Morgunblaðið - 24.02.2001, Page 77
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 75
DAGBÓK
DÚNDUR TILBOÐ
Yfirhafnir
tvær fyrir eina
Greitt fyrir dýrari flíkina
Opið laugardag
frá kl. 10—16
Mörkinni 6,
sími 588 5518
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
FISKAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert góðhjartaður og vilt
öllum vel um leið og þú þráir
að hljóta viðurkenningu
þeirra sem þú umgengst.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gerðu þeir grein fyrir tak-
mörkunum þínum og lærðu
að lifa með þeim í stað þess að
vera stöðugt að berjast við
þær. Það hefur hver sinn
djöful að draga.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú mátt hvergi slaka á í þeirri
viðleitni að sannfæra vinnu-
félaga þína um ágæti hug-
mynda þinna. Þær geta skipt
sköpum ef rétt er á haldið.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Láttu ekki óþolinmæðina ná
tökum á þér þótt það taki
aðra einhvern tíma að sjá
kostina við málstað þinn.
Tíminn vinnur með þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það getur reynst þér skeinu-
hætt að ganga of nærri til-
finningum annarra sérstak-
lega ef þú gætir þess ekki að
hlusta vandlega á það sem
þeir segja.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Leitaðu á vit góðrar bókar
eða skemmtilegrar bíómynd-
ar ef þú ert eitthvað dapur.
Varastu að taka að þér fleiri
verkefni en þú ræður við.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Einhver þér nákominn mun
skýra frá leyndarmáli sem
kemur þér verulega á óvart.
Láttu samt ekki á neinu bera
því viðkomandi þarf á öllum
þínum stuðningi að halda.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Því sveigjanlegri sem þú ert
þeim mun betur mun þér
ganga í samstarfinu við þá
sem hafa valist í vinnuflokk
með þér. Gefðu gömlum vini
skerf af tíma þínum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er einhver ruglingur í
gangi á vinnustað þínum og
þú átt erfitt með að henda
reiður á því sem fram fer.
Reyndu að halda þínu striki.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er þung byrði að þurfa að
gera alla hluti kórrétt.
Mundu að það eru til fleiri en
ein leið að hverju marki og
vandinn er að velja þar í milli.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Láttu ekki kröfugerð annarra
á hendur þér gera þér erfitt
fyrir. Það er þitt að velja og
hafna út frá þínum eigin for-
sendum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú þarft að gæta þín ef þú vilt
ekki að aðrir sjái í gegnum
þig og komist of auðveldlega
að því sem þú hefur í hyggju.
Vertu fastur fyrir.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þótt þú þurfir fyrst og fremst
að hugsa um sjálfan þig þá
hefur þú líka skyldum að
gegna við vini og vandamenn
sem þú hvorki mátt né getur
horft framhjá.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
Á SPRENGISANDI
Ríðum, ríðum og rekum yfir sandinn,
rennur sól á bak við Arnarfell.
Hér á reiki er margur óhreinn andinn,
úr því fer að skyggja á jökulsvell.
Drottinn leiði drösulinn minn,
drjúgur verður síðasti áfanginn.
Þei, þei! þei, þei! þaut í holti tófa,
þurran vill hún blóði væta góm,
eða líka einhver var að hóa
undarlega digrum karlaróm.
Útilegumenn í Ódáðahraun
eru kannske að smala fé á laun.
Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn,
rökkrið er að síga á Herðubreið.
Álfadrottning er að beizla gandinn,
ekki er gott að verða á hennar leið.
Vænsta klárinn vildi ég gefa til
að vera kominn ofan í Kiðagil.
Grímur Thomsen.
NÚ er gaman! Makker opn-
ar á 15-17 punkta grandi og
þú átt þessa sleggju á móti í
norður:
Norður
♠ ÁKDG843
♥ 1082
♦ –
♣ Á96
Næsti maður passar og
spurningin er: Hvaða leið á
að fara í sögnum?
Auðvitað veltur allt á
kerfisútfærslu og enginn
spilar nákvæmlega sama
framhald upp úr grandi,
einhverra hluta vegna. En
flestir nota yfirfærslur og
einn möguleiki er að yfir-
færa í tvo spaða með tveim-
ur hjörtum og stökkva síð-
an í fjóra tígla til að sýna
sterkan spaða og stuttan
tígul (splinter). Ef makker
slær af í fjórum spöðum
kemur vel til greina að
halda áfram og segja fimm
lauf, því kannski á félagi
fyrirstöðu í hjarta en óttast
laufið. Ekki er þessi vís-
indalega leið þó hættulaus,
því vörnin gæti hæglega
tekið þrjá slagi á hjarta í
fimm spöðum og hvar ann-
ars staðar en í hjarta ætti
að koma út eftir slíkar
sagnir!
Þetta eru vísindin, en er
spilið þess eðlis að rétt sé
að melda það vísindalega?
Kemur ekki til greina að
stökkva beint í sex spaða!
Nei, það er of tuddalegt, því
það er auglýsing um að einn
litur sé opinn og allt velti á
útspilinu. Vörnin mun koma
hvasst út og hirða ÁK í
hjarta ef þau spil vantar:
Norður
♠ ÁKDG843
♥ 1082
♦ –
♣ Á96
Vestur Austur
♠ 9 ♠ 1065
♥ Á74 ♥ K53
♦ 9632 ♦ D108754
♣ D10432 ♣ 7
Suður
♠ 72
♥ DG96
♦ ÁKG
♣ KG85
Að minni hyggju er besta
leiðin að yfirfæra í spaða og
melda svo þrjú hjörtu eðli-
lega. Í þessu tilfelli mun
makker lyfta í fjögur hjörtu
og þá ætti að brjóta aðra
kerfisreglu og spyrja um
ása, þrátt fyrir eyðuna í
tígli. Melda svo sex spaða,
hvert sem svarið verður.
Vörnin er ekki líkleg til að
spila út hjarta eftir slíkar
sagnir. Og enn síður ef
makker á ekki hjartastuðn-
ing, nema svo óheppilega
vilji til að útspilarinn haldi á
ÁK.
Spilið er frá síðustu um-
ferð Flugleiðamótsins og
skóp sveiflur í mörgum
leikjum. Vísindamennirnir
sluppu með skrekkinn í
fimm spöðum en töpuðu þó
oft á spilinu, því sex spaðar
vinnast í suður með laufi út,
og í norður með tígli út. Og
það gerðist víða.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla
70 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 24.
febrúar, er sjötugur Gunnar
Elíasson, Einigrund 4,
Akranesi. Eiginkona Gunn-
ars er Guðjónína Sigurðar-
dóttir. Þau taka á móti gest-
um í sal Grundaskóla,
Akranesi, á afmælisdaginn
milli kl. 15-18.
70 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 24.
febrúar, verður sjötug Guð-
rún Einarsdóttir frá Fá-
skrúðsfirði. Hún og fjöl-
skylda hennar taka á móti
gestum í Félagsheimili sjálf-
stæðismanna á Seltjarnar-
nesi, Austurströnd 3, frá kl.
20 í kvöld. Þeir sem hyggjst
gleðja Guðrúnu með blóm-
um og gjöfum eru vinsam-
lega beðnir að láta Barna-
spítalasjóð Hringsins njóta
þess. Söfnunarkassi Hrings-
ins verður á staðnum.
FYRIR stuttu síðan tefldu
Alexei Shirov (2718) og
Simen Agdestein (2591)
atskákeinvígi í Björgvin í
Noregi. Það var styrkt af
Radisson SAS-hótelkeðj-
unni og borgaryfirvöldum
en þrátt fyrir góðan stuðn-
ing beið heimamaðurinn í
lægri hlut, 1 ½ v. gegn 2 ½
v. Honum tókst þó að bíta
allhressilega frá sér í skák-
inni sem stað-
an kom upp úr
þar sem hann
hafði hvítt.
32.Hc5+!
Rxc5 33.dxc5
Hg7 34.cxd6+
Kd8 35.Ke3
Hg5 36.Bh4
He5+ 37.Kd4
He6 38.Kc5
b6+ 39.Kd5
He5+ 40.Kc6
Hf5 41.g4 Hf4
42.d7 Hf3
43.g5 Hf4
44.Bg3 fxg5
45.Kxb6 Hf6+
46.Kb7 Hf4
47.Kb6 Hf6+ 48.Kb7 Hf4
49.Bxf4 gxf4 50.Bc6 og
svartur gafst upp. Skákin
tefldist í heild sinni: 1.d4
d5 2.c4 c6 3.Rf3 Rf6 4.e3
Bf5 5.Db3 Db6 6.Rh4 Be4
7.Rc3 e6 8.f3 Bg6 9.Bd2
Dxb3 10.axb3 Bc2 11.cxd5
exd5 12.b4 g5 13.Hc1 gxh4
14.Hxc2 Bxb4 15.e4 dxe4
16.fxe4 Bxc3 17.bxc3 Rxe4
18.Bh6 Rd7 19.Bd3 Rd6
20.He2+ Kd8 21.Bg5+
Kc7 22.Bxh4 Hae8 23.Hf1
Hxe2+ 24.Kxe2 c5 25.Bg3
f6 26.Bf5 He8+ 27.Kd3
c4+ 28.Kd2 He7 29.Bc2 a5
30.Hf5 Kc6 31.Ba4+ Kc7.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Nei, takk, ég
vil ekki kaupa
líftryggingu.
Þegar ég dey
vil ég að allir
verði leiðir
yfir því.
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Glæsibæ, fimmtudaginn 15.
febrúar 2001. 22 pör. Meðalskor 216
stig.
Árangur N-S:
Eysteinn Einarss. – Aðalbjörn Ben. 251
Kristinn Gíslas. – Margrét Jakobsd. 236
Sigurður Pálss. – Halla Ólafsd. 224
Árangur A-V:
Þorsteinn Laufdal – Magnús Halldórss. 253
Júlíus Guðmundss. – Oliver Kristóferss. 239
Björn E. Péturss. – Hilmar Ólafss. 239
Sveitakeppni stendur yfir á mánu-
dögum með þátttöku 10 sveita. Eftir
6 umferðir er staða efstu sveita
þannig:
Þorsteinn Laufdal 125
Rafn Kristjánsson 117
Þórarinn Árnason 111
Spilakvöld Bridsskólans og BSÍ
Bridsskólinn og Bridgesamband
Íslands bjóða nýliðum og óvönum
keppnisspilurum upp á létta spila-
mennsku öll mánudagskvöld fram að
páskum í húsnæði BSÍ í Þöngla-
bakka 1, 3. hæð. Fyrsta spilakvöldið
verður mánudaginn 26. febrúar og
byrjar kl. 20. Spilaður verður tví-
menningur. Ekki er nauðsynlegt að
mæta í pörum og verður aðstoðað við
að finna spilafélaga. Umsjónarmað-
ur er Hjálmtýr Baldursson kennari í
Bridsskólanum.
Bridsdeild Sjálfsbjargar
Aðalsveitakeppni deildarinnar
lauk mánudaginn 19. febrúar sl. 12
sveitir tóku þátt í keppninni, í efstu
sætum urðu eftirtaldar sveitir.
Sveit Karls Péturssonar ásamt Ingólfi
Ágústssyni, Skúla Sigurðssyni og Einari
Hallssyni 211
sveit Sigurðar Marelssonar ásamt Sveini
Sigurjónssyni, Helga Ketilssyni og Sigþóri
Haraldssyni 204
sveit Jónínu Jóhannsdóttur ásamt Ragnari
Þorvaldssyni, Meyvant Meyvantssyni og
Gesti Pálssyni 203
Bridsfélag Húsavíkur
Að loknum 6 umferðum í Aðaltví-
menningi félagsins, VÍS tvímenn-
ingnum, er staða
efstu para þannig:
Óli - Pétur 68 stig
Hilmar - Gunnlaugur 27 stig
Friðrik - Torfi 23 stig
Gullsmárabrids
Sl. mánudag, 20. febrúar, var spil-
aður tvímenningur í Gullsmára.
Spilað var á 10 borðum og fóru
leikar þannig:
N-S
Helga Helgad. – Þórhildur Magnúsd. 213
Ari Þórðarson – Díana Kristjánsdóttir 212
Sverrir Gunnarss. – Einar Markússon 186
A-V
Jóhanna Jónsdóttir – Magnús Gíslason 184
Sigurberg Sigurðsson – Þórir Björnsson 84
Leó Guðbrandss. – Aðalsteinn Guðbr. 179
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Það mættu 25 pör í tvímenninginn
6. febrúar sl. Efstu pör í N/S urðu
þessi:
Helga Helgad. – Sigrún Pálsd. 372
Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 328
Ólafur Ingimundars. – Jón Pálmason 327
Hæsta skor í A/V:
Ragnar Björnsson – Hreinn Hjartarson 363
Magnús Oddsson – Guðjón Kristjánss. 363
Leifur Jóhanness. – Einar Guðnason 347
Sl. föstudag mættu 20 pör og þá
urðu úrslit þessi í N/S:
Bragi Salomonss. – Lárus Hermannss. 264
Bragi Björnsson – Magnús Halldórss. 251
Helga Helgad. – Sigrún Pálsd. 237
Hæsta skor í A/V:
Eysteinn Einarss. – Sigurður Pálsson 271
Sigurleifur Guðjss. – Þorsteinn Erlingss.257
Páll Hannesson – Kári Sigurjónss. 247
Meðalskor á þriðjudag var 312 en
216 á föstudag.
BRIDS
U m s j ó n A r n ó r G .
R a g n a r s s o n
Suðurlandsmót
í tvímenningi
Suðurlandsmót í tvímenningi
verður haldið á Þingborg laugar-
daginn l7. mars 200l og hefst mótið
kl. l0 f.h.
Efsta sætið gefur rétt til að spila
í úrslitum Íslandsmóts í tvímenn-
ing 200l. Einnig verður spilað um
rétt til að spila á landsmóti UMFÍ
í sumar fyrir hönd Héraðssam-
bandsins Skarphéðins. Þeir sem
spila um þennan rétt verða að vera
félagar í ungmennafélagi innan
Skarphéðins.
Það par sem verður efst, velur
sér par í sveitakeppni og par nr. 2
velur sér par með sér í sveita-
keppnina. Ef l. par velur par nr. 2
gengur valréttur til þriðja pars. Sú
sveit sem vinnur sveitakeppnina
fær rétt til að spila á landsmótinu
ásamt einu pari í viðbót sem valið
verður í samráði við undirbúnings-
nefnd landsmóts .
Þátttaka í tvímenningnum til-
kynnist til Sigfúsar Þórðarsonar í
síma 482-l406, 565-3050, Helga G.
Helgasonar, s. 482-2447, Garðars
Garðarssonar, s. 482-2352 og
Bridssambands Íslands, s. 587-
9360.
Bikarkeppni Bridssambands
Suðurlands
Bikarkeppni Bridssambands
Suðurlands er að hefjast með þátt-
töku 7 sveita og hefur verið dregið
í l. umferð. Þessar sveitir spila
saman í l. umferð, sem skal vera
lokið fyrir 26. mars 200l.
Kristján M.Gunnarsson- Sigfús Þórðarson
Ólafur Steinason - Össur Friðriksson
Halldór Gunnarsson- Bergur Pálsson.
Yfirseta Pétur Hartmannsson.
Hver sveit greiðir 2.200 kr. fyrir
hverja umferð og sér sú sveit sem
á heimaleik um geiðsluna til Helga
G. Helgasonar.
Bridsfélag Kópavogs
Fimmtudaginn 22. febrúar hélt
aðalsveitakeppni félagsins áfram og
nú þegar tvö kvöld eru eftir er stað-
an þessi:
Sv Þorsteins Bergs 155
Sv Þróunar 147
Sv Vina 143
Sv Old Boys 137
Fimmtudaginn 1. mars heldur
sveitakeppnin áfram. Spilamennska
hefst stundvíslega kl. 19.45. Spilað er
í Þinghól við Hamraborgina.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 26. febrúar verður
spilaður eins kvölds bolludagství-
menningur hjá félaginu.
5., 12. og 19. mars verður síðan
þriggja kvölda barometer-tvímenn-
ingskeppni og þann 26. mars byrjar
svo þriggja kvölda hraðsveitakeppni
sem stendur fram að páskum.