Morgunblaðið - 25.03.2001, Side 16

Morgunblaðið - 25.03.2001, Side 16
16 SUNNUDAGUR 25. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í BÚAR Suður-Þýskalands eru íhaldssamir. Þetta á við um íbúa Bæjaralands jafnt sem nágranna þeirra í Baden- Württemberg þar sem Kristilegi demókrataflokkurinn (CDU) hefur verið við stjórnvölinn í tæpa hálfa öld. Allt frá 1953 hefur forsætisráðherra Baden-Württem- berg verið úr röðum CDU sem er í rauninni „flokkurinn“ í sambands- landinu. Það þarf því mikið að ger- ast milli Main og Bodensee til þess að stjórnarandstaðan eigi þar mögu- leika. Kosið í velmegun í Baden-Württemberg Í nýlegri áróðursherferð sam- bandslandsins Baden-Württemberg var gripið til slagorðsins: „Við kunn- um allt – nema háþýsku.“ Efnahags- lega séð er Baden-Württemberg framarlega á öllum sviðum og keppir við nágrannana í Bæjara- landi um efsta sætið í stiga tölfræð- innar. Atvinnuleysi í Baden-Württem- berg er tæp fimm prósent sem er öf- undsvert frá sjónarhóli norður- eða austurhluta Þýsklands, en atvinnu- leysi í Þýska sambandslýðveldinu er að meðaltali helmingi hærra. Hagvöxtur er einna mestur í Bad- en-Württemberg, eða um 4%, upp- sveifla er í útflutningi og skuldir eru helmingi minni en að meðaltali á landsvísu. Sambandslandið hefur lægstu veikinda- og afbrotatíðnina og fæsta íbúa sem þurfa á aðstoð félagsmálastofnunar að halda. Á sviði rannsókna og vísinda er Bad- en-Württemberg framar öllum öðr- um sambandslöndum. Háskólar og rannsóknastofnanir njóta mikillar virðingar og fjórða hvert þýskt mark sem látið er í rannsóknir og þróun í Þýskalandi fer til Baden- Württemberg. Landið veitir meira fjármagni í rannsóknir (í prósentum séð) en nokkurt annað land í Evrópu og hefur flestar stöður innan há- tæknigeirans. Daimler-Chrysler og Porsche eru með höfuðstöðvar sínar í Stuttgart og nýtur sambandslandið allt góðs af velgengni bílaiðnaðarins. Erwin Teufel (CDU), sem verið hefur forsætisráðherra Baden- Württemberg í áratug, getur því státað af tölfræðinni. Velmegunin þýðir þó að Baden-Württemberg leggur ásamt Bæjaralandi mest til þegar kemur að því að jafna út skattatekjur sambandslandanna (m.a. til að styðja við bakið á nýju sambandslöndunum í austri). Sum- arið 1998 kærðu Teufel og forsætis- ráðherra Bæjaralands, Edmund Stoiber (CSU), jöfnunina fyrir stjórnarskrárdómstólnum. Það bar árangur og 1999 úrskurðaði dóm- stóllinn að jöfnunin yrði að fara fram með öðrum hætti. Í kjölfarið fær Baden-Württemberg nú hærra hlutfall af skattheimtu sinni í eigin vasa. Það eru fáir þeirrar skoðunar að Teufel hafi ekki náð árangri í stjórn- artíð sinni en sumir vilja þó sjá nýtt andlit. Teufel er enginn sjónvarps- maður að hætti fjölmiðlakanslarans (Gerhards Schröder), telst ekki hafa mikla útgeislun og stjórnmálastíll hans þykir gamaldags. Innan CDU eru sumir þeirrar skoðunar að hinn 61 árs gamli forsætisráðherra sé orðinn of gamall og yngri menn vilja komast að. Sjálfur var bóndasonur- inn aðeins 25 ára þegar hann varð borgarstjóri Spaichingen og þar með yngsti borgarstjóri Þýskalands. Árið 1999 hlaut Teufel, sem er and- vígur umhverfisskatti ríkisstjórnar- innar í Berlín, útnefninguna „Risa- eðla ársins“ frá Þýsku umhverfis- samtökunum sökum afturhalds- samrar umhverfisstefnu. „Barbie-forsetinn“ Jafnaðarmenn eru orðnir vanir því að vera í stjórnarandstöðu í Bad- en-Württemberg. Fyrir tæpum 30 árum fékk SPD enn tæp 40 prósent en fylgið hefur farið dvínandi. Í síð- ustu kosningum hlaut flokkurinn að- eins fjórðung atkvæða sem er minnsta fylgi frá stofnun hans. Þar sem erfitt er fyrir jafnaðarmenn að finna veika bletti á stjórn CDU/FDP –tölfræðin talar sínu máli – hefur flokkurinn gripið til þess ráðs að leggja áherslu á muninn á persón- unni Teufel og frambjóðanda SPD, Ute Vogt. Hin 36 ára gamla Vogt gæti verið dóttir Teufels. Ólíkt for- sætisráðherranum er hún létt á tá, glaðlynd, lagleg, fjölmiðlafær og iðin við að markaðssetja sjálfa sig. Aðrar konur innan SPD, sem varla hefðu fengið hin ólíku embætti Vogts á svo skömmum tíma, nefna hana gjarnan „Barbie-forsetann“. Kosningafundir hennar þykja minna á vakningasam- komur. Hún segir viðstöddum að hún ætli að senda Teufel á eftirlaun en samkvæmt skoðanakönnunum er þó frekar ólíklegt að það gerist. Það er ekki víst að Vogt hefði fengið for- mannsstöðuna ef jafnaðarmenn hefðu haft trú á að hún gæti raun- verulega unnið. Sumir innan flokks- ins líta frekar á hana sem tíma- bundna „upplyftingu“. Og víst er að Vogt hefur haft góð áhrif á flokkinn og séð til þess að flokkur hennar er nú fyrirferðar- meiri en í fyrri kosningum í Baden- Württemberg. Teufel hefur þó svör á reiðum höndum. Í kjölfar þess að SPD reyndi að vekja upp ímynd af Teufel sem eldri borgara litaði forsætisráð- herrann hárið á sér rautt. Umfjöllun um aldursmun svaraði Teufel á þann veg að hann hafi þegar verið borg- arstjóri í tíu ár þegar hann var á aldri Vogts. Í kosningabaráttunni hefur Vogt lagt áherslu á mennta- mál en í sjónvarpseinvígi fyrir skömmu svaraði Teufel því til að hann ætlaði að koma á 5.500 nýjum stöðugildum kennara, 500 fleiri en SPD hafði krafist. „Fjölmenningarsamfélag leiðir til borgarastyrjaldar“ Samkvæmt síðustu skoðanakönn- unum hefur stjórn CDU/FDP í Stuttgart þó aðeins knappt forskot og ýtir óvissa þessi undir ímynd- unaraflið. Þannig hafa jafnaðar- menn og græningjar lýst yfir áhuga á svonefndum „umferðarljósum“, þ.e. samsteypustjórn rauðra (SDP), gulra (FDP) og grænna. Flokkur frjálslyndra demókrata hefur þó sýnt núverandi samstarfsflokki sín- um hollustu með því að hafna þess- um möguleika. Þar með hafa Græn- ingjar litla möguleika á að komast í stjórn þótt þeir séu sterkir í Baden- Württemberg (fengu 12,1 prósent í síðustu kosningum) og hafi verið að opna sig fyrir CDU. Helsta ástæðan fyrir óvissunni er þó sú að reynst hefur erfitt að mæla raunverulegt fylgi repúblíkana (REP) sem er flokkur yst á hægri vængnum. Kjósendur flokksins sýna sjaldnast sitt rétta andlit í skoðana- könnunum, og í síðustu tveimur kosningum hefur flokkurinn fengið um helmingi meira fylgi en honum var spáð. Fylgi repúblíkana í suð- vesturhluta Þýskalands er eins- dæmi. Þeir hafa setið níu ár á þinginu í Stuttgart og er þetta í fyrsta sinn sem hægri öfgaflokkur kemst tvisvar í röð á þing í Þýska- landi. Árið 1996 voru jafnaðarmenn, sem spáð var slöku gengi í skoð- anakönnunum, sakaðir um að grípa til slagorða sem minntu um margt á slagorð REP. Formaður flokksins, dr. Rolf Schlierer, er stoltur af ár- angri sínum, en Baden-Württem- berg er eina sambandslandið þar sem fulltrúar REP sitja á þingi. Að mati stjórnarskráreftirlitsins í Bad- en-Württemberg boðar Schlierer út- lendingahatur. Hann hefur ítrekað lýst því yfir að fjölmenningarsam- félag hljóti að enda með borgara- styrjöld. Í síðustu kosningum fengu Repúblíkanar 9,1 prósent atkvæða. Að þessu sinni er þeim spáð 6 pró- sentum og ef raunverulegt fylgi verður aftur helmingi hærra gætu þeir orðið þriðji sterkasti flokkurinn í Baden-Württemberg. Heimspekingur gegn rafvirkja í Rheinland-Pfalz Rheinland-Pfalz er hvorki efna- hagsundur líkt og Baden-Württem- berg né hérað sem á við stærri vandamál að stríða. Í hinu 4 milljóna manna sambandslandi er engin stærri borg en Mainz, þar sem þing- ið hefur aðsetur. Rínlendingar og Pfalzbúar eru fremur íhaldssamir, og er „konungur“ þýskra íhalds- manna, Helmut Kohl, ættaður frá Pfalz. Núverandi varnarmálaráð- herra, Rudolf Scharping (SPD), lagði þó landið undir sig fyrir áratug og tók upp samstarf við Frjálslynda demókrata. Núverandi forsætisráðherra Rheinland-Pfalz, Kurt Beck, telst pólitískur uppeldissonur Scharp- ings. Hann tók við starfi forsætis- ráðherra af Scharping haustið 1994 og var endurkjörinn tveimur árum síðar. Beck er fremur íhaldssamur líkt og aðrir meðlimir SPD í Rhein- land-Pfalz. Hann hefur því haldið áfram samvinnu þeirri sem Scharp- ing hóf við FDP 1991 og hefur lítinn áhuga á því að vinna með Græn- ingjum. Beck hefur áður lýst því yfir að hann telji rauð-gula (SPD/FDP) stjórn einnig vænlega fyrir önnur sambandslönd og Schröder kanslari er mjög ánægður með samstarfið við FDP í Rheinland-Pfalz. SPD leggur áherslu á einstaklinginn Beck í kosningabaráttunni, en for- sætisráðherrann er mjög vinsæll á svæðinu milli Mósel og Rín, og fengi um 70 prósent atkvæða ef fram færu beinar kosningar. Meðal kosta hins 51 árs gamla Becks er að hann er mikill málamiðlari og á auðvelt með að ná til fólksins. Gegn Beck, sem er rafvirki að mennt, teflir CDU Christoph Böhr sem skrifaði doktorsritgerð í heim- speki um Immanuel Kant. Á vegg- spjöldum af frambjóðanda kristi- legra demókrata stendur „Hugs- uður – meira en andlit“. En Böhr, sem starfað hefur innan veggja há- skólans og landsþingsins allt sitt líf, á í vandræðum með að nálgast fólkið í Rheinland-Pfalz. Þannig er fram- bjóðandi Græningja, Ise Thomas, vinsælli en Böhr þó svo að fylgi CDU í síðustu kosningum hafi verið fimmfalt fylgi Græningja. Böhr var formaður Ungmenna- hreyfingar Kristilegra demókrata á 9. áratugnum. Hann er einn af síð- ustu dyggu stuðningsmönnum Kohls og á skrifborði hans er inn- römmuð mynd af kanslaranum fyrr- verandi. Í kosningabaráttunni hefur Böhr beitt sér gegn umhverfisskatti stjórnarinnar í Berlín. Hann safnar undirskriftum og gefur bensín á bensínstöðvum. Græningjar eiga erfitt uppdráttar í Rheinland-Pfalz þar sem margir íbúar sambandslandsins aka langar vegalengdir til vinnu. Böhr hefur lýst því yfir að samstarf við Græn- ingja sé einnig útilokað þetta árþús- undið. Eini mögulegi samstarfsaðili Böhrs er því FDP. Vandinn er hins vegar sá að FDP-menn eru mjög ánægðir með samstarfið við SPD sem staðið hefur yfir í tíu ár. Á síð- asta flokksþingi lýstu frjálslyndir því yfir að þeir vildu halda samstarf- inu áfram á næsta kjörtímabili. Eftir síðustu kosningar hefði FDP getað myndað meirihluta með CDU en flokkurinn kaus að vinna frekar áfram með jafnaðarmönnum. Þar sem samstarfsaðili sá sem Böhr óskar sér situr í ríkisstjórn eru hendur CDU fremur bundnar í kosningabaráttunni. Þannig er einn af veiku blettum núverandi ríkis- stjórnar dómsmálaráðherrann, í kjölfar þess að talsvert hefur verið um flótta úr fangelsum í sam- bandslandinu að undanförnu. Þar sem ráðherrann er úr röðum FDP hefur Böhr haldið aftur af sér hvað gagnrýni varðar. „Maður slær ekki brúðina sem maður ætlar sér að giftast,“ er haft eftir Böhr. Í kjölfar þess að umhverfisráð- herra ríkisstjórnarinnar í Berlín, Jürgen Trittin (úr flokki græn- ingja), líkti framkvæmdastjóra CDU, Lorenz Meyer, við nýnasista hefur Böhr þó fengið óvænt sókn- arfæri. Hann hefur safnað undir- skriftum gegn Trittin, sem Schröder hefur nefnt „áhættuþátt“ ríkis- stjórnarinnar, og hengt upp 10.000 veggspjöld í Rheinland-Pfalz með slagorði gegn Trittin sem Böhr nefnir sjálfur „vinstri-öfgamann“. Ólíklegt er þó að þetta nægi CDU til sigurs í Rheinland-Pfalz, sem var aðeins einu prósenti á eftir SPD í síðustu kosningum, þar sem flokk- urinn er enn í lægð á landsvísu. Það ætti þó ekki að koma í veg fyrir að Kristilegi demókrataflokkurinn nái fimmtíu árunum í Baden-Württem- berg. Landsþingskosningar í Baden-Württemberg og Rheinland-Pfalz Búist við að staðan breytist lítið AP Einn áheyrenda á kosningasamkomu flokks Kristilegra demókrata, CDU, í borginni Mannheim í Þýskalandi, sem tilheyrir Baden-Württemberg, heldur hér á loft slagorði gegn jafnaðarmönnum, SPD og græningjum. Í dag, sunnudag, ganga íbúar tveggja sam- bandslanda í Suðvestur-Þýskalandi að kjör- borðinu. Talið er líklegt að Frjálslyndir demókratar sitji áfram í báðum ríkisstjórn- unum, og að CDU haldi embætti forsætis- ráðherra í Baden-Württemberg og SPD í Rheinland-Pfalz. Davíð Kristinsson skoðaði stöðu mála skömmu fyrir kosningar. Erwin Teufel Christoph Böhr Kurt Beck

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.