Morgunblaðið - 24.02.2001, Side 33

Morgunblaðið - 24.02.2001, Side 33
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 33 „Dagur tónlistaskólanna“ Opið hús í Söngskólanum í Reykjavík sunnudaginn 25. febrúar DAGSKRÁ: Söngskólinn í Reykjavík Hverfisgötu 45 og Veghúsastíg 7 ÞÓRODDUR Bjarnason heldur fyr- irlestur í LHÍ, Laugarnesvegi 91, á mánudag kl. 12.30 í stofu 24. Fyr- irlesturinn nefnir hann Gengið í barndóm – að læra myndlist í Japan og fleira skemmtilegt. Þar fjallar hann um myndlistarnám sitt í Japan og segir lítillega frá eigin verkum. Námskeið Námskeiðið leiktúlkun hefst mánudaginn 5. mars. Kennt verður í leiklistardeild LHÍ, Sölvhólsgötu 13. Kennari er Þór Tuliníus leikari. Leikmyndahönnun nefnist nám- skeið sem hefst 6. mars. Kennari er Finnur Arnar Arnarson myndlistar- maður og leikmyndahönnuður. Kennt verður í Skipholti 1, stofu 308. Námskeið í búningahönnun hefst 7. mars undir stjórn Þórunnar Maríu Jónsdóttur búningahönnuðar. Ferli við búningahönnun fyrir leiksvið verður kynnt. Lesið handrit að leik- ritinu Blúndum og blásýru sem sýnt verður í Borgarleikhúsinu. Farið verður baksviðs, litið inn á æfingu o.fl. Að lokum verður farið á sýningu á verkinu. Þórunn María sér um leikmynd og búninga í Blúndum og blásýru. Fyrirlestur og námskeið í LHÍ ÞÝSKI myndlistarmaðurinn Oliver Kochta heldur fyrirlestur á Skriðu- klaustri á sunnudag kl. 17 um norð- urljósin. Hann sýnir einnig gamlar myndir af norðurljósunum og vélum til að búa til norðurljósin. Hann segir með- al annars frá tilraunum Dana nokk- urs til að framleiða norðurljós á toppi Esjunnar undir lok 19. aldar. Oliver Kochta útskrifaðist frá listaakademíunni í Hamborg árið 2000 og hefur rannsakað norðurljós- in síðustu ár, m.a. í Finnlandi, þar sem hann tók þátt í að byggja sér- staka færanlega rannsóknarstöð fyr- ir áhugamenn um norðurljós. Hann hefur að undanförnu dvalið í gesta- íbúðinni Klaustrinu við rannsóknir og myndatökur á norðurljósum. Fyrirlesturinn verður haldinn á ensku og er aðgangur ókeypis. Fyrirlestur um norðurljósin ÞAÐ er víst óhætt að segja að út- varpsleikritið Ausa Steinberg (Spoonface Steinberg) eftir Lee Hall sé áhrifamikið. Þegar það var frumflutt á menning- arrás BBC árið 1997 hringdu hundruð hlustenda í útvarps- stöðina til að lofa verkið eða að lasta og 35.000 eintök hafa selst af upptöku leik- ritsins til þessa dags. Verkinu var sjón- varpað af BBC2 ári síðar eftir að höfundur hafði lagað það að miðlinum. Verkið hef- ur síðan verið flutt á leiksviði, m.a. á West End í janúar sl., við mjög misjöfn viðbrögð gagnrýnenda, sem sumum finnst höfund- urinn svífast einskis við að spila á tilfinningar áhorfandans. Verkið vakti athygli á höfundin- um, Lee Hall, enda margverð- launað. Hann var m.a. ráðinn í tólf mánuði af Royal Shakespeare Company til að skrifa fyrir félagið. Nefna má að Leikfélag Íslands hef- ur einmitt nýhafið æfingar á öðru verka hans, Eldað með Elvis, og mun það verða sýnt í Loftkastalan- um strax og færi gefst vegna ann- arra verkefna. Í leiknum segir lítil stúlka undan og ofan af lífshlaupi sínu. Persónan einkennist fyrst og fremst af þrennu: hún er einhverf, af gyð- ingaættum og heltekin af krabba- meini. Verkið er alls ekki læknisfræðileg útlegging á andlegu og líkamlegu ástandi persónunnar, heldur velur höfundur ákveðin einkenni sem nýt- ast honum við byggingu einleiksins. Einhverfi persónunnar gefur henni ákaflega sérstakt sjónarhorn. Framan af verkinu lítur Ausa aftur um farinn veg og lýsir viðburðum í eigin lífi með orðum annarra per- sóna: foreldra sinna, sem bæði eru hámenntaðir, ræstingakonunnar Buddu og Bernsteins læknis, sem annast hana í veikindum hennar. Hún bergmálar þeirra viðhorf og raðar saman brotum úr því sem hún hefur heyrt aðra segja, að því er virðist gersamlega án þess að skilja orðræðu einstaklinganna sem annað en línulega frásögn. Henni virðist fyrirmunað að setja sig í spor ann- arra og virðist hvorki skilja að orðin séu túlkun á tilfinningum þeirra né virðist hún geta túlkað eigin tilfinn- ingar með orðum. Hvörfin í leikritinu verða þegar Bernstein læknir kemst að því að hún hefur yndi af því að hlusta á klassíska tónlist. Í leikritinu er sýnt fram á hvernig hún öðlast tilfinn- ingalega dýpt með því að hlusta á óperuaríur í flutningi Maríu Callas – í raun má segja að hún fái að láni tilfinninglega túlkun dívunnar og geri að sinni. Þetta samasemmerki sem sett er á milli tilfinninga hins saklausa barns og hinnar óham- ingjusömu listakonu gengur ótrú- lega vel upp við flutning verksins. Hvort sem flutt eru brot eða lengri kaflar úr hinum ýmsu óperuaríum eiga þau það sammerkt að vera þrungin tilfinningum. Þetta skilar sér vel til hlustenda, hvort sem þeir eru sér meðvitandi um merkingu orða þeirra sem Callas ber fram eða ekki. Túlkun hennar er svo mögnuð og tónlistin svo vel valin að tilfinn- ingarnar komast alltaf til skila. Öll hafa tónlistaratriðin ákveðna tilvís- un í texta verksins. Sérstaklega áhrifamikil er notkun á upphafsstefi aríunnar Ebben? ne andrò lontana úr óperunni La Wally eftir Catalani auk lengri sunginna kafla úr sömu aríu; Mon coer s’ouvre à ta voix úr Samson og Dalíla eftir Saint-Saëns og Casta diva úr Normu eftir Bell- ini. Fyrir Bernstein lækni vakir að gera Ausu í fyrsta lagi kleift að skilja aðstæð- ur sínar og gera sér grein fyrir að dauðinn er óumflýjanlegur og í öðru lagi að koma henni í skilning um að dauðinn hafi enga merkingu og þess vegna ástæðulaust að óttast hann. Hann ger- ir hana að lærisveini sínum í gyðinglegri dulspeki og á nokkrum mínútum fylgjast út- varpshlustendur með Ausu þar sem hún, við lok lífshlaups síns, tek- ur hvert stökkið af öðru í visku og þroska. Henni skilst hvernig túlkun Callas á texta og tónum óperuhöfunda lið- innar aldar getur kennt henni að af- bera óumræðilegar þjáningar. Hún sigrast á ótta sínum við dauðann með því að öðlast trúarvissu. Það rennur upp fyrir henni að dauðinn sé merkingarlaus er hún veltir fyrir sér spurningum um tilgang lífsins og að lokum nær hún hæstu hæðum er henni skilst hvert sé eðli guðs. Bernstein stiklar á frásögnum um æðruleysi fanga í dauðabúðum nas- ista, gyðinglegum rétttrúnaði, trúarskoðunum hassída og endar loks í dulspekilegum launhelgum. Það er ótrúlegt hve þetta verk er margslungið og hve höfundur getur komið miklu á framfæri á svo stutt- um tíma. Þær spurningar sem Ausa finnur svör við í gegnum þjáningar sínar vísa til þeirrar tilhneigingar mannsins að skýra tilganginn með tilvist sinni, auk þess sem það ligg- ur beint við að bera sögu hennar saman við pínu og dauða Krists. Það virðist ekki skipta máli hvort áheyrendur viti eitthvað um ein- hverfi, krabbamein, dauðabúðirnar, hassída eða Kabbala – þeir fylgjast með Ausu þroskast og læra að túlka eigin tilfinningar og hrífast með. Brynhildur Guðjónsdóttir nær mikilli tilfinningalegri dýpt við túlk- un sína á hlutverki stúlkunnar sem veit að hún mun aldrei verða stór en sættir sig við það. Í meðförum Brynhildar er hún hæfilega barna- leg og blátt áfram í þeim köflum þar sem sagt er frá lífi hennar áður en Bernstein gerir hana að lærisveini sínum. Það er unun að fylgjast með hvernig dregur úr styrk raddarinn- ar í lokin á sama tíma og sannfær- ing persónunnar verður sterkari og þörfin til að túlka það sem hún vill koma á framfæri ákafari. Styrk stjórn Ingu Bjarnason og vönduð þýðing Jóns Viðars Jónssonar hefur skilað ríkulegum árangri svo falleg- ustu setningarnar hljóma mér enn fyrir eyrum. Þar sem hér er um mjög sérstaka upplifun að ræða gerist ég svo djarfur að koma á framfæri þeirri ósk við ráðamenn í Ríkisútvarpinu að upptakan verði flutt enn einu sinni og verði ræki- lega auglýst til að sem allra flestir geti notið hennar að þessu sinni. Ef ég myndi einhvern tíma verða stór LEIKLIST Ú t v a r p s l e i k h ú s i ð Höfundur: Lee Hall. Þýðing: Jón Viðar Jónsson. Leikstjórn: Inga Bjarnason. Hljóðvinnsla: Hjörtur Svavarsson. Leikari: Brynhildur Guðjónsdóttir. Frumflutt laug- ardag 10. febrúar; endurtekið fimmtudag 15. febrúar. AUSA STEINBERG Brynhildur Guðjónsdóttir Sveinn Haraldsson SKÚLPTÚRINN á myndinni nefn- ist Hlébarðamaðurinn frá Anioto og er í Konunglega Mið-Afríkusafn- inu í Tervuren í Belgíu. Hlébarðamaðurinn gnæfir yfir sofandi konu, en hann er aðeins einn fjölmargra muna sem finna má á sýningunni „EXITCONGO- MUSEUM“ sem þessa dagana stendur yfir í safninu. Mið- Afríkusafnið, sem er orðið hundrað ára gamalt, leitast nú við að hressa upp á ímynd sína en það var á sín- um tíma reist að beiðni Leópolds II Belgíukonungs sem vildi vekja at- hygli á landvinningum sínum. AP Hlébarðamaðurinn frá Anioto ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.