Morgunblaðið - 05.04.2001, Page 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2001 33
KÓR Hjallakirkju, Loftur Erlings-
son baríton, Tryggvi Valdimars-
son drengjasópran og Lenka Mát-
éová orgelleikari flytja Sálumessu
Opus 48 eftir Gabriel Fauré í pass-
íustund í Hjallakirkju í Kópavogi í
kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.30.
Stjórnandi er Jón Ólafur Sigurðs-
son.
„Fauré byrjaði að semja verkið
árið 1887, þá 42 ára, og eftir því
sem hann ritaði sjálfur í bréfi í
mars 1910 samdi hann verkið
ánægjunnar vegna. Þó er talið
sennilegt að lát föður hans 1885
og móður hans tveim árum fyrr
hafi gefið honum hugmyndina að
tónsmíðinni,“ segir Jón Ólafur. „Á
þessum tíma var Fauré kórstjóri
og aðstoðarorganisti við Made-
leine-kirkjuna í París. Hann lauk
við fyrstu gerð verksins í árs-
byrjun 1888 og var verkið frum-
flutt undir stjórn höfundar við út-
för í Madeleine 16. janúar sama
ár. Verkið var síðan flutt við út-
farir í kirkjunni fram undir lok
aldarinnar og endurbætti hann
verkið og við ýmis tilfelli jók það
við stærri athafnir. Í janúar árið
1893 var verkið fyrst flutt þar sem
bætt hafði verið við tveimur köfl-
um, Offertorium (samið 1889) og
Libera me, þessir kaflar kröfðust
einsöngvara með barítonrödd.
Talið er að lokakafli verksins hafi
á þessum tíma verið fluttur við
annað tækifæri í Madeleine-
kirkjunni en síðar orðið fastur lið-
ur í messunni. En þessi liður hinn-
ar klassísku sálumessu er sunginn
á meðan líkið er borið úr kirkju.“
Flutt við útfarir
„Á þeim tíma sem verkið var
reglulega flutt við útfarir í Made-
leine-kirkjunni í París gerði Fauré
ýmsar aðrar breytingar, og þá
sérstaklega í hljóðfæranotkun,
hann bætti inn í hljóðfærum og
felldi einnig út hljóðfæri. Á heims-
sýningunni í París árið 1900 var
svokölluð þriðja gerð verksins
frumflutt og eftir það var verkið
gefið út í fyrsta sinn. Fauré notar
ekki hinn klassíska texta sálu-
messunnar, heldur velur úr og
hagræðir, t.d. vantar alveg kafl-
ann um Dag reiðinnar (Dies irae),“
segir Jón Ólafur.
Auk sálumessunnar verður flutt
föstutónlist eftir Edward Elgar og
J.S. Bach.
Sálumessa Faurés
flutt í Hjallakirkju
Morgunblaðið/Jim Smart
Kór Hjallakirkju, Jón Ólafur Sigurðsson og Lenka Mátéova.
Kammerkórinn
Schola cantorum við
Hallgrímskirkju í
Reykjavík heldur
kórtónleika í Akur-
eyrarkirkju nk.
laugardag kl. 17.
Tónleikarnir eru til
heiðurs Áskeli Jóns-
syni í tilefni af 90
ára afmæli hans.
Með kórnum koma
fram einsöngvarar
úr röðum kórfélaga,
þau Kristín Erna
Blöndal, sópran,
Guðrún Finnbjarn-
ardóttir, alt, og Guð-
laugur Viktorsson, tenór, ásamt
orgelleikaranum Kára Þormar.
Stjórnandi Schola cantorum er
Hörður Áskelsson. Tilefni tón-
leikanna er að Áskell Jónsson,
tónskáld og organisti, verður níu-
tíu ára í dag, 5. apríl. Hann var
um langt árabil einn
af burðarásum í tón-
listarlífi Akureyrar
sem stjórnandi
Karlakórs Akureyrar
og Kórs Lögmanns-
hlíðarkirkju, síðar
Glerárkirkju, þar
sem hann gegndi
starfi organista í
mörg ár. Áskell er
höfundur margra
sönglaga og sálma-
laga.
Tónverk flutt eftir
feðgana Áskel og
Jón Hlöðver
Á tónleikunum verða fluttir
þrír sálmar eftir Áskel, við texta
eftir Sverri Pálsson og Kristján
frá Djúpalæk. Schola cantorum
flytur tónverkið Dagsöngvar um
frið, sem Jón Hlöðver Áskelsson
samdi við texta eftir Böðvar Guð-
mundsson, en ljóð og tónlist voru
pöntuð af Tónmenntasjóði Þjóð-
kirkjunnar í tilefni kristnihátíðar-
haldanna á síðasta ári. Verkið er
samið fyrir einsöngvara, kór og
orgel og var frumflutt í Hall-
grímskirkju í janúar sl. Á fyrri
hluta efnisskrárinnar eru kórverk
við latneska texta tengda föstunni
eftir norsku 20. aldar tónskáldin
Karlssen og Nystedt. Knut Ny-
stedt er eitt viðurkenndasta tón-
skáld á sviði kirkjutónlistar á
Norðurlöndunum og eru kórverk-
in Miserere og O crux á meðal
áhrifamestu tónverka sinnar
gerðar, það fyrrnefnda er skrifað
fyrir 16 raddir, og munu kórfélag-
ar dreifa sér um kirkjuna til að
magna áhrifin af tónlistinni. Þetta
er í annað skipti sem verðlauna-
kórinn Schola cantorum frá Hall-
grímskirkju heldur tónleika í Ak-
ureyrarkirkju. Miðasala er við
innganginn.
Áskell Jónsson
Tónleikar til heiðurs
Áskeli Jónssyni níræðum
Nýbýlavegi 12,
sími 554 4433
Vor- og sumarvörunar komnar
Jakkar frá kr. 3.900
Buxur frá kr. 1.690
Pils frá kr. 1.900
Mikið úrval af kjólum
BRJÁLUÐ
RÝMINGARSA
LA...
Allar
vörur
með
50-80%
afslætti
Komdu...
Nýjar vörur Kókó Kringlunni