Morgunblaðið - 24.02.2001, Page 29
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 29
Átt þú
viðskiptahugmynd?
Keldnaholti, 112 Reykjavík
„Stofnun og rekstur smáfyrirtækja“
hefst 10. mars
Nánari upplýsingar og skráning hjá
Iðntæknistofnun í síma 570 7100 og á vefsíðu
Iðntæknistofnunar http://www.iti.is.
13.00 -13.20
Myndband:
Viðtöl við foreldra um álagið sem því fylgir
að eiga langveikt barn og hvaða áhrif það
hafi á fjölskylduna.
13.20-13.25
Formaður félagsins býður gesti velkomna.
13.25-13.30
Ávarp Forseta Íslands, verndara félagsins.
13.30-14.30
Pallborðsumræður:
Aðstandendur langveikra barna sitja fyrir
svörum um fjárhagshliðina og hvernig
fjármálaáhyggjur hafa áhrif á fjölskyldulífið
við þessar erfiðu aðstæður.
Málþingsstjóri: Dr. Sigrún Stefánsdóttir, fjölmiðlafræðingur
Málþing um rétt foreldra
vegna veikinda barna
Laugardaginn 24. febrúar kl. 13.00 -16.00 verður opinn fundur í Háskólabíói
14.30-14.45
Kaffihlé.
14.45-14.50
Barnakór 5 - 6 ára barna
í Leikskólanum Laugaborg.
14.50-15.10
Myndband:
Viðtöl við foreldra og ungt fólk
sem hefur verið langveikt.
15.10-15.45
Pallborðsumræður:
Fulltrúar yfirvalda, heilbrigðiskerfis,
og stéttarfélaga sitja fyrir svörum
um fjárhagshliðina.
15.45
Dagskrárlok.
Aðgangur er ókeypis.
D a g s k r á
Flestir launþegar eiga einungis rétt á 7-10
dögum á launum, á ári, vegna veikinda barna sinna.
www.umhyggja.is umhyggja@umhyggja.is
Taktu laugardaginn 24. febrúar frá og sýndu stuðning við málefni sem
kemur ÖLLUM við. Fundurinn verður sýndur með gagnvirkum
fjarfundabúnaði í Háskólanum á Akureyri.
OD
DI
H
F
G7
59
0
TILLÖGUR Georgs W. Bush, for-
seta Bandaríkjanna, um stóraukið
hlutverk trúfélaga á sviði velferðar-
mála, hafa verið gagnrýndar undan-
farið m.a. vegna þess möguleika sem
þær gefa umdeildum jaðartrúarhóp-
um til að seilast í opinbera sjóði.
The Washington Post segir í gær
frá gagnrýni Pat Robertsons sem fer
fyrir Bandalagi kristinna (Christian
Coaltion) og var einn helsti stuðnings-
maður Bush í kosningabaráttunni.
Robertson varaði við því í sjónvarps-
þætti sínum að trúfélög á borð við
Hare Krishna og Vísindaspekikirkj-
una muni njóta góðs af breytingunni.
Hann sagði m.a. að sum þessara jað-
artrúfélaga beiti heilaþvotti og álíka
vafasömum aðferðum.
Gagnrýni Robertsons er í svipuð-
um dúr og sú gagnrýni íhaldsmanna
sem heyrst hefur undanfarið en hann
er þekktasti íhaldsmaðurinn sem
fylkir sér í lið með andstæðingum til-
lagnanna sem miða að því að gera trú-
félögum auðveldara að sækja um
styrki í opinbera sjóði.
Í dag verða trúfélög að stofna sér-
stök samtök sem ekki boða trú né
mismuna fólki eftir trúarskoðunum til
að geta sótt um fjárframlög frá hinu
opinbera. Aðrir, þ.á m. Marvin
Olasky, sem lengi hefur verið ráðgjafi
Bush í trúmálum, hafa varað við því
að fjárframlög hins opinbera muni
draga úr þeim krafti sem einkennt
hefur félagslega starfsemi trúfélaga.
Allir eða enginn
Meðal trúfélaga sem þegar hafa
lýst því yfir að þau muni sækjast eftir
styrk til félagslegra áætlana þeirra
eru Vísindakirkjan og kirkja Sun
Myung Moon. Leiðtogar Hare
Krishna um gervöll Bandaríkin hafa
og falast eftir upplýsingum um tillög-
urnar undanfarið.
Philip Jenkins, sem skrifað hefur
bók um hópdýrkun og ný trúarbrögð í
Bandaríkjunum, bendir á í samtali við
The New York Times að ekki sé hægt
að gera greinarmun á trúarhópum,
annaðhvort fái allir styrk eða enginn.
„Ég hef ekkert á móti því að allir fái
fjárframlög en ég held að fólk verði að
vera því viðbúið að það geti vakið deil-
ur. Hvernig gerir maður greinarmun
á meþódistum og moonistum. Svarið
er að það er ekki hægt.“
Bush sagði sjálfur þegar blaðamað-
ur The New York Times spurði hann
hvort hann væri til í að styðja við
meðferðarheimili Vísindakirkjunnar
að hann hefði fyrst og fremst áhuga á
árangri meðferða þrátt fyrir að hann
ætti erfitt með að kyngja því þegar
Vísindakirkjan væri sett á sama plan
og gyðingdómur og kristni.
Annað vandamál sem blasir við er
að trúarhópar eru þegar farnir að
þrýsta á ríkisstjórnina um að veita
ekki öðrum trúarhópum styrki.
Bandalag gegn ærumeiðingum
(Anti-Defamation League), sem er
leiðandi félag gyðinga, hefur undan-
farnar vikur þrýst á ríkisstjórnina um
að veita ekki Íslamþjóðinni (The Nat-
ion of Islam) framlag en leiðtogi
þeirra samtaka, Louis Farrakhan,
hefur oft látið ummæli frá sér fara
sem eru andsnúin gyðingum.
Frjálslyndir hafa gagnrýnt tillögur
Bush vegna þess að þær feli í sér rík-
isstyrk til trúmála sem stangist á við
ákvæði stjórnarskrárinnar um að-
skilnað ríkis og kirkju.
Fulltrúar þeirra fagna áðurnefndri
gagnrýni Pat Robertsons mjög.
„Þetta þýðir það að áætlun Bush er í
miklum vanda,“ segir Barry W. Lynn
framkvæmdastjóri Samtaka Banda-
ríkjamanna um aðskilnað ríkis og
kirkju (Americans United for Separa-
tion of Church and State). Lynn segir
gagnrýni ákafra stuðningsmanna
Bush eins og Robertson bendi til þess
að verulega sé farið að halla undir
fæti áætlananna.
Yfirmaður skrifstofunnar, sem sett
var á laggirnar í Hvíta húsinu í byrjun
febrúar til að fylgja tillögunum eftir,
John DiIulio, vísar gagnrýninni á bug
og segir eina markmið hennar að
bjóða fólki upp á valkosti, t.d. í eitur-
lyfjameðferð. Hægt eigi að vera að
nálgast þannig meðferð í gegnum trú-
félög rétt eins og eftir hefðbundnari
leiðum.
Tillögur Bush um aukið hlutverk trúfélaga gagnrýndar
Óttast að umdeild
trúfélög hljóti styrki
Reuters
Í kosningabaráttu sinni lagði George W. Bush áherzlu á að trúarleg
hjálparsamtök ættu að fá ríkisstyrki. Hér talar hann á fundi hjá starfs-
fólki einna slíkra samtaka, Cityteam Ministries í San Jose í Kaliforníu.
WILLIAM Hague, leiðtogi breska
Íhaldsflokksins, hefur beðið flokks-
bræður sína að vera viðbúna kosn-
ingum 5. apríl næstkomandi. Telur
hann sig hafa heimildir fyrir því, að
innan ríkisstjórnar Verkamanna-
flokksins sé vaxandi áhugi á því.
Hague hefur skipað svo fyrir, að
fyrstu drög að nýrri stefnuskrá
Íhaldsflokksins verði tilbúin um
helgina svo hann hafi þau í höndun-
um ákveði Tony Blair forsætisráð-
herra að boða til kosninga með fyrra
fallinu. Bendir ýmislegt til, að hann
geri það, til dæmis sú ákvörðun fjár-
málaráðuneytisins í fyrradag að
lækka dálítið skatta á blýlausu bens-
íni. Segja íhaldsmenn og frjálslyndir
demókratar að þar sé um að ræða
ósvífna „kosningamútu“.
Hague við-
búinn kosn-
ingum 5. apríl
London. Daily Telegraph.
Reuters
William Hague á baráttufundi
íhaldsmanna í Lundúnum.