Morgunblaðið - 26.04.2001, Page 24
LANDIÐ
24 FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Aðalfundur
Ferðamálasamtaka Íslands 2001
verður haldinn á Hótel Flúðum
3. og 4. maí 2001
Dagskrá fundarins
Fimmtudagur 3. maí:
Kl. 13.00 Afhending gagna.
Kl. 13.30 Setning - Pétur Rafnsson, formaður FSÍ.
Kl. 13.40 Aðalfundarstörf skv. lögum.
Kl. 15.00 Kaffihlé.
Kl. 15.30 Aðalfundi framhaldið.
Kl. 17.30 Skoðunarferð á Flúðum.
Kl. 20.00 Kvöldverður.
Föstudagur 4. maí:
Kl. 9.30 Þáttur sýninga í markaðssetningu.
Jón Hákon Magnússon,
framkvæmdastjóri KOM.
Kl. 10.50 Verkefni Upplýsingamiðstöðvar og
markaðssetning svæða.
Davíð Samúelsson, forstöðumaður
Uppl.miðstöðvar Suðurlands.
Kl. 11.00 Menntun í ferðaþjónustu.
Hildur Jónsdóttir, landfræðingur
Kl. 12.00 Fundarslit.
Skráning á fundinn og bókun herbergja er á
Hótel Flúðum í síma 486 6630
eða á netfang: fludir@icehotel.is
Framkvæmdastjórn FSÍ.
Selfossi - Vel sótt námskeið fyrir al-
menning í bíltækjaísetningum var
haldið á Selfossi fyrir skömmu.
Námskeiðið var mjög vel sótt og
sýndi fólk verkefninu mikinn áhuga
en alls mættu 30 manns. Starfs-
menn Árvirkjans á Selfossi héldu
námskeiðið í samstarfi við Aukaraf.
Að sögn Þóris Tryggvasonar hjá
Árvirkjanum og Ásgeirs Arnar
Rúnarssonar hjá Aukarafi, sem
stýrðu námskeiðinu, voru tveir sýn-
ingarbílar notaðir til að kynna fólki
verklega þáttinn og var greinilegt
að margir þurftu á leiðbeiningum
fagmannanna að halda. Þeir sögðu
einnig að fyrirhugað væri að halda
slíkt námskeið á næstunni í Reykja-
vík og á Akureyri.
Áhugi fyrir
bíltækja-
ísetningum
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Námskeiðsfólk sýndi sýningarbílunum mikinn áhuga.
Akranesi - Símenntunarstöðin á
Vesturlandi útskrifaði á dögunum
31 nemanda í grunnnámi fyrir
stuðnings- og meðferðarfulltrúa
sem vinna með fötluðum.
Símenntunarmiðstöðin á Vestur-
landi hafði umsjón með náminu í
samstarfi við Svæðisskrifstofu mál-
efna fatlaðra á Vesturlandi, Starfs-
mannafélag ríkisstofnana og
Starfsmannafélag Snæfells- og
Dalasýslu í samstarfi við Svæðis-
skrifstofu málefna fatlaðra á Vest-
urlandi Námið hófst í september sl.
og var 160 stunda kennsla. Þátt-
takendur voru frá Akranesi, Borg-
arnesi, Hellisandi, Grundarfirði og
Patreksfirði og var kennt ýmist á
Akranesi eða Borgarnesi og voru
fyrirlestrarnir sendir út um fjar-
menntabúnað til Grundarfjarðar og
Patreksfjarðar. Í lokin kom allur
hópurinn saman á Akranesi og
fékk þjálfun í markvissu tóm-
stundastarfi áður en útskrift fór
fram. Alls kenndu 15 kennarar
ýmsar námsgreinar og má þar
nefna: sjálfsstyrkingu, stjórnsýslu-
fræði, siðfræði, heilbrigðisfræði,
erfðafræði og sálfræði.
Framkvæmdastjóri Símenntun-
arstöðvar Vesturlands er Inga Sig-
urðardóttir á Akranesi.
Allur hópurinn samankominn í lok útskriftar ásamt Magnúsi Þorgrímssyni og Ingu Sigurðardóttur.
Útskrift úr
grunnnámi
stuðnings-
fulltrúa
Jóhanna Þórdórsdóttir frá Starfsmannafélagi ríkisstofnana, Magnús
Þorgrímsson, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á
Vesturlandi, og Inga Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Símenntunar-
miðstöðvarinnar, afhenda skírteini og blóm.
NÆSTU tvær helgar standa Garðyrkjuskólinn og
Skógrækt ríkisins fyrir námskeiðnu „Að lesa í skóg-
inn og tálga í tré“. Fyrra námskeiðið verður haldið í
Vestmannaeyjum, 27.–29. apríl og það síðara á Laug-
arvatni 4.– 6. maí. Námskeiðin hefjast kl. 17:00 á
föstudeginum og lýkur kl. 15:00 á sunnudeginum,
alls 20 klukkustundir. Leiðbeinendur verða Guð-
mundur Magnússon, smíðakennari á Flúðum, og
Ólafur Oddsson, starfsmaður Skógræktar ríkisins.
Unnið verður með ferskan við beint úr skógi,
kenndar gamlar handverksaðferðir þar sem exi og
hnífar eru notuð, lesið í eiginleika viðarins og fjöl-
breytt notagildi hans og fjallað um geymslu og
þurrkun, svo eitthvað sé nefnt. Skráning og nánari
upplýsingar fást á skrifstofu skólans eða í gegnum
netfangið mhh@reykir.is
Að lesa í skóginn
og tálga í tré
Menningarmið-
stöð Hornafjarðar
tekur til starfa
Á OPNUM fundi um menningarmál
sem menningarmálanefnd Horna-
fjarðar hélt í Pakkhúsinu á Höfn sl.
laugardag var tilkynnt að Menning-
armiðstöð Hornafjarðar hefði tekið
til starfa.
Aðdraganda þessa atburðar má
rekja til þess að árið 1990 var öll
menningarstarfsemi sveitarfélag-
anna í Austur-Skaftafellssýslu sam-
einuð í nýja stofnun; Sýslusafn Aust-
ur-Skaftafellssýslu. Frá þeim tíma
hefur stofnunin verið að eflast og
dafna og rekur nú viðamikla menn-
ingarstarfsemi á fjölmörgum sviðum
í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Á grundvelli stefnumótunar í
menningar- og safnamálum Horna-
fjarðar sem var samþykkt í bæjar-
stjórn Hornafjarðar 1. mars 2001 var
heiti stofnunarinnar breytt í Menn-
ingarmiðstöð Hornafjarðar. Tók
nafnbreytingin formlega gildi 21.
apríl sl. eins og áður sagði.
Lestur passíusálmanna
Búðardal - Á föstudaginn langa var
lestur Passíusálma Hallgríms Pét-
urssonar í Hjarðarholtskirkju.
Voru allir sálmarnir lesnir og var
byrjað klukkan hálftvö og stóð
lesturinn til rúmlega fimm. Les-
arar voru nokkrir, þau Víví Krist-
óberts, Melkorka Benediktsdóttir,
Þrúður Kristjánsdóttir, sr. Óskar
Ingi Ingason og flest þau börn sem
eiga að fermast í vor, þ.e. Anna
Rósa Guðmundsdóttir, Birgitta Ýr
Sævarsdóttir, Eggrún Thorlacius,
Gyða Lind Gunnólfsdóttir, Heiðrún
Harpa Bæringsdóttir, Ingibjörg
Jónasdóttir og Sólveig Rós Jó-
hannsdóttir. Gestir komu og fóru,
eins og þeim hentaði, en nokkrir
sátu allan tímann og hlýddu á lest-
urinn. Lilja Sveinsdóttir lék á org-
el á milli lestra. Þetta er í þriðja
sinn sem Passíusálmarnir eru lesn-
ir hér í heild sinni og hefur það
mælst vel fyrir.
Hjarðarholtskirkja
Flísar
og
parketBorgartúni 33, Reykjavík • Laufásgötu 9, Akureyri