Morgunblaðið - 27.04.2001, Side 7

Morgunblaðið - 27.04.2001, Side 7
Laugardag kl.13-16 Á Bifröst búa, nema og starfa um 400 manns í krefjandi þekkingarsamfélagi í fögru umhverfi og stöðugri tengingu við umheiminn með fullkomnustu tækni sem völ er á. Þessi blanda gerir námið á Bifröst að einstakri lífsreynslu. Viðskiptaháskólinn á Bifröst vill veita hæfum einstaklingum sem búa yfir sköpunargleði, frumkvæði og samskiptahæfni tækifæri til að beina kröftum sínum og hæfileikum á svið viðskipta og rekstrar. Viðskiptaháskólinn stefnir að því að skapa nemendum sínum samkeppnisyfirburði á vinnumarkaði að námi loknu. Við inntöku nýrra nemenda leitast háskólinn við að veita jöfn tækifæri til náms, óháð kynferði, aldri, efnahag, fötlun eða búsetu og skapa þannig fjölbreyttan nemendahóp með ólíkan bakgrunn, menntun og reynslu. Laugardaginn 28. apríl verður nám, líf og starf í háskólaþorpinu kynnt. Umsækjendur, velunnarar háskólans og aðrir eru hvattir til að heimsækja háskólaþorpið Bifröst. Boðið verður upp á leiðsögn um svæðið. Allar deildir Viðskiptaháskólans verða með kynningu og bjóða umsækjendum og öðrum áhugasömum aðilum upp á viðtöl við rektor, aðstoðarrektor, kennara og deildarstjóra. Kynnt verður nám, námsefni, verkefnavinna í tengslum við atvinnulífið, möguleikar til framhaldsnáms og störf að námi loknu. • Nemendur kynna vinnslu verkefna, nám og störf á Bifröst. • Á Nemendagörðum Viðskiptaháskólans verða til sýnis íbúðir, herbergi og önnur aðstaða. • Í Upplýsingamiðstöð háskólans verður kynnt upplýsingaöflun og nýting gagnagrunna. • Líkamsræktarstöð og baðsvæði verða opin. • Leikskólinn Hraunborg sýnir aðstöðu og leikskólastjóri verður til viðtals. • Varmalandsskóli kynnir starfsemi grunn- skólans, skólastjóri verður til viðtals og tekur á móti umsóknum. • Kaffi Bifröst býður upp á frítt kaffi og vöfflur fyrir gesti og gangandi. • Skólafélag Viðskiptaháskólans kynnir starfsemi sína og hagsmunamál nemenda. Afgreiðsla umsókna hefst 15. maí og lýkur 15. júní. Þeir sem hyggja á nám við háskólann eru hvattir til að sækja um fyrir 15. maí nk. Allar nánari upplýsingar og umsóknareyðublað eru á vef Viðskiptaháskólans www.bifrost.is OPIÐ HÚS Á BIFRÖST f í t o n / s í a F I 0 0 2 3 4 8 Viðskiptaháskólinn Bifröst 311 Borgarnes Sími 433 3000 Fax 433 3001 bifrost@bifrost.is www.bifrost.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.