Morgunblaðið - 24.02.2001, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 37
VÍSINDAMENN hafa í fyrsta
sinn sýnt fram á að með því að
lækka líkamshita heilaáfalls-
sjúklinga um nokkrar gráður
er hægt að vernda þá fyrir var-
anlegum heilaskemmdum. Leit
að leiðum til að kæla líkamann
er nú orðið það svið heilaáfalls-
rannsókna þar sem samkeppni
er hvað mest. Nokkur fyrir-
tæki eru að hanna tæki sem
geta gert þetta á fljótan og
auðveldan máta.
Fjöldi rannsókna á dýrum
hefur sýnt að með því að lækka
líkamshitann um aðeins eina
eða tvær gráður getur dregið
úr skemmdum af völdum slags.
En að ná þessum árangri með
fólk er mjög erfitt og lítil rann-
sókn, sem nýlega var greint
frá, var fyrsta tilraunin til að
gera þetta á kerfisbundinn
hátt.
Farnaðist mun betur
„Þetta er mjög spennandi, en
þetta er líka til mikilla bráðabirgða,“
sagði dr. Derk Krieger, sem kynnti
niðurstöðurnar á fundi Heilaáfalls-
samtaka Bandaríkjanna í Fort
Lauderdale í Flórída.
Krieger og samstarfsmenn hans
við Cleveland-læknamiðstöðina
komust að því að fólk sem var kælt
niður hratt með alkóhólbökstrum í
kjölfar alvarlegs heilaáfalls farnaðist
mun betur en búist hafði verið við.
Helmingur sjúklinganna varð fyr-
ir litlum eða engum varanlegum
skaða og heilsaðist nógu vel til að
snúa aftur til vinnu. Aðeins 10%
þeirra sem hlutu hefðbundna með-
ferð farnaðist svona vel. Heilamynd-
ir bentu til að kælingin drægi úr um-
fangi heilaskemmdanna hjá
sjúklingunum um um það bil 30 rúm-
sentimetra. Rannsakaðir voru tíu
sjúklingar sem voru kældir og níu
manna samanburðarhópur sem ekki
var kældur.
Mótstaða líkamans mikil
Ekki er hægt að kæla einungis
heilann. Í staðinn verður að kæla all-
an líkamann. Í tilrauninni var þetta
gert með hefðbundnum hætti – með
því að kæla húðina til að lækka
líkamshitann um níu gráður í
tvo daga. En þetta veldur mikl-
um skjálfta, og því verður að
lama sjúklinginn til að hann sé
kyrr. Þetta þýðir að hann þarf
einnig að vera í öndunarvél og
meðvitundarlaus. Það tók að
meðaltali hátt í fjóra tíma að
kæla hvern sjúkling og krafðist
fimm lækna og hjúkrunar-
kvenna.
„Þessi aðferð krefst mikillar
vinnu,“ sagði dr. Michael
DeGeorgia, starfsmaður Cleve-
land-læknamiðstöðvarinnar.
„Það er ótrúlegt hvað manns-
líkaminn veitir mikla mótstöðu
við jafnvel minnstu hitabreyt-
ingum. Það er stórmál að gera
þetta.“ Dr. Mary A. Kalafut,
við Scripps-læknamiðstöðina,
sagði niðurstöðurnar lofa góðu,
en hún tók fram að þetta væri mjög
óþægilegt fyrir sjúklingana og auka-
verkanir gætu fylgt.
Pípur kæla innan frá
Til að einfalda ferlið hafa nokkur
fyrirtæki þróað pípur með köldum
oddi sem hægt er að setja inn í æð og
kæla líkamann innan frá. Krieger
sagði að læknar gætu haldið húð
sjúklinganna heitri og þeir séu vak-
andi og finni ekki fyrir neinum
kulda. Læknarnir í Cleveland hafa í
hyggju að gera innan skamms til-
raunir með eina af þessum pípum í
rannsókn sem um 350 heilaáfalls-
sjúklingar munu taka þátt í.
Vísindamenn þróa nýja meðferð við heilablóðfalli
Lækkun líkamshita dreg-
ur úr heilaskemmdum
Fort Lauderdale. AP.
Associated Press
Endurhæfing eftir heilablóðfall: Leitað er
leiða til að draga úr heilaskemmdum.
KONUR sem eru virkar á kynferð-
issviðinu og eru undir 25 ára aldri
ættu að fara í klamydíu-skoðun á
sex mánaða fresti. Þessi er niður-
staða bandarískra vísindamanna,
sem vinna að rannsóknum á kyn-
sjúkdómi þessum. Klamydía getur
valdið ófrjósemi (sjá fróðleik um
sjúkdóminn hér að neðan).
Að sögn vísindamanna sem starfa
við Eftirlits- og forvarnamiðstöð
sjúkdóma (Centers for Disease
Control and Prevention, CDC) í Atl-
anta í Georgíu í Bandaríkjunum er
sjúkdómurinn fjórum sinnum al-
gengari meðal kvenna undir 25 ára
aldri en meðal þeirra sem eldri eru.
Yngri konur sýkjast einnig mun
fyrr en kynsystur þeirra sem náð
hafa 25 ára aldri.
„Rannsóknir okkar hafa leitt í ljós
að tíðni sýkinga er allt að fimm
sinnum meiri á meðal kvenna undir
25 ára aldri en þeirra sem eldri eru
og að þær sýkjast allt að helmingi
hraðar en þær sem náð hafa 25 ára
aldri,“ segir dr. Gale Burstein í
grein sem birtist í tímaritinu Sex-
ually Transmitted Infections. Á
þeim 33 mánuðum sem rannsóknin
náði til reyndust konur undir 25 ára
aldri aukinheldur mun líklegri til að
sýkjast oftar en einu sinni.
Burstein sagði í viðtali við Reut-
ers-fréttastofuna að klamydía væri
vandi sem konum bæri að taka al-
varlega: „Hvað varðar konur sem
eru virkar á kynferðissviðinu mæl-
um við með því að þær fari í klam-
ydíu-skoðun á sex mánaða fresti til
að unnt sé að greina og lækna nýtil-
komnar sýkingar.“
Klamydía er í hópi algengustu
kynsjúkdóma en er jafnframt sú or-
sök alvarlegra kvensjúkdóma sem
einna auðveldast er að vinna á.
Í Bandaríkjunum er talið að um
þrjár milljónir kvenna hafi tekið
sýkinguna en í mörgum tilfellum
verður einkenna ekki vart. Sjúk-
dómurinn getur hins vegar valdið
verkjum í grindarholi, bólgum í
eggjaleiðurum og ófrjósemi.
Sjúkdómurinn er ekki jafn alvar-
legur þegar karlmenn eiga í hlut.
Enn liggja engin gögn fyrir í þá
veru að klamydía geti valdið ófrjó-
semi hjá körlum.
Sýklalyf eru notuð gegn klamyd-
íu.
Associated PressÞað er vissara að fara varlega.
Mælt með klam-
ydíu-skoðun á
sex mánaða fresti
London. Reuters.
Bandarískir vísinda-
menn segja yngri konur
þurfa að gera sér ljóst
að klamydía getur haft
alvarlegar afleiðingar.
KLAMYDÍUSÝKING orsakast
af bakteríu (Chlamydia tracho-
matis). Þessi baktería getur sýkt
bæði kynfæri og augu. Tíðni sjúk-
dómsins hefur aukist mikið og vit-
að er að þúsundir einstaklinga
hafa smitast hérlendis á undan-
förnum árum.
Smitleiðir:
Klamydíusmit berst milli
manna við snertingu slímhúða,
venjulega við samfarir.
Einkenni:
Fæstar konur og einungis
helmingur karla fá einkenni
klamydíusýkingar. Einkenni
karla eru útferð úr þvagrásinni
(slímkenndur vökvi, glær, hvít-
ur eða gulleitur) og stundum
sviði og kláði í þvagrásinni og
við þvaglát. Þessi einkenni
koma oft fram 1–3 vikum eftir
samfarir sem leiddu til smits.
Einkenni kvenna eru aukin út-
ferð (hvítur eða gulleitur, slím-
kenndur vökvi frá leggöngum),
sviði eða kláði í þvagrásinni við
eða eftir þvaglát, tíð þvaglát,
óreglulegar blæðingar og
stundum kviðverkir. Einkenni
geta horfið á fáeinum dögum
hjá báðum kynjum og blundar
þá sýkingin í langan tíma. Hún
getur blossað upp síðar af mis-
munandi orsökum, t.d. vegna
annarra sýkinga. Hægt er að
bera klamydíusmit í langan
tíma áður en sýkillinn breiðist
út og byrjar að valda
einkennum.
Fylgikvillar:
Ef ekki er brugðist fljótt við
klamydíusýkingu er hætta á
bólgum í eggjaleiðurum kvenna
og jafnvel bólgu í eistum karla.
Klamydía er algengasta orsök
bólgu í eggjaleiðurum og getur
slík bólga leitt til ófrjósemi eða
utanlegsfósturs. Klamydía get-
ur sýkt augu og valdið verulegri
bólgu með tímabundinni blindu.
Meðferð:
Klamydía er meðhöndluð með
ákveðnum sýklalyfjum í töflu-
formi. Penicillínmeðferð dugar
þó ekki. Þau lyf sem oftast eru
notuð nú á dögum þarf aðeins
að taka í einum skammti eða
einu sinni á dag í vikutíma. Eins
og áður hefur komið fram eru
rannsóknir ekki alltaf öruggar,
því er mikilvægt að meðhöndla
alla sem grunur leikur á að séu
smitaðir, jafnvel þótt niðurstöð-
ur rannsókna hafi ekki staðfest
smit.
Hvað er klamydía?
TENGLAR
...........................................
Landlæknisembættið:
landlaeknir.is
Gagnabanki Netdoktor:
www.netdoktor.is