Morgunblaðið - 05.04.2001, Blaðsíða 30
LISTIR
32 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT
TANNLÍMBetra hald - Aukin vellíðan
Fæst í flestum apótekum
Innflytjandi: Pharmaco hf.
Bragðlaust og ofnæmisprófað
A
U
K
IN
VE
LLÍÐAN
BETRA
H
A
L
D
K
O
R
T
E
R
ATVINNUHÚSNÆÐI.
Hafnarbraut - verktakar og athafnamenn ath.
Vorum að fá í einkasölu gott iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði við Hafnarbraut sem
skiptist í stóran 308 fm iðnaðar- og verkstæðissal með góðri lofthæð og innkeyrslu-
dyrum. Til hliðar við þetta pláss er gott og nýlega innréttað skrifstofu- og þjónustu-
rými með snyrtingum, kaffistofu og starfsmannaaðstöðu sem fylgir og er það pláss
á 1. og 2. hæð og er samtals u.þ.b. 265 fm og er tvískipt. Gott fm-verð á plássi sem
er laust. V. 29,0 m. 1378
Tunguháls 7 - heil húseign
Til sölu um 1251 fm mjög vandað stál-
grindarhús á sérlóð með þrennum inn-
keyrsludyrum, góðu athafnasvæði og
byggingarrétti. Góð lofthæð og góð að-
koma. Í kjallara er lagerpláss með innkeyrsludyrum og steyptum rampi. Hentar sér-
lega vel undir ýmiss konar lagerpláss, verkstæðisrekstur o.fl. V. 72,0 millj. m. 1326
Trönuhraun - 200 fm götuhæð
Vorum að fá til sölu gott atvinnuhúsnæði á
götuhæð u.þ.b. 200 fm. Plássið er með
einni nýrri innkeyrsludyr og skilast strax til-
búið til innréttinga. Einn vinnusalur, skrif-
stofa, snyrting og kaffistofa. Hentar vel
undir ýmiss konar atvinnustarfsemi, iðnað,
lager, verkstæði, vinnustofur og jafnvel með íbúðaraðstöðu. Áhv. ca 10 millj. Lítil út-
borgun. V. 13,9 m. 9751
Smiðjuvegur - laust Til sölu um 280 fm rými á einni hæð með innkeyrsludyr-
um, verslunargluggum og góðu athafnasvæði. Húsnæðið er laust nú þegar. Plássið
er mjög vel staðsett í grónu þjónustuhverfi og með gott auglýsingargildi. Góð að-
koma. V. 18,4 m. 9911
Síðumúli - lager- og þjónustupláss í sérfl. - 400 fm eining
Glæsilegt atvinnuhúsnæði á götuhæð, lager, skrifstofur, iðnaður (bakhús) við Síðu-
múla. Plássið er u.þ.b. 400 fm, steinsteypt og byggt árið 1987. Húsið er flísalagt að
utan og með nokkrum innkeyrsludyrum og góðri lofthæð, gönguhurðum og glerf-
ronti að hluta til. Afstúkaðar skrifstofur, kaffistofur o.fl. Malbikuð lóð. Nánari uppl.
veitir Stefán Hrafn. Verð tilboð. 9752
UM ER að ræða þriggja tónleika röð
með fjölbreyttri efnisskrá þar sem
leikin verða lög og kaflar úr vinsæl-
um Broadway-söngleikjum. Fjórir
erlendir söngvarar flytja lögin við
undirleik Sinfóníuhljómsveitarinnar,
en allir eru þeir reyndir Broadway-
skemmtikraftar. Það eru þau Debbie
Gravitte, Liz Callaway, Cregg
Edelman og Stephen Bogardus.
Stjórnandinn Martin Yates hefur
unnið með flytjendunum síðastliðin
4–5 ár í tengslum við fyrirtækið
West End International. Yates hef-
ur á vegum fyrirtækisins sett saman
og stjórnað hinum vinsælu West
End- og Broadwaytónleikum, og
gefst Íslendingum nú færi á að
heyra síðarnefndu dagskrána á tón-
leikum.
Sitt lítið af hverju
Þegar blaðamaður kemur til fund-
ar við Yates er æfingu dagsins um
það bil að ljúka, en segja má að
stjórnandanum, söngvurunum og
Sinfóníuhljómsveitinni hafi tekist að
galdra fram sannkallaða Broadway-
stemmningu í Háskólabíói. Tónleik-
arnir hefjast á nokkurs konar
Broadway-syrpu sem Yates hefur
sjálfur útsett og í kjölfarið skiptast
söngvararnir á að syngja einsöngva,
dúetta og kvartetta í lögum á borð
við All that Jazz úr söngleiknum
Chicago, Fascinatin’ Rhythm úr
Lady be Good og I Got You Under
My Skin úr Anything Goes. Alls
verða flutt brot úr tugum söngleikja.
Yates segist hafa gengið út frá þó-
nokkrum þáttum við val á efnis-
skránni. Smekkur hans sjálfs ráði
e.t.v. þar nokkru um, en fyrst og
fremst hafi hann leitast við að velja
tónlist sem lýsi ákveðnum stílum og
tímabilum í söngleikjaflórunni, sem
hann telur að tónleikagestir muni
hafa gaman af því að heyra. „Sem
dæmi má nefna hinn dæmigerða
djass-skotna Broadway-hljóm sem
heyra má í söngleikjum á borð við
Gypsy og Hello Dolly, rómantískan
stíl söngleikjanna eftir Rodgers og
Hammerstein og Hollywood-
Broadway glæsileika í söngleikjum á
borð við Gigi,“ segir Yates. „Þessi
tónleikadagskrá er til dæmis mun
léttari en West End-dagskráin. Hún
er uppfull af húmor og lífsgleði, enda
er það einkenni Broadway-söng-
leikja að í þeim eru allar tilfinningar
svo stórar og miklar. Það sem er
e.t.v. einna skemmtilegast við þessa
dagskrá er að hverju atriði fylgir
heill heimur tilfinninga og hæfileika.
Og flest lögin þekkja áhorfendur um
leið og þau byrja,“ segir Yates og
bætir því við að efnisskráin feli í
raun í sér sitt lítið af hverju í sögu
Broadway-söngleikjanna.
Allir njóta góðra laglína
Við samsetningu efnisskrárinnar
gekk Yates auk þess að miklu leyti
út frá reynslu og hæfileikum flytj-
endanna. „Söngvararnir eru mjög
færir og eru í fremstu röð á sínu
sviði,“ segir hann. „Sinfóníuhljóm-
sveitin er einnig frábær, þetta er
dásamlegt fólk,“ heldur Yates áfram
en þess má geta að hann hefur unnið
með Sinfóníunni á sviðsettum tón-
leikum á Jesus Christ Superstar,
sem fluttir voru fyrir fullri Laugar-
dalshöll árið 1999, og West End-tón-
leikum árið 1998. „Ég held að Sin-
fóníuhljómsveit Íslands sé eitt best
geymda leyndarmálið í sígildri tón-
list í heiminum. Það er ekki sjálf-
gefið að í svo litlu samfélagi sé starf-
andi sinfóníuhljómsveit á svo háu
gæðastigi. Íslendingar eru mjög
heppnir að hafa hana,“ segir hann.
Að lokum segist Yates búast við
að tónleikarnir muni höfða jafnt til
harðsoðinna söngleikjaaðdáenda og
annarra. „Hver sá sem hefur gaman
af tónlist yfirhöfuð mun skemmta
sér á þessum tónleikum. Því málið
með Broadway-söngleikina er að
þeir eru uppfullir af frábærum lag-
línum, og allir hafa innbyggða hæfi-
leika til þess að njóta þeirra. Tón-
leikarnir eiga að vera fólki upp-
lyfting, líkt og ein stór veisla.“
Fyrstu Broadway-tónleikar Sin-
fóníuhljómsveitarinnar verða haldn-
ir í kvöld kl. 19.30. Þá verða tón-
leikar á sama tíma á morgun,
föstudag, en síðustu tónleikarnir í
röðinni verða haldnir laugardaginn
7. apríl kl. 17. Tónleikarnir eru
haldnir í Háskólabíói og fylla græna
áskriftarröð.
Broadway-stemmn-
ing í Háskólabíói
Broadway-tónlist eins og hún gerist best verður á
dagskrá á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í
kvöld og um helgina. Heiða Jóhannsdóttir spjallaði
við hljómsveitarstjórann Martin Yates, sem kom-
inn er hingað til lands að stjórna tónleikunum.
Morgunblaðið/RAX
Martin Yates á æfingu fyrir Broadway-tónleika Sinfóníuhljómsveitarinnar.
heida@mbl.is
OLÍUMYNDIR eftir Jón Arnar eru
nú til sýnis á Cafe Milanó og verða
þar í apríl og maí. Tiltölulega stutt er
síðan Jón hóf að nota liti í verkum
sínum en áður hafði hann eingöngu
notast við penna eða blýanta.
Cafe Milanó er opið virka daga frá
kl. 9–23.30, kl. 9–13 laugardaga og
13–18 á sunnudögum.
Myndlist
á Cafe
Milanó