Morgunblaðið - 24.02.2001, Síða 27

Morgunblaðið - 24.02.2001, Síða 27
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 27 RENATE Künast, nýr landbúnaðar- ráðherra Þýskalands, boðaði mikla stefnubreytingu í þýskum landbúnaði í sinni fyrstu þingræðu sem hún hélt eftir að hún tók við embættinu á dög- unum. Künast, sem tilheyrir flokki græningja og fer einnig með málefni neytenda og matvæla, vill breyta þýskum landbúnaði þannig að aukin áhersla verði lögð á lífrænan landbún- að og dregið úr „verksmiðjuaðferð- um“ við framleiðslu landbúnaðaraf- urða. Künast sagði kúariðuvandann í raun tákna endalok gamaldags fram- leiðsluaðferða í landbúnaði. Künast tók við embætti landbún- aðarráðherra í Þýskalandi í janúar eftir að bæði landbúnaðarráðherra og heilbrigðisráðherra Þýskalands höfðu sagt af sér vegna kúariðufársins. Künast benti á að kúariðufárið hefði í raun bundið enda á hugsunar- lausa neyslu og sagði að nýr mæli- kvarði í landbúnaði yrði gæði fram- leiðslu frekar en magn. Ráðherrann tilkynnti að hún myndi beita sér fyrir meiri sveigjanleika í stefnu ESB í styrkjum til landbúnaðarins. Hún benti á að árlega fær þýskur landbún- aður um 27 milljarða þýskra marka í styrki, andvirði yfir 1.000 milljarða ísl. kr., þar af tæpan helming úr sjóð- um ESB. Neytendum væri hins vegar nóg boðið nú og vildu að peningum yrði varið í að breyta framleiðsluað- ferðum landbúnaðarins. Í núverandi kerfi fá bændur beina styrki sem miða við fjölda gripa eða stærð lands. Að því er fram kemur í þýska dag- blaðinu Frankfurter Allgemeine Zeit- ung mun stefnan fela í sér ýmsar breytingar í kvikfjárrækt og meira eftirlit með framleiðslu. Hætt verði að nota sýklalyf við eldi kvikfénaðar löngu áður en árið 2005 rennur upp en það er viðmiðunarár ESB. Künast boðaði einnig verulega aukningu líf- ræns búskapar, úr 2,5% í 20%. Einnig er áætlað að hefja notkun gæða- stimpla, annars vegar fyrir lífrænar afurðir og hins vegar fyrir landbún- aðarafurðir sem uppfylla lágmarks gæðastaðla. Breytingarnar sem Künast boðar stangast verulega á við stefnu ESB í landbúnaðarmálum og næsta víst að sum aðildarlanda munu ekki taka þeim fagnandi. Að mati Michaels Manns, blaðamanns Financial Times, vekur stefnubreytingin vonir þeirra sem hafa barist fyrir breytingum í landbúnaðarstefnu ESB sem kostar bandalagið nú um 40 milljarða evra árlega, andvirði yfir 3.000 milljarða ísl. kr. Framkvæmdastjórn ESB vinnur nú að endurskoðun á hluta af land- búnaðarstefnunni og hefur Franz Fischler sem fer með landbúnaðar- mál í framkvæmdastjórninni sagt að hann muni nota tækifærið til að þrýsta á umbætur en hann hefur m.a. gagnrýnt hversu miklum fjármunum er varið í að styrkja bændur en litlum í byggðaþróun. Talsmaður Fischler, Gregor Kreuzhuber, sagði tillögur Künast vera mjög áhugaverðar og í takt við áherslur Fischlers. Framkvæmda- stjórn ESB hefur og bent á að nauð- synlegt sé að breyta styrkjakerfi landbúnaðarins vegna fyrirhugaðrar stækkunar þess. Breytingar koma örugglega til með að mæta harðri andstöðu aðildar- landa, þ.á m. Frakklands. Næsta víst þykir hins vegar að þeim sem um- bylta vilja núverandi kerfi muni vaxa fiskur um hrygg en meðal þeirra sem vilja breyta kerfinu eru Bretar, Svíar og Danir. Landbúnaðarráðherra Þýskalands boðar breytingar Reuters Græninginn Renate Künast, nýr landbúnaðarráðherra Þýskalands, í ræðustól í þýska þinginu. Áhersla á gæði fremur en magn Berlín. AP.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.