Morgunblaðið - 24.02.2001, Side 79
UM SÍÐUSTU helgi opnaði Gabr-
íela Friðriksdóttir sýningu sína í
Galleríi Sævars Karls í Banka-
stræti. Margt var um manninn við
opnunina en þar flutti Gabríela
ásamt Margréti Vilhjálmsdóttur
tónlistarverkið „Anima anime“,
þar sem Gabríela sat við flygilinn
en Margrét Vilhjálmsdóttir spil-
aði með á fiðlu og léku þær sér
hvor að annarri eins og köttur að
mús þar til vekjaraklukka
hringdi.
Dýr eru Gabríelu hugleikin og
er flest verkin á sýningunni um-
myndanir eða kynjamyndir þar
sem dýr leika aðalhlutverkið.
Vinnuferlið á verkunum er mis-
jafnlega langt, sum eru unnin
mjög hratt en önnur hafa lengri
vinnslutíma og eru þau öll unnin
úr hördúk, límmassa, trjágreinum
og málningu. Í loftinu hljómar svo
„Dýrasónata“ sem eykur enn á
stemmninguna og gerir andrúms-
loftið kannski að einhverju leyti
eins og á „Náttúrugripasafni ótt-
ans“. Sýningin er opin alla daga á
afgreiðslutíma verslunarinnar og
er síðasti sýningardagur 8. mars.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Verkin tóku á sig ýmsar dýramyndir.
Friðrik Sophusson, Daniela, Gabríella Friðriksdóttir
og Áslaug Friðriksdóttir.
Dýr inni – dýr úti
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 77
Næg bílastæði
HARMONIKUBALL
„Halló.. ha-alló, nú tekur gleðin öll völd....“
Dansinn dunar dátt í kvöld í ÁSGARÐI,
Glæsibæ við Álfheima, frá kl. 22.00.
Félagar úr Harmonikufélagi Reykjavíkur leika
fyrir dansi. Ragnheiður Hauksdóttir syngur.
Allir velkomnir, ungir sem aldnir.
Í DAG (laugardag) kl. 16 opnar
Spánverjinn Guillermo Martinez
einkasýningu í galleríi Geysi, Hinu
Húsinu. Guillermo er frá Madrid á
Spáni og hefur verið skiptinemi í
mannfræði við Háskóla Íslands í
vetur. Hann er algjörlega sjálf-
menntaður myndlistarmaður en
hefur unnið að myndlist í rúmlega 2
ár og á þeim tíma haldið nokkrar
sýningar bæði á Spáni og Portúgal.
Ástæðan fyrir því að Ísland varð
fyrir valinu er sú að hann vildi kom-
ast eins langt frá heimahögunum, í
eins ólíkar aðstæður og hægt væri.
Hann segir að Ísland hafi haft góð
áhrif á sköpunarkraftinn hjá sér því
aldrei áður hafi hann tekið eins
mikið af ljósmyndum og eins hefur
hann teiknað og málað mikið síðan
hann kom til landsins. Myndefnin
hafa samt lítið með Ísland að gera
því að þau eru öll komin úr per-
sónulegu lífi Guillermo.
Viltu að ég deyi fyrir þig ?
Á sýningunni í galleríi Geysi eru
ljósmyndir sem búið er að vinna
með, bæði teikna og líma á þær
hluti. Guillermo segir að hann hafi
alltaf unnið með ljósmyndir á þenn-
an hátt þ.e. unnið ofan í þær með
allskyns efnum og gert tilraunir
með þær: „Ljósmyndirnar á sýn-
ingunni segja sögu allt frá fæðingu
til dauða og er hægt að lesa sýn-
inguna eins og teiknimyndasögu frá
vinstri til hægri. Svo verð ég líka
með gjörning sem stendur í 7 daga
frá mánudeginum næsta og fram á
sunnudag og er alltaf í gangi milli
kl. 10 og 17. Hann er í tengslum við
ljósmyndirnar, þar sem ferillinn frá
eyðingu til endurfæðingar er aðal-
atriðið: „Fyrsta daginn verður
manneskjan búin að taka sitt eigið
líf, liggur á gólfinu en hreyfist samt
hægt í rýminu. Næsta dag verður
allt annað að gerast og þannig koll
af kolli uns síðasta daginn verður
manneskjan að mála sig allan dag-
inn, að byggja sjálfa sig upp. Titill
sýningarinnar er einmitt „Viltu að
ég deyi fyrir þig?““ segir Guill-
ermo. Allir eru velkommnir á opn-
unina í dag kl. 16 og stendur sýn-
ingin fram til 11. mars.
Morgunblaðið/Golli
Hægt er að nálgast sýningu Martinez eins og teiknimyndasögu.
Líkaminn og listin
Guillermo Martinez opnar sýningu í galleríi Geysi í dag