Morgunblaðið - 24.02.2001, Síða 65

Morgunblaðið - 24.02.2001, Síða 65
KRABBAMEINSFÉLAGIÐ 50 ÁRA MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 63 Á FJÓRÐA og fimmta tug tuttugustu aldar má segja að ást- and í heilbrigðismálum þjóðarinnar hafi verið fremur slakt. Skortur var á fjármagni til að auka við legurými, vís- indarannsóknir voru skammt á veg komnar en á hinn bóginn fjölg- aði mjög sérmenntuð- um læknum sem fluttu með sér þekkingu og brennandi áhuga frá námi sínu og starfi er- lendis. Við þessar að- stæður urðu til hin frjálsu samtök til bar- áttu gegn krabbameini snemma árs 1949. Aðalhvatamennirnir voru úr hópi bæði lærðra og leikra og má nefna þá Alfreð Gíslason lækni, Gísla Sigurbjörnsson forstjóra og Níels Dungal prófessor sem önn- uðust undirbúning fyrir stofnun Krabbameinsfélags Reykjavíkur. Sama ár voru stofnuð félög í Hafn- arfirði og Vestmannaeyjum. Krabbameinsfélag Íslands var svo stofnað 27. júní 1951 og á því fimmtíu ára afmæli á þessu ári. Inn- an vébanda félagsins starfa 30 að- ildarfélög víða um land og eru þar með talin félög sjúklinga og að- standenda þeirra, svonefndir stuðn- ingshópar. Í tilefni af afmælinu mun félagið efna til landssöfnunar laugardaginn 3. mars 2001 og leita þannig eftir stuðningi þjóðar- innar við starfsemi sína. Stuðningur þjóð- arinnar er grund- völlur öflugs starfs Félagið hefur þrisv- ar áður leitað eftir stuðningi þjóðarinnar með slíku átaki undir samheitinu „þjóðará- tak gegn krabba- meini“, þ.e. árin 1982, 1986 og 1990 og var hinn mikli og almenni stuðningur við félagið frumforsenda þess að félagið gat tekist á við ný og mikilvæg verk- efni. Þannig var hægt að kaupa og innrétta hús félagsins við Skógar- hlíð fyrir söfnunarféð 1982 og var húsið þá með réttu nefnt „Húsið sem þjóðin gaf“. Fyrir söfnunarféð 1986 efldi félagið m.a. til muna vísindastarf með stofnun Rannsóknastofu í sam- einda- og frumulíffræði og vísaði þannig veginn með merkilegri rannsóknarstarfsemi sem hefur skilað merkum niðurstöðum og vak- ið heimsathygli. Þar hefur verið lagður grunnur að rannsóknastörf- um komandi ára. Jafnframt gaf þjóðarátakið 1986 félaginu afl til að ryðja brautina í þjónustu við krabbameinssjúklinga og var sett á stofn Heimahlynning sem unnið hefur ómetanlegt starf. Heima- hlynning Krabbameinsfélagsins er sérhæfð hjúkrunar- og læknisþjón- usta sem gerir sjúklingum með ólæknandi sjúkdóm mögulegt að dveljast heima eins lengi og þeir óska og aðstæður leyfa. Árið 1990 var þjóðarátak í þriðja sinn undir kjörorðinu „Til sigurs“ og var það rökstutt með því að enda þótt krabbamein sé erfiður sjúk- dómur og óvæginn eru batalíkur að aukast. Bent var á í þessu átaki að með heilbrigðum lífsháttum megi draga verulega úr líkum á að veikj- ast og að með greiningu sjúkdóms- ins á forstigum og öflugri leitar- starfsemi megi draga úr alvarlegum afleiðingum og auka lífslíkur og lífs- gæði til muna. Auk þess hefur með- ferðarúrræðum fleygt fram með aukinni þekkingu og tækni. Með þessu átaki 1990 var stuðningur við sjúklinga og aðstandendur stórauk- inn og hófst farsælt samstarf við Rauða kross Íslands og Ríkisspítala um kaup og rekstur íbúða sem hafa haft ómetanlegt gildi. Nú eiga Krabbameinsfélagið og Rauði krossinn fimm íbúðir þar sem krabbameinssjúklingar af lands- byggðinni geta dvalið með fjöl- skyldum sínum meðan á meðferð stendur og er nauðsynlegt að efla þennan þátt. Með söfnunarfé þessara þriggja þjóðarátaka, happdrætti og rausn- arlegum minningargjöfum hefur Krabbameinsfélag Íslands fengið reglulega endurnýjað umboð þjóð- arinnar til að vera framvörður í baráttunni gegn krabbameini. Nú biður félagið fólk að bregðast vel við og gera félaginu kleift að halda enn áfram að berjast til sigurs. Fólkið er félagið Engin keðja er sterkari en veik- asti hlekkurinn og áframhaldandi vöxtur og viðgangur félagsins bygg- ist á aðild sem flestra landsmanna að félagsdeildum Krabbameins- félags Íslands og stuðningi við starfið. Eitt af meginviðfangsefnum á næstunni er að stórefla starfið í deildunum og flytja þannig fræðslu- og stuðningsþjónustuna nær mark- hópunum sem eru fyrst og fremst skólafólk en einnig allt fólk í blóma lífsins sem og á efri árum. Ár hvert greinast meira en 1000 Íslendingar með krabbamein. Þriðji hver Íslendingur fær krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni og flest verðum við aðstandendur krabba- meinssjúklinga. Þetta er því mál- efni sem snertir allar fjölskyldur í landinu og samfélagið í heild. Við eigum því öll á einn eða annan hátt erindi í aðildarfélög Krabbameins- félagsins. Stuðningshópar krabbameins- sjúklinga og aðstandenda hafa eflst og fer þeim fjölgandi og starfa þeir sem aðildarfélög Krabbameins- félagsins og hafa starfsaðstöðu þar. Nú eru starfandi eftirtaldir hópar: Samhjálp kvenna, Ný rödd, Styrk- ur, Stómasamtökin, Kraftur og nýr stuðningshópur um blöðruhálskirt- ilskrabbamein. Stuðningshóparnir og fleiri halda reglulega fræðslu- fundi og haldin hafa verið námskeið fyrir sjúklinga og aðstandendur, m.a. „Að lifa með krabbamein“. Þá hafa hóparnir verið í samvinnu við aðildarfélögin utan höfuðborgar- svæðisins sem hafa einnig verið virk í fræðslustarfi. Þjóðarátak nú – stöndum saman Markmiðið með söfnuninni í þetta sinn er að treysta núverandi starfsemi Krabbameinsfélags Ís- lands og efla það til nýrra dáða á sviðum forvarna og nýrra viðfangs- efna. Stærsta verkefnið er að stór- auka þjónustu við krabbameins- sjúklinga, ekki síst með því að veita þeim liðsinni við að komast út í lífið á nýjan leik eftir erfiða sjúkdóms- meðferð. Það sem virkilega brennur á er að auka framboð á endurhæf- ingu, ekki aðeins fyrir líkamann heldur einnig til að styrkja bæði sjúklinga og aðstandendur þeirra andlega eftir boðaföll sjúkdómsins. Þetta getum við með samtaka- mætti okkar. Starf í þágu þjóðar Almar Grímsson Höfundur er lyfjafræðingur og var formaður Krabbameinsfélags Íslands 1988-1992. „Krabbameinsfélag Íslands hefur fengið umboð þjóðarinnar til að vera framvörður í baráttunni gegn krabbameini,“ segir Almar Grímsson. „Nú biður félagið fólk að bregð- ast vel við og gera félaginu kleift að halda enn áfram að berjast til sigurs.“ UMRÆÐAN Það hefur ekki unnið heimavinnuna sína og m.a. ekki leitað umsagnar hlutaðeigandi aðila um málið. Ekki hafði ráðuneytið heldur fyrir því að leita eftir upplýsingum frá mennta- málaráðaneytinu. Það sem er einna verst í þessu máli er framkoma Menntafélags byggingariðnaðarins, en það félag hefur á undanförnum árum haft vilja til að efla gildi iðn- menntunar. Fyrirkomulag fyrr- greindra námskeiða er þannig að Menntafélag byggingariðnaðarins tekur að sér sem verktaki að sjá um framkvæmd þeirra. Ef Menntafélag byggingariðnaðarins hefði verið samkvæmt sjálfu sér hefði það átt að spyrna kröftuglega við fótum við ólögum þessum og sýna í verki metnað sinn til að standa vörð um þá námsuppbyggingu sem það hefur sjálft sýnt vilja til að efla fram að þessu. En öllum að óvörum kastar félagið þeirri uppbyggingu fyrir borð. En hvað býr að baki, það skyldu þó ekki vera peningarnir? Menntafélag byggingariðnaðarins fær 70.000 kr. fyrir hvern nemanda samkvæmt auglýsingu og sé miðað við það að þeir sem skráð sig hafa séu 630 hefur það í tekjur u.þ.b. 42 milljónir en til frádráttar kæmi svo reyndar einhver námskeiðskostnað- ur. Þessi upphæð, þ.e. 70 þús. krón- ur, er því alltof há miðað við það sem er í boði og er því verið að gefa út veiðileyfi til að féfletta fólk með vit- und og vilja umhverfisráðuneytis. Illa er fyrir iðnmenntun komið og hún getur ekki talist ákjósanlegur valkostur fyrir námsfólk eftir þessa fjandsamlegu árás umhverfisráðu- neytisins. Til að kóróna þessa laga- setningu framlengir Alþingi nú fyrir síðustu jól bráðabirgðalagasetningu þessa um eitt ár eða til 1. jan. 2002. Hvernig yrði lögfræðingum við ef dómsmálaráðherra byði lögreglu- mönnum sem alltaf eru með lögin á milli handanna uppá námskeið þann- ig að þeir fengju réttindi lögfræð- inga? Ráðuneytið myndi svo ákveða að vera rausnarlegt og hafa nám- skeiðið 90 klst. án próftöku. Hver yrðu viðbrögð lögfræðinga sem hafa lagt á sig langt nám? Fordæmið fyr- ir þess háttar vinnubrögðum er gef- ið af umhverfisráðuneytinu. Höfundur er trésmiður og er í meistaranámi við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Sumum er sagt að það sé enginn möguleiki á að stofna til hjúskapar nema viðkomandi pappírar fáist og aðrir verða að bíða óákveðinn tíma þangað til ráðuneytið fær staðfest- ingu í gegnum alþjóðlegar stofnanir. Aðeins hjá mér, presti innflytjenda, hafa fimm slík tilfelli komið upp und- anfarin þrjú ár. Hvað eru lög og hvað er lögleysa? Að láta svona lagalega ringulreið viðgangast er að mínu mati brot á stefnu stjórnarskrár Íslands og mannréttindum. Lagakerfi landsins verður að virka fyrir þennan hóp fólks eins og aðra. Það þýðir að sjálf- sögðu að stefnumótun eigi að miða að því að tryggja mannréttindi fólks og vernda, en hvorki þrengja að réttindum fólks né svipta það rétt- indum sínum. Lokaorð Síðast en ekki síst vil ég ítreka að þessi lagabreyting, sem viðkomandi frumvarp leggur til, er ekki aðeins andstæð stjórnarskrá Íslands og mannréttindahugsjóninni heldur er hún einnig hættuleg og til þess fallin að auka fordóma og mismunun gagnvart erlendum ríkisborgurum og fjölskyldum þeirra í landinu. Við- komandi lagabreyting er móðgun við 1000 ára sögu lýðræðis á Íslandi og vanhelgar hugmyndina um jafn- rétti mannkyns sem stendur á 1000 ára sögu kristinnar trúar Íslend- inga. Ég óska þess að frumvarpinu verði breytt eftir umræður á Alþingi og vænti þess að athugasemdir mín- ar hljóti góðan skilning og stuðning ykkar. Guð blessi Ísland og fólk með góða samvisku. Höfundur er prestur innflytjenda á Biskupsstofu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.