Morgunblaðið - 05.04.2001, Page 54
FRÉTTIR
58 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Sonne Rammstein
Butterfly Crazy Town
Man Overboard Blink 182
Last Resort Papa Roach
Road Trippin Red Hot Chili Peppers
Miss Jackson Outkast
Survivor Destiny´s Child
Dagbókin mín 3 G ´S
Shiver Coldplay
Út á lífið Lydía Grétarsdóttir
Gravel Pit Wu Tang Clan
I´m Like A Bird Nelly Furtado
Cant Fight The Moonlight LeAnn Rimes
It Wasn’t Me Shaggy
Stuck In A Moment U2
The Call Backstreet Boys
Nobody Wants To Be LonelyChristina Aguilera &
Ricky Martin
Things I Have Seen Spooks
Stan Eminem & Dido
Lítill fugl 200.000 Naglbítar
Vikan 04.04. - 11.04
http://www.danol.is/stimorol
NORDJOBB er samnorrænt verk-
efni sem miðlar sumarvinnu og
húsnæði á Norðurlöndum. Á
hverju ári fer hátt á annað hundr-
að íslenskra ungmenna á aldrinum
18-25 ára utan á vegum NORD-
JOBB.
Til að eiga kost á að fara utan á
vegum NORDJOBB þarf aðeins að
senda inn umsókn og starfsfólk
NORDJOBB á Norðurlöndum leit-
ast við að útvega umsækjendum
bæði vinnu og húsnæði. Auk þess
er þátttakendum boðið upp á viða-
mikla tómstundar- og menningar-
dagskrá. Ekkert skráningargjald.
Þátttakendur fá laun fyrir vinnu
sína sem eru eðlileg laun í því landi
sem þeir vinna en borga sjálfir
ferðir, húsaleigu og uppihald.
Enginn umsóknarfrestur er fyr-
ir NORDJOBB í ár, en áhuga-
samir eru hvattir til að leggja inn
umsókn fyrir 20. apríl. Eftir það er
erfiðara að útvega störf. Umsókn-
areyðublöð og upplýsingar fást á
vefsvæðinu www.nordjobb.net, og
einnig hjá Norræna félaginu,
Bröttugötu 3B, 101 Reykjavík,
Norrænu upplýsingaskrifstofunni
á Akureyri, í framhaldsskólum og
víðar.
Sumarvinna
á Norðurlönd-
um í boði
STURLU Böðvarssyni, samgöngu-
ráðherra, var á fimmtudag afhent
fyrsta eintak nýrrar öryggismyndar
sem Hópbílar hf. hafa framleitt til
sýninga í hópferðabílum sínum. Til-
gangur með myndbandinu er að
kynna farþegum þann öryggisbúnað
sem er um borð í hópferðabílum fyr-
irtækisins. Hópbílar voru fyrsta hóp-
ferðafyrirtækið á Íslandi til að setja
öryggisbelti í öll sæti.
Myndbandstæki er í öllum hóp-
ferðabílum Hópbíla og er öryggis-
myndin sýnd við upphaf allra ferða á
vegum fyrirtækisins. Myndin hefur
þegar verið gefin út á íslensku og
ensku en frönsk útgáfa er væntanleg.
Öryggismynd
fyrir hóp-
ferðabíla
ÓTTAR Guðmundsson geðlæknir
heldur fyrirlestur á vegum Foreldra-
félags Götusmiðjunnar um sjálfsvíg
ungs fólks fimmtudaginn 5. apríl í
húsi IOGT, Stangarhyl 4, 2. hæð. Fyr-
irlesturinn hefst klukkan 20.
Fundurinn er öllum opinn og eru
allir velkomnir. Aðgangur er ókeypis.
Fyrirlestur
um sjálfsvíg
ungs fólks
HEKLA Sigmundsdóttir, Rann-
sóknastofu Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss í ónæmisfræði, flytur
föstudaginn 6. apríl kl. 12.20 fyrir-
lestur á vegum Líffræðistofnunar
Háskólans í stofu G6 á Grensásvegi
12 með yfirskriftinni: Ónæmiskerfið
og psoriasis. Hlutverk T-eitilfrumna.
Psoriasis er langvinnur bólgusjúk-
dómur í húð sem hrjáir um 2% lands-
manna. Vitað er að sjúkdómurinn
getur byrjað eða versnað eftir sýk-
ingar af völdum beta-hemolýtískra
streptókokka. Einnig er talið að
ónæmiskerfið gegni lykilhlutverki í
myndun útbrotanna.
Fyrirlestur
um ónæmiskerf-
ið og psoriasis
FÉLAGSSKAPUR eldri borgara í
Grafarvogi, Korpúlfarnir, er stöðugt
að efla starfsemi sína. Á fjölmennum
fundi sem haldinn var í Miðgarði 15.
mars sl. var fyrsta stjórn Korpúlf-
anna kosin til að leiða starfið næsta
árið. Stjórnina skipa: Ingvi Hjör-
leifsson, Ingibjörg Árnadóttir og Ei-
ríkur Jónsson.
Á fundinum í Miðgarði voru mál-
efni aldraðra í hverfinu rædd og
margar hugmyndir komu um eflingu
félagsstarfs aldraðra í hverfinu. Þrá-
inn Hafsteinsson íþrótta- og tóm-
stundaráðgjafi var á sama fundi
kynntur sem nýr tengiliður Mið-
garðs við Korpúlfana.
Ætlunin er að Korpúlfar hittist
síðasta miðvikudag í hverjum mán-
uði í Miðgarði til loka vetrarstarfs-
ins. Tilgangurinn er að ræða málin,
spila eða hlýða á áhugaverð erindi.
Fyrsti fundur af þessu tagi var hald-
inn miðvikudaginn 28. mars sl., sá
næsti verður haldinn 25. apríl og sá
síðasti fyrir sumarfrí 30. maí.
Með aukinni og fjölbreyttari starf-
semi vonast Korpúlfarnir eftir að
fleiri eldri borgarar í hverfinu finni
eitthvað við sitt hæfi og hefji þátt-
töku í þessum jákvæða og skemmti-
lega félagsskap, segir í fréttatil-
kynningu. Allir eru velkomnir.
Kraftur í starfi eldri
borgara í Grafarvogi
Korpúlfarnir ásamt Þráni Hafsteinssyni, íþrótta- og tómstundafulltrúa.
GENGIÐ var frá stofnun stjórn-
málasambands milli Íslands og Kirg-
isíu sl. þriðjudag í New York. Und-
irrituðu Þorsteinn Ingólfsson og
Elmira S. Ibraimova, fastafulltrúar
Íslands og Kirgisíu hjá Sameinuðu
þjóðunum, samkomulag þar að lút-
andi. Tekur samkomulagið gildi frá
undirritunardegi.
BÍLALEIGA Flugleiða-Hertz
fagnaði þrjátíu ára afmæli 1. apr-
íl. Af því tilefni voru auglýstir
bílar á leigu fyrir 30 krónur. Það
var raunar ekki tekið út með
sældinni að eiga afmæli þennan
dag því margir trúðu hreinlega
ekki auglýsingunni um afmæl-
istilboðið. Flestir hringdu en fáir
þorðu að koma – og hlaupa hugs-
anlega apríl.
Einn viðskiptavinur, Sóley Hall-
dórsdóttir, trúði hins vegar til-
boði Hertz og lét reyna á það.
Hún trúði þó ekki sínum eigin
augum þegar hún komst að því að
hún fengi leigðan Toyota Land
Cruiser-jeppa á þrjátíu krónur. Á
myndinni tekur Sóley við lyklum
að jeppanum úr hendi Inga Berg-
þórssonar, starfsmanns Bílaleigu
Flugleiða-Hertz.
Í tilefni af afmælinu býður Bíla-
leiga Flugleiða-Hertz bíla á
kostakjörum í afmælisviku Hertz,
dagana 1.–8. apríl nk.
Í upphafi starfsemi fyrirtæk-
isins voru til leigu 45 gular Volks-
wagen-bjöllur – í sumar verða
600 Toyotur í bílaflotanum. Er
það þrettánföld aukning á þrjátíu
árum.
Bílaleiga Flugleiða-Hertz 30 ára
Leigði Land Cruiser
á 30-kall yfir daginn
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦