Morgunblaðið - 27.04.2001, Page 1
MIKIL óvissa er í stjórnmálum
Úkraínu eftir að kommúnistar og
flokkar hliðhollir auðjöfrunum í
landinu sameinuðust um að bola burt
umbótasinnanum Viktor Júsht-
sjenko, forsætisráðherra landsins,
og allri ríkisstjórn hans. Þing Evr-
ópuráðsins frestaði þó í gær fram í
júní atkvæðagreiðslu um að reka rík-
ið úr ráðinu vegna skorts á borgara-
legum og lýðræðislegum réttindum.
Allt að 15.000 manns komu saman
í gær úti fyrir þinghúsinu til að lýsa
yfir stuðningi við Júshtsjenko og
krefjast afsagnar Leoníds Kútsjma
forseta. Er hann sakaður um spill-
ingu, meðal annars um að hafa fyr-
irskipað morð á blaðamanni, og
margir telja, að vantraustið á Júsht-
sjenko sé runnið undan rifjum hans.
Studdu það kommúnistar, sem eru
andvígir efnahagsumbótum Júsht-
sjenkos, til dæmis einkavæðingu í
landbúnaði, og úkraínsku auðjöfr-
arnir en þeir telja hagsmunum sín-
um ógnað með nýrri skipan í efna-
hagsmálunum.
Þing Evrópuráðsins ætluðu að
ræða í gær tillögu frá eftirlitsnefnd
ráðsins um að Úkraínu yrði vikið úr
því vegna skorts á að mannréttindi
væru virt en ákveðið var að fresta at-
kvæðagreiðslunni fram í júní. Töldu
margir, að brottrekstur nú myndi
aðeins gera illt verra.
Efnahagsumbætur Júshtsjenkos
voru farnar að skila árangri en óttast
er, að nú muni allt sækja í gamla far-
ið. Víst er, að Alþjóðagjaldeyrissjóð-
urinn mun ekki taka aftur til við lán-
veitingar til Úkraínu og erlendir
fjárfestar eru að flýja landið.
Reuters
Allt að 15.000 manns komu saman fyrir utan þinghúsið í Kíev í gær til að lýsa yfir stuðningi við umbótasinnann Viktor Júshtsjenko forsætisráðherra.
Umbótaöflin urðu undir
Kíev. AP, AFP, Reuters.
Kommúnistar/28
Óvissa er í stjórnmálum Úkraínu eftir að forsætisráðherranum var bolað frá
AP
ÁÐUR en röðin kom að kálfinum
Fönix breytti brezka ríkisstjórnin
fjöldaslátrunarstefnu sinni til að
hamla gegn útbreiðslu gin- og
klaufaveiki. Hér heldur hinn ell-
efu ára gamli Ross Board utan um
Fönix á bóndabæ foreldra sinna í
Membury á Suðvestur-Englandi í
gær, en öllum nautgripum á bæn-
um var slátrað – nema þessum
eina hálfs mánaðar gamla kálfi,
sem slapp með óútskýrðum hætti
og var gefið nafn eftir goðsagna-
fuglinum sem reis úr ösku.
Slakað á
fjöldaslátrun
94. TBL. 89. ÁRG. FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 27. APRÍL 2001
Í andrúmslofti, sem þegar var
spennu hlaðið vegna deilu um njósna-
flug Bandaríkjahers undan ströndum
Kína, spöruðu talsmenn Kínastjórnar
ekki stór orð er þeir brugðust við um-
mælum sem George W. Bush Banda-
ríkjaforseti lét falla í fjölmiðlum á
miðvikudag þar sem hann tók af allan
vafa um vilja bandarískra stjórnvalda
til að verja Taívan fyrir hvers konar
ásælni af hálfu kommúnistastjórnar-
innar í Peking. Hún álítur Taívan
vera kínverskt hérað sem eigi að vera
stjórnað frá Peking.
Í nafni friðarins
Zhang Qiyue, talsmaður kínverska
utanríkisráðuneytisins, sagði í gær
að ummæli Bush sýndu að Bandarík-
in hefði „hrakið lengra inn á hættu-
lega braut“. En viðbrögð Kínastjórn-
ar gáfu þó til kynna að hún kærði sig
ekki um að magna vandann frekar en
orðið væri.
Háttsettir talsmenn Bandaríkja-
stjórnar reyndu einnig að draga úr
alvöru málsins. „Orð og gerðir forset-
ans eru hugsuð til að hjálpa til við að
tryggja friðinn,“ sagði Ari Fleischer,
talsmaður Hvíta hússins.
„Við erum að gera það sem við telj-
um að sé nauðsynlegt til að halda
samskiptunum [við Kína] árangurs-
ríkum,“ hefur Reuters eftir öðrum
erindreka Bandaríkjastjórnar.
C.J. Chien-jen, sendifulltrúi Taí-
vanstjórnar í Washington, sagði í
gær að ummæli Bush sendu skýr
skilaboð til Peking um að núverandi
valdhafar í Washington tækju meira
afgerandi afstöðu en fyrirrennarar
þeirra.
Deilan um varnir Taívans
Reyna að bera
klæði á vopnin
Washington. Reuters.
ÞÓTT enn féllu hörð orð reyndu í gær talsmenn stjórnvalda í Kína, Taívan og
Bandaríkjunum að bera klæði á vopnin í harðvítugri deilu sem geisað hefur
undanfarna daga um áformaða sölu hergagna frá Bandaríkjunum til Taívans.
TALSMAÐUR Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, IMF, sagði í gær, að veru-
lega hefði hægt á hagvexti í heiminum
og því yrði hann ekki nema 3,2% á
árinu. Samt væri ólíklegt, að um
meiriháttar samdrátt yrði að ræða.
Michael Mussa, einn af yfirmönn-
um IMF, sagði, að meira hefði dregið
úr hagvexti en áður hefði verið spáð
og eins og nú horfði yrði hann 3,2% til
jafnaðar í efnahagslífi heimsbyggðar-
innar en hann var 4,8% á síðasta ári.
Ekki væri þó líklegt, ekki í svip að
minnsta kosti, að mikill samdráttur
væri framundan. Sagði hann, að
framhaldið réðist af þróuninni í
Bandaríkjunum og Evrópu og af um-
bótum í japönsku efnahagslífi.
Mussa sagði bandaríska seðlabank-
ann hafa brugðist rétt við ástandinu
með miklum vaxtalækkunum en
tregða evrópska seðlabankans til að
lækka vexti væri hins vegar dragbítur
á aukin umsvif um allan heim.
Talið er, að hagvöxtur í Bandaríkj-
unum verði aðeins 1,5% í ár, var 5% í
fyrra, og í Evrópusambandinu er útlit
fyrir 2,4% hagvöxt í stað 3,4%.
Verulega
hægir á
hagvexti
Washington. AFP.
FULLYRÐINGAR Steve Tshwete,
öryggismálaráðherra Suður-Afríku,
um að þrír þekktir menn hafi lagt á
ráðin um að steypa forseta landsins,
Thabo Mbeki, af stóli hafa valdið
mikilli ólgu innan Afríska þjóðar-
ráðsins (ANC), flokks forsetans.
Tshwete heldur því fram að við-
skiptajöfurinn Cyril Ramaphosa og
tveir aðrir fv. forystumenn í ANC,
Tokyo Sexwale og Mathew Phosa,
hafi staðið fyrir ófrægingarherferð á
hendur forsetanum.
Ásakanir
valda ólgu
London. AFP.
Suður-Afríka
Aðalræðismaður/4
Flugrán
í Eþíópíu
Kartúm. AP, AFP.
NÍU námsmenn frá eþíópísku höfuð-
borginni Addis Ababa, vopnaðir
handsprengjum og skammbyssum,
rændu í gær flugvél Eþíópíuhers með
50 farþega innanborðs, og þvinguðu
áhöfnina til að fljúga henni til Kart-
úm, höfuðborgar Súdans. Að sögn
Ghazi Salah Eddine Atabani, upplýs-
ingamálaráðherra Súdans, seint í
gærkvöldi báðu flugræningjarnir um
að fá pólitískt hæli í Súdan. Atabani
greindi frá þessu eftir að súdanska
sjónvarpið flutti þær fréttir, að einn
ræningjanna hefði yfirgefið flugvél-
ina til samningaviðræðna við súdönsk
yfirvöld um lausn gíslanna. Munu
flugræningjarnir m.a. hafa farið fram
á að fá að ræða við fulltrúa sendiráða
Bretlands og Bandaríkjanna.
Eftir að flugvélinni var lent í Kart-
úm fengu ellefu farþegar, allt konur
og börn, að fara frá borði.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦