Morgunblaðið - 27.04.2001, Blaðsíða 16
AKUREYRI
16 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÁRGANGUR ´54 AKUREYRI
Gagnfræðingar - stúdentar og aðrir
19. maí er dagurinn
Þá ætlar árgangurinn að hittast á Akureyri og eyða saman degi
og nótt (Bátsferð, dagur, ball - nótt)
Allir hvattir til að mæta. Síðast (´96) fengu færri en vildu
Vinsamlega tilkynnið þátttöku.
Habbi 462 4976
Ingveldur 462 2912
Jón Lár 462 5191
Kittý 461 1814
Magga Á. 461 5510
Steina Sig. 462 4521
Blaðbera
vantar
• Skerjafjörður
Upplýsingar fást í síma
569 1122
Hjá Morgunblaðinu starfa um 600 blaðberar á
höfuðborgarsvæðinu
í Teigahverfi
og Huldugil á Akureyri
•
Blaðburður verður að hefjast um
leið og blaðið kemur í bæinn.
Góður gö gutúr sem borgar sig!
Morgunblaðið, Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Sími 461 1600
27.-28. apríl, föstudags- og laugardagskvöld
STJÖRNUDANSLEIKUR
Danshljómsveit
Friðjóns Jóhannssonar
A
k
u
r
e
y
r
i
UNNIÐ hefur verið af kappi við að búa keppn-
isbrautir vegna alþjóðlega snjókrossmótsins sem
haldið verður í Ólafsfirði á morgun, laugardag og í
því skyni hefur snjó verið ekið úr fjöllum og inn í
miðbæinn.
Auk íslensku keppendanna taka þátt þekktir snjó-
krossmenn frá Rússlandi, Bandaríkjunum og Nor-
egi, en finnskur ökuþór sem hugðist taka þátt í
keppninni forfallaðist á síðustu stundu. Gestirnir
eru flestir í hópi tíu bestu snjókrossökumanna í sín-
um heimalöndum.
Mótið hefst kl. 13 á morgun, en því lýkur með
grillveislu og um kvöldið verður vegleg flugeldasýn-
ing og dansleikur í Tjarnarborg.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Snjó er nú mokað af miklu kappi inn í miðbæ Ólafsfjarðar þar sem alþjóðlegt snjókrossmót fer fram á morgun.
Snjókrossbrautir búnar til í Ólafsfirði
PÁLL Ólafsson, íþrótta- og æsku-
lýðsfulltrúi í Ólafsfirði, tók einnig
við stöðu ferðamálafulltrúa bæjar-
ins síðastliðið haust, en þá var gerð
sú breyting á starfi hans að hann
gegnir nú hálfri stöðu ferðamála-
fulltrúa á móti hálfri stöðu íþrótta-
og tómstundafulltrúa.
Páll vinnur nú að því að und-
irbúa helstu viðburði sumarsins en
þar er af nógu að taka. Meðal at-
burða má nefna, Nikulásarmótið í
knattspyrnu yngri flokka, Jóns-
messubrennu, Blúshátíð verður í
lok júní og Berjadagar í ágúst svo
eitthvað sé nefnt, en Páll sagði
þessa viðburði draga til sín fjölda
gesta.
Að sögn Páls er nú verið að end-
urprenta bæklinginn „Gönguleiðir
í Ólafsfirði“ eftir Björn Þór Ólafs-
son og skipuleggja í samvinnu við
skíðadeild Leifturs gönguferðir um
Ólafsfjörð í sumar.
Af ýmsu fleiru er að taka því
fyrirhugað er að halda stór golf-
mót í sumar og eins verður
Tröllaskagatvíþrautin á sínum stað
auk margvíslegra annarra atriða
sem tengjast útivist, íþróttum og
menningu. „Með samstilltu átaki á
Ólafsfjörður mikla möguleika bæði
sem vetrarparadís og eins sem úti-
vistar- og fjölskylduævintýrastað-
ur á sumrin,“ sagði Páll, en hann
sagði Ólafsfjörð hafa jákvæða
ímynd sem íþróttabær og útivist-
arstaður.
Að veiða ferðamenn
Mikið hefur verið unnið að kynn-
ingarmálum og sagði Páll það starf
nú að skila sér. Hann sagði mark-
miðið að fylla bæinn af ferðamönn-
um og reyna að skapa sem flest
störf í tengslum við ferðaþjónustu,
en aðalatriðið varðandi það væri að
menn væru samstilltir og sam-
stiga.
„Ólafsfirðingar hafa verið miklir
aflakóngar og nú er kominn tími til
að veiða ferðamenn. Við erum með
ágætis veiðarfæri og fína beitu; nú
er bara að ýta úr vör, halda á réttu
miðin og draga inn í sameiningu,“
sagði Páll.
Ferðamálafulltrúi hefur starfað
í Ólafsfirði frá því síðasta haust
Fjölmargir við-
burðir á dag-
skrá í sumar
Morgunblaðið. Ólafsfirði.
SNJÓKARLINN Snæfinnur
sem jafnan prýðir Ráðhústorg-
ið á Akureyri um páskana var
jafnaður við jörðu í gærmorg-
un, en óhætt er að segja að
hann hafi þá verið orðinn ansi
óhrjálegur og saddur lífdaga.
Þrír ungir piltar sáu sér leik á
borði að göslast aðeins í snjón-
um sem lá yfir torginu þegar
Snæfinnur var allur. Þetta voru
þeir Pétur Þorri og bræðurnir
Arnar og Bjarki sem lögðu sitt
af mörkum til að hjálpa sólinni
að breyta snjókarlinum í vatn.
Að baki þeim sátu þrír eldri
heiðursmenn á bekk og fylgd-
ust með aðförunum.
Snæ-
finnur
allur
Morgunblaðið/Margrét Þóra
LAUFÁSPRESTAKALL:
Sameiginlegur kirkjuskóli fyr-
ir allt prestakallið verður í
Laufási á sunnudag, 29. apríl,
kl. 11.
Farið verður í leiki og grill-
að. Kyrrðarstund verður í
Grenivíkurkirkju á mánudags-
kvöld, 30. apríl, og hefst hún
kl. 21.
Kirkjustarf
VERKMENNTASKÓLINN og
Háskólinn á Akureyri hafa skrifað
undir samstarfssamning við Ný-
herja um frekari fartölvuvæðingu
skólanna. Í samningnum er m.a.
fólgið að skólarnir, nemendur
þeirra, kennarar og annað starfs-
fólk gefst kostur á að kaupa eða
leigja fartölvur á hagstæðu verði
auk þess sem Nýherji leggur til
búnað til þess að koma á örbylgju-
sambandi í skólunum.
Í Verkmenntaskólanum verða í
þessu skyni settir upp 13 sendar
sem tryggja munu að tölvunotend-
ur geti verið í örbylgjusambandi
við net skólans hvar sem þeir eru
staddir í hinu 12.000 fermetra hús-
næði hans.
Einnig er gert ráð fyrir því að
örbylgjusamband verði á milli
skólanna tveggja og innan ekki
langs tíma geti jafnvel bæði starfs-
menn og nemendur þeirra verið
tengdir örbylgjusambandi við net
skólanna frá heimilum sínum á Ak-
ureyri.
Í dag, föstudaginn 27. apríl,
verður Nýherji með kynningu á
fartölvum fyrir nemendur og
kennara VMA í Gryfjunni kl. 09–
12.
Verkmenntaskólinn á Akureyri,
Háskólinn á Akureyri og Nýherji
Samstarf um far-
tölvuvæðingu og
örbylgjusamband
KÓR félags eldri borgara á Ak-
ureyri og Kór eldri borgara í Hafn-
arfirði halda sameiginlega tónleika í
Akureyrarkirkju á morgun, laug-
ardaginn 28. apríl, og hefjast þeir
kl. 17.
Stjórnandi Akureyringanna er
Guðjón Pálsson en Guðrún Ás-
björnsdóttir stjórnar Hafnfirðing-
um.
Söngskráin er fjölbreytt og taka
kórarnir fjölda laga, bæði einir sér
og svo saman í lokin.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
Eldri borg-
arar syngja
♦ ♦ ♦