Morgunblaðið - 05.04.2001, Síða 1
80. TBL. 89. ÁRG. FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 5. APRÍL 2001
BANDARÍKJASTJÓRN harmaði í
gær lát kínverska flugmannsins, sem
fórst í árekstri við bandaríska
njósnavél yfir Suður-Kínahafi á
sunnudag, en varð ekki við kröfu
Kínverja um að leggja fram form-
lega afsökunarbeiðni.
„Við hörmum að kínverska vélin
hafi ekki lent heil á húfi og við hörm-
um dauða kínverska flugmannsins,“
sagði Colin Powell, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, í yfirlýsingu
sem hann flutti fréttamönnum í
Washington í gær. Powell sagði at-
vikið „sorglegt slys“ og Ari Fleisch-
er, talsmaður Hvíta hússins, tók í
sama streng en lagði áherslu á að af-
sökunarbeiðni væri ekki að vænta.
„Bandaríkjastjórn sér ekki ástæðu
til að biðjast afsökunar. Bandaríska
flugvélin var í alþjóðlegri lofthelgi og
gerði ekkert rangt,“ sagði Fleischer.
Ekki var ljóst í gærkvöld hvernig
kínversk stjórnvöld myndu bregðast
við yfirlýsingu Powells en fjölmiðla-
fulltrúi kínverska sendiráðsins í
Washington sagði hana „afar mikil-
væga“.
Kínverjar segja bandarísku
njósnavélina, sem nú er kyrrsett á
Hainan-eyju, hafa átt alla sök á
árekstrinum og höfðu krafist af-
dráttarlausrar afsökunarbeiðni af
hálfu Bandaríkjamanna. Stjórn-
málaskýrendur töldu þó í gær að
yfirlýsing Powells ætti að gera Pek-
ingstjórninni kleift að ganga til
samninga um afhendingu vélarinnar
og lausn áhafnarinnar, án þess að
virðast hafa gefið eftir.
Reiði á Bandaríkjaþingi
Margir þingmenn lýstu reiði
vegna framkomu Kínverja á Banda-
ríkjaþingi í gær og repúblikaninn
Duncan Hunter lagði fram frumvarp
þess efnis að löggjöf frá því í fyrra,
sem veitti Kínverjum eðlileg við-
skiptakjör til langframa, yrði afnum-
in.
Donald Rumsfeld, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sem ekki hafði
áður tjáð sig um málið, gaf í gær út
stutta yfirlýsingu þar sem hann
fagnar fregnum af því að 24 manna
áhöfn bandarísku vélarinnar sæti
góðu atlæti þar sem hún er í haldi í
Kína. „Ég vona að fólkið fái áfram
góða meðferð,“ segir í yfirlýsing-
unni.
Bandaríkjastjórn harmar
lát kínverska flugmannsins
Ekki orðið við kröfu Kínverja
um formlega afsökunarbeiðni
Reuters
Kínverskur öryggisvörður bandar fréttamönnum frá bandaríska sendi-
ráðinu í Peking í gær. Klófesta/29
Washington. AFP, AP.
RÚSSNESKI kafbáturinn Kúrsk
var með kjarnorkuvopn um borð er
hann sökk í Barentshafið í fyrra.
Þetta sagði Grígorí Tomtsjín, þing-
maður og meðlimur í rússnesku
nefndinni sem fer með rannsókn
slyssins, í samtali við norsku sjón-
varpsstöðina TV2 í gær.
Hingað til hafa Rússar ítrekað
haldið því fram við norsk stjórnvöld
og önnur ríki að ekki hafi verið
kjarnorkuvopn um borð í kafbátn-
um.
Þegar fréttamaður TV2 beindi
þeirri spurningu til Tomtsjíns hvort
kjarnorkuvopn hefðu verið um borð
sagði hann: „Já, það hefur lengi verið
vitað.“ Tomtsjín vildi ekki greina
nánar frá því hvers kyns vopn væri
um að ræða en hann hélt því fram að
af þeim stafaði nú lítil hætta. „Sjálft
slysið hefði getað farið verr. Miklu
verr,“ sagði hann.
Harald Ramfjord, yfirmaður í
norska fyrirtækinu Global Tool
Management sem komið hefur að
björgunaraðgerðunum, segir að
hann hafi fyrir tilviljun séð leynileg
skjöl sem sýni að tvær stýriflaugar
með kjarnaoddum hafi verið um
borð.
Ramfjord segir það skoðun sína að
norsk yfirvöld eigi að krefjast nánari
upplýsinga um málið áður en kafbát-
urinn verður dreginn af hafsbotni.
Hvorki hann né aðrir vilji taka þátt í
björgun bátsins ef kjarnorkuvopn
eru um borð.
Talsmaður norska utanríkisráðu-
neytisins sagði í gærkvöld að því
hefðu ekki borist upplýsingar um að
kjarnorkuvopn hefðu verið um borð í
Kúrsk. „Við höfum hvorki fengið
þessar nýju upplýsingar staðfestar
né véfengdar.“
Thomas Nilsen, talsmaður norsku
umhverfisverndarsamtakanna Bell-
ona, efaðist í gær um að upplýsingar
TV2 væru réttar. Hann var eigi að
síður uggandi um að þær myndu
hafa skaðleg áhrif á norskan fiski-
iðnað og hvatti þá sem hefðu upplýs-
ingar um málið til að veita þær.
Kafbáturinn Kúrsk sökk 12. ágúst
sl. er hann var við æfingar í Barents-
hafi. Áhöfn bátsins, 118 manns, fórst
öll. Tólf líkum hefur verið bjargað en
kafbáturinn liggur enn á hafsbotni.
Kjarnorku-
vopn sögð um
borð í Kúrsk
Ósló. Morgunblaðið.
RITARI stríðsglæpadómstóls Sam-
einuðu þjóðanna í Haag hélt í gær til
Belgrað til að afhenda yfirvöldum í
Júgóslavíu handtökuskipun á hend-
ur Slobodan Milosevic, fyrrverandi
Júgóslavíuforseta. Forsvarsmenn
dómstólsins ítrekuðu þá kröfu að
Milosevic yrði tafarlaust framseldur
til Haag en Robin Cook, utanrík-
isráðherra Bretlands, sagði að til
greina kæmi að hann færi áður fyrir
rétt í heimalandinu.
Cook átti í gær fund með Vojislav
Kostunica, forseta Júgóslavíu, og
Göran Svilanovica, utanríkisráð-
herra landsins, í Belgrað. Cook
sagði að landar Milosevic gegndu
mikilvægu hlutverki við að leiða
glæpi hans í ljós. „Ég fagna því að
júgóslavneska þjóðin fái nú tækifæri
til að heyra sannleikann um þá
glæpi sem Milosevic framdi gegn
henni, hvernig hann auðgaðist á
meðan þjóð hans varð fátækari,“
sagði Cook. Hann lagði þó áherslu á
að forsetinn fyrrverandi kæmi einn-
ig fyrir stríðsglæpadómstól SÞ til að
svara til saka fyrir brot gegn öðrum
þjóðum á Balkanskaga. „Það eru í
gildi alþjóðleg lög og mikilvægt er
að ljóst sé að Milosevic er ekki yfir
þau hafin.“
Vojislav Kostunica sagði eftir
fund sinn með Cook að Júgóslav-
íustjórn væri reiðubúin til samstarfs
við stríðsglæpadómstólinn en að
Milosevic þyrfti fyrst og fremst að
svara til saka gagnvart sinni eigin
þjóð.
Hugsanlega ákært fyrir morð á
pólitískum andstæðingum
Jean-Jacques Joris, ráðgjafi for-
seta stríðsglæpadómstóls Samein-
uðu þjóðanna, aftók hins vegar í gær
að Milosevic kæmi fyrir rétt í Bel-
grað áður en hann yrði framseldur
til Haag. Joris sagði handtökuskip-
unina vera „í samræmi við afar
skýrar og ófrávíkjanlegar alþjóðleg-
ar skuldbindingar“ og að henni ætti
að framfylgja án tafar.
Ritarinn, Hans Holthuis, mun í
Belgrað greina dómsmálaráðherr-
um Júgóslavíu og Serbíu frá afstöðu
dómstólsins til málsins og afla upp-
lýsinga um ákærurnar sem Milos-
evic eru birtar þar.
Zoran Djindjic, forsætisráðherra
Serbíu, sagði í gær að hugsanlegt
væri að Milosevic yrði meðal annars
ákærður fyrir að hafa gefið fyrir-
skipanir um morð á pólitískum and-
stæðingum sínum.
Stríðsglæpadómstóllinn í Haag gefur út
handtökuskipun á hendur Milosevic
Cook styður
réttarhöld í
Júgóslavíu
Reuters
Mira Markovic, eiginkona Slob-
odans Milosevic, yfirgefur fang-
elsið í Belgrað í gær í fylgd
lífvarðar, eftir heimsókn til
bónda síns.
Belgrað, Sameinuðu þjóðirnar. AFP, AP.
FUNDIST hafa vísbendingar um að
konur gefi frá sér tiltekna lykt sem
segir til um þegar þær hafa egglos.
Þetta og ýmislegt fleira stangast á
við þá viðteknu trú að karlar geti
ekki orðið varir við egglos.
Uppgötvunin hefur leitt til um-
fangsmikillar leitar að efninu sem
gefur frá sér lyktina en það er
ferómón er nefnist copulin og gæti
orðið mikill búhnykkur fyrir ilm-
vatnsframleiðendur.
Vísindamenn við Háskólann í
Austin í Texas unnu að rannsókn-
inni er leiddi þetta í ljós. Voru
fimmtíu karlar fengnir til að meta
lyktina af stuttermabolum sem 17
konur um 22 ára aldur höfðu verið
í. Voru mennirnir beðnir um að at-
huga hvort þeir gætu ákveðið á
grundvelli lyktarinnar einnar sam-
an hversu aðlaðandi konan, sem
verið hafði í bolnum, hafi verið.
Mönnunum þótti lyktin af bol sem
kona hafði verið í þegar hún hafði
egglos vera meira aðlaðandi en af
bol sem sama kona hafði verið í
þegar hún hafði ekki egglos. Bend-
ir þetta til þess að egglos kvenna
fari ekki algerlega leynt. Greint er
frá niðurstöðum rannsóknarinnar í
nýjasta hefti Proceedings of Royal
Society.
Eggj-
andi
ilmur
The Daily Telegraph.