Morgunblaðið - 27.04.2001, Blaðsíða 68
ÞÁ ER hún kominn út á
geisladiski, tónlistin fjör-
lega úr barna- og fjölskyldu-
leikritinu Móglí sem Borg-
arleikhúsið hefur sýnt í
vetur við góðar undirtektir.
Það er fullt af sönglögum í
sýningunni en heiðurinn af
þeim á Óskar Einarsson, mik-
ill og margreyndur leik-
húsmaður, sem hvað frægastur er fyrir
skemmtilega hluti sem hann hefur gert fyrir
gospeltónlist í landinu.
Höfundur leikgerðarinnar á þessari margfrægu
skáldsögu Kiplings Skógarlífi er Illugi Jökuls-
son en hann hann samdi einmitt nokkra söng-
texta við lög Óskars.
ÉG hélt að hljómsveitin Aerosmith
væri útbrunnin. Flestir héldu að
Aerosmith væri útbrunnin! Hljóm-
sveitin hefur gefið út fleiri plötur en
nokkur maður nennir að telja upp og
meðlimir hennar hafa tekið inn meira
af eiturlyfjum en Rolling Stones. Þeir
ætla sér bara ekki að gefast upp.
Hljómsveitin var stofnuð í Boston
árið 1970. Í upphafi var þeim gjarnan
líkt við Rolling Stones enda söngv-
ararnir Steven Tyler og Mick Jagger
ekki með ólíkan munnsvip. En þeir
sóttu einnig talsvert í glyshljómsveit-
ir þess tíma, s.s. The New York Dolls.
Fljótlega varð þó ljóst að hér voru á
ferðinni frumlegir tónlistarmenn sem
áttu eftir að hafa mikil áhrif á þróun
rokktónlistar. Hljómsveitin var dug-
leg að spila og ferðaðist um Bandarík-
in þver og endalöng. Plöturnar tóku
að seljast og best seldist Toys In The
Attic (1975). Frægðin tók sinn toll og
árið 1979, eftir erfið tónleikaferðalög
og enn erfiðari eiturlyfjapartý, yfir-
gaf Joe Perry bandið og ári síðar
hvarf Brad Whitford á braut. Eftir
frekar misheppnað tímabil án þeirra
Perry og Whitford mættu félagarnir
aftur á svæðið og hljómsveitin fór í
endurvakningartónleikaferð 1982
sem sýndi enn frekar að bandið væri
best geymt í minningunni.
Lítið fór fyrir Aerosmith næstu ár-
in og meðferðarstofnanir voru þeirra
annað heimili. Það var síðan árið 1986
að Run D.M.C. ákvað að gera rapp/
rokk útgáfu af laginu „Walk This
Way“ og fékk þá félaga Perry og Tyl-
er með sér. Lagið rauk upp listana og
myndbandið fékk gríðarlega spilun á
MTV. Geffen, ungt útgáfufyrirtæki,
áttaði sig fyrst á möguleikunum og
gerði samning við eiturhreinsaða og
ferska Aerosmith. Árið 1987 kom
platan Permanent Vacation og seldist
platan gríðarvel. Tveimur árum síðar
kom platan Pump og Aerosmith voru
aftur komnir á toppinn. Enn kom út
metsöluplata árið 1993 og nefndist
hún Get A Grip. En eftir útkomu
safnplötunnar Big Ones (1994) tók að
halla undan fæti. Þeir skrifuðu undir
risasamning við Columbia Records
og voru þar með orðnir eign iðnaðar-
ins. Þeir áttu lög í risamyndum á borð
við Armageddon en notuðust nær
eingöngu við lagasmíðar annarra
(iðnaðarbragurinn „Don’t Wanna
Miss A Thing“ telst þeim ekki til
tekna).
Eftir hræðilega plötu árið 1997,
Nine Lives, bjóst maður einhvern
veginn ekki við því að Aerosmith gæti
gefið út góða plötu hvað þá gott lag.
En með nýjustu plötunni Just Push
Play kveður við gamlan, viðkunnan-
legan tón. Aerosmith skila hér af sér
meistarastykki sem gefur þeirra
bestu plötum ekki tommu eftir.
Hljómdiskurinn byggir aðallega á
kröftugum rokklögum með sterkum
laglínum og enn sterkari viðlögum –
ekta Aerosmith. Þeir hafa þó greini-
lega orðið fyrir áhrifum frá Run
D.M.C. þarna um árið því á plötunni
henda þeir fram ofurlítilli rapphrynj-
andi sem skilar sér í einu af bestu lög-
um plötunnar, „Outta Your Head“.
Segja má að þeir séu sligaðir af
reynslu og sæki því hugmyndir sínar í
hinar og þessar tónlistarstefnur en á
þessari plötu tekst verulega vel að
blanda ólíkum stefnum og straumum
saman. Lagið „Jaded“ er eitt af betri
lögum plötunnar og ætti að vera fólki
vel kunnugt enda mikið spilað á öld-
um ljósvakans um þessar mundir.
Síðan eru það ballöðurnar sem Aeros-
mith er svo þekkt fyrir. Flest allar
ballöður þeirra síðan 1993 hafa
byggst upp á sama hljómagangi en nú
er frumlegheitunum fyrir að fara og
er það vel. Engin plata Aerosmith síð-
an Pump hefur búið yfir jafn mörgum
góðum lögum og þessi. Látið ekki
bleikt geisladiskahulstrið hræða ykk-
ur í burtu frá góðum grip og kaupið
Just Push Play strax!
Upprisa
Aerosmith
Þráinn Árni ráðleggur fólki að láta bleikt umslag nýjustu afurðar Aerosmith ekki hræða sig frá góðum grip.
ERLENDAR
P L Ö T U R
Þráinn Árni Baldvinsson,
tónlistarmaður, fjallar um
nýjasta grip Aerosmith,
Just Push Play
FÓLK Í FRÉTTUM
68 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ ætti að verða
þýsku rosarokk-
urunum í Ramm-
stein bæði ljúft og
skylt að heim-
sækja landann
þann 15. júní
næstkomandi því
að nýja platan
þeirra, Mutter,
trónir enn á toppi
Tónlistans, þriðju vikuna í röð. Eins og fram
hefur komið á síðum þessa blaðs ætlar sveitin
að marsera í fullum skrúða inn í Laugardals-
höllina um miðsumar og drekkja gestum í
massaþungu gítarstefsrokki eins og það gerist
best. Þess má geta að um þessar mundir er í
gangi skoðanakönnun á mbl.is, Fólkshlut-
anum, hvar fólk er spurt að því hvernig því lítist
á að hin fornfræga og alíslenska ofsarokksveit
Ham hiti upp fyrir Þjóðverjana. Ekki væri það nú
handónýtur pakki ef af yrði!
Íslandsvinir!
SVEITATÓNLISTIN er farin að
njóta sannmælis. Hverjum
hefði nú dottið það í hug fyrir
einhverjum árum! Þetta er
sannarlega fagnaðarefni
enda margt gott að finna þar
sem annars staðar. Það
mætti kannski segja að
Shania Twain hafi rutt braut-
ina fyrir nýfengnar vinsældir
poppaðrar sveitatónlistar;
viðlíka þeirri sem hin 19 ára
gamla LeAnn Rimes flytur, en
hún fer beint í sjötta sæti
listans, með fjórðu breið-
skífuna sína, I Need You. Rimes var aðeins
þrettán ára þegar hún sló í gegn í heimi sveita-
tónlistarinnar með laginu „Blue“ árið 1996 og
síðan þá hefur stjarna hennar verið að rísa
hægt og bítandi; innlegg hennar í tónlistina við
hina vinsælu mynd Coyote Ugly vakti t.a.m. á
henni talsverða athygli. Hvort hún slær Twain
við að vinsældum með plötunni nýju skal þó
ósagt látið. Í bili a.m.k.
LISA EKDAHL er
sænsk söngkona
sem hefur hægt og
bítandi verið að ná
til eyrna fleiri tón-
listarunnenda utan
heimalandsins
undanfarið. Hún
hefur vægast sagt
sérstæða rödd,
háa og krúttlega
myndu einhverjir
segja. Tónlistin er
létt djassskotin og
auðmeltanlegur poppbræðingur. Þetta er
svona Volvopopp – byggt á traustum og örugg-
um grunni tónlistarmannsins Salvadore Poe,
sem á öll lög og texta á plötunni.
Lisa er frá Stokkhólmi og hefur fengist jöfnum
höndum við popp og djass. Poppið hefur hún
jafnan sungið á móðurmálinu en djassinn á
ensku, enda hefur hún tekið margan frægan
slagarann í gegnum árin. Hún hóf að gefa út
tónlist árið 1994 og átti smellinn „Vem Vet“.
Tveimur poppplötum og þremur djassplötum
síðar er hún nú mætt með þessa nýjustu plötu
sem virðist loksins ætla að skapa henni nafn
hér á landi.
Volvobræðingur!
!
"!
# #
"
$
%
&
'!
( &)
# *
#
& +
% (
"
% ,
"
" -.
'
!) !
#+
/
&
0.
12
/ %+3 &
4+
5
6 7
+
%
+84+ 9
:
/( %$
/+/
+ &
"
$
% &+
'!
$ 4<===
5 >
&
0.
11
,"
+ ?3+
4+
6
A B
-
, C66
,,
"8" -.
'
!) !
&
0.
1<
%
% &
2
D
2
<E
<1
2
1F
<G
<<
<
1
E2
1
G
2F
E
<G
1
D
<E
=
<
<H
=2
2I
2
G
<
<<
<
:
&
0.
/
%
%
3
:
3
"/'
;
"/'
:
3
#/6
#/6
#/6
:
#
%;
&
0.
:
3
:
% #/6
%
#/6
3
&
0.
"/'
A4(
J
) ; K
L
KM
4(
& N
+ %-
+( J
K
/
-KK;
K
O"( ?"(
?9 ? ;"
+
? ;5
? ; ?/P;
/
B
?/P; /
/(?%
(
5
?%;
5
?%;
1G
<
1
E
G
<2
1<
H
F
<1
<E
22
G=
D
<I
<G
=
<D
2=
2<
<H
1F
EF
<2F
STÚLKNATRÍÓIÐ Destiny’s Child
fór beina leið á topp breska smáskífu-
listans í vikunni með nýja lagið sitt
„Survivor“ en lagið situr í öðru sæti
bandaríska listans, aðra vikuna í röð.
Það eru annars miklar sviptingar á
breska listanum. Fimm ný lög á topp
tíu, þar af raða fjögur sér í efstu sæt-
in. Næst á eftir Destiny’s Child koma
Ronan Keating með „Lovin’ Each
Day“, bandaríska hliðstæða Hear’say
Liquid Dreams fer í þriðja með „O-
Town“ og Missy Elliott í fjórða með
„Get Ur Freak Out“. Það þýðir að
Madonna greyið verður að sætta sig
við að fara ekki hærra en í sjöunda
sætið með „What It Feels Like For A
Girl“. Stereophonics eru á toppi
breiðskífulistans aðra vikuna í röð en
hún Emma „Barnakrydd“ kemur
fersk inn í fjórða sætið.
Vestan hafs nær Janet Jackson að
halda í toppsætið með „All For You“
en spurning hvort Destiny’s Child
eða þá Dido nái að hrekja hana á
brott í næstu viku.
Destiny’s
Child beint
á toppinn
Vinsældalistar
Ljósmynd/Albert Watson
Destiny’s Child:
Stöndum þétt saman.
Svöl sveitatónlist!
Skógarlíf!