Morgunblaðið - 05.04.2001, Qupperneq 63
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2001 67
Jakkar frá 1.900
Buxur - 500
Peysur - 990
Bolir - 500
Gallabuxur - 1.900
Toppar - 500
Dragtir - 5.800
Jakkaföt - 9.500
Fermingaföt - 50%
Skór - 500
Bretta skór - 2.400
o.fl.
OUTLET 10
+++merki fyrir minna+++
Faxafeni 10, s. 533 1710
Opið mán.-fös. 12-18, lau. 11-16
OUTLET 10
+++merki fyrir minna+++ 50-80% lægra verð
Ný sending
af fatnaði frá
GERÐU GÓÐ KAUP
MERKJAVARA
TÍSKUFATNAÐUR
eva
SMASH
Bundið slitlag
Vesturgötu 2, sími 551 8900
Bergþ
ór (Blú
smenn
)
Georg
Bjarna
sonJó
n
IJón In
driðas
on
Hljómsveitin
Í kvöld
ÞAÐ ER dálítið furðuleg en jafn-
framt stórskemmtileg staðreynd að
þegar ég loksins fékk þennan geisla-
disk í hendurnar var ég þegar búinn
að renna honum óteljandi oft í gegn.
Svo er nefnilega mál með vexti að á
sínum tíma var ég einn þeirra sem
hefði hlaupið til og keypt hvað sem
Pixies léti frá sér, jafnvel þótt Black
Francis, höfuðpaur sveitarinnar,
hefði tekið upp á því að lesa upp-
áhaldsuppskriftir sínar úr mat-
reiðslubók Elvis Presleys og gefa út
á plasti við píanóundirleik Clay-
dermans. Maður á þannig allar þess-
ar smáskífur Pixies (sem eru reynd-
ar ekki svo ýkja margar) auk haugs
af óhlustanlegum og ólöglegum tón-
leikaplötum. Það er mér því mikið
gleðiefni að nú séu allir þessir földu
fjársjóðir Pixies fáanlegir þeim sem
hefur þótt eitthvað vanta í líf sitt frá
því að þessi einstaka sveit leystist
upp í eintóma vitleysu á sínum tíma.
Nafn geislaplötunnar gefur hlust-
andanum ágætis hugmynd um hvað
er í vændum, Complete b sides heitir
hún og hefur að geyma öll þau Pixi-
es-lög sem voru að finna á smáskíf-
um sveitarinnar en ekki á breiðskíf-
unum.
Allar plötur Pixies voru óvenju heil-
steyptar. Þessi er það hins vegar
ekki, af skiljanlegum ástæðum.
Það er frekar nauðsynlegt að aðdá-
endur sveitarinnar átti sig á því áður
en þeir hlaupa út í búð, skjálfandi af
tilhlökkun, að þetta eru þau lög sem
þóttu ekki nægilega góð til þess að
komast á plöturnar og bera þess
vissulega merki. Það eru þó nokkur
stórglæsileg lög þarna. Þau eru í
rauninni merkilega mörg ef maður
miðar þessa útgáfu við aðrar sam-
bærilegar.
Eftir fremur misheppnaða endur-
upptöku af Surfer Rosa-laginu
„River Euprathes“ koma tvær tón-
leikaupptökur, þ.á m. er stór-
skemmtileg útgáfa af David
Lynch-laginu „Heaven (woman in
the radiator song)“ sem var upp-
haflega að finna í mynd hans Eras-
erhead (sama lag og Bang Gang tók
upp á sína arma á einu plötu þeirra).
Aukalögin á þeim tveimur smáskíf-
um sem komu út í kjölfar Doolittle-
breiðskífunnar bera öll með sér vott
um neistann sem var að finna á
þeirri plötu. Einföld, stutt og fárán-
lega smitandi lög sem ættu undir öll-
um venjulegum kringumstæðum að
framkalla einhver ögrandi viðbrögð
frá hlustandanum, nema að sá hinn
sami væri dauður, heyrnarlaus eða
bæði.
Þar standa lögin „Into the White“,
„Dancing the Manta Ray“ og hin
stórskemmtilega endurgerð af Doo-
little-laginu „Wave of Mutilation“
sem rennur í gegn eins og kvikmynd
af brimbrettakappa í öldugangi,
sýnd hægt.
Því lengra sem leið á feril hljóm-
sveitarinnar varð alltaf minna og
minna varið í aukalögin. Til að
mynda er „Make Believe“, sem er
ástaróður trommarans til barna-
stjörnunnar horfnu Debbie Gibson,
með því slappara sem þessi hljóm-
sveit gerði á sínum ferli. Ég hef
ákveðið að fyrirgefa hljómsveitinni
þetta feilspor og vil bara helst ekki
heyra það eða á það minnst oftar.
Því eldri sem hljómsveitin varð því
fleiri tökulög fór hún að bjóða upp á
fyrir aukalög, með misjöfnum ár-
angri. Helst er þar að nefna ynd-
islega útgáfu á Neil Young-laginu,
„Winterlong“ sem er að mínu mati
eitt af þeim fáu skiptum sem ein-
hverjum tekst betur til við flutning-
inn en lagahöfundinum sjálfum.
Annað tökulag sem stendur upp úr
var upphaflega að finna í tölvu-
leikjaspilakassanum Narc. Þau fara
hins vegar ekki eins vel með Yard-
birds-lagið „Evil Hearted You“ og
annað Neil Young-lag „I’ve Been
Waiting For You“.
Ég get ómögulega ímyndað mér að
nokkur Pixies-aðdáandi verði fyrir
vonbrigðum með þessa plötu ef hann
kemur rétt að henni. Aðrir geta þó
andað áfram rólega þótt hún fari
fram hjá þeim. Sem sagt, ekkert
meistaraverk þótt þetta sé vissulega
verk unnið af meisturum.
ERLENDAR
P L Ö T U R
Birgir Örn Steinarsson,
gítarleikari og söngvari
Maus, fjallar um Complete
’b’ sides safn aukalaga
hljómsveitarinnar Pixies.
Týndu smáálfalögin
Fáar sveitir hafa haft eins mikil
áhrif á rokktónlist samtímans
og Pixies.