Morgunblaðið - 24.02.2001, Page 26
ERLENT
26 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BANDARÍSKA varnarmála-
ráðuneytið sagðist í gær ætla að
setja almennt bann við því að
fólk sem ekki er í hernum fái að-
gang að stjórntækjum herskipa,
flugvéla og ökutækja hersins, í
kjölfar árekstrar sem varð milli
bandarísks kafbáts og japansks
fiskiskips á Kyrrahafi fyrr í
mánuðinum. Bannið á að gilda
unz allar deildir hersins hafa
farið vandlega yfir það hvernig
þær haga heimsóknum
óbreyttra borgara, sem fá að
skoða tæki hersins. Tveir menn,
sem voru gestir um borð í kaf-
bátnum USS Greeneville, voru
við stjórnvöl kafbátsins þegar
hann reis úr hafi nærri Hawaii
hinn 9. febrúar sl. og velti jap-
anska skipinu Ehime Maru með
þeim afleiðingum að það sökk og
níu Japanir týndu lífi. Eftir því
sem Washington Post greindi
frá í gær hafði skipherra kaf-
bátsins upplýsingar úr ómratsjá
um að skip væri í grenndinni áð-
ur en áreksturinn varð.
Fujimori
ákærður
ÞING Perú samþykkti í gær
með 34 atkvæðum gegn 24 að
ákæra Alberto Fujimori, fv. for-
seta landsins,
fyrir van-
rækslu á emb-
ættisskyldum
og að hann
skuli sviptur
rétti til að
gegna opin-
beru embætti
í tíu ár. Fuji-
mori hefur
verið í útlegð í Japan frá því
hann hraktist úr forsetastóli í
nóvember sl.
Með tvö tonn
af kókaíni
KANADÍSKUR fiskibátur var
færður til hafnar í Port Angeles
í Washington-ríki á vestur-
strönd Bandaríkjanna í gær,
með yfir tvö tonn af kókaíni inn-
anborðs eftir því sem fyrstu
fréttir hermdu. Fimm Kanada-
menn voru handteknir. Að sögn
sjónvarpsstöðvarinnar KING-
TV væri götusöluverðmæti
þessa magns af kókaíni um 36
milljónir Bandaríkjadala, and-
virði yfir þriggja milljarða ísl.
króna.
Bílþjófur
fékk barn „í
kaupbæti“
SÆNSK hjón, sem yfirgáfu bif-
reið sína til að skreppa inn í búð,
komu aftur að honum stolnum –
ásamt tveggja mánaða gömlu
barni þeirra sem lá í aftursæt-
inu. Lögregla lýsti eftir bifreið-
inni, sem var stolið í miðborg
Malmö á fimmtudagskvöld.
Blaðberi fann bílinn yfirgefinn
um fjórum tímum síðar, um 100
km þaðan sem hann hvarf.
Barnið var hágrátandi í aftur-
sætinu. Þar sem sjö stiga frost
var á þessum slóðum í fyrrinótt
varð barnið fyrir ofkælingu og
þurfti aðhlynningar við á sjúkra-
húsi. Þjófurinn hefur ekki fund-
izt.
STUTT
Engir
gestir að
stjórn-
tækjum
Alberto
Fujimori
FULLTRÚAR Tyrklandsstjórnar
og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF)
áttu í gær viðræður um það hvernig
koma skuli á stöðugleika í efna-
hagslífi landsins á ný, eftir að alvar-
leg stjórnmálakreppa, einkum í
tengslum við stjórnun ríkisfjármála,
skók það með þeim afleiðingum að
gengi tyrkneska gjaldmiðilsins, lír-
unnar, lækkaði um meira en þriðj-
ung á fáeinum dögum.
Gengi tyrknesku lírunnar gagn-
vart Bandaríkjadollar lækkaði um
10,7% til viðbótar í gær og hafði þá
lækkað um samtals 36% frá því á
miðvikudag. Lítil hreyfing var á
gjaldeyris- og verðbréfamörkuðum
í Tyrklandi í gær.
Verðbólguspá
allt upp í 25%
Carlo Cottarelli, Tyrklandstengill
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, hitti
tyrkneska fjármálaráðherrann Su-
mer Oral að máli í gær, eftir að rík-
isstjórnin í Ankara ákvað á fimmtu-
dag að létta hömlum af gengis-
skráningu lírunnar, en í kjölfar
þess tók gengið þessa stóru dýfu.
Dagblaðið Hürryiet greindi frá
því, að ríkisstjórnin væri að íhuga
að endurskoða verðbólguspá sína
fyrir árið 2001 úr 10–12% upp í
25%. Í janúar í fyrra hrinti stjórnin
í framkvæmd áætlun sem miðaði að
því að koma á aga í ríkisfjármálum,
stórminnka rekstrarhalla ríkissjóðs
og koma verðbólgustiginu niður
fyrir tveggja stafa prósentutölu ár-
ið 2002.
Talsmenn ríkisstjórnarinnar
halda því fram, að staðið verði við
sett markmið stöðugleikaátlunar-
innar, sem gerð var með 11 millj-
arða dollara stuðningi frá IMF.
Bulent Ecevit, forsætisráðherra
Tyrklands, sem staddur er á leið-
togafundi Suðaustur-Evrópuríkja í
Makedoníu, sagði í gær að ákvörð-
unin um að gefa gengi lírunnar
frjálst muni hjálpa tyrknesku efna-
hagslífi. „Við höfum nú tekið upp
nýja gjaldeyrisstefnu, sem er mun
raunhæfari og við vonum að hún
muni bæði til skemmri og lengri
tíma litið skila jákvæðum árangri,“
sagði hann.
Alþjóðlegir fjármálasérfræðingar
og hagfræðingar vonast til, að
ákvörðunin um að gefa gengi tyrk-
nesku lírunnar frjálst muni gefa
mörkuðunum svigrúm til að finna
henni stöðugt raungildi og hindra
með því að sams konar vítahringur
fari af stað í tyrknesku efnahagslífi
eins og gerðist í Suðaustur-Asíu-
ríkjum og Rússlandi á síðasta ára-
tug.
Sviptingarnar í tyrkneskum efnahagsmálum
Gengishrun lírunn-
ar heldur áfram
Istanbúl. AP.
Fulltrúi IMF
ræðir við stjórn-
völd í Ankara
AP
Tyrkneskir innflytjendur rafmagnstækja, sem keypt hafa varning sinn í erlendum gjaldeyri, mótmæla ákvörð-
un stjórnvalda um að aflétta hömlum af gengisskráningu tyrknesku lírunnar. „Við höfum flutt allt inn, við vilj-
um líka innflutta leiðtoga,“ var meðal slagorða sem heyrðust frá hinum vonsviknu heildsölum.
VÍSINDAMENN sögðu í gær að tvö
smástirni hefðu valdið næstu út-
rýmingu dýrategunda í sögu jarð-
arinnar. Þeir sögðu að smástirni,
um það bil jafn stórt og smástirnið
sem varð til þess að risaeðlurnar
dóu út fyrir 65 milljónum ára, hefði
valdið enn meiri tjóni á jörðinni fyr-
ir 250 milljónum ára.
Vísindamennirnir komust að
þessari niðurstöðu eftir að hafa
fundið geimgas í kolefnissam-
eindum í 250 ára gömlum setlögum,
að því er fram kemur í grein í tíma-
ritinu Science. Þeir segja að flestar
dýrategundir jarðar hafi dáið út á
permtímabilinu vegna árekstrar
smástirnis.
„Höggið leysti úr læðingi um
milljón sinnum meiri orku en í
mesta jarðskjálftanum á öldinni
sem leið,“ sagði einn vísindamann-
anna, Robert Poreda, aðstoð-
arprófessor í jarðvísindum við Roc-
hester-háskóla í New York.
Talið er að smástirnið hafi verið
um 6,5 til 13 km að þvermáli. Högg-
ið olli mikilli eldvirkni á jörðinni og
gosaskan og rykið vegna árekstr-
arins olli myrkri og kulda á jörðinni
í margar aldir. Hraunið frá eld-
fjöllum þar sem Síbería er nú var
nógu mikið til að hylja alla jörðina
með 10 m þykku lagi á milljón ára
tímabili.
Þríbrotar, liðdýr sem líktust
kakkalökkum, dóu algjörlega út, en
til voru um 15.000 þríbrotategunda
á jörðinni fyrir áreksturinn. 90%
allra sjávardýra og 70% hryggdýra
urðu einnig aldauða.
Smástirnið var af svipaðri stærð
og smástirnið sem skildi eftir sig
risastóran gíg á Yucatan-skaga í
Mexíkó fyrir 65 milljónum ára og
olli loftslagsbreytingum sem urðu
til þess að risaeðlurnar dóu út. Ekki
er enn vitað hvar fyrra smástirnið
féll.
Chris Chyba, vísindamaður við
Stanford-háskóla í Kaliforníu, segir
að smástirnin kunni að hafa greitt
fyrir þróun mannsins. „Við mynd-
um líklega ekki vera hérna ef risa-
eðlunum hefði ekki verið útrýmt,“
sagði hann.
Tvö smástirni
hafa valdið
útrýmingu dýra
Washington. Reuters.
Reuters
Þau sönnunargögn sem vísindamenn telja sig hafa fyrir því að smástirni
hafi rekizt á jörðina fyrir 65 og 250 milljónum ára eru leifar af geim-
gasi, sem geymzt hafa í sk. buckminsterfullerenum í fornum setlögum.
Myndin sýnir slíkt fulleren með eðalgassameind lokaða inni í sér.
MAGNOR Nerheim, ráðu-
neytisstjóri í norska sjávarút-
vegsráðuneytinu, staðfesti við
Óslóarblaðið Aftenposten í
gær, að mistök hefðu verið
gerð með því að hafna beiðni
Steinars Bastesen, hvalfang-
ara og þingmanns á norska
Stórþinginu, um leyfi til út-
flutnings á hvalrengi til Ís-
lands. Kallaði ráðuneytis-
stjórinn það sem leiddi til
þess að bann var lagt við út-
flutningsáformunum „vinnu-
slys“.
En áður en hægt verður að
gefa út formlegt útflutnings-
leyfi þarf að bíða þess að búið
verði að koma upp erfðaefn-
isskrá yfir veidda hvali
(hrefnur). Fyrir rúmri viku
sendi norska sjávarútvegs-
ráðuneytið bréf til lögmanns
Bastesens, þar sem tíunduð
voru almenn skilyrði fyrir út-
flutningi hvalafurða. Þar var
meðal annars sagt, að Baste-
sen gæti ekki reitt sig á að fá
útflutningsleyfi til Íslands
nema að á Íslandi væri einnig
starfrækt hliðstæð hvalerfða-
efnisskrá (DNA-skrá) og í
Noregi.
En þar sem á Íslandi eru
ekki stundaðar neinar hval-
veiðar er enga slíka skrá að
finna hér á landi. Þetta þýddi
að bréf ráðuneytisins var vart
hægt að skilja öðruvísi en að
vegna þessara formsatriða
væri ekki hægt að veita út-
flutningsleyfið.
En nú í vikunni fékk lög-
maður Bastesens, Magnus
Stray Vyrje, nýtt bréf frá
ráðuneytinu, þar sem því er
slegið föstu að orðalag fyrsta
bréfsins sé misvísandi. Þá eru
í þessu seinna bréfi tekin af
tvímæli um, að norsk stjórn-
völd krefjist þess ekki að Ís-
land hafi eigin DNA-skrá,
heldur aðeins að íslenzk
stjórnvöld séu fær um að gera
DNA-próf á hvalafurðum.
„Vinnu-
slys“ sagt
hafa vald-
ið banni
Steinar Bastesen
fær að flytja út
hvalrengi til Íslands