Morgunblaðið - 24.02.2001, Síða 40
40 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hvað komast hraðfleygustu
þotur hratt?
Hraðfleygustu þotur í heimi fara á
um Mach 2,5 eða 2,5 sinnum hljóð-
hraði, sem er um það bil 1.225 kíló-
metrar á klukkustund. Nútíma-
geimskutlur fara hins vegar tíu
sinnum hraðar eða á tuttugu og
fimm sinnum hljóðhraða.
Ef þið viljið vita meira um þotur
þá skuluð þið fara á www.boeing.-
com.
Það má lesa meira um eininguna
Mach í svari við spurningunni „Hvað
er Mach 1,0 mikill hraði í kílómetr-
um á klukkustund?“
Kristján Eldjárn Hjörleifsson,
nemandi í Austurbæjarskóla.
Eru örnefni sunnar í álfunni
sem gefa til kynna að norræn-
ir menn hafi sest þar að, sam-
bærilegt við nöfn hér eins og
Vestmannaeyjar?
Jú, víkingar settust að í Norm-
andie í Frakklandi, einkum á 10. öld,
og örnefni þar bera þess merki. Þeir
sem settust þar að komu víða að;
Danir, Norðmenn, víkingar frá eyj-
unum í Atlantshafi, fólk af kelt-
neskum uppruna af Bretlandseyjum
og menn ensk-skandinavískrar ætt-
ar. Náið samband hefur því verið
milli norrænna byggða á Bretlands-
eyjum og í Normandie en þó eru
dönsk áhrif þar sterkust.
Örnefni á þessum slóðum sem
bera norræn einkenni eru til dæmis
með orðunum bekkr (= lækur), Ho-
ulbec, Carbec, holmr (hólmur), Tor-
hulmus, Le Homme, lundr (lundur),
Bouquelon (ef til vill = beykilundur)
og Yquelon (ef til vill = eikilundur).
Þessir nafnliðir allir eru líka mjög
algengir í nöfnum landnáma í Norð-
vestur-Englandi. Líklegt er að dalur
sem er algengt í örnefnum í Norm-
andie sem síðari liður, -dale, eða
ósamsett La Dale, sé frá Skand-
ínövum kominn. Sama er um orðið
þveit (= rjóður), sem er í samsetn-
ingum -tuit, eða ósamsett Le Thuit.
Samband milli eyjanna norðan og
vestan Skotlands og Normandie
kemur fram í örnefnunum Sum-
melleville (af Sumarliði) og Brectou-
ville (af Bretakollr) í Normandie,
þar sem mannanöfnin Sumarliði og
Bretakollr voru sérstök fyrir skosku
eyjarnar.
Svavar Sigmundsson,
forstöðumaður Örnefnastofnunar.
Af hverju líkar flóðhestum
svona vel að vera í vatni?
Í Afríku lifa tvær tegundir flóð-
hesta, fljótaflóðhesturinn (Hippo-
potamus amphibius), stundum kall-
aður Nílarflóðhesturinn og
dvergflóðhesturinn (Choeropsis li-
beriensis). Sá fyrrnefndi er mun
stærri eða allt að 3 tonn að þyngd.
Dvergflóðhestar vega aftur á móti
aðeins frá 160 til 280 kg.
Flóðhestar eru algengir nú á dög-
um á verndarsvæðum og þjóðgörð-
um sunnanverðri Afríku. Áður fyrr
voru þeir hins vegar algengir um
alla álfuna og einnig í Asíu og Evr-
ópu. Flóðhestar eru
mjög vel aðlagaðir að
lífi í vatni. Eyru, augu
og nasir eru staðsett
efst á hausnum þann-
ig að dýrið getur hald-
ið þeim upp úr vatn-
inu.
Þegar dýrin kafa
lokast eyru og nasir
dýrsins til að hindra
að vatn flæði inn.
Þrátt fyrir mjög svo
klunnalega líkams-
byggingu eiga þeir
auðvelt með allar
hreyfingar í vatninu.
Flóðhestar eru næt-
urdýr. Að næturlagi
fara dýrin upp á
bakka fljóta og vatna
til að éta jurtir. Full-
vaxið karldýr getur
étið allt að 70 kg af
jurtum á einni nóttu!
Húð dýranna er við-
kvæm fyrir þurrki og
til að verjast honum
seyta kirtlar í húð
dýranna bleiklituðu
efni sem heldur húð-
inni rakri.
Ekki eru til nein augljós svör við
spurninginni af hverju flóðhestar
völdu það búsvæði sem þeir lifa á í
dag, en að baki er löng þróun.
Ein kenningin er sú að fyrir tug-
þúsundum eða jafnvel hundruðum
þúsunda ára hafi flóðhestar eða for-
feður þeirra leitað í vötn og fljót til
að vernda sig og ungviði sitt gegn
rándýrum. Í fyllingu tímans hafi
dýrin aðlagast þessu vota búsvæði
sífellt betur, eins og yfirbragð dýr-
anna gefur til kynna. Ekki eru allir
vísindamenn sammála þessari kenn-
ingu. Sumir hafa haldið því fram að
flóðhestar (eða forfeður þeirra) hafi í
árdaga leitað í vatnið til að verjast
hinum mikla hita sem er yfir daginn.
Dýrin notuðu þá svalasta tíma sólar-
hringsins til að fara upp úr vatninu
og næra sig. Á þeim tíma eru rándýr
eins og ljón og hýenur hvað virkust.
Í Asíu þar sem flóðhestar voru áður
mjög útbreiddir voru það tígrisdýr
og hlébarðar sem höfðu líkamlega
burði til að drepa flóðhestakálfa.
Jón Már Halldórsson,
líffræðingur.
Er hægt að líkja alheiminum
við atóm? Eru svipaðir kraft-
ar í gangi í atóminu og í sól-
kerfinu?
Já og nei; þetta skal nú skýrt frek-
ar. Það sem er svipað með sólkerfinu
og atómi er langseilni krafturinn
sem heldur kerfunum saman.
Þyngdarkrafturinn frá sólinni veik-
ist með fjarlægðinni frá henni í öðru
veldi. Ef fjarlægð hlutar frá sólu
tvöfaldast þá verður krafturinn frá
henni einn fjórði af upphaflegum
krafti. Þetta má tengja við rúm-
fræði; yfirborð kúlu fjórfaldast þeg-
ar geisli hennar tvöfaldast. Kraftar
sem haga sér á þennan hátt eru kall-
aðir langseilnir, því að til eru annars
konar kraftar sem veikjast miklu
hraðar með fjarlægð. Rafkrafturinn
á rafeind í atómi frá kjarnanum er
háður fjarlægðinni á sama hátt;
hann er semsagt líka langseilinn. En
þar með er upptalið það sem sameig-
inlegt er þessum kerfum.
Til þess að lýsa rafeindum í atóm-
um verðum við að nota skammta-
fræði. Lítum aðeins á einfaldasta at-
ómið, vetnisatómið með eina létta
rafeind og eina þunga róteind. Á
milli þeirra verkar þessi langseilni
rafkraftur kenndur við Coulomb. Í
jafnvægi getur rafeindin ekki haft
hvaða orkugildi sem er (en það getur
aftur á móti reikistjarna á braut um
sólu). Sagt er að rafeindin geti að-
eins haft strjál orkugildi meðan hún
Af hverju líkar flóðhestum
svona vel að vera í vatni?
Undanfarið hefur Vísindavefurinn birt svör
um ríkjandi og víkjandi gen, hvernig
skammtafræðin varð til, hvort tunglið er að nálgast jörðina, hvort
ormar drepist í frosti, um ævi katta og um femínisma. Í síðustu viku
vantaði nafn höfundar svarsins við spurningunni „Hvað er fem-
ínismi?“, en svarið er eftir Þorgerði Einarsdóttur, félagsfræðing.
Einnig hafa verið að birtast fyrstu svörin eftir grunnskólanema sem
eru í verkefni við Vísindavefinn, en það er hluti af átaki Heimilis og
skóla og Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkurborgar vegna bráðgerra
barna. Meðal þess sem hefur verið svarað er hversu margar teg-
undir séu til af björnum, hvort Íó sé stjarna og hversu margir hestar
séu til á Íslandi. Fyrsta svarið sem birtist hér er einnig í þessum
flokki.
VÍSINDI
Flóðhestar eru algengir á verndarsvæðum
og í þjóðgörðum í Afríku.
Reuters
Þér verður tíðlitið á klukkuna
Eins og þú gangir um gólf á brautarpallinum
Og sekúndurnar líða
Klukkan er sjö
Það byrjar að rigna
Og allar rúðurnar á fyrstu hæð
Verða snögglega að austurlenskri lest
En það gerist ekkert aðeins hraðinn
Þú finnur andlit þitt breytast hægt í spegli
tímans
Hálf átta: hár þitt gránar
Stundir leiksýning óhugnaðarins
Það hættir að rigna
Klukkan er átta
Loks kemur gömul kona
(Konstantin Biebl í þýðingu
Hannesar Sigfússonar.)
Heimurinn er nú á hraðri leið inn
á þá braut sem honum er ætlað að
bruna á næstu tvö þúsund árin und-
ir styrkri stjórn Vatnsberans sam-
kvæmt kortum og spámerkjum
stjörnuspekinnar. Öldin tuttugasta
og fyrsta sem kennd er við upplýs-
ingar er einnig öld þekkingar og
visku og saman mynda þessir þrír
ásar keilu sem líkist horni á ein-
hyrningi og það formar öldina.
Keilan er stöðug og leitar fram, upp
og inn í þá tilveru sem kemur.
Snúningurinn á horninu eða keil-
unni sýnir tímann eða það form
sem Einstein reiknaði út að væri á
tímanum, þannig að ef ég færi í
dag með geimflaug í þennan snún-
ing um geiminn og væri um ár í
burtu, liðu hér á meðan um þrjátíu
ár og ég yrði á sama aldri og börn-
in mín þegar ég kæmi til baka! Af-
stæði tímans gefur því í skyn að
framtíðin sé þegar til staðar líkt og
fortíðin enda má ef grannt er skoð-
að sjá núið líkt og flökt milli þessa
tveggja póla eins og þriðja ás í
keilu. Draumurinn sýnir einnig
sömu mynd en í draumi er maður
líkt og í þyngdarleysi og getur
óhindrað flotið úr nútíð í fortíð eða
til framtíðar í annan tíma. Draum-
urinn gefur manni því frelsi til að
ferðast óhindrað um víddir tímans
án þess að eldast eða yngjast og
möguleika á að heilsa upp á forna
ættmenn jafnt sem ókomna vini,
skoða sköpunarverkið og sjálfan
sig eða spjalla við Guð, eina krafan
er nægur svefn.
Draumur „Glóu“
Mig dreymdi að ég væri stödd í
samkvæmi ásamt ættingjum mín-
um og vinum. Ég er að heilsa fólki
með handabandi sem stendur í
einhverskonar röð. Allt í einu heilsa
ég bróður mínum og er ég mjög
undrandi að sjá hann (því hann er
dáinn?“ eða „ég
er hissa að sjá
þig hér því ég
hélt að þú vær-
ir dáinn“. Hann
segir ekkert en
við föðmumst
dágóða stund.
Síðan sný ég
mér að næsta
manni og er þá
ekki minna
undrandi því
það er aftur
sami bróðir
minn. Standa
þeir þarna hlið
við hlið bróðir
minn og sami
bróðir minn
(eins og klón-
aðir), nákvæm-
lega eins en
ekki í eins föt-
um heldur sitt-
hvorum föt-
unum af
þessum bróður
mínum. Ég var
ekki eins
ánægð að sjá þann síðari og fannst
mikið bogið við þetta. Ég talaði eitt-
hvað við „þá báða“ og „þeir“ sögðu
eitthvað til útskýringar sem ég man
ekki. Þeir litu ekki hvor á annan en
vissu hvernig var í pottinn búið.
Ráðning
Tíminn er mjög sveigjanlegt fyr-
irbæri og næsta óskiljanlegt því
hann hefur mörg andlit. Eitt þeirra
er tíminn sem flytur okkur hægt en
örugglega frá vöggu til grafar, ann-
að er svo draumurinn. Í draumi
virðast þessir núningsfletir renna
saman og látið fólk sem lifandi geti
hitt hvort annað. Draumur þinn
snýst um slík samskipti (hann sagði
ekkert) og eftir öllum sól-
armerkjum að dæma er hann kom-
inn til þín að leita ásjár um nafn eða
framlengingu í þessu lífi eins og títt
er í fjölskyldum. Það að þér fannst
hann klónaður getur táknað fyrr-
nefnda ósk en einnig að annar í fjöl-
skyldunni sé í sömu hugleiðingum
og þá í óþökk (þeir litu ekki hvor á
annan en vissu hvernig var í pottinn
búið) bróður þíns
Draumur breytinga
DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns
Þeir lesendur sem vilja fá drauma sína
birta og ráðna sendi þá með fullu nafni,
fæðingardegi og ári ásamt heimilisfangi og
dulnefni til birtingar til:
Draumstafir
Kringlunni 1
103 Reykjavík
eða á heimasíðu Draumalandsins
http://www.dreamland.is.
Mynd/Kristján Kristjánsson
dáinn). Ég fagna honum innilega
um leið og ég segi honum að ég sé
hissa að sjá hann þarna. Ég segi
eitthvað á þessa leið: „Ert þú ekki