milli bæjarins og ríkisins um hugs- anlega sameiningu Norðurorku og Rarik enda væri það alls ekki tíma- bært. Bæjráð Akureyrar samþykkti á fundi í vikunni tillögu um hverjir sætu í nefndinni fyrir hönd bæjarins en þeir eru Kristján Þór sem er for- maður nefndarinnar, Ásgeir Magn- ússon, formaður bæjarráðs, Franz Árnason, forstjóri Norðurorku, og Jakob Björnsson bæjarfulltrúi en auk þess mun Hákon Stefánsson bæjarlögmaður starfa með nefnd- inni. Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri um ummæli forstjóra Norðurorku Embættismenn ákveða ekki svona lagað FORELDRA- og kennarafélög grunnskóla á Akureyri hafa ákveðið að standa sameiginlega að tveimur fræðslufundum fyrir að- standendur og kennara barna á Akureyri. Sá fyrri verður næst- komandi miðvikudag, 28. febrúar, en þar mun Hugo Þórisson sál- fræðingur fjalla um kvíða og ein- elti. Fundurinn hefst kl. 20 og verður í samkomusal Lundar- skóla. Eftir mánuð, 28. mars næst- komandi, fjallar Kristján Már Magnússon sálfræðingur um gildi samveru foreldra og barna og hvað sé agi. Sá fundur verður einn- ig í Lundarskóla og hefst kl. 20. Foreldra- og kennarafélög á Akureyri Fundur um kvíða og einelti FIMM fyrirtæki hafa sameinast um að gefa Háskólanum á Ak- ureyri 20 borðtölvur af Compaq- gerð en þeim hefur verið komið fyrir í nýju tölvuveri í nýbygg- ingu háskólans. Fyrirtækin sem um ræðir eru Íslensk verðbréf, Kaupfélag Eyfirðinga, Samherji, Sparisjóður Norðlendinga og Út- gerðarfélag Akureyringa. Tölvu- verið mun verða tileinkað þessum fyrirtækjum. Gjöfin er hluti af söfnunarátaki sem velunnarar háskólans hafa hrint af stað og nefnist „Há- skólanám til fólksins í landinu“. Markmið með söfnuninni er m.a. að efla tölvukost háskólans. Þor- steinn Gunnarsson, rektor Há- skólans á Akureyri, sagði að gott samstarf hefði verið milli háskól- ans og fyrirtækjanna fimm, en hjá þeim öllum starfa nemendur sem hafa brautskráðst frá Háskól- anum á Akureyri. Nefndi hann sérstaklega að eitt fyrirtækjanna hefði haft þann háttinn á að gefa eina tölvu fyrir hvern braut- skráðan nemanda sem hjá því starfaði. Vænti rektor þess að fleiri tækju sér þetta fyr- irkomulag til fyrirmyndar. Opið hús verður í Háskólanum á Akureyri í dag, laugardag, þar sem gestum gefst meðal annars færi á að skoða hið nýja tölvuver og fræðast um fjölbreytta starf- semi skólans. Kennarar munu flytja fyrirlestra um margvísleg efni, hljómsveitin 200.000 naglbít- ar leikur og veitingar verða í boði. Fimm fyrirtæki sameinast um gjöf til Háskólans 20 tölvur gefnar í nýtt tölvuver Fimm fyrirtæki hafa gefið Háskólanum á Akureyri 20 tölvur í nýtt tölvuver. Hér fylgist Heiðrún Jónsdóttir frá KEA, Pétur Bjarnason frá Samtökum velunnara Háskólans á Akureyri, með Jóni Björnssyni frá Sparisjóð Norðlendinga prófa eina þeirra. Morgunblaðið/Margrét Þóra Sævar Helgason hjá Íslenskum verðbréfum sýnir Guðmundi Guðmundssyni frá Samherja kosti nýju tölvanna. ÁGÚST Jónsson, bygg- ingameistari á Akureyri, lést fimmtudaginn 22. febrúar sl. Hann var fæddur 22. desember 1902 og var því 98 ára. Ágúst lét eftir sig mikið safn íslenskra steina sem hann ánafnaði Háskólan- um á Akureyri á 95 ára af- mæli sínu. Árið 1976 kom út bókin Óður steinsins með 30 lit- ljósmyndum Ágústar af innri gerð íslenskra steina ásamt jafnmörgum ljóð- um Kristjáns frá Djúpa- læk. Eftirlifandi eiginkona hans er Margrét Magnús- dóttir og eiga þau fjögur börn. Andlát ÁGÚST JÓNSSON ÞESSIR kátu krakkar úr öðrum bekk Hrafnagilsskóla í Eyjafjarð- arsveit voru búnir að gera sig klára í bolludagsflengingarnar á mánu- dagsmorgun, en þá ætla þeir að fara á fætur fyrir allar aldir og flengja pabba og mömmu og kannski systkini sín eða afa og ömmu. En ef að líkum lætur fá þau gómsætar bollur með miklum rjóma að launum. Morgunblaðið/Benjamín Þessir bolluvendir, sem krakkarnir í Hrafnagilsskóla bjuggu til fyrir bolludaginn, verða eflaust óspart notaðir. Klár fyrir bolludaginn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.